Sterk verkjalyf fundust í 19 af 36 látnum einstaklingum í fyrra

Sterk verkja­lyf fund­ust í helm­ingi lát­inna ein­stak­linga sem rann­sak­aðir voru af lyfjateymi Land­læknis í fyrra. Þeir sem eru háðir sterkum verkja­lyfjum eru 40 sinnum lík­legri til að verða heróín­fíklar. Notkun sterkra verkja­lyfja hefur auk­ist hér á landi.

Misnotkun á sterkum verkjalyfjum getur haft alvarlegar afleiðingar. Þeir sem eru háðir slíkum lyfjum eru 40 sinnum líklegri til að þróa með sér heróínfíkn.
Mis­notkun á sterkum verkja­lyfjum getur haft alvar­legar afleið­ingar. Þeir sem eru háðir slíkum lyfjum eru 40 sinnum lík­legri til að þróa með sér heróín­fíkn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sífellt fleiri Íslend­ingar nota sterk verkja­lyf að stað­aldri. Árið 2014 fengu ríf­lega 22.000 Íslend­ingar ávísað Parkódín forte, en skammtur á hvern sjúk­ling af ávís­unum af lyf­inu fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2016 jókst um 17,5 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil árið 2006. Þetta kemur fram í grein frá emb­ætti Land­læknis í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Sterk verkjalyf fundust í helmingi látinna

Lyfjateymi Land­læknis rann­sak­aði 36 dauðs­föll á síð­asta ári þar sem grunur lék á að ein­stak­lingar hafi lát­ist vegna lyfja­eitr­unar. Í flestum til­fellum komu nokkur lyf við sögu, oft að áfengi með­töldu. Ópíóðar, sem eru verkja­lyf eins og kódein (Parkódín) og mor­fín, fund­ust í 19 af þessum 36 ein­stak­lingum, eða í rúm­lega helm­ingi. Metýlfenídat, eða ríta­lín, fannst í níu manns og í sex af þeim fund­ust einnig sterk verkja­lyf.

Verkja­lyfja­notkun hefur verið að aukast á Íslandi und­an­farin ár, sem er öfugt við þró­un­ina á hinum Norð­ur­lönd­unum. Notkun ópíóíða hefur meira en tvö­fald­ast á síð­ustu 20 árum og það er visst áhyggju­efni fyrir margra hluta sakir.

40 sinnum líklegri til að þróa með sér heróínfíkn

Þeir sem eru háðir sterkum verkja­lyfjum eru 40 sinnum lík­legri en aðrir til að verða heróín­sprautu­fíklar. Óhóf­legum ávís­unum verkja­lyfja er meðal þess sem er kennt um þann mikla heróín­far­aldur sem geysar í Banda­ríkj­unum í dag, er fram kemur í grein­inni. Fjöldi þeirra sem lést af völdum heróín­fíknar í Banda­ríkj­unum tvö­fald­að­ist á milli áranna 2011 og 2013.

Eins og segir í Lækna­blað­inu hefur heróín ekki náð fót­festu á Íslandi, en þeir sem glíma við sprautu­fíkn velja flestir metýlfenídat, eða ríta­lín, sem fyrsta kost.

Verkjateymi á heilsugæslu væri lausn

Þá kemur fram í grein­inni að margar rann­sóknir hafi stað­fest gagn­semi ópíóíða til að vinna á tíma­bundnum verkjum, en gagn­semi þeirra gegn lang­vinnum verkjum hefur ekki verið stað­fest. Brýnt nauð­syn sé á að finna úrræði fyrir ein­stak­linga með lang­vinna verki utan Land­spít­al­ans og er bent á að ein lausn væri verkjateymi innan heilsu­gæsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár