Presturinn sem hatar Ísland

Prest­ur­inn sem hélt þrumu­ræðu um Ísland og for­dæmdi pistla­höf­und Kjarnans er ekki að vekja athygli í fyrsta sinn. Fyrir nokkrum árum vildi hann taka sam­kyn­hneigt fólk af lífi og óskaði Obama dauða. Hann leiðir sér­trú­ar­söfnuð í Arizona.

Steven Anderson með eiginkonu sinni, Zsuzsanna, og átta börnum.
Steven Anderson með eig­in­konu sinni, Zsuzsanna, og átta börnum. Mynd: Faithful Word Baptist Church

Myndband með Steven Anderson, presti og stofn­anda krist­ins sér­trú­ar­safn­aðar í Arizonaríki í Banda­ríkj­unum, hefur verið dreift víða á sam­fé­lags­miðlum í dag. Séra Anderson talar þar við söfnuð sinn um bastarða­landið Ísland þar sem hlut­fall ógiftra mæðra er hátt og notkun þung­lynd­is­lyfja sé hvergi meiri í heim­inum. Anderson er mikið niðri fyrir í mynd­band­inu og verður afar reiður, hækkar róm­inn og ber í pont­una þegar hann talar um Ísland: „femínista­hel­víti” þar sem ógiftar mæður leika lausum hala.

Sagði pistlahöfund Kjarnans poppa þunglyndislyf

Anderson nefnir þar sér­stak­lega Bryndísi Evu Ásmunds­dóttur á nafn og gerir við­tal við hana að umtals­efni um sam­setn­ingu fjöl­skyldu hennar. Í ljósi þess að hún ætti börn með tveimur mönnum hlyti hún að hafa lokið við­tal­inu með því að „poppa eina töflu." Bryndís skrif­aði pistil í Kjarnann í sept­em­ber síð­ast­liðnum sem fjall­aði um sama efni og bar heitið „Okkar”. Bryndís sagði þar: „Ég á sam­setta fjöl­skyldu. Í því felst að ekki eru blóð­tengsl milli allra fjöl­skyldu­með­lima. Hér eru mín og þarna eru þín og úr verður eitt­hvað okk­ar. Ekki svo ýkja óal­gengt fyr­ir­komu­lag á Íslandi, enda hrökkva fáir við og fyll­ast skelf­ingu þegar ég útskýri fjöl­skyld­una mína.”

Hún var einnig til við­tals í þætt­inum „The Wonder List" á CNN í jan­úar þar sem umfjöll­un­ar­efnið var heims­met Íslend­inga í fæð­ingum barna utan hjóna­bands. Þar ræddi hún ásamt Sigurði Egg­erts­syni, sam­býl­is­manni sínum, um barn­eignir og hjóna­bönd, en þau áttu bæði börn með öðru fólki þegar þau kynnt­ust. Í þætt­inum sagði hún m.a.: „Það er mjög algengt á Íslandi að konur eign­ist börn á þess að vera í hjóna­bandi. Hér er fólk oft í sam­bandi í langan tíma áður en það eign­ast barn. Fólk gengur oft í hjóna­band eftir að það eign­ast barn[...]Ég held að það sé vegna þess að við búum í svo litlu og öruggu sam­fé­lagi. Hér hafa konur mikið frelsi og geta gert allt sem þeim langar til að gera".

Án efa var það umfjöllun CNN sem vakti athygli Anderson á Íslandi og Bryndísi.

Vildi taka samkynhneigða af lífi

Anderson stofn­aði sér­trú­ar­söfn­uð­inn Faithful Word Baptist Church í lok árs 2005. Hann er ekki mennt­aður en á heima­síðu hans segir að „hann hafi ferð­ast í þrjá mán­uði um Þýska­land og Austur-Evrópu þegar hann var 18 ára og lærði þar erlend tungu­mál.” Hann kynnt­ist þar eig­in­konu sinni og hefur á 15 árum eign­ast með henni átta börn.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Anderson ratar í frétt­irnar en árið 2014 birt­ist blogg á síðu Huffington Post, sem til­einkað er LGBT sam­fé­lag­inu, undir fyr­ir­sögn­inni: „Má ég kynna prest­inn sem sagð­ist vona að ég fengi krabba­mein og dæi.” Höfundur lýsir þar reynslu sinni af honum í kjöl­far þess að hann sagð­ist vilja láta taka sam­kyn­hneigt fólk af lífi til að ráða nið­ur­lögum eyðni­sjúk­dóms­ins. Í pistl­inum er farið yfir hin ýmsu ummæli Anderson, meðal ann­ars þegar hann hélt ræðu undir yfir­skrift­inni „Ástæða þess að ég hata Barrack Obama” sem sneri að því að hann bað til Guðs um að for­set­inn myndi láta lífið.

Klippta, þriggja mín­útu útgáfu af mynd­band­inu má nálg­ast hjá Nútím­anum. Hér fyrir neðan má sjá predikun Anderson í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár