Tilraunir Íslendinga til að auðga fánuna

Það hefur gengið mis­jafna­lega að flytja nýjar dýra­teg­undir til Íslands, eins og Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur sann­reyndi.

Hér á Íslandi lifa meira en 1500 dýra­teg­undir en mik­ill meiri­hluti þeirra eru pöddur. Þá hafa um 360 teg­undir fiska fund­ist í lög­sög­unni. Varp­fugla­teg­undir eru um 80, villt spen­dýr ein­ungis 8 og engin skrið­dýr eða frosk­dýr. Lands­menn hafa reynt að gera brag­ar­bót á þessum skorti í gegnum tíð­ina með mis­jöfnum árangri. Hér eru helstu dæmin.

Fótspor mannsins

Ein­angrun og lofts­lag gera það að verkum að dýra­líf á Íslandi er heldur fábrotið ef undan eru skildir fuglar. Þegar fyrstu land­nem­arnir komu hingað var eina land­spen­dýrið á eyj­unni heim­skauta­refur sem barst hingað með hafís frá Græn­landi á ísöld. Þó er vert að minn­ast á það að tvær sela­teg­undir (útselur og land­selur) kæpa hér við land og ein­staka flökku­dýr frá Græn­landi s.s. ísbjörn og rost­ungur hafa komið hingað án þess þó að festa rætur. Land­nem­arnir fluttu með sér búfé, gælu­dýr og mein­dýr en eftir það hélst teg­unda­fjöld­inn nokkurn veg­inn sá sami þangað til á 18. öld þegar menn hófu að gera til­raunir með að flytja inn nýjar teg­undir. Sumar voru fluttar inn til rækt­unar en öðrum var sleppt út í nátt­úr­una til þess að freista þess að þær yrðu hér land­lægar. Til­gang­ur­inn með því að flytja inn nýjar dýra­teg­undir til að sleppa út í nátt­úr­una er mis­mun­andi, t.d. til veiða, til að auðga nátt­úr­una eða til að reyna að breyta henni á ein­hvern hátt. Í seinni tíð hafa fræði­menn og dýra­læknar lagst gegn inn­flutn­ingi nýrra teg­unda þar sem þær gætu raskað nátt­úr­unni of mikið og jafn­vel ógnað teg­undum sem fyrir eru. Nýjar dýra­teg­undir geta borið með sér sjúk­dóma, étið aðrar teg­undir eða étið fæð­una frá þeim. Íslend­ingar inn­leiddu lög­gjöf á tíunda ára­tugnum sem gerir það erfitt að fá leyfi til rækt­unnar nýrra teg­unda þar sem dýrin gætu hæg­lega sloppið frá eig­endum sínum eins og dæmin sanna. En auð­vitað fylgja ekki allir reglum og fjöldi dýra hefur verið fluttur inn í leyf­is­leysi. Áður fyrr var þó afstaða stjórn­valda allt önnur til nátt­úr­unnar og menn mun viljugri til þess að hrófla við henni og prófa eitt­hvað nýtt.

Hreindýr

Fyrsta til­raun Íslend­inga til að flytja inn erlendar dýra­teg­undir síðan á land­náms­öld var að und­ir­lagi fimm íslenskra sýslu­manna um miðja 18. öld­ina. Þeir sóttu um leyfi til danskra stjórn­valda að fá að flytja inn nokkur hrein­dýr og fengu jákvætt svar en ekk­ert varð úr þeirri fram­kvæmd. Tuttugu árum síðar, árið 1771 flutti Lauritz Thodal, hinn norski stift­amt­maður Íslands, inn 13 hrein­dýr frá Norður-Noregi. Einungis 3 lifðu ferð­ina af og var sleppt í Rang­ár­valla­sýslu þar sem þau döfn­uðu fyrst um sinn. Árið 1777 var um 30 norskum dýrum sleppt í Hafn­ar­firði og dreifð­ust þau um Reykja­nesskaga. Inn­flutn­ing­ur­inn gekk það vel að árið 1783 var nokkrum dýrum sleppt í Eyja­firði og fjórum árum síðan 30 dýrum við Vopna­fjörð. Rætt var um að flytja inn nokkrar fjöl­skyldur Sama til að kenna Íslend­ingum að halda dýrin sem hús­dýr. Hrein­dýrin döfn­uðu svo vel hér að árið 1817 var í fyrsta sinn leyft að veiða þau. Árið 1880 byrj­uðu stofn­arnir hins vegar að dala veru­lega og voru hrein­dýr loks friðuð. Það dugði þó ekki til því að um 1930 var ein­ungis Aust­ur­lands-stofn­inn eftir. Talið er að kóln­andi veð­ur­far og ofbeit hafi orðið hinum stofn­unum að ald­urtila. Þó að til­raunin hafi ekki gengið klakk­laust fyrir sig þá er stofn­inn mjög stöð­ugur í dag og veitt er úr honum á hverju ári. Hreindýr eru í dag stór hluti af menn­ingu og sjálfs­mynd fólks á Aust­ur­landi og því verður inn­flutn­ing­ur­inn að telj­ast mjög vel heppn­aður. Svo vel að rætt hefur verið um að flytja hrein­dýr á önnur lands­svæði s.s. Vest­firði.

Hérar

Fyrsta til­raunin til að gera héra að land­lægum spen­dýrum á Íslandi var árið 1784. Lítið er vitað um inn­flutn­ing­inn annað en það að hér­unum var sleppt í ein­hvern skóg og sáust svo ekki meir. Líklegt þykir að ref­ur­inn hafi útrýmt þeim. Aftur var reynt árið 1861 þegar nokkrum hérum frá Færeyjum var sleppt í Viðey. Hérar höfðu verið fluttir inn til Færeyja frá Noregi skömmu áður og eru þeir nú land­lægir í eyj­unum og vin­sælir til veiða. Hérarnir ollu hins vegar óskunda í Viðey og styggðu æðar­varpið þar. Var því gripið til þess ráðs að skjóta þá alla. Nokkrar óstað­festar frá­sagnir eru til af inn­flutn­ingi héra síðan þá en Ársæll Árnason, bók­bind­ari og dýra­lífs­á­huga­maður, stóð að sein­ustu alvar­legu til­raun­inni til hér­a­inn­flutn­ings hér á landi árið 1932. Það voru þá snæ­hérar frá Græn­landi og Ársæll hafði meira að segja fengið leyfi frá Alþingi fyrir inn­flutn­ingnum. En þá hafði hann misst sam­böndin til þess að útvega þá.

Froskar

Árið 1895 kom hingað til lands danskur læknir að nafni Edvard Ehlers auk nokk­urra evr­ópskra kollega. Þeir komu hingað fyrst og fremst til þess að gera úttekt á holds­veiki og heil­brigð­is­að­stöðu Íslend­inga. En það var ekki eina gagnið sem þeir hugð­ist gera hér, því að und­ir­lagi ensks læknis tóku þeir með sér froska. Ehlers hugð­ist sleppa frosk­unum við Þing­valla­vatn og áttu þeir að aðlag­ast og fjölga sér í íslenskri nátt­úru. Til hvers? Jú, til að halda niðri mývarg. 40 froskar voru veiddir í Kaup­manna­höfn og 100 í Berlín. Dönsku frosk­arnir drápust allir sam­stundis fyrstu nótt­ina í skip­inu til Íslands en þeir þýsku, sem sagt er að hafi verið stórir og sterk­byggðir, þoldu ferð­ina vel. Þegar dr. Ehlers og félagar komu til Íslands lá leið þeirra ekki hjá Þing­valla­vatni og því brugðu þeir á það ráð að sleppa frosk­unum við Þvotta­laug­arnar í Reykja­vík. Ehlers segir að “þessir land­náms froskar hafi hlaupið burtu kátir og fjörugir”. Þó að þýsku frosk­arnir hafi verið hraustir þoldu þeir ekki hinar nýju aðstæður og dóu fljót­lega út. Froskar eru nokkuð vin­sæl gælu­dýr í dag en ekki er vitað til að þeir lifi hér villtir.

Sauðnaut

Sauðnaut líta út eins og smá­vaxnir vís­undar með þykkan feld en þau eru í raun mun skild­ari sauðfé en naut­gripum. Þau lifa á norð­ur­slóðum við strendur Grænd­lands og Norður Ameríku og eru vin­sæl til veiða. Einn helsti áhuga­maður um inn­flutn­ing sauð­nauta til Íslands var Ársæll Árnason. Hann, ásamt Vigfúsi Sig­urðs­syni og fleiri áhuga­sömum, stofn­uðu félag og fengu leyfi og styrk frá íslenskum stjórn­völdum árið 1928 til að gera út bát til að sækja nokkur sauð­naut til Græn­lands. Báturinn Gotta sigldi vestur árið 1929 og sneri til baka með 7 kálfa en þeir drápust allir úr sjúk­dómum, sá sein­asti árið 1931. Skömmu seinna voru keyptir 7 kálfar til við­bótar frá Noregi en þeir drápust einnig innan árs úr sjúk­dómum og vos­búð. Við kom­una hér voru dýrin geymd á Aust­ur­velli í Reykja­vík og þar safn­að­ist fólk saman til að bera þau augum en fljót­lega voru þau flutt til Gunn­ars­holts í Rang­ár­valla­sýslu. Tvö dýr úr seinni hópnum voru send um stund til Litlu-Drageyrarí Skorra­dal. Þeim dýrum var sleppt á fjall með öðru sauðfé en komu illa undan vetri. Eftir þessar mis­heppn­uðu til­raunir voru engin fleiri sauð­naut flutt hingað til lands en áhugi Íslend­inga er þó ekki alveg dauður því rætt hefur verið um að flytja þau inn á Aust-og Vest­fjörðum.

Kanínur

Ekki er nákvæm­lega vitað hvenær kan­ínur voru fyrst fluttar inn hingað til lands en það var senni­lega í kringum árið 1930. Kanínur eru vin­sæl gælu­dýr og algengt er að þær annað hvort sleppi frá eig­endum sínum eða sé ein­fald­lega sleppt út í nátt­úr­una af eig­endum sem geta ekki haldið þær lengur. Vitað er að villtar kan­ínur voru í Hval­firði á fjórða ára­tugnum en í dag eru fjöl­margar byggðir kan­ína víðs vegar um land. Má þar nefna Öskju­hlíð­ina og Elliða­ár­dal­inn í Reykja­vík, Heiðmörk, Vest­manna­eyjar og Kjarna­skóg í Eyja­firði. Kanínur dafna ágæt­lega í skóg­lendi þegar kuldi er ekki of mik­ill og þær fjölga sér hratt. En þó að dýrin séu hvers manns hug­ljúfi þá geta þær haft slæm áhrif á vist­kerfið, sér­stak­lega í Vest­manna­eyjum þar sem þær hafa lagt undir sig lunda­holur.

Minkar

Ársæll Árnason flutti inn til lands­ins amer­íska minka frá Noregi árið 1931 og hafa margir hugsað honum þegj­andi þörf­ina fyrir þar sem dýrið er almennt talið með þeim óþarfari í íslenskri nátt­úru. Ársæll taldi að þeir yrðu ágætis við­bót við íslenska villi­fánu en upp­runa­lega voru þeir ein­ungis hugs­aðir fyrir loð­dýrabú sem fór fjölg­andi um alla Norður Evrópu á þeim tíma. Þrjú fyrstu dýrin voru send að Fossi í Gríms­nesi en skömmu seinna var 75 dýrum komið fyrir á búi í Selfossi. Minkabú spruttu upp eins og gorkúlur en rekstur þeirra gekk mis­jafn­lega í gegnum tíð­ina. Á sjö­unda ára­tugnum lagð­ist minka­eldi nán­ast af á Íslandi. Síðan þá hefur verið stíg­andi í grein­inni og í dag eru minkabú vel á þriðja tug á land­inu. En það er ekki vegna rækt­un­ar­innar sem mink­ur­inn er svo fyr­ir­lit­inn heldur vegna áhrifa hans á íslenska nátt­úru. Strax árið 1932 sluppu fyrstu mink­arnir úr búrum sínum á Suð­ur­landi og árið 1937 fannst greni í Reykja­vík. Þá var ljóst að mink­ur­inn gat vel lifað villtur hér á landi og erfitt yrði að útrýma honum. Hægt og bít­andi breidd­ist hann út um allt land en íslensk stjórn­völd gerðu til­raunir til að stoppa hann, veittu jafn­vel verð­laun fyrir dráp. Ekki er nákvæm­lega vitað hversu mikil áhrif mink­ur­inn hefur haft á vist­kerfið en ljóst er að hann hefur áhrif á t.d. stærð stofna sil­unga og æðar­fugla.

Þvottabirnir

Árið 1932 flutti Ársæll Árnason hingað til lands sjö þvotta­birni frá Þýska­landi. Hann hreifst mjög að dýr­unum og hugð­ist halda þau sem gælu­dýr á heim­ili sínu í Reykja­vík. Þar döfn­uðu þeir og fjölg­uðu sér fyrst um sinn en snemma voru þeir flestir sendir á loð­dýra­búið Hofstaði í Garðabæ. Ársæll var þó ennþá eig­and­inn og dýrin frekar til skemmt­unar en nytja. Þar virð­ast þeir hafa dafnað í a.m.k. ára­tug. Þrír af upp­runa­legu þvotta­björn­unum voru þó sendir til Vest­manna­eyja til systur Ársæls en þar gekk illa að halda þá. Þeir sluppu oft og drápust loks. Þvotta­birnir birt­ust aftur hér á landi árið 1975 þegar þrjú dýr voru keypt fyrir Sædýra­safnið í Hafn­ar­firði. Einn björn­inn slapp og var skot­inn í bænum en hin voru í safn­inu a.m.k. fram á níunda ára­tug­inn.

Fashanar

Fashanar eru stórir hænsn­fuglar sem lifa víða villtir og er vin­sælt að veiða þá. Árið 1998 stofn­uðu hjónin Skúli Magn­ús­son og Anna Ein­ars­dóttir á Tóka­stöðum í Fljóts­dals­hér­aði fyrsta fas­hana­búið á Íslandi. Eftir mikla skriffin­sku fengu þau leyfi til að flytja inn 100 egg sem þau sóttu til Sví­þjóðar. Skúli, sem lést árið 2002, var mik­ill áhuga­maður um skot­veiði og hugð­ist í tíð og tíma fá leyfi til þess að sleppa fas­hönum út í nátt­úr­una. Leyf­is­veit­ingin gekk hins vegar illa og eftir and­lát Skúla lagð­ist rækt­unin fljót­lega af. Íslend­ingar virð­ast þó ekki alfarið hafa gef­ist upp á fas­hönum og þeir hafa sést hálf­villtir á Suð­ur­landi, aðal­lega í kringum sum­ar­húsa­hverfi.

Framtíðarfána

Listinn er ekki tæm­andi þar sem t.d. hafa verið gerðar til­raunir með þýskt karakúl-sauðfé og nag­dýr sem nefn­ast nút­ríur (skildar bjórum). Með auk­inni þekk­ingu á vist­fræði og búfjár­sjúk­dómum og strang­ari lög­gjöf er þó ekki lík­legt að til­raunir sem þessar hljóti braut­ar­gengi í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. Aftur á móti er áhugi lands­manna á gælu­dýrum alltaf að aukast og þá sér­stak­lega á fram­andi gælu­dýrum. Gildir þá einu hvort leyfi hafi feng­ist fyrir inn­flutn­ingnum eður ei. Má nefna að hægt er að kaupa fóður og búr fyrir skrið­dýr í íslenskum gælu­dýra­versl­unum þó að skrið­dýr séu ekki lög­leg hér á landi. Landnám kan­ín­unnar sýnir svo ekki verður um villst að nýjar dýra­teg­undir gætu fest rætur í íslenskri nátt­úru, sér­stak­lega með hlýn­andi veð­ur­fari. Hver veit, kannski verða hérar, þvotta­birnir og froskar ein­hvern tím­ann hluti af íslenskri fánu. Eða þá ein­hverjar allt aðrar teg­undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár