Topp 10 - Tónleikar á Íslandi

Justin Timberlake kom til Íslands árið 2014.
Justin Tim­berlake kom til Íslands árið 2014. Mynd: EPA

Koma bresku rokksveit­ar­innar The Kinks til Íslands árið 1965 mark­aði ákveðin tíma­mót í íslenskri tón­list­ar­sögu. Upp frá því hófu erlendar stór­sveitir og tón­list­ar­menn að venja komur sínar hingað þó að það hafi vissu­lega verið strjált í upp­hafi. Árið 2016 verður íslensku tón­list­ar­á­huga­fólki afar gott. Meðal heims­frægra tón­list­ar­manna sem boðað hafa komu sína má nefna Radi­ohead, Muse, Brian Wilson og sjálfan Justin Bieber. En hvað eru merki­leg­ustu tón­leik­arnir hingað til?

10. David Bowie

Tón­leikar David Bowie í Laug­ar­dals­höll þann 20. júní árið 1996 voru hluti af Lista­há­tíð í Reykja­vík og tók­ust með ein­dæmum vel. Hljóm­sveitin Lhooq (með Jóhann Jóhanns­son inn­an­borðs) hit­aði upp en þegar Bowie mætti á sviðið ætl­aði þakið að rifna af hús­inu. Áhorf­endur voru um 5500 manns á öllum aldri og vita­skuld löngu upp­selt. Bowie, sem kall­aður hefur verið kamelljón rokks­ins og komið víða við í tón­list­ar­sköpun, sagði eftir tón­leik­ana að hann væri að sjá alveg nýjan aðdá­enda­hóp. Í Laug­ar­dals­höll spil­aði hann tölu­vert af nýj­ustu plötu sinni Outside sem er mjög ævin­týra­gjörn og elektrónísk. Áhorf­endur tóku aftur á móti betur í eldri slag­ara á borð við Heroes, Diamond Dogs og Under Pressure. Hann spil­aði þó ekki mikið af hinu svo­kall­aða Ziggy Stardust skeiði sem gerði hann frægan í upp­hafi átt­unda ára­tug­ar­ins. Bowie hældi landi og þjóð í hástert á sjón­varps­stöð­inni MTV og hvatti fólk til að heim­sækja landið.

9. Black Sabbath/Jethro Tull

Á hálfr­ar­aldar afmæli Akra­nes­kaup­staðar árið 1992 var ákveðið að halda stór­tón­leika í bænum sem nefnd­ust Skagarokk. Skaga­menn voru stór­huga og bók­uðu tvö risa nöfn úr rokk­heim­inum, Jethro Tull og Ozzy Osbourne. Þeir bjugg­ust við a.m.k. 3000 tón­leika­gestum í heild­ina og stefndu á að hafa við­burð­inn árleg­ann, töl­uðu jafn­vel um að Akranes yrði að „Hró­arskeldu Íslands“. Þegar ljóst var að Ozzy kæm­ist ekki náð­ist sam­komu­lag við hans gömlu hljóm­sveit Black Sabbath um að spila í hans stað. Tón­leik­arnir fóru fram í íþrótta­húsi Akraness 25. og 26. sept­em­ber. Jethro Tull spil­uðu á fyrra kvöld­inu með Gildruna sem upp­hit­un­ar­band og Black Sabbath á seinna kvöld­inu ásamt hinni norsku hljóm­sveit Eiríks Hauks­sonar, Artch. Miða­salan var ákaf­lega dræm, ein­ungis nokkur hund­ruð miðar sam­an­lagt, og þá sér­stak­lega á seinni tón­leik­anna. Það þó að rokk­guðir á borð við Tony Iommi, Geezer Butler og Ronnie James Dio kæmu fram og spil­uðu gamla slag­ara frá Ozzy tím­anum í bland við nýtt efni. Nú er í bígerð heim­ild­ar­mynd um ævin­týrið.

8. Wu Tang Clan

Þann 20. des­em­ber árið 1997 átti amer­íska ofurrappsveitin Wu Tang Clan að stíga á svið í Laug­ar­dals­höll­inni en á síð­ustu stundu var tón­leik­unum aflýst. Meðlimir hljóm­sveit­ar­innar höfðu lent í bílslysi í New York og for­sprakki þeirra Ol´ Dirty Bastard slasast. Ári seinna kætt­ust Wu Tang aðdá­endur hér­lendis þegar til­kynnt var að Hljóm­sveitin Gravediggaz (með Wu Tang stjörn­una RZA inn­an­borðs) myndi spila í Fylk­is­höll­inni, en RZA mætti ekki. RZA kom þó hingað í heim­sókn með leik­stjór­anum Quentin Tar­antino árið 2006 og sagði vel mögu­legt að Wu Tang spil­uðu hér. Rapp­þyrstir Íslend­ingar þurftu þó að bíða í níu ár þegar loks var til­kynnt að hljóm­sveitin myndi loka Secret Solstice hátíð­inni árið 2015. 21. júní stigu þeir á svið í Laug­ar­dalnum, sjö tals­ins. RZA var ekki meðal þeirra og ekki heldur Ol´Dirty sem lést árið 2004. Tón­leik­arnir gengu hins vegar mjög vel og eru senni­lega stærsti rapp­við­burður Íslands.

7. Snoddas

Árið 1952 greip um sig mikið æði í Svíþjóð fyrir ungum pilti að nafni Gösta Nordgren, sem kall­aður var Snoddas. Snoddas þýðir litli gúmmí strák­ur­inn, við­ur­nefni sem hann fékk vegna þess að faðir hans seldi smokka. Snoddas var ljúf sál en nokkuð ein­faldur og tón­list hans nokkuð gam­al­dags. Smá­skífan Flott­ar­k­ar­lek seld­ist eins og heitar lummur og SÍBS brá á það ráð að fá hann hingað til lands­ins til þess að syngja á nokkrum tón­leikum. Æðið fylgdi Snoddas til Íslands og þegar hann kom hingað í mars­mán­uði árið 1953 var hann á for­síðum allra blað­anna og gat sig varla hreyft án þess að það teld­ist frétt­næmt. Íslend­ingar voru ekki vanir slíkum stór­stjörnum á þessum tíma og fljót­lega seld­ist upp á alla tón­leik­ana sem hann átti að syngja á. Eft­ir­vænt­ingin var mikil en von­brigðin jafn­vel meiri þegar hann loks hóf upp raust sína. Snoddas söng svo skelfi­lega að áhorf­endur áttu í basli með að halda niðri í sér hlátr­inum. Æðið í Svíþjóð dó einnig fljót­lega út og þessi kafli er í dag tal­inn einn sá vand­ræða­leg­asti í sænskri tón­list­ar­sögu.

6. Elton John

Það var klaufa­lega staðið að komu hins heimsku­nna tón­list­ar­manns Elton John hingað árið 2000. Aðstand­endur tón­leik­anna létu gera rann­sókn á mögu­legri aðsókn og ákváðu í kjöl­farið að panta Laug­ar­dals­völl­inn. Tölurnar stóð­ust þó engan veg­inn og ein­ungis 8000 manns keyptu miða á tón­leik­ana sem skil­aði um 10 milljón króna tapi. Fram­kvæmd tón­leik­anna sjálfra var einnig klaufa­leg. Það var kalt úti þann 1. júní, stúk­urnar voru illa skipu­lagðar, ljósa­kerfið lélegt o.s.frv. En ekki var hægt að kvarta yfir tón­list­inni. Ný Dönsk og KK hit­uðu upp fyrir Elton sem svo spil­aði allar sínu helstu perlur á lysti­legan hátt. Ekki er heldur hægt að segja að tón­leika­gestir hafi fengið lítið fyrir aur­inn því að hann spil­aði í næstum þrjá klukku­tíma. Þetta er ekki í eina skiptið sem Elton John hefur spilað hér á landi. Hann tróð upp í alræmdri afmæl­is­veislu Ólafs Ólafs­sonar 20. jan­úar árið 2007 sem haldin var í frysti­geymslu Samskipa við Voga­bakka. Þar spil­aði hann ein­ungis í klukku­tíma en talið er að hann hafi fengið um milljón Banda­ríkja­doll­ara fyrir við­vikið.

5. Justin Timberlake

Justin Tim­berlake, ein stærsta popp­stjarna ver­aldar, tróð upp í Kórnum í Kópavogi þann 24. ágúst árið 2014, en það eru fyrstu stór­tón­leik­arnir sem haldnir eru í knatt­spyrnu­höll­inni. Mikið Tim­berlake æði greip land­ann þegar til­kynnt var að hann myndi halda tón­leika hér en upp­runa­lega áttu þeir að fara fram í júní. Áætlað er að tæp­lega 17 þús­und manns hafi sótt tón­leik­ana en einnig var hægt að fylgj­ast með þeim í beinni útsend­ingu á net­síð­unni Live Nation. Um ein milljón manns horfði á þá víðs vegar um heim. Meðal tón­leika­gesta var banda­ríski auð­kýf­ing­ur­inn Bill Gates sem flaug hingað á einka­þotu sinni og hafði heila stúku út af fyrir sig og fylgd­ar­fólk sitt. Tim­berlake kom með sinn eigin plötu­snúð, DJ Freestyle Steve, til að hita upp en einnig spil­uðu Gus Gus áður en popp­kóng­ur­inn sté á svið. Tón­leikar Tim­berlake gengu vel og sjón­ar­spilið var mikið. Lýðurinn ærð­ist hrein­lega í loka­lagi tón­leik­anna, hinu nýút­komna Mirrors.

4. Louis Armstrong

„Satchmo“, eitt stærsta nafn í sögu jazz-tón­listar, kom til Íslands í febr­úar árið 1965 og hélt ferna tón­leika í Háskóla­bíói, 8. og 9. þess mán­aðar. Það var knatt­spyrnu­deild Víkings sem flutti Arm­strong inn til lands­ins og skipu­lagði tón­leik­ana. Vita­skuld var troð­fullt á þá alla. Arm­strong hafði verið í brans­anum allt síðan á öðrum ára­tug sein­ustu aldar og þegar hann tróð upp á Íslandi var hann kom­inn vel á sjö­tugs­aldur. Á þessum árum túraði hann stíft með hljóm­sveit sinni um víða ver­öld og gaf ennþá út plötur, mörg af hans fræg­ustu verkum voru samin á þessum tíma. En ald­ur­inn var far­inn að segja til sín og það sást greini­lega í Háskóla­bíói. Ráma röddin var ennþá til staðar og trompet­leik­ur­inn en hann þurfti að hvíla mikið og lét hljóm­sveit sína alfarið um nokkur lög. Arm­strong, sem dvaldi á Hótel Sögu, var þó ánægður með við­tök­urnar og Íslend­inga. Hann sagði að það „væri mik­ill djass í þessu fólki“.

3. Metallica

Árið 2002 var Egils­höllin í Graf­ar­vogi vígð og þar með var kom­inn góður vett­vangur fyrir fjöl­menna tón­leika. Fyrstu tón­leik­arnir sem voru haldnir þar voru með amer­ísku þung­arokks­ris­unum Metallica þann 4. júlí árið 2004. Metallica var stofnuð árið 1981 og á gríð­ar­stóran og dyggan aðdá­enda­hóp hér á landi eins og annar staðar. Það kom því ekki á óvart að 18 þús­und manns lögðu leið sína í Graf­ar­vog­inn til að líta goðin augum, Íslands­met inn­an­húss sem stendur ennþá. Íslensku rokk­hljóm­sveit­irnar Brain Police og Mínus hit­uðu upp við góðar und­ir­tektir. Allt ætl­aði svo um koll að keyra þegar aðal­númer kvölds­ins stigu á sviðið. Metallica spil­uðu 11 af sínum þekkt­ustu lögum og voru svo klapp­aðir upp í tvígang og spil­uðu hvorki meira né minna en 7 lög í við­bót. Eini skugg­inn á tón­leik­unum var sá að loft­ræsti­kerfi hall­ar­innar fór úr skorðum og þó nokkrir tón­leika­gestir áttu í erf­ið­leikum með and­ar­drátt. Alls voru fjórir fluttir á slysa­deild vegna þessa.

2. Rage Against the Machine

Fáar hljóm­sveitir hafa skot­ist jafn snöggt upp á stjörnu­sviðið og rapp­skotna rokksveitin Rage Against the Machine frá Los Angeles. Bandið var stofnað árið 1991 og ári seinna kom þeirra fyrsta plata út. Hún var sjálftitluð, seld­ist í bíl­förmum og þykir ennþá ein af bestu rokk­plötum allra tíma. Hálfu ári eftir útgáfu plöt­unnar, þann 12. júní árið 1993, tróðu Rage Against the Machine upp í Kaplakrika en tón­leik­arnir voru liður í Lista­há­tíð Hafn­ar­fjarðar það árið. Um 4000 manns voru í hús­inu, mik­ill hiti og hama­gangur. Vin­sælasta rokk­sveit Íslands, Jet Black Joe, hit­aði upp og þegar RATM liðar stigu á svið tryllt­ist allt og gæslan réði lítið við ung­menni sem reyndu að stökkva inn á sviðið til stjarn­anna. Söngv­ar­inn Zach de la Rocha kynnti undir hit­ann í hús­inu með því að halda ræðu um Persaflóa­stríðið og að hleypa einum áhorf­anda upp á sviðið. Fáir fóru sviknir heim eftir þetta kvöld og eng­inn þurr. Tón­leik­unum var svo sjón­varpað í heild sinni á RÚV.

1. Led Zeppelin

Breska rokksveitin Led Zeppelin kom hingað til lands og spil­aði í Laug­ar­dals­höll þann 22. júní árið 1970. Þetta var stærsti við­burð­ur­inn á fyrstu Lista­há­tíð­inni í Reykja­vík. Zeppelin-liðar voru langt frá því rosknar rokk­stjörnur, þeir voru korn­ungir og höfðu ein­ungis gefið út tvær breið­skífur. En opn­un­ar­lagið á þeirri þriðju, Immigr­ant Song, var einmitt inn­blásið af dvöl þeirra á Íslandi. Led Zeppelin spil­uðu átta lög og þar af fimm af annarri plöt­unni sem hét ein­fald­lega Led Zeppelin II og tók­ust tón­leik­arnir með afbrigðum vel. Á sjö­unda ára­tugnum hófu erlendar rokksveitir að spila hér á landi. The Kinks spil­uðu í Aust­ur­bæj­ar­bíói 1965 og The Hollies í Háskóla­bíói ári seinna. Led Zeppelin voru þó af öðru kali­beri. Þeir voru á þessum tíma­punkti ein stærsta hljóm­sveit heims. Margir biðu alla nótt­ina fyrir utan miða­söl­una. Tón­leikar Led Zeppelin eru senni­lega einn stærsti tón­list­ar­við­burður sem hald­inn hefur verið hér á landi og þeir sem voru á þessum tón­leikum stæra sig af því enn þann dag í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár