Hvað varð um Prince Naseem Hamed?

Boxarinn frá Sheffi­eld stal sen­unni um tíma, en hvarf svo af svið­inu. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér sögu Prince Naseem Hamed.

Prins Naseem Hamed klauf hnefa­leika­heim­inn í tvær fylk­ingar á tíunda ára­tug sein­ustu aldar. Sumir dáðu hann og aðrir fyr­ir­litu en allir fylgd­ust grannt með honum því að hann var mik­ill skemmti­kraftur bæði utan sem innan hrings­ins. En jafn skjótt og frægð­ar­sól hans reis hvarf nafn hans í gleymsk­unnar dá. Hvað varð eig­in­lega um prins­inn

Uppgötvaðist eftir götuslag

Naseem Hamed, kall­aður Naz, er fæddur árið 1974 í stál­bænum Sheffi­eld í Jór­vík­ur­skíri í Englandi. Hann er eitt af átta systk­inum, fimm strákar og þrjár stúlkur, börn inn­flytj­enda frá Jemen á Arab­íu­skaga sem flust höfðu til Bret­lands árið 1958 í leit að betra lífi. Hamed hjónin ráku litla mat­vöru­verslun á götu­horni rétt við lík­ams­rækt­ar­stöð hnefa­leika­þjálf­ar­ans Brendan Ingle. Ingle rakst á Naz fyrir slysni þegar hann sá hann slást við aðra stráka á götu úti aðeins sjö ára gamlan. Ingle hreifst af gutta og bað föður hans um að leyfa honum að æfa hnefa­leika hjá sér. Herra Hamed sagði já og hófst þá und­ir­bún­ing­ur­inn að einum lit­rík­asta ferli hnefa­leika­sög­unnar.

Á val­ent­ínus­ar­dag árið 1992, tveimur dögum eftir átján ára afmæl­is­dag­inn steig hann inn í hring­inn í sínum fyrsta bar­daga sem atvinnu­maður. Naseem var lág­vax­inn og grannur og keppti í svo­kall­aðri bantam­vigt eða létt­fjað­ur­vig. Þrátt fyrir að vera lít­ill að vexti var hann þó gríð­ar­lega högg­þungur. John Ingle, sonur Brendans, sem hélt á æfingapúð­unum fyrir Hamed sagð­ist hafa þurft að dýfa hönd­unum í klaka­vatn eftir hverja æfingu, svo þung voru höggin. Fyrsta bar­daga Hamed lauk með rot­höggi strax í annarri lotu. Frægð­ar­sól hans reis hratt eftir það og hann varð þekktur fyrir að klára menn strax í fyrstu lot­unum og yfir­leitt með rot­höggi. Einungis tví­tugur var hann orð­inn Evr­ópu­meist­ari í bantam­vigt en það var fjað­ur­vigtin sem hann stefndi að. 21 árs gam­all vann hann WBO heims­meist­ara­tit­il­inn (einn af fjóru stóru titl­unum) í Cardiff gegn ríkj­andi meist­ar­anum Steve Robinson. Hamed var þar með orð­inn yngsti breski heims­meist­ar­inn í meira en hálfa öld.

Prinsinn ósigrandi

Hann kall­aði sig prins Naseem og varð strax gríð­ar­lega vin­sæll í Bret­landi. Það var ekki ein­ungis árangur prins­ins sem afl­aði honum vin­sælda heldur einnig hvernig hann hag­aði sér, tal­aði, klæddi sig og sér í lagi hvernig hann barð­ist. Hamed hélt hönd­unum niðri og bauð and­stæð­ingum að láta til skarar skríða. Hann engdi þá, dans­aði, hló að þeim og beið eftir að þeir bitu á agnið. Þetta var hættu­legur leikur en hann var leift­ur­snöggur og varð­ist með að sveigja sig frá högg­unum. Þá lét hann til skarar skríða, yfir­leitt með vinstri hnef­anum (þar sem hann er örv­hentur) og gat lent rot­höggi á svip­stundu. Hann stefndi ávallt á að ljúka bar­daga með einu höggi frekar en á dóm­ara­úr­skurði. Sig­ur­ganga Hameds hélt stöðugt áfram. Árið 1997 vann hann IBF heims­meist­ara­tit­il­inn í London gegn Tom Johnson og það sama ár keppti hann í fyrsta sinn í Banda­ríkj­unum gegn áskor­and­anum Kevin Kelley. Árið 1999 bætti hann WBC heims­meist­aratitl­inum í safnið þegar hann sigr­aði hinn mexíkóska César Soto í Detroit borg. Prinsinn virt­ist hrein­lega ósigr­andi og fáir bar­dagar voru jafnir eða spenn­andi.

Vin­sældir Hameds juk­ust með hverjum bar­dag­anum. Pen­ing­arnir streymdu inn bæði í formi verð­launa­fés og feitra aug­lýs­inga­samn­inga við fyr­ir­tæki á borð við Adidas og HBO. Á þessum tíma nutu hnefa­leikar gríð­ar­legra vin­sælda, áður en bland­aðar bar­daga­í­þróttir (MMA) hófu að taka yfir mark­að­inn, og allir fylgd­ust með prins­inum. Um 10 millj­ónir Breta horfðu á bar­daga hans í sjón­varpi, sem gerir um 1/6 af allri þjóð­inni. Hann var lang­tekju­hæsti breski íþrótta­mað­ur­inn um tíma. Árið 2000 hal­aði hann inn 7,5 millj­ónum punda fyrir ein­ungis tvo bar­daga. Það var tvisvar sinnum meira fé en knatt­spyrnu­stjarnan David Beckham vann sér inn allt árið. Andlit prins­ins var alls staðar. Hann lék í aug­lýs­ingum, tón­list­ar­mynd­böndum, hitti þjóð­höfð­ingja og fékk sinn eigin tölvu­leik.

En sam­fara vel­gengn­inni og frægð­inni jókst sýnd­ar­mennska hans og hroki. Það er eng­inn nýlunda að hnefa­leika­kappar líti stórt á sig og tali niður til mótherja sinna en prins­inn fór með þetta í nýjar hæðir. Hann fór að hætta að hugsa um bar­dag­ana sjálfa heldur meira um inn­komu sína inn í hring­inn, klæðnað og fleira. Inn­komurnar voru vel skipu­lagðar og þaul­æfðar. Í eitt sinn kom hann inn á fljúg­andi teppi, í annað sinn á bíl. Fyrir einn bar­daga var mynd­bandið við Thriller Michaels Jackson sett á svið og fyrir annan var Hamed í fylgd rapp­ar­ans Puff Daddy. Inn­komurnar voru orðnar mun meira spenn­andi en bar­dag­arnir sjálfir sem allir end­uðu á einn veg. Prinsinn klædd­ist stutt­buxum úr tígris­dýramunstri sem hann gerði að aðals­merki sínu og hansk­arnir voru yfir­leitt úr ekta geita­leðri. En þetta allt skap­aði honum ekki bara vin­sældir heldur einnig miklar óvin­sældir, sér­stak­lega hjá lýsendum og fólki úr brans­anum. Margir áhorf­endur, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum, hrein­lega höt­uðu hann eða a.m.k. elsk­uðu að hata hann. Reynt var að gera lítið úr afrekum hans og sagt var að and­stæð­ingar hans væru ekki nógu góðir. Það á sér þó enga stoð í veru­leik­anum því að and­stæð­ing­arnir sem hann sigr­aði voru margir hverjir heims­meist­arar sem höfðu verið ósigr­aðir um áraraðir.

Hátt fall

Fyrstu brest­irnir á ferli Hameds komu fram seint á árinu 1998 þegar hann sleit sam­bandi sínu við Brendan Ingle. Ingle sak­aði Hamed um græðgi og að hann hefði orðið meira óþol­andi og lat­ari eftir því sem hann varð rík­ari. Ingle hafði verið þjálf­ari Hameds í 17 ár en eftir þetta töl­uð­ust þeir ekki við. Prinsinn hélt samt áfram tit­il­vörnum sínum. 35. sigur hans í röð kom gegn Banda­ríkja­mann­inum Augie Sanchez í ágúst árið 2000. En í þeim bar­daga hand­ar­brotn­aði Hamed. Hann þurfti á skurð­að­gerð að halda og var frá æfingum mán­uðum saman. Prinsinn hafði ekki agann í að halda sér í formi fyrir næsta bar­daga, gegn fyrrum heims­meist­ar­anum Marco Antonio Barrera frá Mexíkó.

Þrátt fyrir lélegt lík­am­legt ásig­komu­lag var prins­inn sjálfs­traustið upp­málað fyrir bar­dag­ann afdrifa­ríka í Las Vegas þann 7. apríl 2001. Hann var tal­inn mun sig­ur­strang­legri á veð­bönk­unum og sjálfur hugs­aði hann mun meira um inn­komu sína og hansk­ana heldur en and­stæð­ing­inn. Barrera var aftur á móti vel und­ir­bú­inn og náði að halda prins­inum í skefjum með klókindum og belli­brögðum. Bar­dag­inn end­aði með naumum sigri Barrera eftir 12 lotur og dóm­ara­úr­skurð. Gagn­rýnendur prins­ins gátu vart hamið sig fyrir kæti og lýsendur köll­uðu bar­dag­ann burst þó svo að ein­ungis hafi munað u.þ.b. 5 höggum.

Þó að bar­dag­inn við Barrera hafi í raun­inni verið naumt tap þá var hann engu að síður mikið sál­fræði­legt áfall fyrir Hamed. Ímynd hans sem hinn ósigr­andi box­ari var horfin og hann gat tæp­ast haldið áfram með hend­urnar niðri og kjaft­inn á fullu. Það leið rúmt ár þangað til hann steig aftur í hring­inn, þá á heima­velli í London. Þar sigr­aði hann Spán­verj­ann Manuel Calvo í óeft­ir­minni­legum bar­daga á dóm­ara­úr­skurði og vann minni­háttar belti fyrir vikið. Áhorf­endur baul­uðu á prins­inn þetta kvöld. Í kjöl­farið riftu allir helstu styrkt­ar­að­ilar samn­ingum við hann. Skaðinn var skeður og þetta reynd­ist sein­asti bar­dagi prins­ins sem var þá ein­ungis 28 ára gam­all. Hamed hætti aldrei form­lega og sjálfur kenndi hann hand­ar­meiðslum um en það var öllum ljóst að bar­dag­inn við Barrera hafði verið honum um megn.

Slysið

Þann 2. maí árið 2005 olli Naseem Hamed þriggja bíla árekstri í heima­borg sinni Sheffi­eld. Hann keyrði utan í tvo bíla á tæp­lega 150 km/klst hraða með þeim afleið­ingum að hjón sem keyrðu annan bíl­inn slös­uð­ust illa og þá sér­stak­lega eig­in­mað­ur­inn, Anthony Burgin. Öll stærstu bein lík­ama hans annað hvort brotn­uðu eða brákuð­ust og hann marð­ist á heila sem olli 100% örorku fyrir lífs­tíð. Hamed slapp sjálfur alger­lega við meiðsli. Ökumaður þriðja bíls­ins sagði fram­úr­akstur Hameds hafa verið ótrú­lega heimsku­legan og lík­astan sjálfs­morði. Hamed var kærður fyrir háska­akstur og dæmdur til 15 mán­aða fang­els­is­vistar. Auk þess var honum gert skilt að greiða Burgin hjón­unum um eina milljón punda og hann missti öku­leyfið í fjögur ár. Hamed sat þó ein­ungis inni í fjóra mán­uði, rest­ina af dóm­inum fékk hann að afplána í stofu­fang­elsi.

Tveimur árum eftir árekst­ur­inn var Burgin sjálfur kærður fyrir glæfra­akstur þar sem hann ók í veg fyrir bíl Eleaöshu, eig­in­konu Hameds, og þving­aði hana af veg­inum. Börn hjón­anna voru einnig í bílnum. Eftir atvikið veitt­ist Burgin að henni í bílnum og heimt­aði að fá að tala við Naseem. Eleasha var í miklu upp­námi og tjáði dóm­urum það að Burgin hafði sést nokkrum sinnum fyrir utan heim­ili þeirra fyrir atvikið. Burgin var sýkn­aður af glæfra­akstri en dóm­ari biðl­aði til bæði Hamed hjón­anna og Burgin að láta kjurrt liggja.

Breyttur maður

Í júní árið 2015 var Naseem Hamed tek­inn inn í frægð­ar­höll hnefa­leik­anna í New York. Fáir hnefa­leika­menn minnt­ust hans og áhorf­endur virt­ust hrein­lega hafa gleymt honum, jafn­vel í Bret­landi. Þeir sem á annað borð tjáðu sig um hann gerðu ein­ungis lítið úr afrekum hans. Goð­sögnin um prins­inn virð­ist hafa alger­lega gufað upp eftir þetta kvöld í Las Vegas og hnefa­leika­heim­ur­inn sam­mælst um að þegja hana í hel eftir það. Hamed hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hann hætti hnefa­leika­iðkun og síðan þá ein­ungis kom­ist í frétt­irnar fyrir árekst­ur­inn afdrifa­ríka. Hann er nú nán­ast alger­lega óþekkj­an­legur maður miðað við fyrri tíð. Í dag er Hamed heldur fálátur maður sem á jafn­vel erfitt með að tjá sig við fjöl­miðla og mynda skilj­an­legar setn­ingar. Lík­am­legu atgervi hans hefur einnig hrakað mikið og hann hefur bætt á sig fjöl­mörgum aukakílóum. Hann heldur sig að mestu utan sviðs­ljóss­ins, veitir sjaldan við­töl og vill ekki láta taka myndir af sér. Húmorinn er ennþá til staðar en hrok­inn sem gerði hann svo frægan er löngu horf­inn.

Hamed hefur einnig reynt að græða þau sár sem hann olli á ferli sínum, sér­stak­lega gagn­vart fyrrum þjálf­ara sínum Brendan Ingle. Hann seg­ist hafa reynt að tala við Ingle í nokkur skipti en ávallt verið vísað frá.

„Ég vill hitta Brendan og biðj­ast afsök­unar á þeim ill­kvittnu hlutum sem ég sagði um hann, af því að ég er svo þakk­látur fyrir það sem hann gerði fyrir mig. Það sem ég lærði á þess­ari stöð og í þessu umhverfi var ómet­an­legt.“

Hann sér einnig mikið eftir bílslys­inu sem hann olli 2005. Um það segir hann.

„Það sem ég sé eftir er að hafa slasað ein­hvern á þann hátt sem ég gerði. Ég sé svo mikið eftir því. Að láta ein­hvern ganga í gegnum svo mik­inn sárs­auka...Ég vona bara að hann geti fyr­ir­gefið mér ein­hvern dag­inn. Þetta var slys.

Hamed hefur ávallt verið mik­ill fjöl­skyldu­maður. Hann er giftur þriggja barna faðir og hefur ávallt hugsað vel um fjöl­skyldu sína, for­eldra og aðra ætt­ingja. Hann er mjög trú­aður og hefur það ein­ungis ágerst með aldr­inum. Sumir telja að trúin hafi verið stór þáttur í því að hann dró sig úr sviðs­ljós­inu. Það var ekki auð­velt að vera múslimi á vest­ur­löndum eftir árás­irnar á tví­bura­t­urn­ana 11. sept­em­ber 2001, sem var einmitt um það leyti sem hann lagði hansk­ana á hill­una.

Tvö ósam­rým­an­leg við­horf koma fram þegar rætt er um feril prins­ins Naseem Hamed. Sumir tala um feril sem hefði geta orðið en aðrir um feril sem glat­að­ist. Fyrra við­horfið á að ein­hverju leyti rétt á sér. Hamed var ein­ungis 28 ára þegar hann hætti en flestir hnefa­leika­menn í dag eru á hápunkti fer­ils­ins rúm­lega þrí­tugir. Seinna við­horfið verður þó að telj­ast sann­ara. Mótherjar hans voru engir aukvisar og á hans stutta ferli sigr­aði hann níu fyrr­ver­andi, þáver­andi eða verð­andi heims­meist­ara. Hann hafði bæði snerpuna og kraft­inn sem gerði hann að algerum yfir­burða­hnefa­leika­manni í sínum þyngd­ar­flokki á árunum 1995-2000. Töl­fræðin talar sínu máli: 37 bar­dagar, 36 sigrar, 31 rot­högg, 1 tap. Verst er að hans verður ávallt minnst fyrir þetta eina tap, ef hans er þá minnst yfir­höfuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár