Stríðsherra með sérstakt dálæti á samfélagsmiðlum

Ramzan Kadyrov til­kynnti nýverið að hann væri reiðu­bú­inn að stíga til hliðar sem leið­togi sjálf­stjórn­ar­lýð­veld­is­ins Téténíu í Rúss­landi. Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur, kynnti sér stjórn­ar­tíð hins sjálftitl­aða „her­manns Pútíns”.

Til­kynn­ing hins skraut­lega en afar umdeilda leið­toga Téténíu þótti nokkuð óvænt. Sér­stak­lega í ljósi þess að Kadyrov hefur stjórnað Téténíu með harðri hendi sem sann­kall­aður stríðs­herra í um ára­tug og ekk­ert far­ar­snið verið á honum fram til þessa. Núna tel ég að finna þurfi nýjan leið­toga. Tímarnir eru breyttir bæði frá efna­hags­legum og sam­fé­lags­legum sjón­ar­hóli. Ég tel mig hafa sinnt minni skyldu,” sagði Kadyrov meðal ann­ars í við­tali sem TASS-frétta­stofan birti í lok febr­úar.

Hermaður Pútíns

Ramzan Kadyrov skaust fram á sjón­ar­svið rúss­neskra stjórn­mála með miklum látum eftir að faðir hans Akhmad Kadyrov, þáver­andi for­seti Téténíu, var ráð­inn af dögum árið 2004. Kadyrov yngri var í kjöl­farið skip­aður aðstoðar-for­sæt­is­ráð­herra Téténíu en hann var afar fljótur að vinna sig upp met­orða­stig­ann - með dyggum stuðn­ingi Vla­dimírs Pútín Rúss­lands­for­seta.

Kadyrov var nýorð­inn þrí­tugur þegar hann var form­lega skip­aður for­seti Téténíu, snemma árs 2007. Kadyrov var raunar hand­val­inn af Pútín, líkt og faðir hans á undan honum, til þess að „hreinsa til” í Téténíu. Rússnesk stjórn­völd höfðu þá staðið í langri og blóð­ugri hern­að­ar­í­hlutun á svæð­inu en talið er að á bil­inu 150-160 þús­und manns hafi látið lífið í stríðs­á­tök­unum í Téténíu. Kadyrov fékk því í senn bæði lausan taum­inn og gríð­ar­lega fjár­muni frá rúss­neskum stjórn­völdum til þess að berj­ast gegn aðskiln­að­ar­sinnum og öðrum upp­reisn­ar­mönnum og koma á end­ur­bótum í Téténíu.

Kadyrov hefur heldur aldrei farið leynt með hvaðan vald hans sé komið og kallar sig ítrekað „her­mann Pútíns” í við­tölum við fjöl­miðla. Ekki eru þó allir sáttir með hvernig Kadyrov hefur beitt valdi sínu í Téténíu. Kadyrov hefur raunar verið harka­lega gagn­rýndur í gegnum alla stjórn­ar­tíð sína en segja má að sú gagn­rýni bein­ist óum­flýj­an­lega einnig gegn mann­inum sem veitti honum braut­ar­gengi í upp­hafi - Vladimír Pútín.

Ásakanir um aðild að ódæðisverkum

Blaða­menn og bar­áttu­fólk fyrir mann­rétt­indum úr ýmsum áttum eru á meðal helstu gagn­rýnenda Kadyrovs. Leiðtogi Téténíu hefur þannig ítrekað verið ásak­aður um beina aðild að fjölda ódæð­is­verka, bæði í Téténíu og víðar í Rúss­landi. Sú stað­reynd að margir af þessum helstu gagn­rýnendum Kadyrovs hafa síðar verið drepnir vekur óneit­an­lega grun­semdir um að ásak­an­irnar hafi oft verið á rökum reistar.

Blaða­konan Anna Polít­kovskaja hjá rúss­neska dag­blað­inu Novaya Gazeta var eitt af hinum meintu fórn­ar­lömbum Kadyrovs. Polít­kovskaja var skotin til bana í lyftu í íbúð­ar­blokk sinni 9. októ­ber árið 2006 en fimm karl­menn frá Téténíu voru dæmdir fyrir morðið, tæpum átta árum síðar. Polít­kovskaja fylgd­ist náið með stöðu mála í Téténíu á árunum 1999-2006 og birti margar harð­orðar greinar í garð Kadyrov-feðga. Dimítrí Muratov, rit­stjóri Novaya Gazeta, lét hafa eftir sér í kjöl­far morðs­ins á Polít­kovskaju að hún hafi verið að vinna að grein um pynt­ingar, aftökur og önnur ill­virki hinnar svoköll­uðu “Kadyrovtsy” her­sveitar í Téténíu, þegar hún hafi verið myrt.

Kadyrovtsy her­sveitin, einnig þekkt undir nafn­inu „Kadyrovites”, sam­an­stóð af sér­sveit­ar­her­mönnum hlið­hollum Kadyrov-feðgum, sem mynd­uðu svo síðar einka­her Ramzan Kadyrovs. Her­sveitin tók á sig mynd á tímum Fyrra Téténíu stríðs­ins á árunum 1994-1996 þegar Kadyrov-feðgarnir voru á bandi aðskiln­að­ar­sinna og börð­ust gegn Rússum. Í upp­hafi Seinna Téténíu stríðs­ins árið 1999 gengu Kadyrov-feðgar svo til liðs við Rússa í skiptum fyrir stuðn­ing frá yfir­völdum í Kreml við að hrifsa völdin í Téténíu.

Ógn við þjóðaröryggi Rússlands?

Í lok febr­úar boð­aði rúss­neski stjórn­mála­mað­ur­inn og stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Ilya Yashin til blaða­manna­fundar þar sem hann kynnti skýrslu um stjórn­ar­tíð Ramzan Kadyrov í Téténíu. Skýrsla Yashin ber tit­il­inn „Ógn við þjóðar­ör­yggi” og hvetur hann Rúss­lands­for­seta þar meðal ann­ars til þess að reka Kadyrov umsvifala­sut úr emb­ætti. „Pútín er búinn að koma fyrir tif­andi tíma­sprengju í norð­ur­hluta Kákasus­fjalla sem getur sprungið hvenær sem er og hafið Þriðja Téténíu stríðið. Til þess að koma í veg fyrir það þarf að stoppa þessa ógn við þjóðar­ör­yggi Rúss­lands,” var haft eftir Yashin á blaða­manna­fund­inum.

Kadyrov hafn­aði að sögn Yashin beiðni um við­tal við gerð skýrsl­unnar og þess vegna endar skýrslan á upp­taln­ingu á tutt­ugu ósvöruðum spurn­ingum til Kadyrovs. Yashin spyr Kadyrov meðal ann­ars hvort hann telji sig haf­inn yfir rúss­nesk lög og hvers vegna hann þurfi á einka­her að halda. Yashin biður hann enn fremur að svara til um meint tengsl sín við morðið á rúss­neska stjórn­mála­mann­inum Boris Nemtsov, sem var skot­inn til bana í mið­borg Moskvu þann 27. febr­úar fyrir rúmu ári síðan.

Fimm karl­menn frá Téténíu hafa sem kunn­ugt er verið hand­teknir fyrir aðild að morð­inu en gæslu­varð­hald yfir þeim var nýverið fram­lengt til loka maí. Einn hinna ákærðu, Zaur Dadayev, er sak­aður um að hafa skotið Nemtsov en hann var á sínum tíma hátt­settur í Sever her­sveit­inni í Téténíu, sem heyrði vit­an­lega undir leið­tog­ann Kadyrov.

Virkur á samfélagsmiðlum

Kadyrov hefur jafnan svarað fullum hálsi öllum ásök­unum um meinta aðild hans að ódæð­is­verkum - en oft á tíðum með nokkuð óhefð­bundnum hætti miðað við mann í hans stöðu. Kadyrov er nefni­lega afar virkur á sam­fé­lags­miðl­unum Facebook, Instagram, Twitter og VKontakte og notar þá ákaft í póli­tískum til­gangi.

Kadyrov veigraði sér til að mynda ekki við að birta fyrr­nefnda skýrslu Yashins, um að hann væri ógn við þjóðar­ör­yggi Rúss­lands, á Facebook og VKontakte síðum sínum og kall­aði skýrsl­una “þvaður”. Þá skrif­aði Kadyrov á Instagram síðu sína að Zaur Dadayev væri “ótta­laus og hug­rakkur föð­ur­lands­vinur”, eftir að hinn meinti morð­ingi Nemtsovs hafði verið hand­tek­inn.

Af tíðum færslum Kadyrovs á sam­fé­lags­miðl­unum má ætla að hann sé í senn mjög trú­aður og mik­ill fjöl­skyldu­maður. Auk þess að vera yfir­lýstur dýra­vinur og fanat­ískur áhuga­maður um bar­daga­í­þróttir og fót­bolta. Þess á milli koma svo hár­beittar og rammpóli­tískar færslur þar sem hann ýmist mærir Rúss­lands­for­seta eða ræðst harka­lega gegn and­stæð­ingum stjórnar hans. Í byrjun febr­úar vakti mikla athygli birt­ing Kadyrovs á mynd­bandi á Instagram síðu sinni þar sem sjá mátti stjórn­ar­and­stæð­ing­ana Mikhaíl Kasyanov og Vladimír Kara-Murza Jr. í sigti leyniskyttu. Mynd­bandið var síðar fjar­lægt af Instagram og Kasyanov og Kara-Murza Jr. fóru fram á að Kadyrov yrði refsað fyrir athæfið. Rúss­neska alrík­is­lög­reglan, FSB, tók málið til rann­sóknar en sá ekk­ert athuga­vert við mynd­bandið.


Pattstaða fyrir Pútín

Yfir­stand­andi kjör­tíma­bil Kadyrovs tekur form­lega enda í byrjun apríl næst­kom­andi en fast­lega er þó búist við því að Pútín muni á end­anum styðja hann til end­ur­kjörs í kosn­ingum næsta haust. Þrátt fyrir að leið­togi Téténíu seg­ist vera til­bú­inn að stíga til hliðar þá telja sumir að Pútín eigi raunar ekki ann­ara kosta völ. Pútín þurfi ein­fald­lega að halda sig við hinn óstýr­láta Kadyrov til þess að tryggja frið­inn og stöð­ug­leik­ann á svæði sem er sögu­leg púð­ur­tunna fyrir rúss­nesk stjórn­völd. Auk þess sem Kadyrov var, eins og áður segir, hand­val­inn af Pútín og hann væri ann­ars að snúa baki við eigin „sköp­un­ar­verki”.

Fari svo að lokum Kadyrov haldi áfram í emb­ætti má leiða líkur að því að staða hans gagn­vart yfir­völdum í Kreml hafi þá styrkst til muna. Öllum yrði þá ljóst hversu ómissandi hann væri fyrir rúss­nesk stjórn­völd. Í kjöl­farið yrði hann þá jafn­vel enn „ósnert­an­legri” en áður og ómögu­legt að segja til um hvaða afleið­ingar það hefði í för með sér. Í því sam­hengi er vert að minn­ast á lýs­ingu blaða­kon­unnar Önnu Polit­kovskaju á Ramzan Kadyrov frá árinu 2004. „Kreml hefur alið lít­inn dreka sem þarf að fæða reglu­lega, til þess að hann spúi ekki eldi og eyði­leggi allt í kringum sig.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár