Djúp spor í baráttu við ást, áföll og fyrirgefningu

Karolina fund verk­efni vik­unnar er leik­verkið Djúp spor.

Jenný Lára og Jóel.
Jenný Lára og Jóel. Mynd: Karolina fund

Djúp spor er nýtt heim­ild­ar­verk um bar­átt­una við ást­ina, áföll og fyr­ir­gefn­ing­una. Verkið er unnið upp úr við­tölum við ein­stak­linga sem þekkja afleið­ingar ölv­un­arakst­urs af eigin raun. Verkið er unnið og leikið af Jennýju Láru Arn­órs­dóttur og Jóel Sæmunds­syni.

Byggir það á raun­veru­legum atburðum, en Jenný Lára hefur áður unnið verkið Elska með þess­ari aðferð. Elska var unnið upp úr við­tölum varð­andi hug­myndir fólks um ást­ina og sam­bönd. Það var sýnt víða á Norð­ur­landi, í Reykja­vík og á Act Alone leik­list­ar­há­tíð­inni og hlaut góðar við­tökur. Leik­stjóri er Bjartmar Þórð­ar­son en hann hefur komið víða við sem leik­stjóri, drama­t­úrg og leik­ari, nú síð­ast með eigin verki, Gripa­hús­inu, í Tjarn­ar­bíói, sem var frum­sýnt í gær, og í 90(210) Garðabæ í Kassa Þjóð­leik­húss­ins. Jóel hefur aðal­lega verið að vinna við sjón­varps­þætti og kvik­myndir und­an­farið og lík­leg­ast kann­ast ein­hverjir við hann úr sjón­varps­þátt­unum Ófærð þar sem hann fór með hlut­verk Þórs.

Hver er bakgrunnur leikhópsins Artik?

Leik­hóp­ur­inn Artik var stofn­aður af þeim Jennýju Láru Arn­órs­dóttur og Unnari Geir Unn­ars­syni árið 2012. Þá voru þau bæði til­tölu­lega nýút­skrifuð frá leik­list­ar­skól­anum KADA í London og lang­aði bæði til að flytja heim til Íslands. Þau voru á rölt­inum í miðbæ London þegar talið barst að því hvernig best væri að bera sig að þegar heim kæmi. Þar sem þau lærðu leik­list erlendis kann­að­ist lítið af bransa­fólki við þau þannig að þau vissu að ekki yrði auð­velt að fá starf við leik­húsin strax. Þau höfðu ekki heldur nein sam­bönd í kvik­mynda­iðn­að­inum.

Þeim var því ljóst að eina leiðin væri að stofna sjálf­stæðan leik­hóp þar sem þau myndu skipt­ast á að leika og leik­stýra og fá svo aðra lista­menn til sam­vinnu. Þau hopp­uðu því næst inn í næsta Tesco, keyptu Prosecco og skál­uðu á Trafalgar Square. Nokkrum vikum síðar fluttu þau bæði til Íslands og fljót­lega hófust æfingar á Hinum full­komna jafn­ingja eftir Felix Bergson, þar sem Unnar lék og Jenný leik­stýrði. Verkið var svo frum­sýnd seinna um haustið á Norð­ur­pólnum og ferð­að­ist síðan á Act Alone ein­leikja­há­tíð­ina á Suð­ur­eyri sem og á alþjóð­lega hinsegin leik­list­ar­há­tíð í Dublin.

Þá var komið að Unnari að leik­stýra og Jennýju að leika. Leik­verkið Blink eftir Phil Porter varð fyrir val­inu. Þriðji leik­arin, Haf­steinn Þór Auð­uns­son bætt­ist í hóp­inn en Súsanna Svav­ars­dóttir þýddi verkið á íslensku. Kall­að­ist það Blik á okkar ylhýra. Og nú er komið að næsta verki, Djúpum sporum. Í þetta sinn var ákveðið að búa til sýn­ingu alveg frá grunni, skrifa hand­ritið sjálf. Stuttu seinna var Unnar ráð­inn í stöðu for­stöðu­manns Menn­ing­ar­mið­stöðvar Fljóts­dals­hér­aðs og sá sér því ekki fært að taka þátt í upp­setn­ing­unni. En í hóp­inn bætt­ust þá þeir Jóel Sæmunds­son leik­ari og Bjartmar Þórð­ar­son leik­stjóri.

Af hverju baráttan við ást, áföll og fyrirgefning?

Í verk­inu eru báðar hliðar máls­ins skoð­aðar. Við kynn­umst bæði ger­and­anum og aðstand­anda fórn­ar­lambs­ins. Í Djúpum sporum kynn­umst við Selmu og Alex sem hafa ekki hist í fimm ár. Þegar þau hitt­ast fyrir til­vilun standa þau frammi fyrir því að þurfa að gera upp drauga for­tíðar, ákveða hvort þau séu til­búin til að axla ábyrgð á gjörðum sínum og fyr­ir­gefa. Smám saman rað­ast saman sú atburð­ar­rás sem varð til þess að þau slitu sam­bandi og er ástæða þess að þau eiga erfitt með að halda áfram með líf sitt.

Eitt af því þung­bærasta sem við förum í gegnum í líf­inu er þegar þegar ein­hver svíkur okkur eða gerir á okkar hlut, einkum ef það er mann­eskja sem við elskum. Þörfin fyrir að fyr­ir­gefa er næstum óbæri­leg – en spurn­ing hvort það er bara hægt. Stundum tekst það og stundum ekki. Það fara lang­flestir í gegnum slíkan til­finn­inga­rús­sí­bana ein­hvern­tím­ann á lífs­leið­inni. Þess vegna ættu allir að geta sam­samað sig verk­inu. Jafnvel þótt aðstæður séu nokkuð rosa­legar í verk­inu skiljum við öll slíka til­finn­inga­á­rekstra. Fyr­ir­gefn­ing er mjög sterkt afl og við erum stöðugt að taka afstöðu til hennar, ekki síst í hvers kyn bata­ferlum.

Alvar­legar afleið­ingar ölv­un­arakst­urs geta verið all-rosa­legar og bata­ferlið sem fylgir er langt og strangt. Í raun­inni lýkur því aldrei. Það er alveg sama frá hvaða sjón­ar­horni þú skoðar það. Það er svo fjarri íslenskri þjóð­ar­sál að taka líf ann­arrar mann­eskju. Við erum ein frið­sælasta þjóð heims, með engan her og lög­regly sem er sjaldn­ast vopnuð. Það var mjög sterk reynsla að skoða hvaða áhrif það hefur á mann­eskju að taka líf? Getur hún lifað með því? Fyr­ir­gefur hún sjálfri sér? Og hvað með aðstand­endur fórn­ar­lambs­ins? Hvaða áhrif hefur þetta á líf þeirra? Geta þau nokkurn tíman fyr­ir­gefið? Hvernig er bata­ferlið? Okkur lang­aði til að skoða hvernig áföll móta okkur og hafa áhrif á allt okkar líf. Hvernig ákvarð­anir teknar af hugs­unar- eða kæru­leysi geta umturnað lífi okkar; hvernig við tök­umst á við slíkt. Og það hefur verið ansi magnað að skoða hvað manns­sálin er ótrú­lega öfl­ugt fyr­ir­bæri.

Hvar munu sýningar á leikverkinu Djúp spor fara fram?

Fum­sýn­ing á Djúpum sporum verður í Tjarn­ar­bíói 31. mars næst­kom­andi, en leik­hóp­ur­inn fékk sam­starfs­samn­ing við leik­húsið með sýn­ing­una. Einnig stendur yfir söfnun á Karolina Fund þar sem hægt er að tryggja sér miða með því að styrkja sýn­ing­una fyr­ir­fram og þar með hjálpa hópnum við að búa sem best um sýn­ing­una.

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár