Eldskírn bifreiðarinnar - Kappaksturinn frá Peking til Parísar

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur rýndi í magn­aða kappakst­urs­sögu.

Í upp­hafi sein­ustu aldar tóku nokkrir ofur­hugar þátt í kappakstri þvert yfir allt meg­in­land Evrasíu. Þetta gerðu þeir á bílum sem bil­uðu sífellt og voru álíka kraft­miklir og utan­borðs­mót­orar eru í dag. Þeir kynnt­ust óvægnu lands­lagi og veðri, slæmu eða engu vega­kerfi og svo öðrum ófyr­ir­séðum upp­á­komum á leið sinni. Þetta var próf­steinn á hina nýju upp­finn­ingu – bíl­inn.

Hver þorir?

Í jan­úar árið 1907 birt­ist eft­ir­far­andi til­laga eða áskorun í frönsku dag­blaði sem nefnd­ist Le Matin.[ http://www.unmuseum.org/autorace.htm]

Við beinum þess­arar spurn­ingar til bíla­fram­leið­anda í Frakk­landi og erlendis: Er ein­hver sem vill taka það að sér að ferð­ast nú í sumar frá París til Peking í bif­reið? Hver sem hann er, sá sterki og áræðni maður, sem tugir þjóða munu fylgj­ast með á sínum glæsi­lega bíl, hann mun verð­skulda það að verða þekkt nafn í öllum fjórð­ungum jarð­ar­innar.

Þetta þótti áskorun í lagi þar sem bílar höfðu ein­ungis verið til í um 20 ár og voru langt því frá almenn­ings­eign. Fyrsta sjálfrenni­reiðin, Benz Patent-Motorwagen, var smíðuð í Þýska­landi árið 1886 en fyrsti bíl­inn sem almenn­ingur hafði ráð á að kaupa, hinn amer­íski Ford Model T, var ekki smíð­aður fyrr en ári eftir hina umræddu frönsku áskorun. Á fyrstu ára­tugum bif­reið­anna urðu miklar fram­farir í hönnun og fram­leið­endur próf­uðu sig áfram með ýmsa hluti en engu að síður var nota­gildið frekar tak­markað. Kraft­ur­inn var lít­ill, end­ingin slæm, bil­ana­tíðnin há og veg­irnir ekki hann­aðir fyrir slíkar nýj­ungar. Fólk leit jafn­vel á bif­reiðar sem nokk­urs konar brellu eða leik­föng sem myndu aldrei taka við af hest­inum og gufu­lest­inni sem hent­ug­asti ferða­mát­inn. En smám saman byggð­ist upp spenna og eft­ir­vænt­ing hjá mörgum. Hvers er bif­reiðin megnug?

Fjórir bíla­fram­leið­endur svör­uðu kall­inu og var ákveðið að 5 bílar myndu keppa í júní þetta sama ár. For­svars­menn Le Matin ákváðu snemma að hafa sem fæstar reglur. Það eina sem kepp­endur þurftu að gera var að kom­ast milli borg­anna tveggja á bif­reið sinni. Bein flug­lína milli borg­anna eru rúm­lega 8200 km, en kepp­endur höfðu sett upp elds­neyt­is­stöðvar víðs vegar norðan við hana. Þannig að vega­lengd kepp­enda var í raun mun nær 15.000 km. Það var einnig ákveðið að snúa keppn­inni við, þ.e. að hún myndi hefj­ast í Pekíng og enda í París. Þetta var gert af veð­ur­fræði­legum ástæðum, til að sleppa við monsún rign­ing­arnar í Asíu. Leiðin var nógu erfið fyrir, sér­stak­lega yfir svæði í Síberíu þar sem fólk hafði aldrei séð bíl, hvað þá byggt vegi fyrir þá. Ljóst var að keppnin yrði mik­ill próf­steinn á bíl­ana þar sem keyrt yrði utan vegar í alls kyns lands­lagi, s.s. fjall­lendi, eyði­mörkum og skóg­lendi. Eitthvað var um stíga en þeir voru margir hverjir þröngir og oft blautir.

Kepp­endur voru eft­ir­far­andi:

Auguste Pons Frakki sem keppti fyrir franska fram­leið­and­ann Contal. Fyr­ir­tækið var skamm­líft og fram­leiddi aðal­lega bíla á þremur hjólum. Bíllinn sem Pons keyrði var með einu aft­ur­hjóli.

Scipione Borghese Ítalskur aðals­maður (titl­aður prins) og ævin­týra­maður frá Flórens í Toscana hér­aði. Keppti fyrir ítalska fram­leið­and­ann Itala sem sam­ein­að­ist Fiat á fjórða ára­tugnum.

Charles Godard Franskur ævin­týra­maður og knapi sem keppti fyrir hol­lenska fram­leið­and­ann Spyker. Godard hafði oft kom­ist í kast við lögin fyrir fjár­glæfra­starf­semi og nokkrum sinnum setið inni.

Georges Cormier Fyrrum her­maður og kappakst­urs­maður frá Frakk­landi. Hann keyrði annan bíl franska fram­leið­and­ans De Dion sem var leið­andi á heims­vísu á þessum tíma.

Victor Collignon Frakki sem keppti einnig fyrir De Dion, á nákvæm­lega eins bíl og Cormier.

Í öllum bíl­unum voru far­þegar (í þeim ítalska tveir), annað hvort bif­véla­virkjar eða frétta­menn sem sendu reglu­lega út fréttir af gengi liðs­ins. Bílarnir voru mjög mis­vel hann­aðir og búnir fyrir keppn­ina. Itala bíll prins­ins var sá lang­kröft­ug­asti með 40 hest­afla og fjög­urra sílindra vél. En hann var einnig sá þyngsti og vó um 2 tonn. Þar á eftir kom hinn 15 hest­afla Spyker bíll Godards. Fyr­ir­fram var talið að keppnin myndi standa milli þeirra tveggja. De Dion bíl­arnir voru 10 hest­afla en Contal þrí­hjólið ein­ungis 6 hest­afla. Það var þó lang léttasta far­ar­tækið, ein­ungis 700 kg.

Hægt af stað

Vitað var að keppnin yrði erfið og örð­ug­leik­arnir hófust strax áður en keppnin hófst við franska sendi­ráðið í Pekíng. Sér­stak­lega átti þetta við Charles Godard sem var algjör­lega van­bú­inn til keppn­innar. Hann var blankur og þurfti að selja mest alla vara­hlut­ina úr bílnum til þess eins að koma sér til Pekíng, en sigldi reyndar á fyrsta far­rými. Þegar hann kom til Pekíng þurfti hann að betla fé út úr hol­lenska sendi­ráð­inu. Eitthvað virð­ist skipu­lagn­ing keppn­is­hald­ara einnig hafa farið úr bönd­unum. Tvívegis var keppn­inni frestað og þegar loksa var flautað til leiks neit­uðu yfir­völd í Kína að veita kepp­endum vega­bréfs­á­rit­anir til Mongólíu. Kepp­end­urnir ákváðu þó allir að halda af stað án papp­ír­anna þann 10. júní. Fjöldi fólks hafði safn­ast saman til að kveðja kepp­endur. Frönsk her­lúðra­sveit spil­aði og kín­verjar voru sprengdir til heið­urs öku­þór­unum er þeir óku út úr borg­inni.

Vanda­málin voru ekki ein­ungis bundin við fjár­mögnun og skipu­lagn­ingu. Mikil rign­ing hófst strax og þeir komu út úr Pekíng og veg­ur­inn breytt­ist í drullu­svað. Fyrsti hluti leið­ar­innar var norður, yfir fjöll og yfir á mongólsku slétt­urnar. Vegirnir voru þröngir og lélegir og sums staðar bein­línis hættu­legir þar sem þver­hnípt var niður hlíðar eða ofan í gil. Vélarnar í bíl­unum réðu oft ein­fald­lega ekki við þessar aðstæður og því var gripið til þess ráðs að draga bíl­ana upp hlíð­arnar, annað hvort með múlösnum eða mann­afli. Borghese prins á hinum þunga og breiða Itala bíl átti í sér­stak­lega miklum erf­ið­leikum þessa leið. Í eitt skipti mun­aði litlu að illa færi þegar brems­urnar gáfu sig á leið­inni niður fjalls­hlíð. Contal bíll­inn bif­að­ist varla á tíma­bili og því fékk hann að geyma nauð­syn­legan far­angur (og þyngd) í öðrum bílum. Ferðin yfir fjöllin tók alls 5 daga, mun lengur en með hefð­bundnum ferða­mátum s.s. hest­vögnum.

Bjargað af hirðingjum

Þegar komið var út á hina víð­áttu­miklu Gobi eyði­mörk í Mongólíu tóku önnur vanda­mál við. Pons á Contal bílnum varð elds­neyt­is­laus og hann og félagi hans þurftu að freista þess að ganga til byggða og skilja bíl­inn eftir. Þeir voru næstum dánir úr hita og þorsta þegar hirð­ingjar fundu þá og björg­uðu þeim. Þeir ákváðu að halda ekki áfram keppni. Nokkru seinna varð Spyker bíll Godards einnig bens­ín­laus. Hann fékk smá­ræði lánað hjá De Dion lið­unum en það dugði skammt. Godard og félagi hans biðu í tvo daga í eyði­mörk­inni eftir hjálp. Þeir áttu ein­ungis 2 lítra af vatni, örlítið súkkulaði, maðk­aðan kjúkling og annað lít­il­ræði. Eftir að þeir gripu til þess ráðs að drekka vatnið af bílnum ákvað Godard að reyna að finna hjálp sem hann og gerði. Godard hitti fyrir hirð­ingja sem drógu bíl­inn með úlföldum og komu honum að næsta þorpi. Spyker bíll­inn náði svo hinum bíl­unum skömmu seinna. Hitinn á eyði­mörk­inni var geig­væn­legur og vél­arnar þoldu hann illa. Kepp­end­urnir þurftu að hella eigin drykkj­ar­vatni á vél­arnar til að kæla þær. En í eyði­mörk­inni kom samt einn helsti kostur bif­reið­ar­innar fram, hrað­inn. Á slétt­unum komust bíl­arnir mjög hratt yfir, sér­stak­lega hinn öfl­ugi Itala bíll. Hann komst yfir eyði­mörk­ina á fjórum dögum, leið sem tekur hest­vagn næstum þrjár vikur. Kepp­endur höfðu komið sér saman um það að halda hóp­inn þar til komið var að þýsku landa­mær­unum en prins­inn sveik það sam­komu­lag. Borghese var því kom­inn með nokkuð for­skot á keppi­nauta sína þegar komið var yfir eyði­mörk­ina að rúss­nesku landa­mær­unum.

Síbería var næst á dag­skrá og helsta vanda­málið þar var óáreið­an­leik­inn. Þau kort sem kepp­endur höfðu voru gömul og lands­lagið hafði breyst mjög mikið eftir að hinir miklu Trans-Síberíu lestar­teinar (sem liggja frá Moskvu til Vla­di­vostok) voru lagðir. Sums staðar var eng­inn vegur eða það sem verra var, engar brýr. Þær brýr sem stóðu voru oft mjög lélegar og fúnar. Kepp­endur tóku stundum áhættur, sér­stak­lega Borghese, sem keyrði eins hratt og hann gat yfir brýr sem voru að hruni komnar. Í eitt skipti voru liðs­menn Itala stál­heppnir að lifa af þegar brú brotn­aði undan þeim og öku­menn­irnir féllu úr bílnum í gegnum brúnna. Þeir voru einnig heppnir að bíll­inn komst nokkuð óskadd­aður frá fall­inu. Þetta var ekki eina hættan sem Itala liðið lenti í í Síberíu. Þegar veg­inn skorti brugðu þeir á það ráð að keyra á lestar­tein­unum. Í eitt skipti fest­ist bíll­inn í tein­unum í þann mund sem lest kom aðvíf­andi. Liðsmenn höm­uð­ust við að losa bíl­inn og tókst það á síð­ustu stundu. Seinastu alvar­legu vand­ræðin sem ítalska liðið lenti í var þegar eitt hjólið brotn­aði í mél. Þeir fundu þó rúss­neskan kerrusmið í nær­liggj­andi bæ sem gat smíðað nýtt hjól undir bíl­inn. Spyker bíll­inn bil­aði einnig alvar­lega nálægt borg­inni Irkutsk. Senda þurfti mann frá Amster­dam með vara­hluti austur til Síberíu en Godard ákvað að flytja bíl­inn með lest á móti honum. De Dion félug­unum fannst þetta vita­skuld vera svindl og heimt­uðu að Spyker liðið yrði dæmt úr keppni. Godard fór því aftur til baka á stað­inn þar sem bíll­inn hafði bilað og keyrði svo eins og brjál­aður maður til að ná hinum bíl­unum. Alger­lega örmagn­aður náði hann De Dion lið­unum og þeir urðu sam­ferða til Þýska­lands.

Í júlí­lok voru Borghese prins og hans menn komnir til Moskvu, um 17 dögum á undan keppi­naut­unum. Leiðin í gegnum Evrópu var silki­mjúk en þeir voru stöðv­aðir af lög­reglu­þjóni í Belgíu fyrir hraða­akstur. Lög­reglu­mað­ur­inn trúði ekki að þeir væru að koma frá Kína. Þann 10. ágúst, nákvæm­lega tveimur mán­uðum eftir að keppnin hófst, ók Borghese prins inn í Par­ís­ar­borg og vann þar með keppn­ina. Mikill fjöldi var sam­an­kom­inn við götur borg­ar­innar til að fylgj­ast með honum keyra síð­asta spöl­inn. Þegar hin þrjú liðin komu til Þýska­lands var Spyker bíll­inn stöðv­aður og Charles Godard hand­tek­inn. Hann hafði verið dæmdur í Frakk­landi fyrir fjár­plógs­starf­semi og frönsk yfir­völd kröfð­ust þess að hann yrði fram­seldur. Spyker fengu mann að nafni Frilling til að aka bílnum frá Þýska­landi til Parísar. Godard, laus úr haldi, reyndi þó að kom­ast yfir Spyker bíl­inn rétt áður en hann kom inn í Par­ís­ar­borg þegar Frilling sá ekki til en lög­reglu­menn náðu að yfir­buga hann og færa í járn. Bílarnir þrír komu í mark 30. ágúst, 20 dögum á eftir sig­ur­veg­ar­anum. Verðlaun Borghese voru fyrst og fremst heið­ur­inn en að auki fékk hann flösku af G.H. Mumm kampa­víni.

Kepp­endur hlutu allir heims­frægð um stund og þá sér­stak­lega sig­ur­veg­ar­inn Borghese prins. Sumir héldu áfram ævin­týra­mennsku og kepptu í hinum ýmsu kappök­strum og öðrum keppnum. Bæði Borghese og Cormier börð­ust svo fyrir banda­menn í fyrri heims­styrj­öld­inni. En mestu frægð­ina hlaut tækið sjálft, bíll­inn. Ef keppnin hefði mis­tek­ist og eng­inn bíll kom­ist í mark, eða jafn­vel ekki út fyrir kín­versku landa­mærin, þá hefði það stað­fest trú margra að bif­reiðar væru gagns­laust dót fyrir millj­óna­mær­inga. En þrátt fyrir alla erf­ið­leik­ana komust allir bíl­arnir nema þrí­hjólið í mark og það opn­aði augu margra fyrir því hvers tækin voru megnug. Tveir af keppn­is­bíl­unum eru ennþá til í dag og til sýnis á sam­gönguminja­söfnum, þ.e. bílar Borghese og Godards. Mikill áhugi var á því að end­ur­taka leik­inn en það var ekki hægt á tímum Sov­ét­ríkj­anna. Eftir að þau lið­uð­ust í sundur upp úr 1990 hefur kappakst­ur­inn verið end­ur­gerður nokkrum sinnum, annað hvort á nútíma­bílum eða eft­ir­lík­ingum af þeim upp­runa­legu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár