Sigmundur Davíð segir fjölmiðla snúa út úr

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að umfjöllun fjöl­miðla um inn­brot í tölvu hans sé í senn „kostu­leg og lýsandi fyrir nútíma umræðu um stjórn­mál.“

Það sé snúið út úr auka­at­riðum til þess að reyna að gera hann ótrú­verð­ugan, og hann nefnir sér­stak­lega frétt RÚV þar sem talað er við tölvu­ör­ygg­is­sér­fræð­ing sem segir að málið sé í lík­ingu við vís­inda­skáld­sögu.

Sig­mundur vísar í við­tal sem hann fór í í Reykja­vík síð­degis í gær og segir að heyra megi „hvernig málið er raun­veru­lega vaxið“ í því við­tali. Líkt og Kjarninn greindi frá í morgun segir Sig­mundur Davíð þar að sann­reynt hafi verið að brot­ist hafi verið inn í tölvu hans.

„Já.

Mér­ barst póstur sem var lát­inn líta út fyrir að vera frá manni sem ég þekki, sem hafði svo ekki sent póst­inn og í ljós kom að við­hengið sem í honum var var svona njósn­a­for­rit til að fara inn í tölvu. Þetta kom í ljós eftir að ég hafði látið tækni­menn í ráðu­neyt­inu eða rekstr­ar­fé­lagi stjórn­ar­ráðs­ins til að ­skoða tölv­una en það var ekk­ert auð­vitað hægt að átta sig á því hversu miklum upp­lýs­ingum við­kom­andi hefði náð. Þeir ­sögðu mér bara að það eina örugga fyrst að þetta væri svona væri að skipta um harða diskinn í tölv­unn­i.“

Þá var hann spurður á ný hvort þetta hafi verið stað­fest af „manni í ráðu­neyt­inu“ og svar­aði aftur ját­andi. „Þessir tækni­menn sem skoð­uðu þetta fyrir mig sögðu að þetta væri ein­hvers konar vírus eða for­rit af þess­ari gerð, það var hins vegar ekki hægt að sjá hversu mikið það hefði virk­að.“

Þá var hann spurður hvort hann hefði ekki til­kynnt málið til lög­reglu. „Nei ég gerði það nú ekki enda sko er maður ýmsu vanur úr þessu í póli­tík­inni og hafði fengið þau ráð, ekki bara út af þessum stóru málum sem við var að eiga á þessum tíma heldur bara al­mennt að við ættum að gera ráð fyrir því ráð­herrar og ­jafn­vel þing­menn almennt, að allt sem við settum í tölvu­póst­ væri les­ið.“

Rekstr­ar­fé­lagið segir engin ummerki um inn­brot

Fram­kvæmda­stjóri Rekstr­ar­fé­lags stjórn­ar­ráðs­ins stað­festi það hins vegar í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í gær að engin stað­fest ummerki um inn­brot hefðu fund­ist í tölvu Sig­mundar Dav­íðs við skoð­un. Rekstr­ar­fé­lagið hefur umsjón með stað­ar­neti Stjórn­ar­ráðs­ins og undir það fellur tölva for­sæt­is­ráð­herra. Þann 1.apríl 2016 barst félag­inu beiðni frá for­­sæt­is­ráð­herra um að skoða tölvu ráð­herra vegna rök­studds gruns hans um mög­u­­legt inn­­brot. Við ítar­­lega leit fund­ust ekki stað­­fest ummerki að inn­­brot hafi átt sér stað,“ segir í svari Guð­­mundar Hall­­dórs Kjærne­­sted, fram­­kvæmda­­stjóra rekstr­­ar­­fé­lags­ins, við fyr­ir­­spurn Kjarn­ans.

Fyrr í gær hafði Vísir greint frá því að inn­­brot í tölvu for­­sæt­is­ráð­herra hefði ekki verið til­­kynnt til rík­­is­lög­­reglu­­stjóra, sem fer með brot gegn stjórn­­­­­skipan rík­­­is­ins og æðstu stjórn­­­völdum þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár