„Það er engin opinber umræða eftir í Rússlandi“

Besta vopnið gegn áróðri og nettröllum eru stað­reyndir og fag­leg blaða­mennska,“ segir Irina Lagunina, yfir­maður rúss­nesku­deildar Radio Liberty í Prag. Hún á að baki langan feril í blaða­mennsku í Rúss­landi en bjó fyrstu fimm ár ævi sinnar á Íslandi. „Faðir minn var njósn­ari KGB og vann hjá sov­éska sendi­ráð­inu í Reykja­vík. Það er ekk­ert leynd­ar­mál.“

Radio Free Europe/Radio Liberty (RFE/RL) sendir út útvarp, sjón­varps­þætti og net­miðla á 28 tungu­málum í 21 landi, þar á meðal Rúss­landi. RFL/RL er á banda­rískum fjár­lögum og var stofnuð árið 1949 til að útvarpa and­komm­ún­ískum áróðri. Stalín fyr­ir­skip­aði þá að allt yrði gert til að koma í veg fyrir að íbúar Sov­ét­ríkj­anna heyrðu Radio Svoboda, eins og hún heitir á rúss­nesku.

Með tím­anum breytt­ust áherslur Radio Liberty og lögð var meiri áhersla á stað­reyndir og fag­lega frétta­mennsku. Leyni­þjón­ustur aust­an­tjalds­ríkja reyndu oft að hindra frétta­menn RFL/RL. Morð, speng­ingar og eitr­anir eru meðal þess sem búlgarska, rúm­enska og fleiri leyni­þjón­ustur bera ábygð á. KGB njósn­aði innan og utan frá og eyddi miklu fé í bar­áttu gegn útvarps­stöð­inni.

Margir leið­togar frá Austur-Evrópu og Rúss­landi hafa sagt frá mik­il­vægi útvarps­stöðv­ar­innar á tímum kalda stríðs­ins. Fyrrum for­seti Eist­lands, Lennart Meri, til­nefndi Radio Liberty til Frið­ar­verð­launa Nóbels árið 1991. Frið­ar­verð­launa­haf­inn Lech Walesa, sagði árið 1989 að ekki væri hægt að lýsa mik­il­vægi Radio Liberty í frels­is­bar­áttu pól­verja. Á níunda ára­tug Glasnost og Gor­batjovs var hætt að trufla útsend­ingar í Sov­ét­ríkj­unum. Nú gátu and­ófs­menn mætt í útvarps­við­töl án þess að eiga það á hættu að vera ofsóttir. Við lok kalda stríðs­ins var send­ingum í Austur-Evrópu hætt og fé stöðv­ar­innar skorið niður. Árið 1995 voru höf­uð­stöðv­arnar fluttar frá München til Prag með stuðn­ingi Vaclav Havels for­seta og fyrrum and­ófs­manns. Þar sendi stöðin út frá fyrrum aðal­stöðvum komm­ún­ista­flokks Tékkóslóvakíu en flutti árið 2009 í nýtt hús­næði.

Þegar ég hitti Irinu Lagunina í aðal­stöðuvum Radio Liberty í Prag í des­em­ber bendir hún á skjal á veggnum.

„Hér er leyfið sem Boris Jeltzin veitti Radio Svoboda til útsend­inga í Rúss­landi. Hann gerði sér grein fyrir mik­il­vægi stöðv­ar­innar árið 1991 þegar fyrr­ver­andi ofurstar gerðu til­raun til valda­ráns og Radio Liberty var eina stöðin sem flutti fréttir.“

Síðan er Pútín búinn að taka af ykkur leyfið?

„Útsend­ingar okkar í Moskvu voru stöðv­aðar árið 2012 með lögum sem voru sett árið 2011 um að miðlar í Rúss­landi verði að vera 48% í eigu Rússa. Engin önnur útvarps­stöð var í okkar stöðu í Rúss­landi, við áttum okkar eigið send­ing­ar­leyfi í Moskvu og eigin útvarps­rás. Því litum svo á að þessum lögum hafi verið beint gegn okkur. Við misstum útvarps­rás­ina af því við höfðum ekki efni á því að fylgja lög­unum og verða rúss­nesk það gengur einnig gegn grunn­stefnu þess­arar stofn­unar. Þeir slökktu á útvarps­send­ing­unum en við héldum áfram á net­inu. Og töl­fræðin á net­inu er mjög opin, við felum ekk­ert sem við gerum.“

Hvað eruð þið mörg sem starfið innan rúss­nesku deild­ar­innar?

„Ekki svo margir, hér hjá okkur starfa 15 blaða­menn, og í Moskvu 30. Síðan erum við með laus­ráðna frétta­rit­ara víða í Rúss­landi.“

Maður hefði getað ímyndað sér að við lok kalda stríðs­ins myndi Radio Liberty eða Radio Svoboda þagna.

„Nei, þetta er mjög athygl­is­vert því ég var í Moskvu nýlega, og tvisvar sat ég í leigu­bíl og heyrði leigu­bíl­stjór­ana hlusta á okkur á Ipad. Leigu­bíla­fyr­ir­tækin láta bíl­stjór­ana hafa spjald­tölvur og þeir nota þær til að hlusta á fréttir af umferð, veðrið, hvað sem er. Og tvisvar voru þeir að hlusta á Radio Svoboda.“

Hvernig leið þér þá?

„Alveg frá­bær­lega þó ég hafi ekki sagt hvaðan ég kæmi. En ég gerði það reyndar einu sinni þar í strætó. Þá sat kona við hlið mér að lesa eitt­hvað á spjald­tölvu og ég kíkti og hugs­aði, í fyrsta lagi fjall­aði það um Sýrland, og síðan að þetta líkt­ist blogg­inu okkar. Hver er að kópí­era okkur? En svo sá ég nafnið okkar. Ég sagði þá. Óh þú ert að lesa Radio Svoboda! Og hún snéri sér hratt að mér og spurði hvöss: „Og hvað annað á ég svosem að lesa hér í þessu landi?“ Það var eins og hún ætl­aði að fara að verja sig. Svo ég sagði henni að ég styddi hana alger­lega í vali sínu.“

Hvernig var að vinna sem blaða­maður í Rúss­landi á milli 1991 og 1993?

„Það var alveg frá­bært og þetta var hápunktur rúss­neskrar blaða­mennsku. Í fyrsta lagi vegna þess að það var engin póli­tísk stjórnun lengur. Og það var engin fjár­magns­stjórnun heldur, enn. Fjár­magns­á­hrifin hófust í for­seta­kosn­ing­unum ´96 og seinna auð­vitað.“

Semsagt tími frjálsrar rúss­neskrar blaða­mennsku?

„Já alger­lega við vorum mjög fátæk, við sem blaða­menn og einnig fjöl­miðla­fyr­ir­tækin í Moskvu, en þetta var frá­bær tími. Allt var mögu­legt. Það var mikið um rann­sókn­ar­blaða­mennsku um það sem var að ger­ast og um for­tíð­ina. Svo þetta var góður tími.“

Hvað gerð­ist svo?

„Eftir kosn­ingar til Dumunnar 1993 breytt­ist hið póli­tíska lands­lag og stemn­ingin í Rúss­landi varð önnur og dramat­ísk­ari., því þjóð­ern­is­sinnar fluttu í fyrsta sinn inn í þingið, Dumuna. Þá vant­aði súr­efni. Nú var litið á allt út frá hags­munum Rúss­lands og að vestrið væri hættu­legt eins og þessar áróð­urs­her­ferðir sem við sjáum núna. Allt þetta hófst árið 1994. Þá fór að verða erfitt að starfa eðli­lega án þess að vera þving­aður til að setja Rússland ævin­lega í for­grunn­inn. Því fór ég að velta því fyrir mér að fara til BBC eða Radio Liberty svo ég kaus Radio Liberty.“

Ef þú berð fjöl­miðla­árin 91-93 saman við tím­ann Moskvu í dag?

„Það er ekki einu sinni hægt að bera þetta saman. Til dæmis eru allir net­miðlar meira og minna núna undir stjórn rík­is­ins. Þeir sem ekki lúta beinni stjórn þurfa að aðlaga sig sem er synd, og þeir sem gera það ekki er lokað á. Net­miðlar eru sem­sagt nán­ast allir undir hæl rík­is­ins. Hvað varðar prent­miðla er það sveigj­an­legra en æ fleiri frétta­stöðvum er lokað, meira að segja leit­ar­stöðvum er stjórnað. Sjón­varps­veitur eru settar undir eft­ir­lit. Það er algert ofríki rík­is­ins núna.“

Hvert er hlut­verk ykkar hér gagn­vart Rúss­landi?

„Við lítum fyrst og fremst á okkur sem upp­lýs­inga­veitu en þar að auki sem stuðn­ing við frjálsa fjöl­miðlun í Rúss­landi. Það er ástæða þess að við leggju mikla áherslu á að gæði blaða­mennsk­unnar séu mikil og að við séum alger­lega traustur mið­ill. Aldrei að spek­úlera eða und­ir­byggja hat­urs­orð­ræðu eða nokk­urt af því tagi. Annað athygl­is­vert er að við erum með tvo sam­tals­þætti á dag. Svart stúdíó, ekki raun­veru­legt sjón­varp. Í klukku­tíma í litlu stúd­íói í Moskvu. En þetta er þætt­irnir sem flestir horfa á eða lesa um. Ég get sagt þér af hverju, því fólk þyrstir í umræðu. Það er engin opin­ber umræða eftir í Rúss­landi. Og þetta eru þættir sem má hringja inn í. Fólk tekur þátt all­staðar að úr Rúss­landi. Það er einnig tví­tað mikið fyrir þætt­ina. Við spyrjum fólk á göt­unni í Moskvu og það svarar. Við lítum einnig á okkur sem svið fyrir opin­bera umræðu.“

Þið voruð með þessa grein um dag­inn um rúss­nesk nettröll í St. Pét­urs­borg voru ein­hver við­brögð við henni?

„Ó já svo sann­ar­lega. Við höfum gert nokkrar rann­sóknir á trölla­verk­smiðjum í St. Pét­urs­borg. Og í kjöl­farið urðum við fyrir árásum. Eftir þessar tvær greinar voru árás­irnar mjög slæmar.“

Hvernig mælið þið áhorf og við­brögð?

„Við erum með útbreidda sam­fé­lags­miðla. Um 400.000 á Facebook. Og 150.000 á Twitter sem er gott miðað við Rússland. Það sem gerð­ist þegar rúss­neska vélin hrap­aði í Egypta­landi, tveimur klukku­tímum eftir þennan hörmu­lega atburð komumst við að því að það var annað hvort nettröll eða bara skrýtin per­sóna, sem þótt­ist búa ein­hvers­staðar í Úkraínu, fótós­hopp­aði og setti merki Radio Liberty í Ukraínu fyrir aftan sig eins og hann stæði í stúd­íói þeirra. Og hann hélt því fram að hann væri að vinna fyrir Radio Svoboda. Og fór að tvíta hluti eins og „ein flug­vél er ekki nóg til að refsa Rúss­landi,“ „þið ættuð að sprengja rúss­neskar borgir“. Hlutir eins og þetta.

Alger hat­urs­orð­ræða. Og nettrölla­stöðv­arnar í Rúss­landi gripu það á lofti og básún­uðu út, „Sjáið hvað þessir banda­rísku glæpa­menn eru að segja, sjáið hvað þeir eru á móti Rúss­landi og hvað þeir hata allt sem er rúss­neskt, og þetta voru þús­undir kommenta á hverri mín­útu. Þetta kom á Tvitter. Fólk fór að senda mér tölvu­pósta og spyrja hvort þessi náungi væri virki­lega að vinna fyrir okkur.

Hvernig brugð­ust þið við þessu?

„Ég ákvað að svara hverjum og einum og bað einnig kollega okkar í Úkraínu að senda út yfir­lýs­ingu að þetta er ekki við­horf okkar og þetta er ekki sá boð­skapur sem við sendum út. Við sendum út yfir­lýs­ingu um að þessi mann­eskja væri ekki að vinna fyrir Radio Free Europe. En ég sá hvernig fólk brást við. Og auð­vitað voru til­finn­ingar í spil­inu. Auðvitað var þetta hörmu­legt slys. Og fólk vildi ekki athuga hvort þetta væri raun­veru­lega okkar frétta­maður eða ekki. Það fór bara að yfir­gefa okkur á Twitter. Og ég sá töl­urnar snar­lækka. Við misstum um 4000 þús­und rúss­neska fylgj­endur á nokkrum klukku­tímum. En um kvöldið ákvað ég að við værum búin að fá nóg af þessu og að við þyrftum ekki að útskýra og afsaka okkur. Ég sendi út yfir­lýs­ingu á Twitter. Þar sem ég sagði að Radio Liberty segir að nettröll sem nýta sér mann­legar hörm­ungar eru svo sann­ar­lega sið­laus. Eftir það snéri fólk aftur. Við misstum 4000 en við fengum 5000 í stað­inn. Svo þetta var ein reynsla okkar af nettröll­unum.“

Nú kemur RT, Russia Today og annar áróður frá rúss­neskum yfir­völdum.

„Þú talar núna út frá vest­rænum sjón­ar­hóli. Gagnvart vestr­inu er það Russia Today og Sputnik. Þessar stöðvar snerta okkur ekki því við sendum út í Rúss­landi. Þar er það ekki RT eða Sputnik heldur kerfið allt. Það er allt. Upp­lýs­inga­kerfið er gjör­sam­lega skakkt. Þú ert með Russia 24 fyrstu og aðra rás og RTV og allar hinar rík­is­stöðv­arnar. Það var ein mjög góð stöð í Tomsk, TV2, en henni var einnig bannað að senda út.

En eruð þið í sam­starfi við ein­hverjar stöðvar í Rúss­landi?

„Nei það er eng­inn sem myndi end­ur­varpa okkar efni lengur í Rúss­landi. Við vinnum í sam­starfi varð­andi end­ur­birt­ingu á efni og linkum. Við styðjum einnig og veitum upp­lýs­ingar um menn­ing­ar­at­burði eins og nýlega heim­ilda­mynda­há­tíð­ina Artdocfest í Moskvu.“

Nú eru margar krísur í Rúss­landi finnið þið fyrir auknum við­brögðum ?

„Já, sér­stak­lega á Facebook. Því ef maður skoðar töl­fræð­ina og ber saman við jafn­vel frjáls­lyndar síður í Rúss­landi er svör­un­ar­hlut­fall okkar mjög hátt. Í síð­ustu viku höfðum voru yfir 134.000 þús­und hreyf­ingar, like, deil­ingar, athuga­semdir. Það er mjög hátt með 400 000 áskrif­endur. Fólk er virkt og áhuga­samt um að taka þátt í umræðum um það sem er að ger­ast. Það þegir ekki lengur.“

Hverju spáir þú um fram­tíð­ina?

„Það er vanda­málið við ein­ræð­is­ríki það er ekki hægt að spá í fram­tíð­ina. Og þess vegna eru þau svo hættu­leg.“

Á leið út úr aðal­stöðvum Radio Liberty í Prag kom ég við hjá Brian Whitmore. Hann er meðal ann­ars með vid­eo­blogg á ensku þar sem hann tekur dag­lega saman það helsta í Rúss­landi á hressi­legan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár