Þingmaður segir samskiptin rót vandans hjá Pírötum

Ásta Guðrún Helgadóttir er þingmaður Pírata og verður í efsta sæti framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Ásta Guðrún Helga­dóttir er þing­maður Pírata og verður í efsta sæti fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, segir próf­kjör flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og ásak­anir flokks­manna á hendur Birgittu Jóns­dóttur helg­ast af sam­skipta­bresti. Ásta Guðrún var gestur Helga Seljan í Viku­lok­unum á Rás 1 í dag.

Birgitta er sögð hafa hringt í áhrifa­fólk í Pírötum á Norð­vest­ur­landi eftir að úrslit í fyrra próf­kjör­inu þar voru ljós og kraf­ist þess að Gunnari Ingiberg Guð­mynds­syni yrði komið í fyrsta eða annað sætið á fram­boðs­list­anum. Úrslit pró­kjörs­ins voru síðar kærð vegna ásak­ana um smölun til fylgis við ákveðna fram­bjóð­endur. Kæran hafði hins vegar engin áhrif vegna þess að hún átti ekki við. Úrslit­unum var þá hafnað í stað­fest­ing­ar­kosn­ingu og nýtt próf­kjör haldið.

Birgitta hefur þver­tekið fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á úrslit próf­kjörs­ins eða skipað fram­bjóð­endum að víkja fyrir Gunnari Ingiberg. Ágúst Smári Beaumont, sem situr í kjör­dæma­ráði Pírata í kjör­dæm­inu, segir í sam­tali við Frétta­tím­ann að Birgitta hafi hringt í sig og lýst yfir óánægju sinni með list­ann. „[...] og sagði meðal ann­ars að hún þekkti ekk­ert þennan Þórð,“ er haft eftir honum. „Kjarni sam­tals­ins var sá að hún sigar mér bein­línis í það verk­efni að fá aðra fram­bjóð­endur til að færa sig neðar svo það væri hægt að koma Gunnar Ingiberg Guð­munds­syni í hærra sæti á list­anum.“

Ásta Guðrún segir Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi ein­fald­lega hafa mis­skilið Birgittu. Þetta séu sam­skipta­vanda­mál. „Birgitta er stór fígúra í Pírötum,“ sagði Ásta Guðrún í Viku­lok­unum. Fólk hafi túlkað það þannig að hún mæli lög. „Hún hefur hins vegar ekk­ert vald­boð. Þetta er brestur á því hvernig við tölum við hvort annað og á hvaða for­sendum.“

Ásta Guðrún við­ur­kennir að þessi próf­kjör í Norð­vest­ur­kjör­dæmi hjá Pírötum hafi klúður. Hún vonar að fólk innan flokks­ins geti sæst og kom­ist yfir þetta. „Við verðum að gefa okkur tæki­færi til að anda og læra af mis­stök­unum,“ sagði hún.

Sam­skipta­vanda­mál hafa áður komið upp í Pírötum. Í febr­úar kall­aði þing­flokk­ur­inn, sem skiptaður er Ástu Guðrúnu, Birgittu og Helga Hrafni Gunn­ars­syni, til vinnu­stað­arsál­fræð­ing til að leysa úr sam­skipta­örð­ug­leikum á milli þeirra. Í yfir­lýs­ingu sem var send út við þetta til­efni sagði að álagið á þessa fáu kjörnu full­trúa flokks­ins hafi marg­fald­ast sam­hliða því að flokk­ur­inn hafi vaxið og dafnað. Í febr­úar mæld­ist fylgi Pírata um og yfir 40 pró­sent og var hann þá langstærsti flokk­ur­inn í skoð­ana­könn­unum.

Uppfært kl. 16:16 – Rang­hermt var að kæra á úrslit fyrra próf­kjörs­ins hafi orðið til þess að kosið var að nýju. Hið rétta er að kæran hafði engin áhrif. Hins vegar var úrslitum próf­kjörs­ins hafnað í svo­kall­aðri stað­fest­ing­ar­kosn­ingu. Beðist er vel­virð­ingar á þessum mis­tökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár