Íslensk hópfjármögnunarsíða fyrirmynd í Slóveníu

Karolina Fund er í sam­starfi við sló­venska hóp­fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Adrifund eftir að skiptinemi kynnt­ist starf­sem­inni við dvöl sína á Íslandi.

Matej Rauh við stofnviðburð síðunnar
Matej Rauh við stofn­við­burð síð­unnar

Stofnuð hefur verið hóp­fjár­mögn­un­ar­síða að íslenskri fyr­ir­mynd í Slóveníu, Adrifund.com. Notast er við sama kerfi og hjá Karolina Fund og mikið sam­starf er á milli fyr­ir­tækj­anna tveggja. Matej Rauh, stofn­andi sló­vensku síð­unnar, fékk hug­mynd­ina þegar hann var staddur á Íslandi við nám í Háskól­anum í Reykja­vík. Efni meist­ara­rit­gerðar hans var hóp­fjár­mögnun og laga­legir þættir hennar í Banda­ríkj­unum og í Slóveníu. Hann segir að hann hafi strax byrjað að leita af slíkri starf­semi hér á Íslandi og fundið Karolina Fund eftir leit á net­inu.

„Þetta er mjög spenn­andi fyrir okkur. Við höfum afrekað mikið síð­asta tvo og hálfan mán­uð­inn og við­brögðin í Slóveníu um þetta fyrsta hóp­fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæki eru mjög jákvæð,“ segir Matej. Þau byrj­uðu með sjö verk­efni sem gengið hafa vonum framar. Kórar af ýmsum toga hafa m.a. nýtt sér hópsöfn­un­ina til ferða­laga.

Matej kláraði meist­ara­nám í Háskól­anum í Lju­blj­ana í nóv­em­ber 2015 og hafði fljót­lega sam­band við for­svars­menn Karolina Fund. Hann vildi nýta þá laga­legu þekk­ingu sem hann hafði til þess að stofna hóp­fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæki í heima­land­inu. „Engin slík fyr­ir­tæki voru fyrir í Slóveníu fyrir tíma Adrifund en stór hluti verk­efna safna fé á Kickstarter og Indi­egogo, svo ég vissi að það væri góð hug­mynd að stofna fyr­ir­tæki heima,“ segir Matej. Hann bætir við að Karolina Fund hafi strax sýnt áhuga á sam­starf­inu.

„Matej kom til okkar en hann var að skrifa rit­gerð um hóp­fjár­mögnun. Hann var mjög áhuga­samur um síð­una okkar og hvernig við vorum að vinna þetta eftir hrunið. Hann var hrifin af sögu okkar,“ segir Ingi Rafn Sig­urðs­son, einn af stofn­endum Karolina Fund.

Úr varð að Matej pant­aði sér flug­far til Reykja­víkur og hitti for­svars­menn Karolina Fund í jan­úar 2016. Hann segir að þeir hafi fundað dag­lega og aðeins tveimur dögum eftir að hann kom aftur til Slóveníu var hann búinn að stofna Adrifund og byrj­aður að vinna. 

Upp­setn­ing síð­unnar er með sama sniði og Karolina Fund og er kerfið byggt á sama grunni. Starfs­fólk Karolina Fund veitir Adrifund tækni­lega aðstoð og hjálpar til við við­skipta­hlið­ina. Ingi Rafn segir að þeir hafi byggt sitt kerfi alveg upp frá grunni en vef­síða þeirra var sett á lagg­irnar árið 2012. Hann segir að umsvif hennar hafi tvö­fald­ast á hverju ári síðan þá. 

Karolina Fund er einnig í nor­rænu hóp­fjár­mögn­un­ar­banda­lagi, The Nordic Crowdfunding Alliance, en Ingi Rafn segir til­gang­inn með banda­lag­inu að sam­eiga krafta lít­illa hóp­fjár­mögn­un­ar­síðna til þess að styrkja inn­viði slíkrar starf­semi á Norð­ur­lönd­unum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár