Strákurinn með sprengjuna

Ólík­inda­tólið Kim Jong-un hefur beitt ólýs­an­legri grimmd gagn­vart sínum nán­ustu, en reynir oft að vera blíður á myndum. Kristinn Haukur Guðnason, sagn­fræð­ingur, rýndi í upp­lýs­ingar um þennan her­skáa unga mann.

Hinn fram­úr­skar­andi leið­togi, ungi meist­ar­inn, hinn mikli arf­taki, hinn ungi hers­höfð­ingi og hinn afburð­ar­snjalli félagi. Þetta eru aðeins nokkur af þeim titlum og við­ur­nefnum sem Kim Jong-un, ein­ræð­is­herra Norður Kóreu getur prýtt sig af. Í dag­legu tali íbúa er hann þó yfir­leitt kall­aður Jong-un mar­skálkur. Í dag eru tæp­lega fimm ár síðan Jong-un tók við völdum. En hver er þessi ungi maður sem heim­ur­inn hlær að tauga­ó­styrkum hlátri?

Kim-veldið

Það er ekki vitað hvaða ár Kim Jong-un, sonur ein­ræð­is­herr­ans Kim Jong-il, er fæddur. Það er þó vitað að hann á afmæli þann 8. jan­úar, enda er það nú hátíð­ar­dagur í Norður Kóreu. Japanskt dag­blað full­yrti að hann væri fæddur árið 1982 en aðrir telja lík­legra að það sé árið 1983 eða 1984. Hvort sem er þá er Kim Jong-un yngsti þjóð­höfð­ingi heims því sá næst yngsti, Tamim bin Hamad Al Thani emír­inn af Qatar, er 36 ára. Það er ekki að furða að ýmis­legt sé á huldu varð­andi Kim Jong-un. Allt frá upp­hafi norður-kóreyska rík­is­ins hefur ríkt mikil leynd yfir fjöl­skyldu­málum leið­toga rík­is­ins en Jong-un er þriðji leið­tog­inn í 68 ára sögu þess.

Sá fyrsti var afi hans Kim Il-sung sem ríkti í 46 ár og er ennþá titl­aður sem leið­togi lands­ins, hinn eilífi leið­togi. Il-sung barð­ist með kín­verskum komm­ún­istum gegn Japönum í seinni heim­styrj­öld­inni og var gerður að leið­toga kóreyskra komm­ún­ista af Sov­ét­mönnum þegar hið nýja ríki Alþýðu­lýð­veldið Kórea var stofnað árið 1948. Tveimur árum síðar hóf hann stríð við nágrann­ana á suð­ur­hluta Kóreu­skag­ans og Banda­ríkja­menn sem kost­aði millj­ónir manna lífið. Alþýðu­lýð­veldið, sem er í dag­legu tali kallað Norður Kórea, naut mik­ils stuðn­ings Sov­ét­ríkj­anna á meðan þau lifðu. Því var efna­hagur lands­ins í sæmi­legu horfi mest alla stjórn­ar­tíð Kim Il-sung.

Kim Il-sung lést árið 1994 og þá tók sonur hans, Kim Jong-il, við stjórn­ar­taumunum. Stjórn­ar­tíð Jong-il hófst mjög erf­ið­lega þar sem Sov­ét­ríkin voru ekki lengur til staðar. Um miðjan tíunda ára­tug­inn reið mikil hung­ursneyð yfir landið og talið er að a.m.k. nokkur hund­ruð þús­und manns hafi lát­ist vegna hennar. Jong-il var kall­aður hinn kæri leið­togi sem gæti varla verið meira fjarri sann­leik­anum. Hann var mun harð­ari stjórn­andi en faðir sinn og hern­að­ar­sinn­aðri. Undir hans stjórn varð Norður Kórea kjarn­orku­veldi árið 2006.

Jarðvegurinn undirbúinn

Mikil leynd hvíldi yfir fjöl­skyldu­málum Kim Jong-il alla tíð. Það var vitað að hann ætti bæði eig­in­konur og hjá­konur og eitt­hvað af börnum en þeim var alger­lega haldið utan sviðs­ljóss­ins. Þegar Jong-il tók við völdum var strax farið að velta vöngum yfir hugs­an­legum arf­tökum hans og var þá sér­stak­lega litið til elsta sonar hans Kim Jong-nam. Jong-nam er fæddur árið 1971, sonur einnar hjá­konu Jong-il. Þær áætl­anir fuku þó út um glugg­ann árið 2001 þegar hann var hand­tek­inn á flug­velli í Japan. Jong-nam hafði reynt að kom­ast til lands­ins á fölsuðum skil­ríkjum og ástæðan var sú að hann ætl­aði að heim­sækja Dis­neyland í Tókýó. Þetta þótti mikil nið­ur­læg­ing fyrir Norður Kóreu og Kim fjöl­skyld­una. Jong-nam hefur búið í sjálf­skip­aðri útlegð í Macau og Singapúr síðan þá.

Þá var litið til Kim Jong-un, þriðja sonar ein­ræð­is­herr­ans, sem var á þeim tíma aðeins tán­ingur. Annar son­ur­inn, Kim Jong-chul fæddur 1981, þótti of linur og kven­legur til að stjórna að mati Jong-il. Jong-un, Jong-chul og yngri systir þeirra Kim Yo-jong, sem er lík­lega fædd árið 1987, höfðu dvalið mest allan tíunda ára­tug­inn í Sviss. Þar stund­uðu þau nám í skóla fyrir útlend­inga rétt utan við höf­uð­borg­ina Bern og bjuggu öll undir dul­nefnum. Kim Jong-un gekk undir nafn­inu Pak-un. Honum gekk illa í námi og tengd­ist bekkj­ar­systk­inum sínum lítið. Um alda­mótin 2000 sneri hann heim og gekk skömmu seinna í Kim Il-sung háskól­ann í Pyongyang þar sem talið er að hann hafi lært eðl­is­fræði. Einnig var hann um stund í Kim Il-sung her­skól­anum. Jong-un lauk námi í kringum 2007 og skömmu seinna er hann kynntur fyrir verð­andi eig­in­konu sinni, sön­k­on­unni Ri Sol-ju. Talið er að þau hafi verið gefin saman árið 2009.

Árið 2008 fór heilsu Kim Jong-il að hraka veru­lega og það sama ár fékk hann heila­blóð­fall. Þá hófst und­ir­bún­ingur að því að Kim Jong-un tæki við stjórn­ar­taumunum. Það var gert með því að koma honum í alls kyns stöður innan kerf­is­ins og þá sér­stak­lega hjá mik­il­væg­ustu stofnum lands­ins, hernum. Jong-un var sam­stundis gerður að hers­höfð­ingja en án nokk­urrar telj­andi reynslu af her­málum. Einnig fékk hann ýmsar stöður hjá Verka­manna­flokki Kóreu (þeim eina sem leyfður er í land­inu) og þing­inu. Kim Jong-il hafði áhyggjur af því að ein­hver annar en Jong-un gæti gert atlögu að leið­toga­stólnum að honum látnum. Þá hafði hann sér­stakar áhyggjur af mági sínum, Jang Sung-taek. Í upp­hafi árs 2011 voru um 200 manns innan flokks­ins annað hvort fang­els­aðir eða teknir af lífi. Margir af þeim voru tengdir Sung-taek en Jong-il ákvað að freista þess að Sung-taek styddi son sinn. Þann 17. des­em­ber sama ár dó Kim Jong-il og í örfáa daga ríkti nokkur óvissa um fram­haldið. Andlátið bar brátt að og sumir töldu að Jong-un væri ekki reiðu­bú­inn að taka við völdum. Það reynd­ist þó alrangt. Á aðfanga­dag tók Jong-un við stjórn hers­ins og á næstu dögum og vikum á eftir keppt­ust allar stofn­anir og fjöl­miðlar lands­ins við að sverja honum holl­ustu. Þessi 27-29 ára gamli maður var þar með orð­inn leið­togi kjarn­orku­veldis.

Ímyndin sköpuð

Aðeins skömmu áður en að Kim Jong-il lést fékk norður kóreyskur almenn­ingur að kynn­ast Kim Jong-un. Það var vita­skuld gert með hjálp áróð­urs­vél rík­is­ins. Kim Il-sung kom henni á fót á sjötta ára­tugnum og hefur hún eflst stöðugt síðan þá. Per­sónu­dýrk­unin er yfir­gengi­leg. Leið­togar lands­ins eru mál­aðir sem hálf­guð­legar verur og íbú­arnir eru stans­laust minntir á yfir­burði þeirra. Eftir rúm 60 ár af heila­þvotti var auð­velt fyrir áróð­urs­vél­ina að hæna þjóð­ina að hinum nýja leið­toga. Kim Jong-un tók áróð­urs og ímynd­ar­málin strax föstum tökum. Hann vissi vel að afi sinn Kim Il-sung var miklu vin­sælli heldur en faðir hans hafði verið því á tímum Il-sung svalt fólk ekki í hel. Il-sung var einnig mun jákvæð­ari, opn­ari og hlýrri per­sóna en sonur sinn út á við. Jong-un ákvað því að herma eftir afa sínum í útliti og í fasi. Mikið hefur verið hlegið á Vest­ur­löndum að hinni sér­stöku hár­greiðslu Jong-un. En þetta er nákvæm­lega sama klipp­ing og afi hans bar á sínum fyrstu valda­árum. Rétt eins og Il-sung þá er Jong-un nokkuð þybb­inn og and­lits­drætt­irnir þykja slá­andi líkir, svo líkir að sumir halda því fram að Jong-un hafi látið lýta­lækna breyta and­liti sínu. Kim Jong-un eyðir miklum tíma með almenn­ingi og er talið að systir hans Kim Yo-yong aðstoði hann við að nálg­ast fólkið. Hann talar við fólk, kemur inn á heim­ili þeirra, lætur mynda sig með því og heldur ræður bæði í sjón­varpi og á opin­berum stöðum. Meira að segja kom hann fram haltr­andi við staf eftir aðgerð á ökkla árið 2014. Þetta er algjör umturnun frá tíma Jong-il sem var mjög frá­hverfur almenn­ingi, stam­aði mikið, átti erfitt með að tjá sig og að tengj­ast fólki. Kim Jong-un passar einnig upp á að brosa mikið, rétt eins og afi sinn sem var oft kall­aður sól mann­kyns.

En Jong-un gerir sér full­kom­lega grein fyrir því að afi hans var ekki elsk­aður út á breiða brosið og þybbnu kinn­arnar. Aðgerðir þurfa að fylgja til að bæta efna­hag lands­ins og lífs­kjör almenn­ings. Utan Pyongyang býr stór hluti fólks enn við hung­ur­mörk. Skömmu eftir að Jong-un tók við völdum til­kynnti hann áform um umbætur í efna­hags og mark­aðs­málum þjóð­ar­bús­ins, t.a.m. í land­bún­aði. Þá leit hann helst til Kína og þeirra umbóta sem Deng Xiaoping kom í gegn þar í landi á níunda ára­tugnum. Þar til nú hefur grund­völlur Norður Kóreu rík­is­ins ávallt verið stefna sem nefnd er Juche. Það er eins konar blanda af hefð­bundnum komm­ún­isma og sjálfs­þurft­ar­stefnu sem heima­menn segja að sé sér-kóreysk. Kim Jong-un er hins vegar fyrsti leið­togi lands­ins til að horfa til út fyrir lands­stein­ana. Hann horfir ekki ein­ungis til Kína heldur hefur hann fengið tölu­vert af erlendum hag­fræði­ráð­gjöfum til lands­ins og hleypt mörgum af eigin þegnum úr landi til náms. Jong-un þykir einnig nútíma­legri en fyrri leið­togar. Hann hefur látið byggja skemmti­garða, skíða­svæði og fleiri staði til afþrey­ingar (ein­ungis fyrir efnað fólk frá Pyonyang samt).

Eig­in­kona Jong-un fylgir honum iðu­lega í opin­berum heim­sóknum og hún er yfir­leitt klædd í tísku­fatnað sem er hvoru tveggja mjög óvenju­legt í Norður Kóreu. Frá barns­aldri hefur Jong-un verið mik­ill áhuga­maður um körfu­bolta og hann komst í kynni við fyrrum NBA stjörn­una Dennis Rodman. Árið 2013 heim­sótti Rodman Norður Kóreu ásamt Kenny Anderson, Vin Baker og fleiri gömlum NBA kempum og spil­uðu þeir sýn­inga­leiki þar í landi. Það var Dennis Rodman sem stað­festi þann orðróm að Kim Jong-un og kona hans hefðu eign­ast dóttur árið 2012. Árið 2015 var svo vest­rænni hljóm­sveit leyft að spila í land­inu í fyrsta sinn, þ.e. sló­vensku þung­arokks­hljóm­sveit­inni Laibach. Allt þetta hefði verið óhugs­andi á tíma Jong-il. Á vest­rænan mæli­kvarða eru þetta hænu­skref en fyrir land sem hefur verið staðnað í meira en hálfa öld eru þetta tölu­vert mikil umskipti.

Hreinsanir og hótanir

Norður Kórea er líkt og svo mörg komm­ún­ista­ríki sein­ustu aldar byggt á tor­tryggni og jafn­vel væn­i­sýki. Reglu­lega hafa verið gerðar hreins­anir á öllum þeim sem for­ingj­arnir hafa ekki treyst 100% og valda­tíð Kim Jong-un er þar engin und­an­tekn­ing. Eftir að hann tók við stjórn hers­ins hefur hann kerf­is­bundið komið æðstu her­for­ingj­unum frá og senni­lega hafa þeir verið teknir af lífi. Í dag eru nán­ast engir her­for­ingjar eftir sem þjón­uðu föður hans. Einn af þessum her­for­ingjum var áður­nefndur Jang Sung-taek, eig­in­maður föð­ur­systur hans og næst­ráð­andi í rík­inu. Yfir­leitt fara hreins­anir Norður Kóreu­manna fram í kyrr­þey en Sung-taek var ákærður opin­ber­lega fyrir til­raun til valda­ráns. Hann var dæmdur til dauða og leiddur fyrir aftöku­sveit þann 12. des­em­ber árið 2013. Fjöldi skyld­menna Sung-taek sem m.a. gengdu stöðum her­for­ingja og sendi­herra voru einnig tekin af lífi um sama leyti. Í stað þeirra sem lent hafa í hreins­un­unum hefur Jong-un komið fyrir sínum eigin banda­mönnum.

Það sem vekur hvað mesta eft­ir­tekt og ugg hjá alþjóða­sam­fé­lag­inu er hversu her­skár hinn ungi leið­togi er. Hann virð­ist mun fjand­sam­legri og viljugri til hern­arð­að­gerða gegn óvina­ríkjum Norður Kóreu (Suður Kóreu, Japan og Banda­ríkj­unum) en faðir hans var. Þegar Kóreu­stríð­inu milli norð­urs og suð­urs lauk árið 1953 var samið um vopna­hlé en aldrei frið. Því mynd­að­ist svæði milli ríkj­anna sem kallað er óvopn­aða svæðið en lík­lega eru hvergi á jarð­kringl­unni meiri vopn og einmitt þar. Kim Jong-un heim­sækir her­stöðvar sínar á svæð­inu reglu­lega. Þaðan er auð­veld­lega hægt að skjóta á Seoul, höf­uð­borg Suður Kóreu sem er aðeins nokkrum kíló­metrum sunnan við óvopn­aða svæðið. Í Seoul og nágrenni búa um 25 milljón manns, fleiri en í allri Norður Kóreu sam­an­lagt. Jong-un hefur haldið fast við stefnu föður síns, her­inn fyrst. Her­æf­ingar hafa auk­ist til muna og vopnin verið end­ur­nýjuð. Í norður kóreyska hernum eru um 1 milljón fasta­menn sem gera um 4% af íbúum lands­ins, bæði karlar og konur. Auk þess eru um 6 millj­ónir í vara­lið­inu sem hægt er að kalla til með litlum fyr­ir­vara. Hlut­falls­lega er Norður Kórea því lang víg­væddasta ríki jarðar. Kim Jong-un hefur ekki aðeins aukið á víg­bún­að­inn í hinum ver­ald­lega skiln­ingi. Hin svo­kall­aða Deild 121 innan hers­ins sinnir tölvu­árásum. Hún var stofnuð árið 1998 en hefur eflst til muna undir stjórn Jong-un. Deild 121 hefur á und­an­förnum árum ítrekað ráð­ist á suður kóreyskar rík­is­stofn­anir, banka og fjöl­miðla­fyr­ir­tæki.

Kjarn­orku­váin er aftur á móti það sem umheim­ur­inn hefur lang­mestar áhyggjur af þegar kemur að norður kóreyskum víg­bún­aði. Kim Jong-un hefur haldið kjarn­orku­á­ætlun föður síns áfram þrátt fyrir for­dæm­ingu heims­ins. Þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn sprengdu Norður Kóreu­menn sína stærstu til­rauna­sprengju til þessa, í norð­aust­ur­hluta lands­ins. Áhyggj­urnar eru ekki ein­ungis bundnar við það að þeir noti vopnin sjálfir, heldur einnig við það að þeir selji vopnin og tækn­ina til ann­arra ríkja eða hryðju­verka­sam­taka. Sumir hafa þó bent á að hern­að­ar­máttur og kjarn­orkuógn Norður Kóreu­manna sé ein­ungis tæki til þess að lifa af og hættan á raun­veru­legri árás sé minni­háttar. Reglu­lega koma fyrir atburðir þar sem Norður Kóreu­menn minna á sig. Þeir vilja ekki láta taka sér sem sjálf­sögðum hlut og þeir vilja að heim­ur­inn sé svo­lítið hræddur við þá eða a.m.k. standi ekki á sama. Ógnin er því horn­steinn­inn í bæði utan­ríkis og inn­an­rík­is­stefnu lands­ins og þessi ógn hefur við­haldið Kim veld­inu í næstum 70 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár