Topp 10 - Óvæntir deildarmeistarar

Vel­gengni Leicester City í ensku úrvals­deild­inni í fót­bolta hefur beint kast­ljós­inu að óvæntum atburðum í heimi fót­bolt­ans. Kristinn Haukur Guðnason kynnti sér sögu óvæntra meist­ara.

Leicester City eru nú á barmi þess að vinna enska meist­ara­tit­il­inn í fyrsta skipti í sögu félags­ins. Þetta er stór­merki­legt í ljósi þess að fyrir tveimur árum síðan spil­aði liðið í annarri deild og fyrir sjö árum síðan spil­uðu þeir í þriðju deild. Fyrir tíma­bilið spáðu margir Leicester City falli úr úrvals­deild­inni en enn sem komið er hafa þeir ein­ungis tapað tveimur leikjum og hafa fimm stiga for­ystu á toppi deild­ar­innar. Á meðan eru mörg af þeim sig­ur­sælu og fjár­sterku liðum sem hafa ein­okað meist­ara­tit­il­inn sein­ustu ára­tugi í algjöru basli. Með sigri myndu Leicester City kom­ast í hóp ólík­leg­ustu deild­ar­meist­ara sög­unnar.

10. Montpellier HSC – 2012

Velgegni hefur verið óvenju dreifð í frönsku deild­inni Ligue 1 miðað við aðrar sam­bæri­legar deild­ar­keppnir Evrópu. Engu að síður átti eng­inn von á því að smáliðið Mont­pellier við suð­ur­strönd­ina ynni tit­il­inn tíma­bilið 2011-2012. Liðið hafði endað í 14. sæti árið áður og átti eftir að lenda í 9. sæti árið eftir. Það voru einnig ein­ungis þrjú ár síðan liðið kom upp úr annarri deild. Þjálf­ar­inn Rene Girard náði þó að búa til góða blöndu af reyndum kempum og ungum leik­mönnum. Um sum­arið styrkti Girard vörn­ina umtals­vert með kaup­unum á Henri Bedimo og Vitorino Hilton. En það voru sókn­ar­menn­irnir tveir, Olivier Giroud og Younes Belhanda , sem reynd­ust drjúg­astir fyrir liðið. Mont­pellier tryggðu sér sinn fyrsta titil á loka­degi móts­ins með þriggja stiga for­skoti á stór­liðið Paris St. Germain. Giroud vann marka­kóngs­tit­il­inn með 21 marki og var um sum­arið seldur til Arsenal.

9. Atlético Madrid – 2014

Atlético Madrid er ekki lítið lið heldur eitt af sig­ur­sæl­ustu liðum Spánar með 10 deild­ar­titla á bak­inu. Sigur þeirra er því ein­ungis óvæntur í ljósi yfir­burða­stöðu risanna tveggja, Barcelona og Real Madrid, á und­an­förnum árum. Sumarið 2013 eyddu bæði liðin gríð­ar­legum fjár­munum í stór­stjörnur á borð við Neymar og Gareth Bale. Barcelona leiddu stærstan hluta tíma­bils­ins en Atlético voru aldrei langt undan. Á vor­mán­uðum náðu Atlético for­yst­unni og héldu henni allt til loka­dags þar sem þeir tryggðu sér tit­il­inn með jafn­tefli á Nou Camp. Bæði Real og Barcelona skor­uðu umtals­vert fleiri mörk en Atlético sem reiddu sig frekar á varn­ar­leik­inn. Mið­vörð­ur­inn Diego Godin og mark­mað­ur­inn Thibaut Courtois skiptu þar mestu. Af öðrum lyk­il­mönnum má nefna fram­herj­ann Diego Costa sem skor­aði 27 mörk og miðju­mann­inn Koke. Titilinn er þó að miklu leyti hinum útsjóna­sama þjálf­ara liðs­ins, Diego Simeone, að þakka. Minnstu mun­aði að Atlético ynnu tvenn­una þetta ár en þeir töp­uðu úrslita­leik meist­ara­deild­ar­innar gegn erki­fj­end­unum Real Madrid.

8. VfL Wolfsburg – 2009

Flest smærri lið sem ná árangri gera það með öguðum og þéttum varn­ar­leik og vel nýttum sóknum. Wolfsburg unnu aftur á móti sinn eina titil með vægð­ar­lausum sókn­ar­bolta. Þeir hófu tíma­bilið í dæmi­gerðu miðju­moði á meðan annað ólík­legt lið, Hof­fen­heim, leiddi deild­ina. Wolfsburg náðu svo flugi á vor­mán­uðum og unnu deild­ina með 2 stigum meira en frá­far­andi meist­arar Bayern München. Þeir voru ósigr­andi á heima­velli sínum Volkswagen Arena þar sem þeir unnu alla leiki sína nema einn (jafn­tefli við Frank­furt). Á þeim velli lutu hinir vold­ugu Bayern München í gras 5-1. Wolfsburg voru með lang­besta marka­hlut­fallið og skor­uðu flest mörk allra. Hið eitr­aða tvíeyki Grafite (28 mörk) og Edin Dzeko (26 mörk) var á þessum tíma án nokk­urs vafa besta fram­herj­apar heims. Þeir fengu góðan stuðn­ing frá miðju­mönnum á borð við Zvjezdan Misimovic, Josué og Christian Gentner. Miðjuna batt svo ítalski heims­meist­ar­inn Andrea Barzagli saman.

7. FC Nantes – 1995

Nantes er eitt af sig­ur­sæl­ustu liðum franskrar knatt­spyrnu en fyrir tíma­bilið 1994-1995 var liðið í kröggum og þurfti að selja marga af reynd­ustu leik­mönnum sínum. Þjálfari liðs­ins Jean-Claude Suaudeau þurfti því að reiða sig á fámennan og ungan hóp sem inni­hélt leik­menn á borð við Patrice Loko, Christian Karembeu og Claude Makelele. Suaudeau bjóst við því að þurfa að berj­ast við að halda lið­inu í efstu deild en annað kom á dag­inn. Leik­menn­irnir sprungu út og spil­uðu mun hrað­ari og sókn­djarfari knatt­spyrnu en önnur lið deild­ar­innar. Það bitn­aði þó ekki á varn­ar­leiknum og Nantes yfir­spil­uðu önnur lið á báðum endum vall­ar­ins. Þeir sigr­uðu deild­ina með 10 stiga mun og töp­uðu ein­ungis einum leik, gegn Strasbourg. Fram­herj­arnir Patrice Loko og Nicolas Ouedec skor­uðu sam­an­lagt 40 mörk.

6. Hellas Verona FC – 1985

Í upp­hafi níunda ára­tug­ar­ins skók spill­ing­ar­hneyksli ítalska knatt­spyrnu þar sem upp komst að leik­mönnum hafði verið mútað. Árið 1985 var því ákveðið að stemma stigu við spill­ingu og úthluta dóm­urum leiki af handa­hófi en ekki af nefnd. Það ár komu Hellas frá Veróna öllum á óvart og unnu sinn eina titil. Liðinu hafði gengið ágæt­lega í bik­ar­keppnum og kom­ist í úrslit bæði 1983 og 1984 en aldrei hafði þeim gengið mjög vel í deild­ar­keppn­inni. Hellas gerðu tvö lyk­il­kaup sum­arið 1984, á þýska varn­ar­jálknum Hans-Peter Briegel og danska fram­herj­anum Preben Elkjær. Sókn­ar­leik­ur­inn var góður og vörnin sú besta í deild­inni. Þeir töp­uðu ein­ungis tvisvar á tíma­bil­inu og sigr­uðu deild­ina með fjórum stigum og með lang­bestu marka­töl­una. Hellas báru t.a.m. sig­ur­orð á ríkj­andi meist­urum Juventus bæði heima og að heiman. Ári seinna var dóm­ara­út­hlutun breytt aftur í sama horf og Juventus end­ur­heimtu tit­il­inn. Hellas end­uðu þá í 10. sæti.

5. AZ Alkmaar – 2009

Fákeppni hefur ein­kennt hol­lensku deild­ina í rúma hálfa öld. Ajax, PSV Eind­hoven og Feyenoord hafa unnið 52 af sein­ustu 56 deild­ar­titlum og því heyrir það til tíð­inda þegar önnur lið hreppa hnossið. AZ unnu ekki bara deild­ina árið 2009, heldur gerðu þeir það með til­þrifum og rufu þannig 28 ára sam­fellda sig­ur­göngu risanna þriggja. Það sem gerir tit­il­inn enn merki­legri er að flestir leik­menn AZ voru svo til óþekktir. Þjálfari liðs­ins var Louis Van Gaal sem hafði unnið fjölda titla með Ajax og Barcelona þar sem lið hans voru þekkt fyrir blússandi sókn­ar­bolta. Honum hafði ekki tek­ist að ná árangri hjá AZ með sínu hefð­bundna leik­skipu­lagi og því breytti hann taktík liðs­ins. AZ fóru að liggja aftar og beita frekar skynd­i­sóknum. Breyt­ingin skil­aði sér og þrátt fyrir slæma byrjun á tíma­bil­inu unnu þeir deild­ina með 11 stiga mun og þeir spil­uðu 28 leiki í röð án þess að tapa. AZ náðu ekki að fylgja titl­inum eftir en annað ólík­legt lið, Twente sem Steve McClaren stýrði, vann ári seinna.

4. Boavista FC – 2001

Síðan portú­galska deildin var stofnuð árið 1934 hafa stóru liðin þrjú (Benfica, Sporting og Porto) unnið alla deild­ar­titl­ana nema tvo. Belenenses unnu árið 1946 og Boavista árið 2001. Boavista, sem er litla liðið í Óportó-borg, er fyrst og fremst þekkt sem bik­arlið. Þeir hafa unnið bik­ar­inn sam­tals 5 sinnum en sjaldn­ast gengið vel í deild­ar­keppni. Sumarið 2000 virt­ist engin breyt­ing ætla að verða þar á enda eyddi liðið sára­litlum pen­ingum í leik­manna­kaup. Jaime Pacheco þjálf­ari náði þó að þjappa lið­inu ræki­lega saman. Boavista spil­uðu þéttan varn­ar­leik, þeir pressuðu lið stíft og klár­uðu leiki snemma. Heima­völl­ur­inn Estádio do Bessa reynd­ist þeim drjúgur þar sem þeir unnu alla leik­ina þar nema gegn Braga. Þeim gekk verr á úti­velli, töp­uðu þar t.a.m. 4-0 á loka­deg­inum gegn erki­fj­end­unum Porto. Það skipti þó ekki máli, Boavista unnu deild­ina með einu stigi meir en Porto. Boavista höfðu engan afger­andi marka­skor­ara en meðal lyk­il­manna má nefna miðju­menn­ina Petit og Erwin Sanchez sem nú er þjálf­ari liðs­ins.

3. Ipswich Town FC – 1962

Árið 1957 komst litla liðið frá Austur-Anglíu upp úr þriðju deild­inni. Þeir eyddu nokkrum árum í annarri deild uns þeir sigr­uðu hana árið 1961 og komust í fyrsta skipti í sög­unni upp í efstu deild. Maðurinn sem stýrði lið­inu upp var Alf Ramsey. Litlum pen­ingum var eytt sum­arið 1961 og margir bjugg­ust við að Ipswich myndu falla jafn­harðan niður aftur. Þessar grun­semdir minnk­uðu ekki með lélegri byrjun liðs­ins á tíma­bil­inu. Tónninn var þó settur með 6-2 sigri á Burnley sem var á þeim tíma stórt lið. Leið Ipswich að titl­inum var þó þyrnum stráð. Þeir unnu stóra sigra en töp­uðu einnig illa, leik­irnir við Manchester United fóru t.d. 4-1 og svo 0-5. Alls töp­uðu þeir 10 leikjum á tíma­bil­inu. Algjörir lyk­il­menn í lið­inu voru fram­herj­arnir Ray Crawford og Ted Phillips sem skor­uðu sam­tals 61 af 93 mörkum liðs­ins. Ramsey var þó ekki hættur í krafta­verka­biss­nessnum. Hann tók við enska lands­lið­inu og gerði þá að heims­meist­urum árið 1966.

2. FC Kaiserslautern – 1998

Otto Rehhagel fer í sögu­bæk­urnar fyrir hið ótrú­lega afrek að gera gríska lands­liðið að Evr­ópu­meist­urum árið 2004. Það skyggir því miður á eitt mesta afrek í sögu þýskrar knatt­spyrnu. Rehhagel var rek­inn frá Bayern München eftir stutta veru árið 1996 og tók þá við ann­arar deildar lið­inu Kaiserslautern. Hann kom rauðu djöfl­unum upp í efstu deild árið 1997 og gerði þá svo að þýskum meist­urum ári seinna. Þeir settu tón­inn strax í fyrsta leik með 1-0 sigri á Bayern í München og hefnd Rehha­gels var síðan full­komnuð þegar þeir unnu þá aftur 2-0 í Kaiserslautern. Þeir komust á topp deild­ar­innar í 4. umferð og slepptu aldrei tak­inu. Mik­il­væg­ustu kaup Rehha­gels sum­arið eftir að þeir komu upp voru á sviss­neska varn­ar­mannium Ciriaco Sforza sem hafði áður spilað með félag­inu. Hann batt vörn­ina saman og var einn mik­il­væg­asti leik­maður liðs­ins ásamt marka­hrók­inum Olaf Marschall og Dananum Michael Schjönberg. Rehhagel fékk einnig hinn unga Michael Ballack til liðs við Kaiserslautern en hann spil­aði tak­markað það tíma­bilið.

1. Nottingham Forest – 1978

Knatt­spyrnu­stjór­inn Brian Clough tók við ann­arar deildar lið­inu Nott­ing­ham Forest árið 1975 eftir að hafa stýrt Leeds United eft­ir­minni­lega í ein­ungis 44 daga. Hann kom lið­inu naum­lega upp í efstu deild árið 1977 og fáir bjugg­ust við miklu af lið­inu á kom­andi tíma­bili. Clough keypti þó tvo leik­menn sem áttu eftir að skipta sköpum, mark­mann­inn Peter Shilton og sókn­ar­mann­inn Kenny Burns sem hann gerði að mið­verði. Forest byrj­uðu tíma­bilið með látum og vörnin var sú besta í deild­inni. Þeir héldu dampi allt tíma­bilið og unnu m.a. Manchester United 4-0 á Old Trafford. Þeir unnu deild­ina örugg­lega með 8 stiga for­skoti á frá­far­andi meist­ara Liverpool og unnu deild­ar­bik­ar­inn í kaup­bæti. Meðal ann­arra lyk­il­manna liðs­ins má nefna hinn unga fram­herja Tony Woodcock, varn­ar­mann­inn Viv Anderson og miðju­mann­inn Archie Gemmill. Sveinar Clough voru þó ekki hættir að koma á óvart því þeir unnu Evr­ópu­keppni félags­liða árin 1979 og 1980.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár