Staðreyndavaktin hefur göngu sína á Kjarnanum

Stað­reynda­vaktin mun sann­reyna full­yrð­ingar stjórn­mála­manna og fer í loftið innan tíðar. Einnig mun Kjarninn birta svör stað­reynda­vaktar Vís­inda­vefs Háskóla Íslands.

Stað­reynda­vaktin er nýr liður á vef Kjarnans, sem hefur göngu sína innan tíðar. Á stað­reynda­vakt­inni verða full­yrð­ingar stjórn­mála­manna skoð­aðar og sann­leiks­gildi þeirra kannað, en slíkt form frétta­skýr­inga er að ryðja sér til rúms víða um heim.

Rit­stjórn Kjarnans mun fylgj­ast með ummælum sem látin eru falla og les­endur eru sér­stak­lega hvattir til þess að senda rit­stjórn ábend­ingar um efni sem þeir vilja láta kanna. Birtar verða frétta­skýr­ingar þar sem full­yrð­ingar og ummæli verða skoðuð og greind. Hægt er að senda ábend­ingar á net­fangið stadreyndavaktin@kjarninn.is.

Stað­reynda­vaktin mun not­ast við fimm stiga ein­kunna­kvarða til þess að meta sann­leiks­gildi. Full­yrð­ingar sem teknar verða til skoð­unar munu fá eina af eft­ir­far­andi fimm ein­kunnum:

[adspot]

Samstarf við Vísindavefinn

Kjarninn og Vís­inda­vefur Háskóla Íslands munu einnig eiga með sér sam­starf í stað­reynda­vöktun, en Vís­inda­vef­ur­inn hefur stofnað sína eigin stað­reynda­vakt nú í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga, og verða svör frá sér­fræð­ingum Vís­inda­vefs­ins birt bæði þar og á vef Kjarnans. Ein­kunna­kvarði Kjarnans verður ekki not­aður af Vís­inda­vefnum.

Vís­inda­vef­ur­inn verður sér­stak­lega á vakt­inni hvað varðar spurn­ingar sem gætu vaknað í tengslum við kosn­inga­bar­áttu flokk­anna fyrir þing­kosn­ing­arnar í lok októ­ber.

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, og Jón Gunnar Þor­steins­son, rit­stjóri Vís­inda­vefs­ins, munu sjá um fag­lega rit­stjórn svar­anna frá Vís­inda­vefnum.

Hægt er að senda inn spurn­ingar á for­síðu Vís­inda­vefs­ins, þar sem sjá má grænan hnapp sem á stendur Senda inn spurn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár