Snúa þarf vörn í sókn á Vestfjörðum

Nefnd sem for­sæt­is­ráð­herra skip­aði í júní um mál­efni Vest­fjarða leggur til að inn­viða­fjár­fest­ingar verði auknar til muna í lands­hlut­anum.

Í nið­ur­stöðukafla skýrslu nefndar, sem skipuð var 31. júní af Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra, kemur fram að skortur á sterkum innviðum hafi „staðið fjöl­breyttum atvinnu­tæki­færum fyrir þrifum á Vest­fjörðum og þar sem nútíma­sam­skipta­tækni skorti sé lands­hlut­inn í verri sam­keppn­is­stöðu til að laða að yngra fólk til búsetu.“

Telur nefndin að snúa þurfa vörn í sókn þegar kemur að sam­göngum og inn­viða­fjár­fest­ingum. Með því sé hægt að und­ir­byggja betur efn­hags­legar aðgerðir og tryggja betri aðstöðu fyrir fyr­ir­tæki, stofn­anir og fjöl­breytt­ara mann­líf.

Heimamenn gaumgæfðu stöðuna

Í nefnd­ina voru skipuð Ágúst Bjarni Garð­ars­son, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, sem jafn­framt var for­maður, Daníel Jak­obs­son, full­trúi norð­an­verðra Vest­fjarða, Valgeir Ægir Ing­ólfs­son, full­trúi sunn­an­verðra Vest­fjarða, Aðal­björg Ósk­ars­dóttir, full­trúi Stranda og Reyk­hóla­hrepps og Hanna Dóra Hólm Más­dóttir, sér­fræð­ingur í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem jafn­framt var starfs­maður nefnd­ar­innar. Með nefnd­inni störf­uðu einnig Aðal­steinn Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Fjórð­ungs­sam­bands Vest­fjarða, Pétur G. Markan, for­maður Fjórð­ungs­sam­bands Vest­fjarða auk þess sem nefndin kall­aði Shiran K. Þórisson, fram­kvæmda­stjóra Atvinnu­þró­un­ar­fé­lags Vest­fjarða inn á ein­staka fundi nefnd­ar­innar.

Áhersla er lögð á það í skýrsl­unni að Alþingi tryggi fjár­mögnun í inn­viða­fjár­fest­inga. Þar undir eru sam­göngur og fjar­skipti, og orku­mál einnig. Sérstök áhersla er lögð á að efl­ing sam­ganga geti rutt hindr­unum úr vegi, og búið til svæði sem auki mögu­leika atvinnu­sókn og fjöl­breyttri starf­semi. „Tryggja þurfi í fjár­lögum næstu ára að lögð verði áhersla á efl­ingu inn­viða á Vest­fjörðum á sviði orku, sam­gangna og fjar­skipta. Styttri vega­lengdir milli byggða­kjarna og örugg­ari vegir skapi mögu­leika til mót­unar stærri og líf­væn­legri atvinnu- og búsetu­svæða. Öryggi í orku­málum, bættar sam­göngur og bætt fjar­skipti ásamt fram­boði á góðri menntun og tryggri heil­brigð­is­þjón­ustu séu allt þættir sem veita fólki á öllum aldri öryggi og bæti búsetu­skil­yrði. Þættir sem þyki hluti af sjálf­sögðum lífs­gæðum í nútíma­sam­fé­lögum verði að vera til staðar á Vest­fjörðum eigi atvinnu­líf og sam­fé­lag þar að geta dafnað,“ segir meðal ann­ars í útdrætti skýrsl­unnar.

Fjórir meginþættir

Í skýrsl­unni er sér­stak­lega vikið fjórum meg­in­mark­miðum, sem eru að fjölga íbúum, fjölga störfum, nýta betur tæki­færi sem eru fyrir hendi og treysta byggð með efl­ingu inn­viða. Segja má að þetta séu sam­verk­andi þættir sem nefndin telur að verði best leiddir fram með auknum inn­viða­fjár­fest­ingum.

Íbúum á Vest­fjörðum hefur fækkað um langt skeið og eru upp­lýs­ingar um þá þróun dregnar saman í skýrsl­unni. Ákveðin við­snún­ingur varð á átt­unda ára­tugnum og fram undir miðjan níunda ára­tug­inn, en síðan þá hefur íbúum fækkað á hverju ári. Þann 1. jan­úar 2016 voru íbúar 6883 tals­ins, 1. jan­úar 2008 voru þeir 7238 og 1. jan­úar, 1998, 8556 tals­ins. Fækkun er í öllum ald­urs­hópum frá 0-50 ára en fjölgun í þeim eldri.

Íbúar af erlendum upp­runa nema um tíu pró­sent mann­fjöld­ans á svæð­inu. Sjáv­ar­út­vegur er langöflug­asta atvinnu­greinin með um 59 pró­sent tekju­mynd­unar (við­mið 2014) og launa­greiðslna, segir í skýrsl­unni. „Aðrar atvinnu­greinar sækja á og er mestur vöxtur í fisk­eldi. Sá vöxtur er marg­faldur miðað við aðrar atvinnu­greinar en þar á eftir kemur vöxtur í ferða­þjón­ustu. Veru­legur sam­dráttur er í bygg­ing­ar­starf­semi og fast­eigna­við­skiptum[...] Þegar allt þetta er talið saman er rík ástæða til að hafa áhyggjur af fram­tíð sam­fé­lags- og atvinnu­mála á Vest­fjörðum,“ segir í skýrsl­unni.

Verkin verði látin tala

Nefndin er sam­hljóma í sinni nið­ur­stöðu, og leggur til í aðgerða­á­ætlun að hið opin­bera láti verkin tala. Hið aug­ljósa sé það að þörf sé á upp­bygg­ingu inn­viða á Vest­fjörðum, og það þoli enga bið koma málum í átt til fram­kvæmda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár