Píratar með 42 prósenta fylgi - Björt framtíð nánast horfin

Birgitta Jónsdóttir, þingsflokksformaður Pírata.
Birgitta Jóns­dóttir, þings­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Píratar mæl­ast með tæp­lega 42 pró­sent fylgi í nýrri skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2. Það er í fyrsta sinn sem fylgi flokks­ins mælist yfir 40 pró­sent og sam­kvæmt þeirri nið­ur­stöðu yrði hann langstærsti flokkur lands­ins. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu. Píratar hafa nú mælst með yfir 30 pró­sent fylgi í nær öllum skoð­ana­könn­unum sem gerðar hafa verið í heilt ár.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist næst stærsti flokkur lands­ins með 23,2 pró­sent fylgi. Það er ívið meira en hann mæld­ist með í könnun MMR sem birt var í síð­ustu viku, en þá mæld­ist fylgi flokks­ins undir 20 pró­sentum. Það var lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hafði nokkru sinni mælst með. Í síð­ustu skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 3, sem gerð var 10. og 11. nóv­em­ber 2015, mæld­ist fylgi flokks­ins 29,3 pró­sent.

Það blæs ekki byr­lega fyrir Bjartri fram­tíð sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­inni. Einungis 1,6 pró­sent aðspurðra sögð­ust ætla að kjósa flokk­inn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin og Vinstri græn mæl­ast öll með um tíu pró­sent fylgi.

Könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 var gerð þannig að hringt var í 1.158 manns þar til náð­ist í 801 dag­ana 26. og 27. jan­úar. Svar­hlut­fallið var 69,2 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með lag­skiptu slembi­úr­taki úr þjóð­skrá. Alls tók 56,1 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Önnur könnunin á viku

Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 er önnur fylgiskönn­unin sem birt er á innan við viku. Á föstu­dag kom ný skoð­ana­könnun um fylgi flokka frá MMR. Samkvæmt henni mæld­ist stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn nú 19,5 pró­sent. Stuðn­ingur við flokk­inn hefur aldrei mælst lægri í skoð­ana­könn­unum MMR né Gallup. Fylgi Pírata mæld­ist 37,8 pró­sent og hafði aldrei mælst hærra. Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 12. til 20. jan­úar 2016.

Allir flokkar sem eiga full­trúa á Alþingi töp­uðu fylgi á milli kann­ana MMR, utan Pírata og Vinstri grænna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem fékk 24,4 pró­sent fylgi í síð­ustu kosn­ingum, mæld­ist nú með tíu pró­sent fylgi, Sam­fylk­ingin, með 10,4 pró­sent fylgi og Björt fram­tíð með 4,4 pró­sent, sem myndi ekki duga til að ná manni inn á þing ef kosið væri í dag.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur einnig áfram að dala og mælist nú 30,1 pró­sent. Hann hefur ein­ungis einu sinni mælst minni á kjör­tíma­bil­inu, í júní 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár