Vill skapa „undirliggjandi spennu“

Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands flutti verk eftir Jóhann Jóhanns­son, sem tvö ár í röð hefur verið til­efndur til Ósk­arsverð­launa fyrir kvik­mynda­tón­list. Kristinn Haukur Guðnason fylgd­ist með glæsi­legum tón­leikum, þar sem stór­virki kvik­mynda­tón­listar hljóm­uðu.

Þann 17. mars síð­ast­lið­inn lék Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands verk Jóhanns Jóhanns­sonar og fleiri þekktra kvik­mynda­tón­list­ar­höf­unda fyrir fullu húsi í Eld­borg­ar­sal Hörpu. Mikill áhugi var fyrir tón­leik­unum og fjöldi erlendra ferða­manna voru við­staddir. Tón­leik­unum var útvarpað í beinni útsend­ingu á Rás 1 og eru nú aðgengi­legir á Sarpinum á heima­síðu RÚV. Tón­list­ar­stjórn­and­inn var Adrian Prabava frá Indónesíu sem stýrði hljóm­sveit­inni í fyrsta sinn. Hann nam tón­list í Hollandi og Þýska­landi og hefur síðan stýrt hljóm­sveitum víða um heim. Stjórn hans þykir ein­stak­lega líf­leg og frum­leg.

Í upp­hafi tón­leik­anna var ein­blínt á tón­verk Jóhanns sem sin­fón­ían var að flytja í fyrsta skipti. Fluttar voru svítur, eða sam­tín­ingur, úr þremur þekkt­ustu verkum hans. Fyrsta svítan var úr kvik­mynd­inni Pri­soners frá árinu 2013. Myndin er magn­þrungin spennu­mynd sem fjallar um barna­rán og rót­tækar aðgerðir örvænt­ing­ar­fullra for­eldra. Tónlist Jóhanns end­ur­speglar vel and­rúms­loft mynd­ar­innar og hún byggir mikið á eins­leitum, köldum og trega­fullum strengja­hljómum. Það má segja að Pri­soners hafi komið Jóhanni á kortið meðal kvik­mynda­tón­list­ar­skálda og hann fékk verð­laun hjá ASCAP, félagi amer­ískra tón­skálda­rétt­hafa, fyrir vikið.

Sicario frá árinu 2015 er spennu­mynd sem fjallar um eit­ur­lyfja­stríðið á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó. Tón­listin í Sicario var til­nefnd til bæði ósk­ars og BAFTA verð­launa. Hún grípur alger­lega stemn­ing­una í mynd­inni og manni er haldið í helj­ar­g­reipum. Tón­listin byggir á end­ur­tekn­ingum, lág­stemmdum trumbu­slátti og drunga­legum strengja­leik. Jóhann segir:

“Ég vildi búa til tón­list sem hafði und­ir­liggj­andi spennu og þá til­finn­ingu að hún kæmi neðan úr jörð­inni, eins og takt­fastur púls sem hljómar neð­an­jarðar eða hjart­sláttur villi­dýrs sem ræðst á mann. Ég vildi einnig kalla fram sorg­ina og dep­urð­ina frá landa­mær­unum, landamæra­girð­ing­unum og þeim harm­leik sem eit­ur­lyfja­stríðið er.”

Jóhann notar elektróník að miklu leyti í verkum sínum, sam­tvinn­aða við hefð­bundin sin­fón­íu­hljóð­færi. Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands þurfti því að útfæra tón­list­ina á sér­stakan hátt og gerði það meist­ara­lega vel. Í Sicario voru t.a.m. kontra­bass­arnir nýttir á ein­stak­lega skemmti­legan máta.

Þriðja svíta Jóhanns var úr kvik­mynd­inni The Theory of Everyt­hing. Myndin er ævi­saga breska stjarneðl­is­fræð­ings­ins Stephen Hawking og kom út árið 2014. Fyrir tón­list­ina í þeirri mynd var Jóhann til­nefndur til bæði ósk­ars-og BAFTA verð­launa og vann Golden Globe verð­laun. Tón­listin í þeirri mynd er af allt öðrum og létt­ari toga en hin tvö verkin. Mætti segja að hún sé nokkuð hefð­bundin kvik­mynda­tón­list með auð­kenn­an­legu og léttu meg­in­stefi og áherslu á píanó­leik. Tón­listin verður svo hæg­ari og lát­laus­ari eftir því sem líður á mynd­ina, sam­fara því sem heilsu Hawkings hrakar.

Til við­bótar við þessi þrjú verk Jóhanns valdi tón­skáldið sjálft verk eftir tvo aðra höf­unda á efn­is­skrá tón­leik­anna. Það eru þau Mica Levi og Jonny Greenwood sem Jóhann hefur mikið dálæti á. Sin­fón­ían flutti tón­list úr kvik­mynd­inni Under the Skin, breskri vís­inda­skáld­sögu frá árinu 2013 en það er eina myndin sem Levi hefur samið tón­list fyrir. Einnig voru flutt nokkur lög úr kvik­mynd­inni There Will Be Blood frá 2007. Greenwood, sem er betur þekktur sem með­limur hljóm­sveit­ar­innar Radi­ohead, vakti mikla athygli fyrir tón­list­ina úr þeirri mynd. Bæði verkin eru mjög óhefð­bundin, nokkuð trega­full og ein­kenn­ast af löngum og frekar óþægi­legum strengja­hljómum. Þegar hljóm­sveitin flutti There Will Be Blood fóru allir nema strengja­sveitin og Frank Aarnink slag­verks­leik­ari af sviði. Aarnink spil­aði á hið nýstár­lega hljóð­færi ondes mart­enot [http://120years.net/wordpress/wp-content/uploads/ondes_martenot-01.jpg] sem er nokk­urs konar blanda af hljóm­borði og þeramíni og gefur frá sér hroll­vekj­andi tóna. Greenwood hefur einmitt spilað sjálfur á þetta hljóð­færi með hljóm­sveit­inni Radi­ohead. Hápunkt­ur­inn á þessum flutn­ingi var þó án nokk­urs vafa á lag­inu “Proven Lands” þar sem strengja­sveitin lagði niður bog­ana og plokk­aði allt saman.

Öll þessi ofan­greindu verk eru í eðli sínu nokkuð þung áheyrnar þó að vissu­lega séu þau ein­stak­lega fal­leg og flutn­ingur Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar­innar stór­brot­inn. Því var það vel úthugsað að grípa til nokk­urra gam­al­kunnra slag­ara kvik­mynda­tón­skálds­ins Johns Williams til að ljúka kvöld­inu. Williams er einn af verð­laun­uð­ustu lista­mönnum kvik­mynda­sög­unnar og mörg af verkum hans þekkir hvert ein­asta manns­barn. Tónlist hans er ákaf­lega hefð­bundin kvik­mynda­tón­list þar sem öll hljóm­sveitin er nýtt og stefin eru mik­il­feng­leg og ævin­týra­leg. Sér­stak­lega á það við verkin sem hann vann fyrir leik­stjór­ann Steven Spi­el­berg sem eru mýmörg.

Sin­fón­ían hóf leik með aðal­stef­inu úr Jurassic Park frá árinu 1993. Hér fengu slag­verks­leik­ar­ar­arnir loks að njóta sín með sym­bölum og öllu. Þetta ógleym­an­lega stef skall á tón­leika­gestum eins og veggur af hljóði. Næst var komið að Schindler´s List frá sama ári og það var eini ein­leikur kvölds­ins. Fiðlu­leik­ar­inn Sigrún Eðvalds­dóttir túlk­aði þetta þema, sem Itzhak Perlman gerði víð­frægt fyrir 23 árum síðan, stór­kost­lega og fékk mikið lófatak fyrir. Það var einn af hápunktum kvölds­ins. Seinustu lög efn­is­skrár­innar voru úr kvik­mynd­unum E.T. frá 1982 og Superman frá 1978, bæði vel þekkt og upp­lífg­andi stef. Gestir voru vita­skuld hæstá­nægðir og heimt­uðu meira. Prabava taldi því inn í upp­klappslagið, meg­in­þemað úr Raiders of the Lost Ark frá 1981, eða betur þekkt sem Indiana Jones. Ekki ama­legt að vera með það á heil­anum á leið­inni heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár