Aðeins þrír bjóða sig fram hjá Samfylkingu í Norðvesturkjördæmi

Ekki verður hægt að kjósa um fjögur efstu sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi eins og til stóð að gera í lok­uðu flokksvali. Ástæðan er sú að það buðu sig bara fram þrír ein­stak­lingar í próf­kjör­inu. Bæjarins besta á Ísafirði greindi frá þessu.

Í sam­tali við Kjarnann segir Geir Guð­jóns­son, for­maður kjör­stjórnar, að fleiri hafi boðið sig fram í próf­kjör­inu, í þriðja og fjórða sæti list­ans. Hann hafi verið þar á meðal. Hins vegar hafi verið tekin ákvörðun um að minnka próf­kjörið, enda fylgi tölu­verður kostn­aður þátt­töku í próf­kjöri í svo stóru kjör­dæmi, og ljóst hefði verið að þann kostnað þurfi að greiða þann kostnað sjálfir. Því hafi aðrir fram­bjóð­endur dregið sig til baka og ákveðið hafi verið að stilla upp á list­ann frá og með þriðja sæti.

Ólína Þor­varð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæm­inu, býður sig fram til að leiða list­ann. Hún var í öðru sæti fyrir síð­ustu kosn­ingar en kom inn á þing þegar Guð­bjartur Hann­es­son, sem leiddi list­ann, lést. Guðjón Brjáns­son og Inga Björk Bjarna­dóttir sækj­ast einnig eftir því að leiða list­ann.

Flokksvalið á að fara fram 8.-10. sept­em­ber næst­kom­andi og til stóð að kosn­ing í fyrstu fjögur sætin yrði bind­andi og jafn­ræði kynja yrði gætt með para­lista. Þar sem aðeins þrír buðu sig fram á end­anum verður ekki hægt að kjósa um fjögur sæti, heldur verður þess í stað bind­andi kosn­ing um efstu tvö sætin.

Sam­fylk­ingin heldur einnig próf­kjör í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og Suð­vest­ur­kjör­dæmi á sama tíma. Ekki er búið að loka fyrir fram­boðs­frest í þeim kjör­dæmum. 

Inn í frétt­ina hefur verið bætt upp­lýs­ingum frá Geir Guð­jóns­syni, for­manni kjör­stjórnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár