Uppgangur kynþáttahaturs í Evrópu

Stjórn­mála­flokkar sem telj­ast þjóð­ern­ispópúl­ískir spretta upp eins og gorkúlur víða í Evrópu og ná fylgi sem hefði talist óhugs­andi fyrir aðeins örfáum árum. Andstaða þeirra gegn inn­flytj­endum og hæl­is­leit­endum frá múslima­ríkjum er það sem hæst ber í umræð­unni og miðað við fjöl­miðlaum­fjöllun mætti halda að það væri þeirra eina stefnu­mál. Dæmin sýna þó að for­dóm­arnir eru alls ekki bundnir við múslima. Þetta ristir mun dýpra en það.

Þjóðernispópúlismi

Kyn­þátta­hatur og for­dómar gegn minni­hluta­hópum er ekk­ert nýtt af nál­inni í sögu Evrópu. Eftir hild­ar­leik seinni heim­styrj­ald­ar­innar og enda­lok nýlendu­tím­ans virt­ist þó sem slíkar kenndir væru á und­an­haldi í álf­unni. Á sjö­unda ára­tugnum fleygði kven­rétt­inda­bar­átt­unni fram og seinna fór sam­kyn­hneigð að verða almennt við­ur­kennd sem eðli­legur hlutur. Með tækni­fram­förum, auk­inni menntun og vel­megun varð sam­fé­lagið opn­ara og bland­aðra. Stjórn­mála­flokkar sem boð­uðu andúð á útlend­ingum og fyr­ir­litn­ingu á minni­hluta­hópum voru utan­garðs og náðu litlu sem engu fylgi.

Kyn­þátta­hatur birt­ist helst í mjög fámennum hópi krúnurak­aðra nýnas­ista og knatt­spyrnu­bullna, nokk­urs konar úrhök sam­fé­lags­ins sem virt­ust frekar vera að leita sér að slags­málum en að berj­ast fyrir einn­hverri póli­tískri hug­sjón. Upp úr alda­mót­unum fór þetta að breyt­ast. Flokkar sem áður höfðu talist öfga­menn og alger­lega óstjórn­tækir eru nú komnir í eld­línu evr­ópskra stjórn­mála. Þetta er mikið til vegna hinnar svoköll­uðu boots to suits (úr stíg­vélum í spari­föt) stefnu, þ.e. hvernig flokk­arnir hafa mildað ásjónu sína, lagt af ofbeldis og skemmd­ar­verk, og losað sig við mestu öfga­menn­ina. Efna­hags­hrunið árið 2008 og flótta­manna­straumur vegna stríðs­ins í Sýrlandi hafa virkað eins og vatn á myllu þess­ara flokka. Þeir hafa nú víða fjöl­marga kjörna full­trúa á þjóð­þingum, í sveit­ar­stjórnum og á Evr­ópu­þing­inu. Sums staðar, t.d. í Noregi og Aust­ur­ríki, hafa flokkar sem nú eru kall­aðir þjóð­ern­ispópúl­ískir kom­ist í rík­is­stjórnir. Háværust er and­staða þeirra við múslima og þá sér í lagi inn­flytj­endur og flótta­menn af þeirri trú, þ.e. Íslamó­fóbía. Stjórn­mála­leið­togar slíkra flokka hafa þó alið á for­dómum í garð ýmissa ann­arra hópa á sein­ustu árum.

Gyðingar

Gyðingar voru fjöl­mennir í Evrópu á fyrri öldum en sá hópur hefur löngum átt undir högg að sækja. Á mið­öldum lentu þeir iðu­lega í ofsóknum og jafn­vel fjöldamorðum, svoköll­uðum pogrom. Í seinni heim­styrj­öld­inni var um 2/3 þeirra útrýmt á skipu­lagðan hátt, sam­an­lagt um 6 millj­ónum. Í dag er áætlað að gyð­ingar í Evrópu séu um 2 millj­ónir. Stækasta gyð­inga­hat­rið í dag birt­ist í Ung­verja­landi þar sem óvenju margir gyð­ingar búa, tæp­lega 50 þús­und tals­ins. Liðsmenn þriðja stærsta stjórn­mála­flokks land­ins, Jobbik, hafa gengið þar fremstir í flokki. Vara­þing­flokks­for­maður flokks­ins, Marton Gyöngyösi, full­yrti að það staf­aði ógn af gyð­ingum á ung­verska þing­inu og í ung­versku rík­is­stjórn­inni. Judit Szima, Evr­ópu­fram­bjóð­andi flokks­ins studdi vopn­aða bar­áttu gegn gyð­ingum og núver­andi Evr­ópu­þing­maður flokks­ins skrif­aði á net­inu:

“Ég væri glöð ef hinir svoköll­uðu stoltu ung­versku gyð­ingar færu aftur að leika sér að sínum litlu umskornu limum í stað þess að gera Grýlu úr mér.”

Jobbik-liðar hafa notað mynd­mál nas­ism­ans, bún­inga og fleira, og hafa haldið á lofti nafni Miklos Horthy, leið­toga Ung­verja­lands í seinni heim­styrj­öld­inni og náins sam­verka­manns Adolfs Hitlers. Annar flokkur sem leitar í þennan sama brunn er Gullin Dögun í Grikk­landi. Sá flokkur er hrein­rækt­aður nýnas­ista­flokkur og liðs­menn hans hafa ítrekað beitt ofbeldi og valdið usla. And­staðan þar við gyð­inga er tölu­verð þó að þeir séu innan við 5000 í land­inu. Gyð­inga­hatur kemur víða ann­ars staðar fram hjá stjórn­mála­leið­togum Evrópu. Jean Marie le Pen, stofn­andi frönsku Þjóð­fylk­ing­ar­innar, sagði að hel­förin væri smá­at­riði í sög­unni og Björn Söder, fyrrum þing­flokks­for­maður Sví­þjóð­ar­demókrata, sagði að gyð­ingar sem ekki afneit­uðu gyð­ing­legri sjálfs­mynd sinni gætu aldrei orðið eig­in­legir Svíar.

Roma fólk

Roma fólkið á rætur sínar að rekja til Indlands en stærstur hluti þess býr nú í Evrópu. Fólks­fjöld­inn er óljós þar sem skrán­ing er mis­jöfn milli landa en áætlað er að hann sé um 10 millj­ónir í álf­unni. Flest býr Roma fólkið á Balkan­sakaga, þá sér­stak­lega í Rúmeníu og Búlgaríu, en einnig er tölu­verður fjöldi á Spáni og í Frakk­landi. Roma fólk hefur verið utan­garðs í gegnum tíð­ina og mikið á flakki. Það hefur yfir­leitt mætt fyr­ir­litn­ingu ann­arra íbúa og títt verið upp­nefnd sígaunar. Sú mýta að Roma fólk sé þjófótt og óheið­ar­legt er lífseig í hugum fólks og stjórn­mála­leið­togar í þjóð­ern­ispópúl­ískum flokkum hafa verið dug­legir að halda henni á lofti. Gabor Vona, leið­togi Jobbik flokks­ins í Ung­verja­landi sagði t.d.:

„Við verðum að snúa við þessum hund­ruð þús­unda Roma útlaga. Við megum ekki sýna neitt umburð­ar­lyndi gagn­vart glæpum og sníkju­lífi Roma fólks.”

Félagi hans, þing­mað­ur­inn Elod Novak, sagði einnig nýverið að fjöldi Roma fólks væri stærsta vanda­mál Ung­verja­lands. Volen Siderov, leið­togi Ataka flokks­ins í Búlgaríu segir að Búlgörum sé slátrað og nauðgað af “sígauna­gengjum”. Í aug­lýs­inga­bæk­lingi frá Marian Kotleba, leið­toga slóvaska flokks­ins Okkar Slóvakíu, er talað um “sígauna sníkju­dýr”. Jean Marie le Pen, stofn­andi frönsku Þjóð­fylk­ing­ar­innar sagði að þegar Rúmeníu og Búlgaríu væri hleypt inn í Evr­ópu­sam­bandið myndi Roma fólk flæða yfir Evrópu með sína illa þefj­andi nær­veru og það væri í eðli þeirra að stela. Landi hans, þing­mað­ur­inn Gilles Bourdouleix, komst í frétt­irnar fyrir að segja að Hitler hafi ekki drepið nógu mikið af Roma fólki. Um 100 til 200 þús­und Roma fólks fórst í hel­för­inni.

Samkynhneigðir

Við lifum á tímum þar sem sam­kyn­hneigt fólk hefur náð fram umtals­verðum mann­rétt­indum og jafn­rétti. Ört bæt­ast ríki á þann lista sem heim­ila gift­ingar sam­kyn­hneigðra, þá sér­stak­lega í Vestur-Evrópu. Upp­gangur þjóð­ern­ispópúl­ískra flokka er þó tölu­vert bakslag í þá bar­áttu því að þeir flokkar berj­ast nær und­an­tekn­inga­laust gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra og fyrir hina hefð­bundnu kjarna­fjöl­skyldu. Undir niðri kraumar mikil hómó­fóbía eins og ummæli ýmissa leið­toga þeirra sýna. Pentti Oinonen, þing­maður Sannra Finna, neit­aði að mæta á dans­leik í for­seta­höll­inni á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn þar sem þar yrðu sam­kyn­hneigt fólk. Ef hann yrði for­seti fengju „homma­tittir” ekki að dansa í höll­inni. Félagi hans úr Sönnum Finnum, þing­mað­ur­inn Teuvo Hakk­arainen, sagði að ef „homma­tittir” eign­uð­ust börn yrðu þau „tvö­faldir homma­tittir”. Björn Söder þing­maður Sví­þjóð­ar­demókrata sagði í blogg­færslu sinni í tenglsum við Gay Pride göng­una:

„Af hverju ætti normalís­er­ingin að enda með les­bísku, sam­kyn­hneigðu, tví­kyn­hneigðu og trans­gender fólki? Við gætum alveg eins normalíserað fólk sem fremur dýra­níð og barn­a­níð­inga? Þessi kyn­ferð­is­lega brenglun er ekki eðli­leg og mun aldrei verða eðli­leg. Eðlilegt er það sem við vorum sköpuð til að gera, þ.e. að geta afkvæmi og koma ætt­ar­nafni okkar áfram.”

Árið 2012 reyndi Jobbik flokk­ur­inn að koma í gegn breyt­ingu á ung­versku stjórn­ar­skránni sem bann­aði útbreiðslu á „kyn­ferð­is­legri brenglun”. Sam­kyn­hneigð var þar sett undir sama hatt og barn­a­níð. Flokks­menn töldu rétt að við­ur­lögin við slíkri útbreiðslu yrði á bil­inu 3 til 5 ára fang­els­is­dómur.

Húðlitur

Fordómar og mis­munun á grund­velli húð­litar er eitt elsta og aug­ljós­asta form ras­isma. Hið mis­mikla magn melan­íns í húð manna hefur valdið ótrú­legri sundr­ungu, ánauð og ofbeldi í gegnum tíð­ina. Helst hefur það bitnað á þeim sem hafa meira magn melan­íns í húð­inni og þar af leið­andi þola útfjólu­bláa geisla sól­ar­innar betur, þ.e. dekkra fólki. Þetta form af kyn­þátta­hatri ristir djúpt hjá þjóð­ern­ispópúlistum þó að margir hverjir telji sig ekki ras­ista. Velski Evr­ópu­þing­mað­ur­inn Nick Griffin úr Breska Þjóð­ar­flokknum sagði að það væri ekki til neitt sem héti svartur Wales-verji. Landi hans úr UKIP, David William Griffiths, sagði við and­lát Nelson Mandela að sumu fólki væri ætlað að vera þrælar. Anne Sophie Leclere, fram­bjóð­andi frönsku Þjóð­fylk­ing­ar­innar, birti færslu á Facebook þar sem hún líkti inn­an­rík­is­ráð­herr­anum Christiane Taubira (sem er frá frönsku Gíneu) við apa. Annar fram­bjóð­andi flokks­ins, Jean-Francois Brugiere, stóð að mót­mælum gegn ráð­herr­anum þar sem kallað var að henni „Api, éttu ban­an­ann þinn”. Brugiere varði það fólk. Jussi Halla-aho, þing­maður Sannra Finna, lét hafa þessi ummæli eftir sér á blogg­síðu.

„Við skulum ekki kenna Afr­íku­mann­inum um, sem getur aðeins tjáð sig á þann máta sem vél­ar­bún­aður hans leyfir. Aðal söku­dólg­ur­inn og skot­mark rétt­mæt­urs hat­urs er stjórn­mála­el­ítan sem lifir í draum­heimi, heldur að nigg­ari sé aum vera sem þarfn­ast hjálpar, en hugsar ekki um félags­legan frið.”

Flokks­fé­lagi hans á finnska þing­inu, James Hir­visa­ari, sagði einnig að Afr­íku­menn væru haldnir „frum­stæðum hvötum” og „glæp­sam­legri frum­skóg­ar­menn­ingu”. Andreas Molzner, þing­maður aust­ur­ríska Frels­is­flokks­ins, sagði að ef Evrópa yrði að „sam­steypu negra” myndi ríkja alger ringul­reið. Mario Borghezio, þing­maður Norð­ur­banda­lags­ins á Ítalíu, sagði að engir snill­ingar hefðu nokkru sinni komið frá Afríku. Mogens Camre, Evr­ópu­þing­maður úr danska Þjóð­ar­flokknum, kvart­aði yfir því að sjá tvo lit­aða menn ræða um dönsk stjórn­mál í sjón­varpi. Menn­irnir eru þó báðir Danir.

Þjóð­ern­ispópúlistar hafa einnig tjáð sig um húð­lit og knatt­spyrnu. Jean Marie le Pen gagn­rýndi val á leik­mönnum í franska lands­liðið, þar væru ekki nægi­lega margir hvítir leik­menn og það end­ur­spegl­aði þar af leið­andi ekki frönsku þjóð­ina. Liðið vann engu að síður bæði heims og Evr­ópu­meist­ara­tit­il­inn fyrir Frakk­land. Alex­ander Gauland, einn af stof­endum og leið­togum þýska flokks­ins Valkost fyrir Þýska­land, komst nýverið í frétt­irnar fyrir ummæli um lands­liðs­mann­inn Jerome Boateng (sem á föður frá Ghana). Gauland sagði að þó að Boateng væri góður knatt­spyrnu­maður myndi fólk ekki vilja eiga hann sem nágranna.

Þjóðerni

Andstaða við inn­flytj­endur er ein helsta for­senda til­vistar þjóð­ern­ispópúl­ískra flokka. Það er auð­velt að kenna útlend­ingum um vanda­mál heima­fyrir og til þess að gera það þarf að taka mennsk­una af þeim og setja þá alla undir sama hatt. Ein helsta leiðin til þess er að halda á lofti staðalí­myndum um þjóðir sem hafa byggst upp í gegnum ald­irnar sökum for­dóma. Andre Lampitt, aug­lýs­inga­full­trúi UKIP flokks­ins full­yrti að Níger­íu­menn væru yfir höfuð slæmt fólk. Liðsmenn UKIP hafa þó verið afhafna­sam­ari í að benda á meinta lesti Rúmena. Þing­mað­ur­inn Diane James sagði að þeir væru óum­deil­an­lega tengdir glæp­a­starf­semi og leið­togi flokks­ins, Nigel Farage, sagði að hann yrði áhyggju­fullur ef Rúmenar byggju við hlið­ina á honum. Þegar hann var spurður hvers vegna svar­aði hann: „Þú veist hvers vegna”

Evr­ópu­þing­mann­inum Elefther­ios Syna­d­inos, sem sat fyrir gríska flokk­inn Gullna Dögun, var nýverið vikið af þing­inu fyrir ummæli sem hann lét falla um Tyrki. Hann kall­aði þá skítuga, meng­aða og líkti þeim við villi­hunda. Matteo Salvini, leið­togi Norð­ur­banda­lags­ins á Ítalíu, full­yrti að fólk frá ríkjum Norður Afríku flytti með sér berkla og kláða­maur. Geert Wilders, Leiðtogi hol­lenska Frels­is­flokks­ins, sem ávallt hefur haldið því fram að afstaða hans sé bundin við trúnna islam, ber­aði sig á kosn­inga­kvöldi í Haag árið 2014. Þar ávarp­aði hann stuðn­ings­menn sína með orð­unum:

„Viljið þið, hér í þess­ari borg, og í öllu Hollandi, fleiri eða færri Marokk­ó­búa?”

Mann­fjöld­inn svar­aði „Færri!” og þá sagði Wilders „Þá lögum við það!”

Þjóð­ernið þarf ekki einu sinni að vera útlenskt. Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir hafa lengi barist gegn rétt­indum Sama í Norður-Svíþjóð. Með orð­ræðu sinni hafa þeir reynt að gera þá að útlend­ingum með því að segja að Samar geti ekki verið eig­in­legir Svíar. Einnig hafa þeir sagt að hent­ugt væri að landa­mæri færu eftir þjóð­ern­is­legum línum.

Ekki á Íslandi…?

Þjóð­ern­ispópúl­ískir flokkar í Evrópu hafa risið hratt. Sumir sem voru nán­ast ósýni­legir á hinu póli­tíska landa­korti fyrir örfáum árum síðan mæl­ast nú með 20% eða 30% fylgi og sitja jafn­vel í rík­is­stjórnum. Hér á Íslandi hefur það sama ekki gerst. Frjáls­lyndi flokk­ur­inn fet­aði inn á þessar brautir en inn­an­flokks­deilur og lít­ill hljóm­grunnur gerði út af við flokk­inn fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2009. Einstaka alþing­is­menn og sveit­ar­stjórn­ar­menn hafa daðrað við innnflytj­enda og múslima­andúð en mætt mik­illi hörku af öðrum stjórn­mála­mönnum, jafn­vel þeirra eigin flokks­mönnum.

Umræðan í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum ber þess þó merki að frjór jarð­vegur sé fyrir slíkan flokk og nýverið voru ein slík sam­tök sett á legg. Ekki er þó vitað hversu mikil alvara er á bak við sam­tökin og hvort þau muni yfir höfuð bjóða fram til kosn­inga. Það þó ekki óum­flýj­an­legt að þjóð­ern­ispópúl­ískur flokkur geti náð tölu­verðu fylgi og áhrifum hér á landi. Við höfum meira að segja dæmi frá t.d. Skotlandi og Spáni þar sem þjóð­ern­is­sinn­aðir flokkar beita sér ekki gegn minni­hluta­hópum og ná samt miklum áhrifum. Þar hafa þjóð­ern­ispópúl­ískir flokkar aftur á móti nán­ast ekk­ert fylgi. Við Íslend­ingar höfum val um hvers konar stjórn­mála­menn­ingu við viljum sjá hérna. Ofan­greind dæmi sýna glöggt hvaða box við opnum með því að gefa þjóð­ern­ispópúl­isma undir fót­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár