TOPP 10 – Kvikmyndatónlist á Óskarnum

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur skoð­aði sögu helstu kvik­mynd­ar­tón­list­ar­skálda, þar sem Jóhann Jóhanns­son er nú meðal þeim allra fremstu á sínu sviði.

Jóhann Jóhanns­son hlaut nýverið sína aðra ósk­arsverð­launa­til­nefn­ingu fyrir tón­list­ina í spennu­mynd­inni Sicario. Hann stígur því inn í fámennan hóp úrvals­tón­skálda sem hafa gætt kvik­myndir lífi í gegnum tíð­ina með tón­list sem út af fyrir sig eru mikil lista­verk. Sum af bestu tón­skáld­unum ná aldrei þessum árangri en hér á eftir verður fjallað um þau tíu helstu sem unnið hafa stytt­una frægu.

Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands flytur tón­list Jóhanns Jóhanns­sonar á sér­stökum Kvik­mynda­tón­leikum í Eldborg 17. mars. Þar heims­frum­flytur hljóm­sveitin nýjar hljóm­sveit­ar­svítur sem Jóhann útbjó sér­stak­lega fyrir sveit­ina sam­settar úr tón­list hans við The Theory of Everyt­hing, Pri­soners og nýj­ustu mynd hans Sicario. Þetta er í fyrsta sinn sem tón­listin hljómar í þessum bún­ingi.

Enn­fremur hefur Jóhann valið tón­list ann­ara kvik­mynda­tón­skálda sem hann hefur mætur á til flutn­ings á tón­leik­unum, t.d. John Williams.

Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands hefur áður leikið tón­list Jóhanns en skemmst er að minn­ast tón­leika sveit­ar­innar á Iceland Airwaves 2014 þegar Sin­fón­í­ann lék tón­list hans við heim­ilda­mynd­ina The Miners Hymn’s undir sýn­ingu mynd­ar­innar.

10. Vangelis

Hinn 72 ára gamli Grikki Evang­elos Odysseas Papathanassiou, betur þekktur sem Vangelis, sló í gegn sem hljóm­borðs­leik­ari í popp og rokk­hljóm­sveitum í heima­landi sínu á sjö­unda ára­tugnum. Á sama tíma hóf hann að semja kvik­mynda­tón­list en helg­aði sig því þó aldrei. Hann hefur komið víða við, t.d. samið mikið fyrir heim­ild­ar­myndir, sjón­varps­þætti, tölvu­leiki o.fl. Auk þess hefur hann aldrei skilið við poppið, hvort sem er með hljóm­sveitum eða í eigin sól­ó­ferli.

Kvik­mynda­tón­list hans svipar mjög til ann­arra verka hans, hann leikur sér með elektrónísk hljóð og hljóm­borðið eða píanóið er yfir­leitt í for­grunni. Hápunktur fer­ils hans var á níunda ártugnum og í upp­hafi þess tíunda, þá samdi hann tón­list fyrir m.a. Blade Runner, The Bounty og 1492: Conquest of Paradise. Hann fékk sína einu ósk­ar­stil­nefn­ingu árið 1981 fyrir Chariots of Fire og vann stytt­una einnig. Það er hans fræg­asta stef og hefur verið notað við hin ýmsu tæki­færi, t.d. á ólymp­íu­leik­unum árið 2012 í London.

9. Elmer Bern­stein

Bern­stein var einn af afkasta­mestu tón­skáld­unum í Hollywood um ára­tuga skeið. Hann var fæddur í New York árið 1922 og ólst upp undir hand­leiðslu hins mikla amer­íska tón­skálds Aaron Copland. Hann hóf að semja kvik­mynda­tón­list upp úr 1950 en lenti snemma í vand­ræðum vegna tengsla sinna við komm­ún­ista­hreyf­ing­una. Hann var kall­aður fyrir nefnd Josephs McCarthys og var um stund óæski­legur í Hollywood. Það stóð þó stutt yfir og Bern­stein vann sér sess sem einn helsti vestra og stríðs­mynda laga­höf­undur brans­ans. Verk hans þóttu líf­leg og hressandi, þá sér­stak­lega í myndum á borð við The Magnificent Seven og The Great Escape. Bern­stein fékk alls 14 ósk­ar­stil­nefn­ingar á rúm­lega 50 ára ferli sínum og a.m.k. eina á hverjum ein­asta ára­tug. Hann vann þó ein­ungis einu sinni, árið 1968 fyrir hinn lítið þekkta söng­leik Thoroughly Modern Millie. Bern­stein lést árið 2004.

8. Hans Zimmer

Zimmer fædd­ist í Vestur-Þýska­landi árið 1957 en flutti ungur til Bret­lands. Þar spil­aði hann á hljóm­borð í popp­hljóm­sveitum á átt­unda og níunda ára­tugnum en hann fór aldrei í tón­list­ar­nám. Hann hefur þó aldrei verið hræddur við að grúska og prufa sig áfram með ýmsa hluti. Um miðjan níunda ára­tug­inn hóf hann að semja tón­list fyrir lítið þekktar kvik­myndir og þótti frum­legur þar sem hann bland­aði hefð­bundnum klass­ískum stefum við raf­tón­list. Fyrsta stóra tæki­færi hans var Rain Man árið 1988 og fékk hann mikla athygli og sína fyrstu ósk­ar­stil­nefn­ingu (af tíu) fyrir vikið. Allar götur síðan hefur Zimmer átt fastan sess í Hollywood og orðið þekktur fyrir spennu og ævin­týra­myndir á borð við Crimson Tide, The Pirates of the Caribbean og Inception. Hann er þó langt því frá ein­hæfur og hefur t.a.m. samið tölu­vert af tón­list fyrir teikni­myndir. Árið 1994 fékk hann einmitt ósk­arsverð­laun fyrir The Lion King.

7. John Barry

Barry fædd­ist árið 1933 í York í Bret­landi og ólst þar upp. Hann spil­aði á trompet í jazz-hljóm­sveitum á sjötta ára­tugnum en hóf að semja tón­list fyrir breskar kvik­myndir á þeim sjö­unda. Í upp­hafi fer­ils­ins not­aði hann jazz, og þá sér­stak­lega big band jazz mikið við að skora kvik­myndir. Árið 1962 kom út Dr. No, fyrsta myndin um spæj­ara hennar hátignar James Bond og Barry hlaut tölu­verða athygli fyrir það.

Hann var alla tíð kenndur við Bond ser­í­una og samdi tón­list fyrir alls 11 myndir um spæj­ar­ann, þar á meðal tit­il­lagið og hið goð­sagna­kennda lag Gold­finger sem Shirley Bassey söng. Seinna flutti Barry til Banda­ríkj­anna og gerð­ist hefð­bund­inn Hollywood tón­list­ar­maður og ein­beitti sér þá meira af klass­ískri tón­list þó að jazzinn væri aldrei langt undan. Barry hlaut alls 7 til­nefn­ingar til ósk­arsverð­launa og vann 5 sinnum, þar á meðal fyrir Out of Africa og Dances With Wolves. Hann lést árið 2011.

6. Jerry Goldsmith

Goldsmith fædd­ist kreppu­árið mikla 1929 í Los Angeles. Tón­list­ar­fer­ill hans hófst á sjötta ára­tugnum hjá CBS fjöl­miðl­aris­anum þar sem hann samdi stef fyrir sjón­varps og útvarps­þætti. Hann hóf snemma að semja tón­list fyrir kvik­myndir og sanka að sér ósk­ar­stil­nefn­ingum. Þegar hálfrar aldar ferli hans lauk hafði hann hlotið alls 18 til­nefn­ingar. Hann samdi mikið fyrir vís­inda­skáld­skap og hryll­ings­myndir og árið 1976 fékk hann einmitt sína einu styttu, fyrir hryll­ings­mynd­ina The Omen. Goldsmith þótti eitt frum­leg­asta tón­skáld sem starfað hefur í Hollywood. Hann nýtti sér þjóð­lega tón­list frá öllum heims­hornum, jazz, popp, o.fl. og einnig gerði hann til­raunir með ýmis hljóð­færi á borð við didgeridoo og hið svo­kall­aða blaster beam. Meðal þekkt­ustu kvik­mynda­tón­listar Goldsmiths má nefna Planet of the Apes, Chinatown, Star Trek og Total Recall. Hann lést árið 2004.

5. Howard Shore

Howard Shore er 69 ára Kanada­maður, fæddur og upp­al­inn í Toronto. Hann hóf tón­list­ar­feril sinn sem sax­ó­fón­leik­ari í jazz-hljóm­sveit­inni Lighthouse undir lok sjö­unda ára­tugs­ins en á þeim átt­unda fékk hann starf við sjón­varps­þætt­ina Saturday Night Live. Skömmu seinna komst hann í kynni við leik­stjór­ann og sam­landa sinn, David Cronenberg og þá var fram­tíð hans ráðin.

Shore samdi yfir­leitt tón­list fyrir drunga­legar og óhugn­an­legar kvik­myndir og tón­listin var í sam­ræmi við það. Hann komst á kortið árið 1991 fyrir The Silence of the Lambs en ára­tug seinna fékk Peter Jackson honum það verk­efni að semja fyrir The Lord of the Rings þrí­leik­inn. Það var allt öðru­vísi verk­efni en Shore hafði áður unnið að, epískt og mik­il­feng­legt. Hann fékk inn­blástur frá Nifl­unga­hringi Richards Wagner og not­færði sér kóra. Fyrir The Lord of the Rings hlaut Howard Shore alls þrenn Ósk­arsverð­laun.

4. Bernard Herrmann

Herrmann var einn áhrifa­mesti kvik­mynda­tón­list­ar­maður sög­unnar. Hann var fæddur í New York árið 1911 og hóf að semja tón­list á ung­lings­árum. Hann nam tón­list við NYU og Juillard og fékk starf hjá CBS stöð­inni aðeins 23 ára gam­all. Hjá CBS komst Herrmann í kynni við Orson Welles og samdi í kjöl­farið tón­list­ina fyrir fyrstu kvik­myndir hans, þar á meðal hina goð­sagna­kenndu Citizen Kane árið 1941. Það sama ár vann hann sín einu ósk­arsverð­laun, fyrir kvik­mynd­ina All That Money Can Buy.

Það var þó ekki fyrir sam­starfið við Welles sem Herr­manns verður minnst. Skömmu seinna kynnt­ist hann Alfred Hitchcock og unnu þeir saman að sjö kvik­myndum og þ.m.t. fræg­ustu verk leik­stjór­ans North by Northwest, Vertigo og Psycho. Á sjötta ára­tugnum samdi Herrmann mikið fyrir vís­inda­skáld­skap og varð þekktur fyrir notkun sína á hinu sér­staka hljóð­færi þeramíni. Herrmann bjó í Bret­landi sein­ustu ár ævi sinnar en hann lést árið 1975. Ári seinna var hann til­nefndur til ósk­arsverð­launa fyrir tvö af sein­ustu verkum sínum, Taxi Driver og Obsession.

3. James Horner

Banda­ríkja­mað­ur­inn James Horner var spreng­lærður í tón­list úr skólum á borð við Royal College of Music í London og UCLA í Los Angeles. Honum leidd­ist dæg­ur­tón­list og hóf að semja klass­íska tón­list fyrir kvik­myndir á þrí­tugs­aldri. Á níunda ára­tugnum skap­aði hann sér sess í Hollywood, þá sér­stak­lega fyrir sam­starfið við kvik­mynda­leik­stjór­ann James Cameron. Árið 1986 fékk hann fyrstu ósk­ar­stil­nefn­ingu sína af níu fyrir tón­list­ina í Aliens. Hann samdi mörg fræg kvik­mynda­skor á kom­andi árum, m.a. fyrir Glory, Bravehe­art og Apollo 13 en árið 1997 komst hann í sögu­bæk­urnar fyrir tón­list­ina í meist­ar­verki Camerons Titanic.

Fyrir hana vann Horner tvenn ósk­arsverð­laun og verkið er enn sölu­hæsta kvik­mynda­plata allra tíma. Horner leit á Dmitri Shostakovich sem sinn helsta áhrifa­vald en allan feril sinn mátti hann sæta ásök­unum um ófrum­leika. Bæði að hann stæli stefum frá kol­legum sínum og gömlu meist­ur­unum og einnig að hann end­ur­nýtti sín eigin stef. James Horner lést þann 22. júní síð­ast­lið­inn í flug­slysi.

https://www.youtube.com/watch?v=9AN04imFDK8

2. John Williams

Enginn kvik­mynda­tón­list­ar­maður hefur getið sér við­líka frægð og Banda­ríkja­mað­ur­inn John Williams. Williams er fæddur árið 1932, lærði á píano í Juillard og spil­aði með jazz hljóm­sveitum á sjötta ára­tugnum. Hann lét á sér bera á sjö­unda ára­tugnum en það var sam­starfið við Steven Spi­el­berg og George Lucas sem átti eftir að marka allan hans feril. Williams er nokkuð hefð­bund­inn laga­höf­undur sem hefur þó samið ógrynni af stefum sem allir þekkja. Það hefur skilað sér á rauða dregl­inum og hefur hann hlotið alls 50 ósk­ar­stil­nefn­ingar og 5 sinnum hefur hann unnið stytt­una. Fram­leið­and­inn Walt Disney er sá eini sem hefur hlotið fleiri til­nefn­ingar en Williams. Meðal verka hans má nefna Jaws, Star Wars, E.T.,Indiana Jones, Jurassic Park, Schindler´s List og Harry Potter. Þó að John Williams sé kom­inn á níræð­is­aldur er hann enn að og er einn af keppi­nautum Jóhanns Jóhanns­sonar í ár, með tón­list­ina í Star Wars: The Force Awakens.

https://www.youtube.com/watch?v=hv6umONV7iw

1. Ennio Morricone

Morricone er Rómverji í húð og hár, fæddur í borg­inni eilífu árið 1928. Hann spil­aði á trompet í jazzhljómsveitum og samdi popp­lög áður en hann hóf að gera kvik­mynda­tón­list í heima­landi sínu upp úr 1960.

Hann er afkasta­mik­ill bæði í kvik­mynda­tón­list og öðru sem hann hefur tekið sér fyrir hendur og þykir mjög frum­legur þegar kemur að stíl og hljóð­færa­vali. Morricone hlaut mikla frægð fyrir tón­list­ina í hinum svoköll­uðu spag­hettí vestrum sem hann gerði fyrir skóla­fé­laga sinn Sergio Leone og fleiri leik­stjóra á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum. Þar not­aði hann raddir og ýmsar hljóð­upp­tökur á mjög sér­stakan hátt. Morricone hefur 6 sinnum verið til­nefndur til ósk­arsverð­launa en aldrei unnið. Hann var þó sæmdur heið­ursverð­launum aka­dem­í­unnar árið 2006. Morricone starfar alfarið í Róm og talar litla ensku en hefur þó samið tón­list fyrir fjöl­margar amer­ískar og breskar kvik­myndir. Má þar nefna The Untouchables, The Thing og The Mission sem af mörgum er talin sú besta sem gerð hefur verið. Hinn 87 ára gamli Morricone er keppi­nautur Jóhanns Jóhanns­sonar í ár með The Hateful Eight.

https://www.youtube.com/watch?v=Ux0vyv7dEGk

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár