Færri frumvörp frá ríkisstjórn en síðustu tuttugu ár

Ekkert frum­varp frá rík­is­stjórn­inni bíður þess nú að vera tekið til umræðu á Alþingi. Rík­is­stjórnin hefur lagt fram 52 frum­vörp á yfir­stand­andi þingi. Það eru mun færri mál en hin tvö þingin sem rík­is­stjórnin hefur verið við völd. Það er einnig mun færri frum­vörp en nokkur rík­is­stjórn síð­ustu tutt­ugu árin hefur verið búin að leggja fram á þessum tíma. Þess ber einnig að geta að lengst af á þessum tíma kom þing ekki saman fyrr en í byrjun októ­ber, en frá árinu 2012 hefur það haf­ist í byrjun sept­em­ber.

Fimm frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar hafa verið lögð fram eftir að þingið kom saman á ný eftir ára­mót og fimm frum­vörp til við­bótar hafa verið kynnt í rík­is­stjórn en eru ekki komin inn í þingið. Samkvæmt starfs­á­ætlun þings­ins þurfa frum­vörp, sem eiga að kom­ast á dag­skrá fyrir sum­ar­hlé, að ber­ast þing­inu fyrir lok mars­mán­aðar. Það er eftir rétt rúman mánuð.

23 frumvörp orðin að lögum

Það sem af er þessu þingi er búið að gera 23 frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar að lögum. Þetta er einnig minna en á sama tíma und­an­farin tutt­ugu ár, eins og sjá má hér að neðan.

24 frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar eru til umfjöll­unar í nefndum eftir fyrstu umræðu, tvö bíða ann­arrar umræðu og þrjú bíða þriðju umræðu.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra hafa lagt fram lang­flest frum­vörp, eða 13 hvort. Það er tæpur helm­ingur allra frum­varpa rík­is­stjórn­ar­innar á þessu þingi. Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur lagt fram 5 frum­vörp og sömu sögu er að segja af Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni heil­brigð­is­ráð­herra og Sigrúnu Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur lagt fram fjögur frum­vörp og Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra einnig. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra hefur lagt fram tvö frum­vörp og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra eitt frum­varp hvor.

Þess ber þó að geta að af 19 þings­á­lykt­un­ar­til­lögum sem rík­is­stjórnin hefur lagt fram á þing­inu eru 15 þeirra til­lögur utan­rík­is­ráð­herra. Mörg mál sem koma inn í þingið í gegnum EES eru þings­á­lykt­anir.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins duglegastir að leggja fram frumvörp

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem eru utan rík­is­stjórnar hafa verið dug­leg­astir við að leggja fram frum­vörp. Þeir hafa lagt fram 18 frum­vörp. Þingmenn Bjartrar fram­tíðar hafa lagt fram 15 frum­vörp og þing­menn VG einnig 15 frum­vörp. Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins sem eru utan rík­is­stjórnar hafa lagt fram 11 frum­vörp, Sam­fylk­ing­ar­þing­menn hafa lagt fram 9 og Píratar 7.

Eitt frum­varp frá þing­manni hefur orðið að lögum á þessu þingi, og það var frum­varp Ögmundar Jón­as­sonar um sann­girn­is­bætur fyrir mis­gjörðir á stofn­unum eða heim­ilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár