Göngur eru næring fyrir líkama og sál

Einar Skúlason stofn­aði göngu­hóp­inn Vesen og ver­gang árið 2011. Í dag fylgja 13.000 Facebook-síðu hóps­ins og nokkur hund­ruð manns ganga að jafn­aði eða öðru hvoru með hópnum, hvort sem um er að ræða lok­aða hópa eða opnar göngur.

Göngur eru næring fyrir líkama og sál
Gengur og gengur Nokkur hund­ruð manns ganga reglu­lega með göngu­hópnum Veseni og ver­gangi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Einar Skúlason ólst upp í Fella­hverfi í Breið­holti en flutti á ung­lings­árum í mið­bæ­inn. Þrátt fyrir að vera borg­ar­barn varði hann miklum tíma úti í nátt­úr­unni og seg­ist hann hafa verið nátt­úru­barn síðan hann man eftir sér.

„Ég byrj­aði að ganga með ömmu í Hval­firði þegar ég var fjög­urra til fimm ára polli. Hún og afi bjuggu í bragga í Hval­firði og var afi stöðv­ar­stjóri í Olíu­stöð­inni þar og sótt­ist ég mikið eftir því að fara til þeirra og vera þar. Það var alltaf gott að koma til þeirra. Ég fékk að fara með ömmu í göngu­ferðir af því að ég hafði svo gaman af þessu og kvart­aði aldrei. Ég var svo áhuga­samur; ég var ekk­ert að spyrja hvenær við færum heim eða að segja að ég væri svo svangur, eins og sum börn gera. Mér fannst gaman að sjá ólíka hluti og skoða. Amma sagði oft sögur eða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár