Breyttu nokkur höfuðhögg Hinriks VIII sögu Evrópu?

Vís­inda­menn við Yale-háskóla hafa velt upp þeirri kenn­ingu að Hinrik VIII hafði glímt við svipuð vanda­mál og leik­menn í NFL-deild­inni hafa fundið fyrir. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér þessar kenn­ingar.

Hinrik VIII var einn þekkt­asti og merki­leg­asti kon­ungur Englands frá upp­hafi. Hann birt­ist okkur í kvik­myndum, sjón­varps­þáttum, mál­verkum og bókum sem ráð­ríkur, grimmur og sjúkur leið­togi og það má vissu­lega til sanns vegar færa. En það var ekki alltaf svo því versn­andi heilsu­far hans virð­ist hafa breytt honum sem per­sónu. Vís­inda­menn við Yale háskóla hafa komið fram með kenn­ingu um það hvers vegna Hinrik breytt­ist og sú kenn­ing á rætur sínar á ólík­legum stað, úr NFL deild­inni.

Eins og tveir ólíkir menn

Hinrik VIII Tudor fædd­ist árið 1491 og var næstelsti sonur kon­ungs­hjón­anna Hinriks VII og Elísa­betar af York. Eldri bróðir hans, Artúr, lést á ung­lings­aldri og faðir þeirra skömmu síðar. Hinrik var því krýndur kon­ungur Englands ein­ungis 17 ára gam­all árið 1509. Hinrik stýrði land­inu í tæp­lega 38 ár og valda­tími hans er einn sá merki­leg­asti í sögu lands­ins. Hann sleit bönd ensku kirkj­unnar við páfa­garð þegar páfi neit­aði honum um skilnað við fyrstu eig­in­konu sína, Katrínu af Aragon. Þá leysti hann upp ensku klaust­ur­regl­urnar og lagði lönd þeirra og auð­ævi undir krún­una. Með þessu lagði hann grunn­inn að ensku bisk­upa­kirkj­unni sem í dag telur yfir 80 milljón sálir víðs vegar um heim sem er merki­legt í ljósi þess hversu lítið trú­ræk­inn hann var og í raun flaut með því sem hent­aði honum í hvert skipti.

Hinrik umbylti einnig her­flot­anum og hefur verið kall­aður faðir hins kon­ung­lega flota. Allar götur síðan var kon­ung­legi flot­inn horn­steinn­inn í bæði land­vörnum og útþenslu Englands og styrkur hans meg­in­á­stæðan fyrir vel­gengni breska heims­veld­is­ins. Hinrik efldi kon­ung­dæmið og trúði á rétt ein­valds kon­ungs sem leið­toga bæði ver­ald­legra og and­legra mál­efna. Hann rak harða og her­skáa utan­rík­is­stefnu gegn erki­fj­endum sínum á meg­in­landi Evrópu en náði að sætta þær aðal­sættir sem höfðu barist inn­an­lands um ára­tuga skeið, Lancaster og York. En þrátt fyrir allt þetta verður hann alltaf frægastur fyrir að hafa átt sex eig­in­konur og látið afhöfða tvær af þeim.

Á öllum þekkt­ustu mál­verkum sem til eru af Hinriki VIII sjáum við hann sem mjög þétt­vax­inn mann á miðjum aldri. En þegar Hinrik var ungur maður var hann mun grennri. Þetta sést bæði á mál­verkum og brynju­stærð. Sem ungur maður þótti Hinrik létt­lyndur, bjart­sýnn og glað­vær. Hann var mjög hraustur og stund­aði íþróttir og veiðar af mynd­ug­leik en þótti einnig fríður og róm­an­tískur. Hann er einn af fáum kon­ungum sem gift­ist af ást en ekki hent­ug­leik. Einnig kunni hann vel við sig í marg­menni, dans­aði, sinnti listum og samdi jafn­vel tón­list. Gáfna­farið skorti heldur ekki. Hinrik var ekki einn af þeim kon­ungum sem lét ráð­gjafa stjórna rík­inu á meðan hann var á veiðum eða kvenna­fari. Hann var spreng­lærður og fylgd­ist grannt með því sem gerð­ist bæði inn­an­lands og erlendis.

Á seinni hluta veld­is­tím­ans virð­ist Hinrik hafa breyst í allt aðra per­sónu. Þá per­sónu sem Charles Laughton túlk­aði svo snilld­ar­lega í kvik­mynd­inni The Private Life of Henry VIII frá 1933 og fékk ósk­arsverð­laun fyrir. Hinrik var orð­inn skap­styggur, þung­lyndur, til­lits­laus og umfram allt grimmur stjórn­andi sem kunni sér ekki hóf í neinu og víl­aði það ekki fyrir sér að kvelja og jafn­vel aflífa fólk, sama hvort það var honum nákomið eður ei. Hann var sár­kval­inn, örviln­aður og bug­aður maður. Það var á sein­ustu 14 árum ævinnar sem hann gift­ist fimm af sex eig­in­konum sínum og tvær þeirra, Anne Boleyn og Catherine Howard, misstu höf­uðið.

Hvað olli?

Versn­andi heilsa og per­sónu­leika­breyt­ingar Hinriks VIII hafa verið fræði­mönnum mikil ráð­gáta í gegnum tíð­ina og ýmsar kenn­ingar komið fram. Vitað er að hann fékk þrisvar sinnum alvar­lega smit­sjúk­dóma (einu sinni bólu­sótt og tvisvar malaríu) á sínum yngri árum en það kemur þó glöggt fram að hann náði sér fljótt af þeim. Ein þekktasta kenn­ingin er sú að Hinrik hafi verið hrjáður af sára­sótt sem var þá mjög nýr smit­sjúk­dómur í Evrópu eftir hafði borist til álf­urnnar með landa­funda­mönnum í Ameríku. Sárasótt getur valdið geð­veiki en fæstir fræði­menn taka þessa skýr­ingu gilda í dag. Önnur kenn­ing er sú að Hinrik hafi verið hald­inn gena­galla sem kall­ast McLeod-sjúk­dómur, sem upp­götv­aður var árið 1961 og er kenndur við fyrsta þekkta sjúk­ling­inn. Þetta er hæg­verk­andi sjúk­dómur sem verkar m.a. á tauga og æða­kerfi lík­am­ans og getur valdið heila­bilun og per­sónu­leika­breyt­ingum.

Enn önnur lífseig kenn­ing er sú að Hinrik hafi fengið svo­kallað Cushing´s heil­kenni sem amer­íski tauga­lækn­ir­inn Harvey Cushing upp­götv­aði árið 1931. Heil­kennið getur komið fram vegna of mik­illa cortisol horm­óna í lík­am­anum, t.d. vegna æxlis. Cushing´s heil­kennið veldur ójafnri þyngd­ar­aukn­ingu og getur einnig valdið skap­gerð­ar­brestum. Fjöldi ann­rra kenn­inga er til um ástæður hrak­andi heilsu­fars kon­ungs­ins. Má þar nefna syk­ur­sýki, skjald­kirtilsvan­starf­semi og bakt­er­íu­sýk­ingu vegna meiðsla á fæti sem hann hlaut í burt­reiðum. Engin af áður­nefndum skýr­ingum virð­ist þó geta passað alger­lega miðað við þær lýs­ingar sem til eru af heilsu­fari og skap­gerð Hinriks. Hinrik lést árið 1547, senni­lega vegna hjarta­bil­unar, og má telja víst að þeir sam­verk­andi kvillar sem hrjáðu hann sein­ustu ár ævinnar hafi valdið því.

Nýr sjúkdómur uppgötvaður í Pittsburgh

Árið 2002 lést Mike Webster, fyrrum mið­herji hjá NFL-lið­inu Pitts­burgh Steelers, úr hjarta­á­falli á sjúkra­húsi í borg­inni. Þegar komið var með lík hans á krufn­ing­ar­stof­una vökn­uðu grun­semdir læknis á stof­unni, hins níger­íska Bennets Omalu, um að ekki væri allt með felldu. Omalu gerði rann­sóknir á heila Websters og fleiri NFL leik­manna sem dáið höfðu langt fyrir aldur fram við grun­sam­legar aðstæður.

Hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að ítrekuð höf­uð­högg sem leik­menn­irnir höfðu orðið fyrir á ferli sínum í íþrótt­inni hefðu valdið ýmsum lík­am­legum og and­legum kvillum, geð­veiki og loks dauða. Omalu birti nið­ur­stöður sínar árið 2005 en mátti sæta mik­illi and­stöðu víða að vegna vin­sælda NFL deild­ar­innar og amer­ísks fót­bolta. Hann hélt þó ótrauður áfram og nefndi sjúk­dóm­inn CTE (Chronic traumatic encephalopathy). Engin íslensk þýð­ing er til á þessum sjúk­dómi en læknir á Land­spít­al­anum segir að lang­vinnur eða þrá­látur áverka­tengdur heila­kvilli lýsi þessu best. Sjúk­dóm­ur­inn kemur fram um 8-10 árum eftir að áverk­arnir eiga sér stað og þar sem hann er algengastur hjá íþrótta­fólki kemur hann yfir­leitt fram eftir að ferl­inum líkur.

Þeir íþrótta­menn sem fá þung og ítrekuð höf­uð­högg eru í mestri hættu að fá sjúk­dóm­inn og er hann sér­stak­lega mikið vanda­mál í íþróttum á borð við amer­ískan fót­bolta, ruðn­ing, hnefa­leika, ísknatt­leik o.fl. en einnig hafa komið upp til­felli í íþróttum á borð við körfuknatt­leik og knatt­spyrnu. Sjúk­dóm­ur­inn er auk þess ekki ein­vörð­ungu bund­inn við íþrótta­fólk. Meðal ein­kenna sjúk­dóms­ins má nefna athygl­is­brest, dóm­greind­ar­brest, minnis­leysi, stöðuga höf­uð­verki og verki í vöðvum, svima, vit­glöp, mál­heltu og geð­veiki.

Mike Webster dó ein­ungis fimm­tugur þar sem hann hafði lifað sein­ustu árin heim­il­is­laus, sár­þjáður og í algjöru sturlun­ar­á­standi. Stór hluti þeirra sem þjást af sjúk­dómnum taka sitt eigið líf. Eitt alvar­leg­asta atvikið átti sér stað árið 2007 þegar Chris Benoit, fyrrum heims­meist­ari í fjöl­bragða­glímu, hengdi sig eftir að hafa myrt eig­in­konu sína og son. Margir af þeim leik­mönnum sem Bennet Omalu rann­sak­aði höfðu framið sjálfs­víg. Meðal þeirra Justin Strzelczyk (36 ára) sem keyrði á tæp­lega 150 km/klst hraða á móti umferð og Andre Waters (44 ára) sem Omalu sagði hafa haft heila­hrörnun á við níræðan mann.

Var Hinrik VIII haldinn íþróttasjúkdómi?

Nýlega hefur tauga­lækn­ir­inn Arash Sal­ar­dini sem kennir við Yale háskóla komið fram með þá til­gátu að Hinrik VIII hafi verið hrjáður af CTE. Sal­ar­dini er ekki sá fyrsti til að velta því fyrir sér hvort höf­uð­högg gætu hafað haft áhrif á per­sónu kon­ungs­ins. Sagn­fræð­ing­ur­inn Frederick Chamberlain minnt­ist á þetta í bók sinni The Private Character of Henry the Eighth en sú bók kom út árið 1931, löngu áður en áhrif CTE urðu kunn. En Sal­ar­dini fékk hug­mynd­ina aftur á móti eftir að hafa kynnt sér rann­sóknir tauga­lækn­is­ins Ann McKee við Boston háskóla á mörgum NFL leik­mönnum.

Hún segir að þó að íþrótta­menn með CTE fái mesta athygli þá sé sjúk­dóm­ur­inn ekki ein­göngu bund­inn við íþrótta­fólk. Það er vitað að Hinrik VIII lenti í mörgum alvar­legum slysum á sínum yngri árum. Árið 1524 var hann sleg­inn af hesti sínum í burt­reiðum og var mjög das­aður eftir það. Ári seinna var kon­ung­ur­inn á hauka­veiðum þar sem hann reyndi að kom­ast yfir hátt lim­gerði með stöng líkt og stanga­stökkvari. Stöngin brotn­aði og hann féll ofan í skurð og rot­að­ist. Hann var dreg­inn upp úr og minnstu mun­aði að hann drukkn­aði í skurð­inum. Árið 1536 lenti hann svo í öðru alvar­legu burt­reiða­slysi þar sem hann féll af baki og hest­ur­inn féll ofan á hann.

Kon­ung­ur­inn rot­að­ist og var með­vit­und­ar­laus í um það bil tvær klukku­stundir eftir það. 1536 er einmitt árið þar sem per­sónu­leika­breyt­ingar Hinriks fóru að koma fram en vitað er að hann var byrj­aður að fá slæma höf­uð­verki og jafn­vel mígrenisköst fyrir þann tíma. Einnig var svefn­leysi og þung­lyndi farið að gera vart við sig. 1536 var einnig árið þar sem Hinrik lét taka aðra eig­in­konu sína, Anne Boleyn, af lífi fyrir sam­særi gegn sér sem átti sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Glæpur Boleyn var sá að hún ól konungnum ekki son heldur ein­ungis eina dóttur, fram­tíð­ar­drottn­ing­una Elísa­betu I.

Á sein­ustu 10 árum Hinriks VIII versn­aði heilsa hans stöðugt. Þung­lyndið varð æ meira áber­andi, sér­stak­lega eftir að hans hægri hönd og ráð­gjafi, jarl­inn Thomas Cromwell, lést árið 1540. Eftir dauða Cromwells lok­aði Hinrik sig inni löngum stundum. Hinrik varð væni­sjúkur og missti alla getu til að taka upp­lýstar ákvarð­anir. Seinustu stríð hins mikla herkon­ungs voru mis­heppn­aðar og illa ígrund­aðar inn­rásir inn í Skotland og Frakk­land. Minnið fór einnig að svíkja hann. Hann gleymdi oft hvar hann hafði verið og hvað hann hafði fyr­ir­skipað. Þegar hann var leið­réttur reidd­ist hann harka­lega og tók jafn­vel brjál­æðisköst. Enginn var öruggur í náveru hans, ekki einu sinni náfjöl­skylda hans. Einn af fylgi­kvillum CTE er getu­leysi og lágt magn testó­steróns. Hinrik kenndi ávallt eig­in­konum sínum um það að geta honum ekki syni en það var hann sjálfur sem glímdi við nátt­úru­leysi sam­kvæmt frá­sögnum tveggja þeirra. Sal­ar­dini telur að mikil þyngd­ar­aukn­ing Hinriks á seinni hluta ævi sinnar geti einnig tengst höf­uð­á­verk­unun, þ.e. að áverkar geti valdið skorti á vaxt­ar­horm­ónum. Hjá full­orðnu fólki getur slíkur skortur valdið offitu og vöðva­rýrnun.

Öll þau ein­kenni sem Hinrik glímdi við sein­ustu 10 ár lífs síns eða þar um bil, virð­ast passa vel við CTE sjúk­dóm­inn eða a.m.k. það sem við vitum um hann í dag. Þar sem ekki er hægt að rann­saka heila Hinriks VIII getur til­gáta Sal­ar­dinis vita­skuld aldrei orðið meira en rök­studd ágiskun. Hún er þó nokkuð sann­fær­andi og merki­legt inn­legg inn í umræð­una um þennan nýupp­götv­aða sjúk­dóm og hvaða áhrif hann gæti hafa haft á mann­kyns­sög­una. Sal­ar­dini segir: „Það er heill­andi að ímynda sér það að saga Evrópu gæti hafa breyst var­an­lega vegna höf­uð­höggs.”

Sal­ar­dini og nem­endur hans sem hann vinnur að rann­sókn­inni með munu birta ítar­legar nið­ur­stöður sínar í tíma­rit­inu Journal of Clinical Neuroscience í júní næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár