Stríð ISIS gegn menningunni og sögunni

Hryðju­verka­sam­tökin ISIS voru stofnuð árið 1999 en hafa síðan umbreyst og raunar verið kölluð ýmsum nöfnum. Af þeim stafar sann­ar­lega ógn. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur skoðai stríð ISIS gegn menn­ing­ar­sög­unni.

Opn­un­ar­at­riði kvik­mynd­ar­innar The Exorcist frá 1973 er tekið upp í hinni fornu borg Hatra í norð­ur­hluta Írak sem byggð var á þriðju öld fyrir Krists­burð. Rústir þess­arar vel varð­veittu borgar hafa nú að mestu leyti verið eyði­lagðar af hryðju­verka­sam­tök­unum ISIS, eða íslamska rík­inu. Eyði­legg­ing Hatra er liður sam­tak­anna í stríð­inu sem þau heyja gegn þeim þjóðum sem þau leggja undir sig. ISIS vilja ekki ein­ungis hafa líf og limi fólks í hönd­unum heldur einnig sögu þess og sjálfs­mynd.

ISIS verður til

Hryðju­verka­sam­tökin ISIS voru stofnuð árið 1999 í Jórdaníu og hafa kall­ast ýmsum nöfnum í gegnum tíð­ina. Með­lim­irnir aðhyll­ast svoköll­uðum wahabisma, sem er mjög íhalds­söm stefna innan súnní islam þar sem Kóraninn er túlk­aður á sem þrengstan hátt. Samtökin urðu strax nátengd hinum alræmdu al-Qaeda sam­tökum Osama bin Ladens og fluttu snemma mest alla starf­sem­ina til Írak. Árið 2003 réð­ust Banda­ríkja­menn og banda­menn þeirra inn í Írak og steyptu Saddam Hussain af stóli. Isis tóku þá þátt í and­spyrn­unni gegn Banda­ríkja­mönnum og lepp­stjórn þeirra undir nafn­inu al-Qaeda í Írak. Árið 2006 lýstu þeir svo yfir íslömsku ríki til að skerpa á hug­mynda­fræði­legum grund­velli sam­tak­anna og laða að rót­tæka múslima víða að úr heim­inum. Styrkur sam­tak­anna var ávallt mestur í vestur og norð­ur­hluta lands­ins og þegar borg­ara­styrj­öldin í Sýrlandi hófst árið 2011 lá bein­ast við að stækka við sig í vest­ur­átt. Ennþá undir merkjum al-Qaeda sendu sam­tökin bar­daga­sveitir yfir landa­mærin og ekki leið á löngu þar til þær fóru að hasla sér völl í allri ringul­reið­inni í Sýrlandi.

Það var núver­andi leið­togi sam­tak­anna, Abu Bakr al-Baghdadi sem færði út kví­arnar til Sýrlands og þar lýsti hann yfir íslömsku ríki árið 2013. Ári seinna lýsti hann yfir stofnun svo­kall­aðs kalífats, nokk­urs konar íslamsku kon­ungs­ríki, og það sama ár slitn­uðu tengsl sam­tak­anna við al-Qaeda. Það var einmitt þetta ár, 2014, þegar heim­ur­inn fór að taka eftir ISIS. Þeir unnu hvern hern­að­ar­sig­ur­inn á fætur öðrum og oft gegn mun fjöl­menn­ara her­liði. Yfir­ráða­svæði þeirra stækk­aði ört báðum megin við landa­mærin og nú er það á stærð við England. Auk þess fóru aðrir hópar, t.d. í Líbýu, Nígeríu, Jemen, Alsír og víðar að binda sitt trúss við ISIS og þeir stjórna þó nokkru land­svæði, sér­stak­lega í Líbýu. Langstærstur hluti yfir­ráða­svæðis sam­tak­anna er þó í Írak og Sýrlandi, á svæði sem áður var hjarta veldis Assýr­íu­manna fyrir árþús­undum síðan. Assýría var eitt fyrsta stór­veldi sög­unnar og þetta svæði er gjarnan nefnt vagga sið­menn­ing­ar­innar.

Mosul

Í júní árið 2014 hófu ISIS liðar stór­sókn í Norður-Írak og áður en mán­uð­ur­inn var lið­inn voru þeir búnir að marg­falda yfir­ráða­svæði sitt. Á meðal þeirra borga sem þeir náðu á vald sitt var Mosul, þriðja stærsta borg lands­ins en um hálf milljón manns flúðu borg­ina við yfir­tök­una. Mosul stendur við hina fornu borg Níneveh sem var höf­uð­borg Assýríu á seinni hluta veld­is­tíma þess fyrir tæp­lega 3000 árum síðan. Mosul er ein­stök menn­ingar borg og ein helsta mennta­borg Íraks og allra mið­aust­ur­landa. Þar stóðu ein­stakar minjar, bæði bygg­ingar, styttur og gripir, sem höfðu mikla þýð­ingu fyrir múslima jafnt sem kristna og aðra. Eða að minnsta kosti þangað til ISIS komu í bæinn. Undir því yfir­skini að „eyða lík­neskjum fjöl­gyð­is­trúar“ hófu sam­tökin að tor­tíma menn­ing­ar­verð­mætum kerf­is­bundið. Samtökin birtu mynd­band þar sem sýnt hvernig liðs­menn þeirra gengu um Minja­safnið í Mosul og skemmdu styttur og aðra muni með sleggjum. Hvort sem þeir vissu það eða ekki þá reynd­ust margir af þeim gripum vera eft­ir­lík­ingar en mark­mið­inu var samt náð. Heim­ur­inn var í losti.

Safnið var ekki eina stofnun borg­ar­innar sem var ráð­ist gegn. ISIS liðar tæmdu bóka­safn borg­ar­innar og héldu stóra bóka­brennu fyrir utan það. Tug­þús­undir gripa urðu eld­inum að bráð. Á meðal safn­kosta voru forn hand­rit, sum ein­stök verð­mæti, og mikið af bókum og skjölum frá tímum Ottómana­veld­is­ins. Talsmenn Menn­ing­ar­stofn­unar Sam­ein­uðu Þjóðanna (UNESCO) segja að brennan sé ein hrika­leg­asta eyði­legg­ing á safn­kosti bóka­safns í ger­vallri mann­kyns­sög­unni. [http://edition.cnn.com/2015/03/09/world/iraq-isis-heritage/] Mosul háskól­inn, sem er þekktur fyrir lækna­deild sína og er einn af þeim stærstu í mið­aust­ur­löndum, hefur að mestu staðið auður síðan borgin féll. Einnig hafa mörg af helstu trú­ar­táknum borg­ar­innar fallið, bæði íslömsk og kristin. Helst ber að nefna Mosku og graf­hýsi heilags Jónasar sem var sprengd í tætlur þann 24. júlí 2014. Jónas (í hvalnum) er bæði spá­maður í islam og dýr­lingur í kristni og bein hans eru sögð grafin í Mosul. Moskan var eitt af kenni­leitum borg­ar­innar og mjög vin­sæll píla­gríma­staður fyrir bæði múslima og kristna. Þremur dögum síðar sprengdu ISIS liðar Mosku heilags Georgs. Georg er stór per­sóna í bæði islam og kristni, t.d. vernd­ar­dýr­lingur Englands, en sú moska hafði fyrst og fremst þýð­ingu fyrir múslima þar sem kristnir telja bein hans hvíla ann­ars staðar. Moska heilags Georgs var einnig vin­sæll píla­gríma­staður. Fleiri moskur, kirkjur og klaustur hafa verið eyðilöggð í borg­inni.

Í námunda við Mosul og Níniveh eru rústir fornra borga Assýr­íu­manna og fleiri þjóða sem hafa hald­ist ótrú­lega heil­legar í þurru lofts­lag­inu. Þær eru:

Nimrud Sunnan við Mosul. Fyrsta höf­uð­borg Assýríu og ein auð­ug­asta borg forn­aldar. Einstök borg sögu­lega séð með mikið af sjald­gæfum munum. Stór hluti borg­ar­innar enn órann­sak­aður. Á heimsminja­skrá UNESCO.

Khorsa­bad Norð­austan við Mosul. Höf­uð­borg Assýríu á 8. öld f.Kr.

Hatra Suð­vestan við Mosul. Byggð á 3. öld f.Kr. Mikilvæg versl­un­ar­borg. Mikil grísk og róm­versk áhrif á bygg­ingum. Á heimsminja­skrá UNESCO.

Þessar borgir lentu allar undir yfir­ráðum ISIS og með­limir sam­tak­anna létu áætl­anir sínar í ljós. Þeir sögðu að borg­irnar væru óguð­legar og þeim yrði að eyða. Um vorið 2015 hófust þeir handa við að leggja borg­inar í rúst með jarð­ýtum og sprengjum. Þar sem það getur reynst erfitt að fá upp­lýs­ingar frá yfi­r­áða­svæði ISIS hefur umheim­ur­inn þurft að reiða sig á gervi­hnatt­ar­myndir til að sjá hversu miklar skemmd­irnar eru á þessum svæðum. Ljóst er að þau eru mjög illa farin en ekki er víst að allt hafi verið eyði­lagt því mynd­irnar gefa til kynna að mörgu hafi verið stolið. Rústir forn­alda­borga á borð við þessar hafa einnig verið not­aðar af ISIS með­limum til að þjálfa nýliða, geyma vopn og taka fólk af lífi.

Palmyra

Í maí­mán­uði árið 2015 gerðu ISIS stór­sókn í Sýrlandi og náðu m.a. borg­inni Palmyra, sem er stað­sett í miðju lands­ins, á sitt vald. Palmyra er ævaforn versl­un­ar­borg, næstum 4000 ára gömul, þar sem fólk af ýmsum þjóð­ernum bjó og hún var um tíma ein af fjöl­menn­ustu borgum heims. Borgin var suðu­pottur margra menn­ing­ar­heima. Þar mætt­ist hinn evr­ópski og hinn asíski heimur og ber arkítektúr og munir sem fund­ist hafa þar keim af því. Þegar borgin féll í hendur ISIS voru minjarnar strax nýttar á voveif­legan máta þar sem fangar voru teknir af lífi í hinu fræga róm­verska leik­húsi. Yfir­forn­minja­vörður Palmyru, sem unnið hafði þar í um hálfa öld, var afhöfð­aður og lík hans hengt upp á aðal­torgi rúst­anna.

ISIS liðar hófu strax handa við eyði­legg­ingu og rán menn­ing­ar­verð­mæta á svæð­inu. Í júní eyðilögðu þeir hina frægu styttu af Ljóninu í Al-lāt frá fyrstu öld f.Kr. Mánuði seinna voru tvö merk hof frá annarri og þriðju öld f.Kr. sprengd, þ.e. hof Baals­hamin og Bel sem til­einkuð voru fornum guðum svæð­is­ins. Í sept­em­ber var það svo stað­fest að ISIS liðar hefðu eyði­lagt hin merku graf­hýsi Palmyru. Graf­hýsin voru ein­stök að því leyti að þau voru byggð sem turnar og glæsi­lega skreytt að innan. Tor­tím­ing minj­anna var svo full­komnuð í októ­ber þegar stað­fest var að ISIS hefðu sprengt hið mikla róm­verska boga­hlið borg­ar­innar, sem byggt var um 200 f.Kr og hefur lengst af verið eitt helsta kenni­leyti svæð­is­ins og eitt merkasta mann­virki Sýrlands.

Í mars­mán­uði árið 2016 gerði sýr­lenski stjórn­ar­her­inn atlögu að Palmyra og flæmdi ISIS burt úr borg­inni. Kveðju­gjöf ISIS var að sprengja hinn fræga Palmyra kast­ala sem stendur á hæð við borg­ina og byggður var á 13. öld. Hörfandi ISIS liðum tókst ekki að eyði­leggja hann alveg en þessi atburður sýnir best hversu mikla áherslu hryðju­verka­sam­tökin leggja á það að eyði­leggja menn­ing­ar­verð­mæti.

Fleiri staðir á heimsminja­skrá UNESCO í Sýrlandi eru í bráðri hættu vegna stríðs­átak­anna og þá sér­stak­lega ef þeir skyldu lenda í höndum ISIS. Þar má helst nefna:

Gamla Damascus Elstu hlutar borg­ar­innar eru allt að 10.000 ára gamlir. Umayyad moskan ein af þeim stærstu í ver­öld­inni.

Gamla Aleppo Kastali frá tímum Alex­and­ers mikla.

Bosra Forn borg. Höf­uð­staður Rómverja í Sýrlandi. Stórt róm­verskt leik­hús.

Kross­farakast­al­arnir Stórir mið­alda­kast­alar við strönd Mið­jarð­ar­hafs­ins.

Smygl og sala

Þær minjar sem ISIS hafa kom­ist yfir hafa ekki ein­ungis sögu­legt og menn­ing­ar­legt gildi heldur eru þau einnig metin til fjár. Þetta er blessun í dul­ar­gervi því að sam­tökin hafa selt stóran hluta þeirra gripa sem þeir hafa náð, þ.e. smærri hluta. Í tölvu­gögnum lát­ins ISIS her­for­ingja fund­ust listar yfir muni og ólög­lega sölu þeirra. Þar kom fram að í einu hér­aði Sýrlands höl­uðu sam­tökin inn 36 millj­ónum banda­ríkja­doll­ara á stolnum munum. Sam Hardy, forn­leifa­fræð­ingur við Lund­ún­ar­há­skóla, segir að sam­tök sem þessi selji bæði mun­ina sjálf og aðstoði utan­að­kom­andi smygl­ara við það gegn greiðslu. Mohamed Ali Alhakim, sendi­herra Íraks hjá Sameinðu Þjóðunum, segir enn­fremur að ISIS hagn­ist um 100 millj­ónir banda­ríkja­doll­ara á ári við sölu stol­inna gripa. Þó að vissu­lega sé betra að grip­irnir séu ekki eyði­lagðir eða skemmdir þá eru þeir nán­ast alltaf seldir úr landi og því er verið að arð­ræna þær þjóðir sem eiga þá. Þessi við­skipti fara fara vita­skuld dult á svarta mark­að­inum því eng­inn heið­virður forn­minja­safn­ari myndi kaupa þessa muni og þar með knýja áfram stríðs­vél ISIS.

Þjóðarmorð

Eftir að hin forna borg Nimrud var eyðilöggð full­yrti Ban Ki-moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu Þjóðanna, að slíkir verkn­aðir væru stríðs­glæpir. [http://www.un.org/press/en/2015/sgsm16570.doc.htm] Mörgum kann að finn­ast þessi túlkun hans und­ar­leg í ljósi þess að um er að ræða dauða hluti. En til að með­taka þessi orð hans er nauð­syn­legt að skilja ástæð­urnar að baki slíkra verkn­aða.

Dr. Zainab Bahrani, pró­fessor í forn­leifa­fræði og list­fræði mið­aust­ur­landa við Columbia háskóla, tekur harðar í árina og kallar verkn­aði sem þessa þjóð­ar­morð. Hún segir:

„Þetta er ekki ein­ungis eyði­legg­ing á menn­ing­ar­arf­leið, þetta er til­raun til að eyða lýs­ingu af hópum af fólki. Þúsundir ára af sögu hvort sem það er íslömsk, for­íslömsk, frum­kristin eða Yazidi er þurrkuð út þegar ISIS reynir að end­ur­skrifa hana eftir eigin höfði. Þetta er þjóð­ar­morð.“

Hún talar einnig um ótt­ann við for­tíð­ina, þ.e. að ISIS stæði bein­línis ógn af for­tíð­inni og þess vegna vildu þeir eyða henni. Þetta sé allt hluti af áróð­urs­stríði þeirra. Hún nefnir einnig að þessar aðferðir séu ekki nýjar af nál­inni. Þeim hafi verið beitt áður í átökum þar sem áttu sér stað þjóð­ern­is­hreins­anir eins og t.d. seinni heim­styrj­öld­inni og í Balkans­stríð­unum á tíunda ára­tug sein­ustu aldar.

Fleiri forn­leifa­fræð­ingar hafa for­dæmt verkn­að­ina af hörku. Sturt W. Manning við Cornell háskóla segir skemmd­ar­verkin hræsni og eigi engan trú­ar­legan grund­völl heldur séu knúin áfram af villi­manns­legum níhil­isma. Á sama tíma og að með­lim­irnir tali um að mun­irnir séu óíslamskir þá séu þeir að selja þá á svörtum mark­aði í stórum stíl. Þetta er taktísk hern­að­ar­leg aðgerð en ekki hug­mynda­fræði­legur gjörn­ingur.

Tjónamat

Flestir fræði­menn eru sam­mála um að erfitt eða ómögu­legt sé að meta það hversu mikið af þjóð­ar­ger­semum hafi glat­ast í hild­ar­leiknum. Ljóst er þó að skað­inn er gríð­ar­mik­ill og í flestum til­vikum óaft­ur­kall­an­legur. Líklegt er að tölu­vert af smærri munum leyn­ist í læstum hirslum víðs­vegar um heim­inn en það eru stóru mun­irnir, stytt­urnar og bygg­ing­arnar, sem fræði­menn hafa mestar áhyggjur af. Gervi­hnatt­ar­myndir, mynd­bands­upp­tökur birtar af ISIS sjálfum og vitn­is­burðir fólks sýna það glöggt að þessir staðir verða aldrei þeir sömu aftur. Það er aftur á móti lítið sem fræði­menn geta gert meðan átökin standa enn yfir. Það sem þeir geta aftur á móti gert er að vekja athygli á og halda á lofti þeim verð­mætum sem hafa glat­ast. 16. apríl verður opnuð sýn­ing á Trafalgar torgi í Lundúnum þar sem Hring­bog­inn í Palmyra verður afhjúp­aður, prent­aður í nákvæmum vél­knúnum þrí­vídd­ar­prent­ara. Í kjöl­farið verður hann svo prent­aður og sýndur í fleiri borgum víðs vegar um heim.[http://digitalarchaeology.org.uk/] Þetta verður gert til að sýna sýr­lensku þjóð­inni og öðrum að umheim­inum sé ekki sama um hinn glat­aða þjóð­ar­arf þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár