Tæp 20 prósent landsmanna styðja Sjálfstæðisflokk - Píratar nálgast 40 prósentin

Stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn mælist nú 19,5 pró­sent, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun um fylgi flokka sem MMR birti í dag. Stuðn­ingur við flokk­inn hefur aldrei mælst lægri í skoð­ana­könn­unum MMR né Gallup. Píratar halda hins vegar áfram að sópa til sín stuðn­ingi og fylgi flokks­ins mælist nú 37,8 pró­sent. Það hefur aldrei mælst hærra.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 12. til 20. jan­úar 2016.

Allir flokkar sem eiga full­trúa á Alþingi tapa fylgi á milli kann­ana, utan Pírata og Vinstri grænna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem fékk 24,4 pró­sent fylgi í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú með tíu pró­sent fylgi. Sam­fylk­ingin mælist með 10,4 pró­sent fylgi og Björt fram­tíð með 4,4 pró­sent, sem myndi ekki duga til að ná manni inn á þing ef kosið væri í dag.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur einnig áfram að dala og mælist nú 30,1 pró­sent. Hann hefur ein­ungis einu sinni mælst minni á kjör­tíma­bil­inu, í júní 2015.

Karlar eru mun lík­legri til að styðja Pírata en konur. 44 pró­sent karla sögð­ust styðja flokk­inn en 29 pró­sent kvenna. Konur eru hins vegar mun fleiri í stuðn­ings­liði Vinstri grænna. Ungt fólk styður Pírata mun fremur en eldra fólk. Alls segj­ast 54 pró­sent fólks á milli 18 og 29 ára að það myndi kjósa Pírata og 40 pró­sent þeirra sem eru á milli þrí­tugs og fimm­tugs. Einungis fjögur pró­sent fólks á milli 18 og 29 ára myndu kjósa Sam­fylk­ing­una og sex pró­sent Fram­sókn­ar­flokk­inn. Stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn hjá fólki undir þritugu er 15 pró­sent og hjá fólki milli þrí­tugs og fimm­tugs er hann 16 pró­sent.

Píratar eru með mest fylgi í öllum tekju­hópum nema þeim efsta. Í tekju­hæsta hópnum, þeim sem er með yfir milljón krónur í tekjur á mán­uði, er mestur stuðn­ingur Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár