Topp 10 – Atburðir á árinu 2016

Hvað mun ger­ast á 2016? Vandi er um slíkt að spá, nema það sem fyr­ir­séð er að muni ger­ast. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur, skoð­aði daga­tal árs­ins.

Nú er árið 2016 gengið í garð og völvur dag­blað­anna byrj­aðar að spá fyrir um atburði sem ómögu­legt er sjá fyrir, svo sem afdrif ýmissa stjórn­mála­manna og jafn­vel nátt­úru­ham­farir. Sumir atburðir munu þó óum­flýj­an­lega ger­ast á árinu, eða að minnsta kosti lík­lega ger­ast. Hér eru tíu af þeim helstu.

10. Hæsta íbúðarhúsnæði heims rís í Indlandi

Bygging íbúð­ar­t­urns­ins World One hófst í Mumbai árið 2011 og eru áætluð verk­lok á þessu ári. Þegar hafa 108 af 117 hæðum turns­ins verið reistar og þegar hann verður full­klár­aður mun hann vera 442 metrar á hæð, 17 metrum hærri en núver­andi hæsta íbúð­ar­bygg­ing heims sem stendur í New York. Turninn mun hýsa meira en 300 lúxus­í­búðir sem stíl­aðar eru inn á nýríka Indverja. Ódýrustu íbúð­irnar verða seldar á rúm­lega 250 millj­ónir króna. Í turn­inum verða m.a. sund­laugar, heilsu­rækt­ar­stöð og krikkett­völlur. Íbúð­irnar sjálfar eru svo hann­aðar af sjálfum Giorgio Armani.World One verður því lýsandi minn­is­merki um hinn mikla efna­hags­upp­gang sem verið hefur í Indlandi á sein­ustu árum. Ind­verjar munu þó ekki halda þessu meti lengi því að á Man­hattan er verið að reisa enn hærra íbúð­ar­hús­næði, Central Park Tower, sem verður full­klárað árið 2018 eða 2019.

9. Forval Demókrata og Repúblíkana

Fram­bjóð­endur hinna tveggja amer­ísku stjórn­málarisa hafa verið að gera sig gilda allt sein­asta ár. Fjöl­margir hafa boðið sig fram og sumir hætt við, aðrir gætu ennþá bæst við. Rásmarkið í þessu lang­hlaupi er þó 1. febr­úar árið 2016 þegar fyrsta for­valið verður haldið í Iowa-fylki að venju. Síðan fylgja hin fylkin hvert á fætur öðru út vorið og fram í júní og loks er sig­ur­veg­arar form­lega stað­festir á flokks­þing­unum í júlí. 1. mars er hinn svo­kall­aði ofur-þriðju­dagur þar sem fjöl­mörg ríki halda sín for­völ og þá gæti það ráð­ist hverjir verða fram­bjóð­endur. Hjá Demókrötum má búast við ein­vígi milli Hilllary Clinton og Bernie Sanders, en Clinton tap­aði eft­ir­minni­lega fyrir Barack Obama í jöfnu for­vali fyrir 8 árum síðan. Staðan er mun óljós­ari hjá Repúblík­önum, þar sem mun fleiri sækj­ast eftir til­nefn­ing­unni. Marco Rubio, Ted Cruz, Jeb Bush, Chris Christie og Donald Trump þykja lík­leg­astir eins og er.

8. Hið stóra Evrópumót smáþjóðanna

Evr­ópu­meist­ar­mót karla í knatt­spyrnu verður haldið 10. júní til 10. júlí í Frakk­landi. Þetta verður langstærsta EM sög­unnar með alls 24 liðum. Til sam­an­burðar má nefna að þegar mótið var haldið í fyrsta skiptið árið 1960, einmitt í Frakk­landi, þá voru ein­ungis fjögur lið sem kepptu og á ein­ungis sex dögum. Það sem hefur vakið mesta athygli við EM 2016 er sá fjöldi smá­þjóða sem tryggði sér þát­töku­rétt. Fimm þjóðir (Norður-Írar, Wales-verjar, Slóvakar, Albanir og auð­vitað Íslend­ingar) eru að spila á Evr­ópu­móti í fyrsta sinn. Á meðan sitja fyrrum Evr­ópu­meist­ar­arnir Hol­lend­ingar, Danir og Grikkir heima. Í ljósi hryðju­verka­árásanna í Frakk­landi 2015, þar sem eitt skot­markið var knatt­spyrnu­völlur, má búast við stór­auk­inni örygg­is­gæslu í kringum mótið. Vænta má þó að fram­kvæmd móts­ins verði hin glæsi­leg­asta.

7. Kínverjar byggja lengstu neðansjávargöng heims

Kín­verska rík­is­stjórnin áætlar að hefja bygg­ingu neð­an­sjáv­ar­gangna í Bohai-sundi á þessu ári. Göngin munu liggja milli borg­anna Yantai og Dalian í norð­ur­hluta lands­ins, ekki langt frá Kóreu­skaga og munu þau leysa af hólmi ferju sem tekur um átta klukku­stundir að fara á milli stað­anna. Land­leiðin milli borg­anna er um 1400 kíló­metrar. Göngin sjálf munu verða um 123 kíló­metra löng og bygg­ing þeirra mun senni­lega taka ára­tug. Til sam­an­burðar má nefna að Erma­sunds­göngin, núver­andi lengstu neð­an­sjáv­ar­göng heims, eru um 50 kíló­metra löng og Hval­fjarð­ar­göngin eru tæpir 6 kíló­metrar. Kostn­að­ur­inn við göngin er áætl­aður rúm­lega 4000 millj­arðar. Fólk mun þó ekki geta keyrt sjálft í gegnum Bohai-sunds­göngin heldur verða þau tengd við lest­ar­kerfi lands­ins og verða bílar keyrðir í gegnum þau á vögnum.

6. Ár Shakespeare

Þann 23. apríl verða liðin 400 ár síðan William Shakespe­are, fræg­asta skáld sög­unnar, lést. Honum til heið­urs verða fjöl­margir við­burðir haldnir í 140 löndum. Stærstu við­burð­irnir verða haldnir í Lundúnum þar sem King´s College háskól­inn hefur yfir­um­sjón með afmæl­inu. Einnig verður sér­stök við­höfn í Strat­ford-upon-Avon, heimabæ skálds­ins þar sem leik­hús hans stendur. Meðal við­burða má nefna leik­hús­upp­færslur, útvarps­leik­rit, sögu­sýn­ingar, kvik­myndir, heim­ild­ar­myndir, þætti, fyr­ir­lestra, dans­sýn­ingar, tón­leika, ráð­stefnur og margt fleira sem auð­vitað er allt byggt á verkum meist­ar­ans. Sería af verkum hans verður svo gefin út í nútíma­út­gáfum þar sem margir af þekkt­ustu núlif­andi rit­höf­undum heims skrifa sög­urnar á sinn hátt. Má þar nefna Margaret Atwood, Anne Tyler og Jo Nesbö. Afmælið og við­burð­irnir verða not­aðir til þess að vekja vit­und á mennt­un­ar­skorti og ólæsi víða um heim.

5. Rússar hefja hótelrekstur í geimnum

Á sjötta og sjö­unda ára­tug sein­ustu aldar voru Sov­ét­menn fremstir allra í könnun geims­ins. Þeir sendu fyrstu geim­flaug­ina á loft (Spútnik), fyrsta dýrið (tíkin Laika), fyrsta mann­inn (Yuri Gagarin) og lentu geim­flaug á Venusi (Venera 4). Síðan þá hafa Sov­ét­menn og seinna Rússar dreg­ist veru­lega aftur í geim­rann­sóknum. Árið 2010 ákváðu Rússar að hleypa lífi í geim­áætlun sína með auknu einka­fram­taki. Í ár mun rúss­neska fyr­ir­tækið Orbital Technologies senda á spor­baug hótel í geimnum sem byggt er á hinum þekktu Soyuz geim­flaugum. Hótelið getur tekið við sjö gestum í senn og fimm daga dvöl mun kosta um 130 millj­ónir króna. Langstærsti hluti verðs­ins er ferða­lagið til og frá flaug­inni. Dvölin á hót­el­inu verður þó langt því frá þægi­leg. Gestir þurfa að ljúka þriggja mán­aða þjálfun áður en þeir halda á stað og hót­elið sjálft verður þröngt og lítið um lúxus. Það verður þó a.m.k. hægt að kom­ast á netið.

4. Ólympíuleikarnir í Ríó

Í lok sum­ars verða ólymp­íu­leik­arnir haldnir í fyrsta skiptið í Suður Ameríku, nánar til­tekið í brasil­ísku hafn­ar­borg­inni Rio de Janeiro. Eins og venjan er standa leik­arnir yfir í tæp­lega þrjár vikur og keppt verður í ótal greinum. Ýmis áhyggju­efni hafa fylgt þeirri ákvörðun ólymp­íu­nefnd­ar­innar að veita borg­inni leik­ana. Glæpa­tíðni í borg­inni er mjög há, innviðum er ábóta­vant, mengun er mikil, upp­bygg­ing íþrótta­mann­virkja hefur gengið hægar en von­ast var eftir og álit almenn­ings hefur verið nei­kvætt gagn­vart leik­unum. Brasil­ísk stjórn­völd hafa þó heitið því að allt verði orðið ásætt­an­legt þegar leik­arnir verða settir þann 5. ágúst. Stærsta spurn­ingin varð­andi leik­ana er þó hvort að rúss­neskir frjáls­í­þrótta­menn fái að taka þátt eftir að Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bandið setti þá í bann eftir mik­inn lyfjaskandal þar í landi. Hvað sem verður má þó fast­lega búast við að ólymp­íu­leik­arnir verði mikil veisla fyrir áhorf­endur.

3. Bandaríski herinn yfirgefur Afghanistan

Þann 7. októ­ber árið 2001 hófst inn­rás Banda­ríkja­manna og banda­manna þeirra inn í Afghanistan. Kveikjan að stríð­inu var sú að Talí­bana­stjórnin þar í landi hafði neitað að fram­selja Osama bin Laden eftir hryðju­verka­árás­inar þann 11. sept­em­ber. Auð­veld­lega gekk að steypa Talí­bana­stjórn­inni og koma á vin­veittri stjórn, leidda af for­set­anum Hamid Karzai. Erfiðara gekk að upp­ræta Talíbana og aðra hópa isla­mista í víð­femu og hálendu dreif­býli lands­ins. Karzai var því á sinni 13 ára valda­tíð iðu­lega upp­nefndur „borg­ar­stjór­inn í Kabúl”. Óljóst er hversu margir hafa fallið í stríð­inu en það eru a.m.k. 50 þús­und manns, þar á meðal bin Laden sjálfur. Obama Banda­ríkja­for­seti hóf að fækka í her­lið­inu árið 2012 og ein­ungis nokkur þús­und her­menn eru eftir. Það verða þó mikil tíma­mót þegar 15 ára her­setu lýkur í lok árs­ins.

2. Flóttamannavetur

Það hefur varla farið fram­hjá neinum að hund­ruðir þús­unda flótta­manna eru dreifðir víða um Evrópu um þessar mundir, flestir að flýja stríðs­á­tökin í Sýrlandi. Nú þegar skoll­inn er á vetur verður þessi vandi ennþá meira aðkallandi þar sem margt fólk á í engin hús að vernda og hætta á að fólk verði úti, sér­stak­lega í kuld­anum í Austur-Evrópu. Aðgerð­ar­leysi og deilur leið­toga Evrópu hafa hamlað því að hægt sé að leysa þennan vanda og nú stefnir í óefni. Flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu Þjóðanna hefur reynt að bregð­ast við þessum vanda með því að dreifa pökkum sem m.a. inni­halda svefn­poka, hlý föt, teppi og fleira en fregnir ber­ast af því að flótta­menn jafn­vel berj­ist inn­byrðis um nauð­synjar. Í auknum kulda hrakar heilsu fólks ört og hætta er á dauðs­föllum t.d. vegna lungna­bólgu. Ef líkin fara að hrann­ast upp er einnig hætta á far­sóttum. Leið­togar Evrópu hafa því ekki enda­lausan tíma til að ríf­ast, aðgerða er kraf­ist strax.

1. Forsetakosningar í Bandaríkjunum

Árið 2016 verður það sein­asta sem Barack Obama situr sem Banda­ríkja­for­seti. Þann 8. nóv­em­ber ganga Banda­ríkja­menn að kjör­borð­inu og velja arf­taka hans. Óljóst er hverjir verða fram­bjóð­endur tveggja flokk­anna stóru en eins og er þykir lík­legra að Demókrat­arnir haldi hvíta hús­inu heldur en að Repúblík­an­arnir vinni það, sér­stak­lega ef Hillary Clinton verður fram­bjóð­andi þeirra. Ljóst er þó að kosn­ing­arnar verða spenn­andi eins og und­an­farnar kosn­ingar hafa verið, tími hinna risa­vöxnu sigra er löngu lið­inn. Samhliða for­seta­kosn­ing­unum er kosið til beggja þing­deilda, þar sem Repúblík­anar hafa meiri­hluta. Þegar Obama var fyrst kos­inn árið 2008 fleytti hann mörgum Demókrata­þing­mönnum inn með sér en síðan hafa Repúblík­anar sótt í sig veðrið. Mun 2016 verða árið þar sem Banda­ríkja­menn kjósa konu sem for­seta í fyrsta sinn?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár