Auglýsingar ríkisstjórnarinnar kostuðu 2,3 milljónir

Birting aug­lýs­inga sem birtar hafa verið í nafni rík­is­stjórnar Íslands í völdum fjöl­miðlum und­an­farið kost­aði 2,3 millj­ónir króna. Þær voru kost­aðar af svo­nefndu ráð­stöð­un­arfé rík­is­stjórn­ar­innar og hún tók ákvörðun um gerð og birt­ingu aug­lýs­ing­anna. Þetta kemur fram í svari skrif­stofu­stjórnar skrif­stofu yfir­stjórnar hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þegar valið var hvar aug­lýs­ing­arnar ættu að birt­ast var „litið til útbreiðslu miðl­ana og dreif­ingu á lands­vísu. Um for­dæmi má vísa til aug­lýs­inga sem birtar voru m.a. í nafni rík­is­stjórn­ar­innar í sam­starfi við aðila vinnu­mark­að­ar­ins í jan­úar 2014 um for­sendur kjara­samn­inga um verð­stöð­ug­leika."

Aug­lýs­ing­arnar birt­ust m.a. í Frétta­blað­inu, Morg­un­blað­inu, Við­skipta­blað­inu, DV og Frétta­tím­anum. Auk þess birt­ist aug­lýs­ing á vef­miðl­inum Eyjan.is, sem til­heyrir Pressu/DV-fjöl­miðla­fjöl­skyld­unni.

Í svari skrif­stofu­stjór­ans segir: „Til­gangur fyrri aug­lýs­ing­ar­innar var að hvetja neyt­endur til að fylgj­ast með verð­lagi og beina við­skiptum sínum til þeirra sem standa sig best í frjálsri sam­keppni. Hvatn­ingin var sett fram í tengslum við laga­breyt­ingar sem fólu í sér lækk­anir á tollum af fötum, skóm og öðrum nauð­synja­vörum sem tóku gildi um ára­mótin. Til­gangur síð­ari aug­lýs­ing­ar­innar var að vekja athygli almenn­ings á þeirri þverpóli­tísku sam­stöðu sem náð­ist á Alþingi við sam­þykkt fjár­laga um að verja bæri tekjum sem renna munu í rík­is­sjóð vegna stöðu­leika­fram­laga föllnu bank­anna, á grund­velli nauða­samn­inga þeirra, til nið­ur­greiðslu skulda rík­is­sjóðs og ná þannig fram lækkun á vaxta­byrði rík­is­sjóðs. Kostn­aður vegna aug­lýs­ing­anna nam 2,3 millj. kr. Ekki eru fyr­ir­hug­aðar frek­ari birt­ingar aug­lýs­inga."

Aug­lýs­ing­arnar hafa verið harð­lega gagn­rýndar af stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum, sem taka ekki undir að til­gangur þeirra sé að vekja áthygli almenn­ings á þverpóli­tískri sam­stöðu um ráð­stöfun stöð­ug­leika­fram­laga. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði við Vísi.is í gær að um hreinar og klárar áróð­urs­aug­lýs­ingar að ræða. „Okkur finnst þetta mjög und­ar­leg ráð­stöfun á almannafé, enda um hreinar áróð­urs­aug­lýs­ingar að ræða en ekki neinar upp­lýs­ingar til almenn­ings um rétt sem fólk er að fá eða slíkt. Þá vekur athygli að fyr­ir­bærið „rík­is­stjórn Íslands“ stendur fyrir aug­lýs­ing­unum, en það fyr­ir­bæri er ekki til sem stjórn­ar­fars­leg ein­ing og hefur ekki kenni­tölu."

Björn Valur Gíslason, vara­for­maður Vinstri grænna, skrif­aði pistil á blogg­síðu sína snemma í jan­úar og sagði að með birt­ingu aug­lýs­ing­anna hefði rík­is­stjórnin hægri­flokk­anna gripið til þess ráðs að aug­lýsa meint ágæti sitt undir nafni rík­is­stjórnar Íslands. „Það hlýtur að telj­ast vera nokkuð sér­stök aðgerð og til vitnis um lítið sjálfs­traust að þurfa að kaupa heil­síður í fjöl­miðlum í þessum til­gangi og leita allt aftur í Hrunárin eftir hag­stæðum sam­an­burði.“

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn sinni til ráðu­neyt­is­ins 10. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í gær beindi Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, fyr­ir­spurn til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um kostnað við aug­lýs­ing­arnar.

Fyr­ir­spurn Katrínar er eft­ir­far­andi:

  1. Hversu miklu fjár­magni hefur verið varið í aug­lýs­ingar frá rík­is­stjórn­inni frá og með júní 2013 til dags­ins í dag og hvert hefur efni þeirra verið, brotið niður á ein­staka miðla með kostn­aði? 
  2. Hversu mikið hefur hingað til kostað aug­lýs­inga­her­ferð, sem nýlega var farið að birta, m.a. um verk rík­is­stjórn­ar­innar og stöðu efna­hags­mála og hver er áætl­aður heild­ar­kostn­aður hennar? 
  3. Hversu margar aug­lýs­ingar hafa verið birtar í þess­ari her­ferð, brotið niður á ein­staka miðla með kostn­aði? Óskað er eftir upp­lýs­ingum um birt­ing­ar­á­ætlun fyrir frek­ari aug­lýs­ingar. 
  4. Hvar var ákvörðun tekin um að hefja slíkar aug­lýs­ingar og af hvaða fjár­laga­lið eru þær greiddar? 
  5. Hvers vegna var ákveðið að ráð­ast í birt­ingu aug­lýs­inga til að kynna sér­stak­lega verk rík­is­stjórn­ar­innar? Telur for­sæt­is­ráð­herra þetta upp­lýs­ingar er varða slíka almanna­hags­muni að setja beri fjár­muni í að aug­lýsa? Hafa þessar upp­lýs­ingar ekki birst í fjöl­miðlaum­fjöllun um þjóð- og efna­hags­mál eða verið aðgengi­legar að öðru leyti? 
  6. Hver er stefna rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi aug­lýs­ingar? Telur for­sæt­is­ráð­herra eðli­legt að aug­lýsa án þess að um sér­stakar leið­bein­ingar eða nauð­syn­legar upp­lýs­ingar til almenn­ings sé að ræða? Hvar liggja mörk upp­lýs­inga­skyldu og flokkapóli­tískrar aug­lýs­inga­her­ferðar að mati ráð­herra?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár