Íslendingar settu met í utanlandsferðum í júní

Aldrei áður hafa Íslend­ingar farið eins mikið til útlanda og í nýliðnum júní-mán­uði. 67 þús­und Íslend­ingar fóru til útlanda í mán­uð­inum, vænt­an­lega margir á EM.

Ferðamálastofa telur líklegt að Evrópumótið í fótbolta hafi haft talsverð áhrif á útlandaferðir Íslendinga í júní.
Ferða­mála­stofa telur lík­legt að Evr­ópu­mótið í fót­bolta hafi haft tals­verð áhrif á útlanda­ferðir Íslend­inga í júní. Mynd: EPA

67 þús­und Íslend­ingar fóru til útlanda í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl í júní-mán­uði, sem er met. Aldrei hafa brott­farir Íslend­inga mælst fleiri í einum mán­uði frá því að taln­ingar Ferða­mála­stofu hófust. Áður var metið slegið í júní 2007, þegar 54.800 Íslend­ingar fóru til útlanda.

Ferða­mála­stofa telur að ekki sé ólík­legt að Evr­ópu­mótið í fót­bolta hafi haft tals­verð áhrif á töl­urnar. Tölur frá Knatt­spyrnu­sam­bandi Íslands benda til þess líka, enda er talið að á bil­inu 8-10.000 Íslend­ingar hafi verið á hverjum leik Íslands í Evr­ópu­mót­inu.

„Í því sam­bandi er vert að slá þann varnagla að hugs­an­lega er óvenju algengt að fleiri en eina brott­för sé að ræða hjá sömu ein­stak­lingum. Slíkt er þó ekki hægt að segja fyrir um með neinni vissu,“ segir Ferða­mála­stofa. Fjöl­margir fóru aftur til Frakk­lands með ýmsum leiðum eftir að Ísland komst upp úr riðli sínum á EM og einnig þegar liðið komst í átta liða úrslit á mót­inu.

186 þúsund ferðamenn á Íslandi

186 þús­und erlendir ferða­menn fóru frá land­inu í júní sam­kvæmt taln­ingum Ferða­mála­stofu, eða nærri 50 þús­und fleiri en í júní í fyrra. Erlendum ferða­mönnum heldur því áfram að fjölga, og aukn­ingin er 36,8% á milli ára. Það sem af er árinu hafa tæp­lega 700 þús­und erlendir ferða­menn komið til lands­ins, sem er 183 þús­undum og 35,8% fleiri en í fyrra.

Rúmlega helm­ingur þeirra sem komu í júní voru Banda­ríkja­menn, Þjóð­verjar, Bretar og Kanada­menn. Banda­ríkja­menn voru tæp­lega 30% allra ferða­manna. Hlut­falls­lega var fjölg­unin mest meðal Kanada­manna, en ferða­manna­fjöld­inn þaðan rúm­lega tvö­fald­að­ist og voru þeir sjö pró­sent ferða­manna hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár