Kjaraviðræður kennara aftur á byrjunarreit - Fundað í morgun

Kenn­ara­sam­band Íslands og samn­inga­nefnd sveit­ar­fé­laga hitt­ust á fundi í morgun til að ræða stöð­una sem upp er komin, eftir að kenn­arar felldu kjara­samn­ing­ana með afger­andi hætti í atkvæða­greiðslu sem fór fram dag­ana 2. til 9. júní.

Atkvæði fóru á þessa leið:

Á kjör­skrá:4.453 
Atkvæði greiddu:2.932(65,84%)
Já:741(25,27%)
Nei:2.118(72,24%)
Auð­ir:73(2,49%)

Ólafur Loftsson, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, sagði við Kjarnann að nú yrði reynt að ná samn­ingum sem kenn­arar gætu sætt sig við.

Sam­kvæmt samn­ingnum sem und­ir­rit­aður var 30. maí síð­ast­lið­inn, og nú hefur verið felld­ur, áttu laun grunn­skóla­kenn­ara að hækka um 9,5 pró­sent á næstu þremur árum. Þá átti að taka upp að nýju greiðslur til kenn­ara sem sinna gæslu í frí­mín­út­um.

Halldór Hall­dórs­son, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, segir að hljóðið í sveit­ar­stjórn­ar­fólki hafi verið þungt áður en samn­ing­ur­inn um hækk­an­irnar var sam­þykktur, þar sem hann setur sveit­ar­fé­lög í rekstr­ar­legan vanda. „Þannig að það var ekk­ert sjálf­gefið að hann fengi sam­þykki okkar megin,“ sagði Halldór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár