Hjónabandið sem ögraði umheiminum

Kyn­blönduð hjóna­bönd eru sjálf­sögð í dag, en svo var ekki raunin um miðja síð­ustu öld. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur rýndi í sögu Khama-hjón­anna.

Kyn­blönduð hjóna­bönd þykja víð­ast hvar ekk­ert til­töku­mál í dag. Áður fyrr þóttu þau mikið tabú og gátu jafn­vel splundrað fjöl­skyldum. Eitt slíkt hjóna­band um miðja sein­ustu öld var svo eld­fimt að það olli milli­ríkja­deilu. Saga Khama-hjón­anna er saga af fólki sem gafst ekki upp fyrir ofur­valdi og vann sigur fyrir sig og land sitt, Botswana.

Jazzinn batt þau saman

Það var á dans­leik hjá Trú­boðs­sam­tökum Lundúna árið 1947 sem Ruth Williams og Seretse Khama hitt­ust í fyrsta skipti. Hún var þá 23 ára gömul og hann tveimur árum eldri. Það var fyrir til­stilli Muriel, systur Ruth, að þau kynntust en Ruth leist ekk­ert á Seretse í upp­hafi. Þau áttu þó eitt sam­eig­in­legt áhug­mál, þ.e. brenn­andi áhuga á jazz-tón­list. Seretse varð strax hrif­inn af Ruth og þau héldu áfram að hitt­ast næstu mán­uði. Á end­anum urðu þau ást­fangin frá toppi til táar og árið 1948 giftu þau sig. Þetta hjóna­band var þó sann­ar­lega eng­inn hægð­ar­leikur því að bak­grunnur þeirra hefði varla getað verið ólík­ari.

Ruth ólst upp á hefð­bundnu milli­stétt­ar­heim­ili í Lundúnum. Faðir hennar George hafði áður verið í breska hernum í Indlandi en vann síðar við að mark­aðs­setja kaffi og te. Móðir hennar Dorothy var heima­vinn­andi hús­móðir. Þau voru kirkju­rækið fólk sem fór lítið fyrir. Ruth fékk þó að kynn­ast líf­inu strax á ung­lings­aldri þegar seinni heim­styrj­öldin skall á. Heimili þeirra varð fyrir loft­stprengju Þjóð­verja og það þurfti að rífa það og Ruth gekk í heima­varn­ar­lið kvenna þar sem hún keyrði sjúkra­bíl í sprengjuregn­inu. Þessi reynsla mót­aði lífs­við­horf hennar og hún átti eftir að verða tengd hjálp­ar­starfi og góð­gerð­ar­málum alla tíð síðan. Eftir stríðið fékk hún vinnu hjá trygg­inga­mark­að­inum Lloyds of London sem afgreiðslu­kona.

Seretse Goit­seb­eng Maphiri Khama fædd­ist og ólst upp í suð­ur­hluta Afríku, í landi sem í dag heitir Botswana. Á þeim tíma var landið nýlenda sem nefnd­ist Bechuanaland og hafði verið undir yfir­ráðum Breta síðan 1885. Líkt og víða ann­ars staðar í Afríku er Botswana ætt­bálka­sam­fé­lag og Seretse fædd­ist sem prins inn í vold­ug­asta ætt­bálk lands­ins, Bamangwato. Faðir hans var Sekonga Khama II, höfð­ingi Bamangwato ætt­bálks­ins og móðir hans drottn­ingin Tebogo. Sekonga lést þegar Seretse var ein­ungis fjög­urra ára gam­all. Þar sem hann var of ungur til að taka við stjórn ætt­bálks­ins stýrði föð­ur­bróðir hans, Tshekedi Khama, í hans stað þar til Seretse hafði lokið námi. Seretse var sendur bæði til Suður Afríku og Bret­lands til náms og hann var einmitt í laga­námi við Oxford háskóla þegar hann kynnt­ist Ruth.

Fjölskyldurnar æfar

Á fimmta ára­tug sein­ustu aldar voru hjóna­bönd fólks af ólíkum kyn­þáttum vita­skuld algjört tabú. Prest­ur­inn sem hafði lofað að gifta þau gugn­aði á sein­ustu stundu þegar nokkrir safn­að­ar­með­limir hót­uðu að mót­mæla við athöfn­ina. Hann vís­aði mál­inu til bisk­ups sem vildi heldur ekki gifta þau. Ruth og Seretse þurftu því að leita til sýslu­manns til að binda hnút­inn. Kirkjan var ekki eini aðil­inn sem úthýsti hjón­unum. Þegar Ruth sagði föður sínum frá ráða­hagnum brást hann ákaf­lega illa við og rak hana út af heim­il­inu. Einnig var henni sagt upp hjá Lloyds of London. Hjónin og þá sér­stak­lega Ruth lentu ítrekað í því að ókvæð­is­orð voru hrópuð að þeim á götum úti. Fólki bauð við því að sjá hvíta stúlku með svörtum manni og var Ruth oft kölluð ódýr dræsa og þvíum­líkt.

Fjöl­skylda Seretse tók frétt­unum engu betur og þá sér­stak­lega ekki föð­ur­bróðir hans Tshekedi. Þegar Tshekedi komst að hjóna­band­inu heimt­aði hann að Seretse kæmi undir eins heim til Bechuanalands og gift­ingin yrði dæmd ógild. Innan ætt­bálka­sam­fé­lags­ins er kona höfð­ingj­ans álitin móðir alls sam­fé­lags­ins. Tshekedi sagði að hvít kona gæti aldrei orðið móðir Bamangwato fólks­ins. Hann kall­aði því saman svo­kallað kgotla, sem er opin­ber fundur innan ætt­bálks þar sem skorið er úr um hin ýmsu mál­efni. Seretse flaug heim án Ruth til að verja sig á sam­kom­unni en Tshekedi sagði að ef hann kæmi með hvítu kon­una sína myndu þeir frændur þurfa að berj­ast til dauða. Samkoman var fámenn og 14 af 15 æðstu mönnum höfn­uðu hjóna­band­inu. Seretse sneri því aftur til Bret­lands án stuðn­ings sam­fé­lags síns og staða hans sem fram­tíð­ar­höfð­ingja í lausu lofti.

Þá barst Seretse sá kvittur að Tshekedi hefði alltaf ætlað að verða höfð­ingi sjálfur og hjóna­band Seretse og Ruth hefði verið full­komin afsökun fyrir hann til að ræna völdum. Seretse sneri því aftur til Bechuanalands en nú ásamt eig­in­konu sinni. Þá gerð­ist það að Ruth hrein­lega heill­aði alla upp úr skónum. Seretse kall­aði til annað kgotla þar sem þús­undir manna mættu. Seretse ávarp­aði sam­kom­una og bað þá að standa upp sem ekki sam­þykktu konu hans. 40 manns stóðu upp. Þá bað hann þá að standa upp sem sam­þykktu hana. Um 6000 manns stóðu upp og klöpp­uðu í 10 mín­útur. Tshekedi var alger­lega sigr­aður maður og neydd­ist til að flytja af svæð­inu. Khama hjónin höfðu nú ótví­ræðan stuðn­ings sam­fé­lags­ins á bak­inu. Auk þess var hjóna­bandið byrjað að gefa ávöxt. Hjónin áttu á kom­andi árum þrjá syni og eina dóttur. En vanda­mál þeirra voru rétt að hefj­ast því brátt átti hjóna­bandið eftir að verða að alþjóð­legu þrætu­epli.

Ríkisstjórnir skipta sér af

Árið 1948 var ekki ein­ungis árið þar sem Khama hjónin giftu sig heldur líka árið þar sem Búarnir komust til valda í Suður Afríku og komu á hinni alræmdu kyn­þátta­að­skiln­að­ar­stefnu apartheid. Það hafði verið lengi á stefnu­skránni að nýlendan Bechuanaland myndi sam­ein­ast fyrrum nýlend­unni Suður Afríku. Suður Afr­íku­menn sóttu hart að þessu en Bretar reyndu þó að tefja flutn­ing­inn, sér­stak­lega eftir að apartheid var komið á. Leið­togar Suður Afríku gátu því ekki þolað það að einn vold­ug­asti ætt­bálka­höfð­ingi á verð­andi land­svæði þeirra ætti hvíta eig­in­konu. Daniel Francois Malan, for­sæt­is­ráð­herra Suður Afríku og einn af hug­mynda­fræð­ingum apartheid, sagði að hjóna­bandið vekti hjá sér ógleði og þrýsti á bresk yfir­völd að beita sér gegn því. Sir Godfrey Huggins, for­sæt­is­ráð­herra Suður Rhódesíu (nú Zimbabwe) þar sem einnig var kyn­þátta­að­skiln­að­ar­stefna, mót­mælti ráða­hagnum einnig og sagði það skelfi­legt að þessi „náungi“, þ.e. Seretse myndi ná völdum.

Bresk yfir­völd voru komin í mikla klípu vegna máls­ins. Efna­hag­ur­inn var í molum eftir seinni heim­styrj­öld­ina og Bretar voru mjög háðir Suður Afríku og öðrum sam­veld­is­þjóðum varð­andi verslun. Auk þess hrædd­ust Bretar það að Suður Afr­íku­menn myndu nýta sér málið til þess að taka Bechuanaland strax yfir, jafn­vel með her­valdi. Khama hjónin voru því mik­ill þyrnir í síðu breskra stjórn­valda. Hvorki verka­mann­stjórn Clements Atlee (1945-1951) né íhalds­stjórn Winstons Chuchill (1951-1955) gat leyst málið með sóma­sam­legum hætti. Þegar Khama hjónin sneru aftur til Lundúna var Seretse boðin árleg og skatt­frjáls pen­inga­upp­hæð, 1000 sterl­ingspund, frá breska rík­inu ef hann afsal­aði sér höf­ingja­stöð­unni í heima­land­inu. Hann neit­aði og árið 1951 gerði verka­manna­stjórnin hjónin útlæg frá Bechuanalandi í fimm ár. Mikil reiði greip um sig í Bechuanalandi þegar ljóst var að Khama hjónin fengju ekki að snúa aftur. Óeirðir brut­ust út víða og íbú­arnar harð­neit­uðu að til­nefna annan höfð­ingja í stað Seretse eins og Bretar höfðu beðið þá um. Einnig var tölu­verð reiði innan Bret­lands og nokkrir þing­menn börð­ust fyrir því að hjónin fengju að snúa heim og halda sínum titlum. Þegar íhalds­menn komust til valda þetta sama ár reyndu þeir að leysa vand­ann með því að bjóða Seretse góða stjórn­un­ar­stöðu á Jamaíku. Seretse leit ekki við til­boð­inu og var því útlegð hans fram­lengd út í hið óend­an­lega. Auk útlegðar létu bresk yfir­völd gera rann­sókn á hæfi Seretse til þess að stýra fólki sínu. Þegar rann­sóknin stað­festi hæfni hans til þess var hún þögguð niður og inn­sigluð í ára­tugi.

En það var ekki ein­ungis vegna þrýst­ings frá Suður Afríku og Rhódesíu sem bresk yfir­völd beittu sér að slíkri hörku gegn Khama hjón­unum. Því að meðal sumra ann­arra ætt­bálka innan Bechuanalands var veru­legur ótti vegna hjóna­bands­ins. Leiðtogi eins ætt­bálks­ins sagði „það sem ljónið gerir mun sjakal­inn apa eftir. Þetta hjóna­band er stór­slys fyrir Afríku. Það er ávallt hermt eftir höf­ingj­anum og því munum við sjá að eftir 25 ár munu margir Bechuana-menn hafa gifst hvítum konum, og eftir önnur 25 ár verður Bamangwato ætt­bálk­ur­inn horf­inn, þeir verða eins og Cape Coloureds“ (kyn­blandað fólk á vest­ur­strönd Suður Afríku).“ Bretar lof­uðu því nokkrum ætt­bálka­höfð­ingjum að Seretse og kona hans myndu brátt „hverfa“.

Þessi þrýst­ingur virt­ist ætla að virka því að árið 1956 afsal­aði Seretse sér höf­ingja­tign Bamangwato ætt­bálks­ins og hjónin fengu í kjöl­farið leyfi til að snúa aftur heim til Bechuanalands. Þau fluttu þetta sama ár og tóku við rekstri naut­gripa­bú­garðs. Það stóð þó ekki lengi yfir því að hjónin átt eftir að leika lyk­il­hlut­verk í til­urð nýs ríkis.

Botswana

Á sjötta og sjö­unda ára­tug sein­ustu aldar voru nýlendu­veldi Breta, Frakka o.fl. í Afríku að lið­ast í sundur og fjöl­mörg sjálf­stæð ríki urðu til. Þessi sjálf­stæð­is­hreyf­ing fór ekki fram­hjá íbúum Bechuanalands og Seretse Khama var full­kom­inn fram­bjóð­andi til að leiða hana þar. Hann hafði setið í útlegð í fimm ár og hugs­aði bæði Bretum og Suður Afr­íku­mönnum þegj­andi þörf­ina. Hann stofn­aði því Lýð­ræð­is­flokk Bechuanalands (BDP) árið 1961 með því mark­miði að koma á sjálf­stæðu ríki. Í fyrstu opnu kosn­ingum Bechuanalands árið 1965 unnu BDP með algerum yfir­burðum. Þeir hlutu rúm­lega 80% greiddra atvkæða og Seretse Khama varð fyrsti og eini for­sæt­is­ráð­herra nýlend­unnar. Ári seinna fékk landið fullt sjálf­stæði frá Bret­landi og var hinu nýja ríki gefið nafnið Botswana. Seretse varð fyrsti for­seti lýð­veld­is­ins og Ruth fyrsta for­seta­frúin. Sjálf­stæði var fengið án þess að blóð­dropa væri spillt og Seretse var aðlaður af Elísa­betu II Eng­lands­drottn­ingu fyrir vikið.

Þegar sir Seretse tók við völdum beið hans ærið verk­efni. Botswana var eitt af fátæk­ustu ríkjum heims. Það er stórt og dreif­býlt og mitt í Kalaharí eyði­mörk­inni. Nú búa þar um 2 millj­ónir íbúa en árið 1966 voru íbú­arnir ein­ungis rúm­lega 600.000 tals­ins. Landið hafði líka verið hrjáð af ætt­bálka­deilum og skærum um alda skeið. Seretse var for­seti til dauða­dags árið 1980 og tími hans er tal­inn eitt helsta blóma­skeið í sögu lands­ins. Efna­hagur lands­ins óx hratt, aðal­lega vegna náma­graftar og naut­gripa­rækt­unar, og inn­viði lands­ins voru byggð upp. Botswana er einnig eitt af sára­fáum ríkjum Afríku þar sem ríkt hefur sam­felldur friður og lýð­ræði frá sjálf­stæði. Það þýðir ekki að þeir hafi haldið sér til hlés, þvert á móti þá voru Khama hjónin ein­hverjir mest áber­andi gagn­rýnendur kyn­þátta­að­skiln­aðar í Suður Afríku og Rhódesíu og tóku við mörgum flótta­mönnum frá þessum tveimur ríkjum.

Ruth Williams Khama, eða lafði Khama eins og hún var gjarnan kölluð, var alla tíð mjög sýni­leg for­seta­frú og gríð­ar­lega vin­sæl. Í Botswana var hún kölluð Mohumagadi Mma Kgosi (móðir höfð­ingj­ans) eða ein­fald­lega drottn­inga­móð­irin. Hún stýrði ýmsum góð­gerð­ar­málum og var m.a. for­seti Rauða kross deildar lands­ins. Einnig stýrði hún ýmsum opin­berum við­burðum eins og heim­sókn Elísa­betar II Eng­lands­drottn­ingar til lands­ins árið 1979.

Þegar Seretse lést árið 1980 bjugg­ust flestir við því að Ruth myndi flytja aftur til Bret­lands. Það kom hins vegar aldrei til greina. Aðspurð sagði hún: „Ég er full­kom­lega ánægð hérna og ég hef enga löngun til að flytja neitt, ég hef búið hér meira en helm­ing ævi minnar, og börnin mín eru hér. Þegar ég flutti til þessa lands varð ég Motswana (Botswana-búi).“ Ruth bjó í Botswana allt til ævi­loka árið 2002 en hún lærði reyndar aldrei nein af tungu­málum lands­ins.

Áhrif hjóna­bands­ins umdeilda gæta enn því að árið 2008 var sonur hjón­anna, Ian Khama, kjör­inn for­seti Botswana og gegnir hann því emb­ætti enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár