„Keep dominating“...Úps!

Margt skemmti­legt gerð­ist á EM í sumar, þar sem Íslands­æv­in­týrið var í kast­ljós­inu á heims­vísu. Fátt gladdi fólk meira á Twitter en þegar Steve McLaren sýndi fáséð til­þrif við að greina snilld enska liðs­ins.

Þegar maður horfir á kapp­leiki nú orðið þá er ómissandi að hafa Twitter umræð­una í gangi með­fram henni. Þá sér maður hvernig fólk upp­lifir kapp­leik­ina og hvað það er sem vekur for­vitni þess.

Í einum sögu­leg­asta íþrótta­við­burði íslenskrar íþrótta­sögu, þegar Ísland og England mætt­ust í sextán liða úrslitum EM í fót­bolta í Frakk­landi í sumar, 27. júní, þá voru Eng­lend­ingar sig­ur­vissir, svo ekki sé meira sagt.

Í byrj­un­ar­liði þeirra voru margir leik­menn sem Eng­lend­ingar hafa metið mik­ils frá því að þeir byrj­uðu að spila með liðum sínum í ensku úrvals­deild­inni. Flestir voru þeir ekki búnir að spila sér­stak­lega vel á EM þegar kom að leiknum gegn Íslandi en samt litu flestir álits­gjafar enskra fjöl­miðla þannig á að leik­ur­inn við Ísland yrði auð­veldur.

Ekki byrj­aði það vel fyrir Ísland. Eftir nokk­urra mín­útna leik braut Hannes Þór Hall­dórs­son mark­vörður á hinum rán­dýra og eldsnögga Raheem Sterling og víta­spyrna var rétti­lega dæmd. Helsta stjarna Englands og fyr­ir­lið­inn sjálfur, Wayne Rooney, tók spyrn­una og skor­aði af öryggi.

Strax í næstu sókn fékk Ísland inn­kast. Hand­bolta­leik­stjórn­and­inn gamli Aron Einar Gunn­ars­son, fyr­ir­lið­inn frá­bæri, grýtti bolt­anum inn á teig­inn þar sem Kári Árnason skall­aði bolt­ann fyrir fætur Ragnars Sig­urðs­sonar sem skor­aði af öryggi. 1-1. Ragnar spil­aði betur á EM en Paul McGrath gerði með Írum á HM 1994 og er þá mikið sagt.

Hér voru send skýr skila­boð. Þið eruð ekki að fara valta yfir okkur, mátti lesa út úr lík­ams­tján­ingu leik­manna. Við Íslend­ingar höfðum auð­vitað trú á sigri okkar manna, ólíkt Eng­lend­ingum.

Eftir jöfn­un­ar­markið fór fljót­lega í gang skemmti­leg­asta lýs­ing fót­bolta­grein­anda í sög­unni, í það minnsta í huga okkar Íslend­inga. Steve McLaren - af öllum mönnum - var í stúd­íó­inu hjá Sky Sports í að lýsa því sem fyrir augu bara. Sjálfur hefur hann mikla reynslu af því að standa sig illa sem lands­liðs­þjálf­ari Englands.

Hann var fullur sjálfs­traust eftir jöfn­un­ar­markið og sagð­ist áhyggju­laus. Nú þyrfti England að „halda áfram að sýna yfir­burði“ (keep dom­inat­ing) og yfir­spila Ísland. Skemmst er frá því að segja, að meðan hann var að fara í gegnum þetta þá byggði Ísland upp frá­bæra sókn. Títt­nefndur Aron Einar skipti bolt­anum frá vinstri til hægri, Birkir Már Sæv­ars­son kom honum á Jóhann Berg Guð­munds­son sem renndi honum á Gylfa Þór Sig­urðs­son, sem er betri en allir í enska lands­lið­inu í fót­bolta. Hann stýrði honum í fyrstu snert­ingu á Jón Daða Böðv­ars­son sem kom honum á Kolbein Sig­þórs­son, inn í teig Englands. Enska lands­liðið var ráð­þrota, í heild sinni.

Á þeim tíma­punkti var McLaren ennþá í ham, að greina leik enska liðs­ins og ekki síst hvar mögu­lega gætu falist hættur hjá íslenska lið­inu. „Það er ein­ungis stóri strák­ur­inn frammi, Sig­urðs­son...Sig­þórs­son…. Ohhhh…“ Þá dundi ógæfan yfir McLaren, á sama tíma og kraftar alsælu voru leystir úr læð­ingi hjá Íslend­ingum nær og fjær. Kolbeinn skor­aði og kom Íslandi yfir 2-1. McLaren hvítn­aði um leið og hann sleppti orð­inu „Sig­þórs­son“ og trúði vart sínum eigin augum. Hann var sér­stak­lega beð­inn um að halda áfram með grein­ingu sína til að full­komna nið­ur­læg­ing­una.

Þetta augna­blik fór eins og eldur í sinu um Twitter og Youtube. Nið­ur­læg­ing McLaren og Englands var algjör, og gleði okkar Íslend­inga auð­vitað ósvikin.

Svona getur nú fót­bolt­inn nú verið skemmti­legur. Ísland vann og Harry Kane gat ekk­ert. Einn af hápunktum ævin­týr­is­ins í Frakk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár