Píratar í borginni 2015

Árið 2015 var fyrsta heila ár Pírata í borg­ar­stjórn og því er vel við hæfi að líta yfir hvað hefur áunn­ist í okkar áherslu­at­riðum og hvað er eftir. Sumt hefur gengið hægar en ég bjóst við í upp­hafi en það er víst sagt að góðir hlutir ger­ist hægt. Borg­ar­full­trúar sem og aðrir hjá Reykja­vík­ur­borg standa líka frammi fyrir hag­ræð­ing­ar­kröfu í öllu borg­ar­kerf­inu en það er þó sann­fær­ing mín og hefur alltaf verið að áherslur Pírata séu mun frekar til þess fallnar að draga úr útgjöldum en auka við þau. Enda snú­ast þær í grunn­inn um að virkja upp­lýs­inga­tækn­ina og straum­línu­laga kerfið; spara fólki spor og hand­tök.

Upplýsingastefna og þjónustuveiting

Á árinu var skip­aður stýri­hópur á vegum stjórn­kerfis- og lýð­ræð­is­ráðs til að skrifa nýja upp­lýs­inga­stefnu fyrir Reykja­vík­ur­borg. Eldri stefnan var frá árinu 2000 og löngu var orðið tíma­bært að upp­færa hana í ljósi tækni­þró­unar og þeirrar ríku áherslu á gagn­sæi sem ein­kennir nútíma­stjórn­mál.

Ég fór með for­mennsku og með mér í hópnum voru borg­ar­full­trú­arnir Heiða Björg Hilm­is­dóttir og Kjartan Magn­ús­son. Við köll­uðum eftir umsögnum frá almenn­ingi um drög að stefn­unni og kláruðum hana í góðri sátt. Upp­lýs­inga­stefnan var svo sam­þykkt ein­róma eftir tvær umræður í borg­ar­stjórn. Í stefn­unni er gerð rík krafa um gagn­sæi, frum­kvæði í upp­lýs­inga­miðlun og not­enda­miðað aðgengi að upp­lýs­ingum, svo fátt eitt sé nefnt. Einnig er þar sér­stakur kafli um opin gögn, en annað sem gerð­ist á árinu var að fjár­mála­skrif­stofa Reykja­vík­ur­borgar skil­aði stjórn­kerfis- og lýð­ræð­is­ráði til­lögum að útfærslu á raf­rænni gagna­gátt fyrir borg­ina, í sam­ræmi við til­lögu sem borg­ar­stjórn hafði sam­þykkt ein­róma 2012. Þar var jafn­framt lagt til verk­lag og ábyrgð­ar­skipt­ing um opin gögn borg­ar­innar almennt. Það er von­andi að opið bók­hald kom­ist þannig til fram­kvæmda sem fyrst á næsta ári enda mikil þverpóli­tísk sam­staða farin að mynd­ast um það.

Í sumar skil­aði líka starfs­hópur um þjón­ustu­veit­ingu Reykja­vík­ur­borgar skýrslu sinni. Meðal helstu ábend­inga þessa starfs­hóps emb­ætt­is­manna skip­uðum af borg­ar­stjóra má nefna að heild­ar­stefnu­mótun um þjón­ustu­veit­ingu borg­ar­innar hefur aldrei farið fram, að þjón­usta borg­ar­innar er skipu­lögð þannig að íbúar þurfa að hafa inn­sýn í stjórn­skipu­lag Reykja­víkur til að vita hvert þeir eiga að leita eftir þjón­ustu, og að þjón­ustu­veit­ing mið­ast frekar við skipu­lag fags­viða en þarfir íbúa.

Úrbóta­tæki­færi eru talin fel­ast í að stór­efla raf­ræna þjón­ustu, í að nýta betur upp­lýs­inga- og sam­skipta­tækni og í að Reykja­vík­ur­borg í heild skil­greini sig í auknum mæli sem þjón­ustu­fyr­ir­tæki. Borg­ar­ráð sam­þykkti að senda skýrsl­una til umsagnar fagráða borg­ar­innar og mun hún að því ferli loknu fara fyrir stjórn­kerfis- og lýð­ræð­is­ráð til úrvinnslu. Beinast liggur við að fara þá strax í þá vinnu að móta heild­stæða þjón­ustu­stefnu fyrir Reykja­vík­ur­borg og myndi ég telja að sú vinna og þær stjórn­kerf­is­breyt­ingar sem hún mun vænt­an­lega hafa í för með sér verði með stærstu verk­efnum árs­ins 2016. Við þurfum að leita allra leiða til að vald­efla þjón­ustu­þega borg­ar­innar og gefa „starfs­fólki á plani“ svig­rúm til nýsköp­unar í sinni vinnu.

Betri Reykjavík / Betri hverfi

Betri Reykja­vík og Betri hverfi eru lýð­ræð­is­verk­efni sem stofn­sett voru á síð­asta kjör­tíma­bili í sam­vinnu við sjálfs­eign­ar­stofn­una Íbúa, sem þróar og rekur hug­bún­að­inn sem er þeim und­ir­liggj­andi. Betri Reykja­vík er hug­mynda­banki þar sem íbúar borg­ar­innar geta lagt fram, rök­rætt og kosið um hug­myndir sem síðan eru teknar til afgreiðslu í borg­ar­kerf­inu. Betri hverfi er árleg íbúa­kosn­ing þar sem íbúar hverfa borg­ar­innar leggja fram hug­myndir að fram­kvæmdum í sínu hverfi og for­gangs­raða þeim síðan í kosn­ingu.

Þessu tvennu er oft ruglað saman, kannski eðli­lega. Þetta er hins vegar tvennt ólíkt þó skylt sé. Það er orðið alveg tíma­bært að fara yfir reynsl­una af þessum verk­efnum og end­ur­skoða þau. Stofnun stjórn­sýslu­fræða og stjórn­mála var á árinu falið að vinna úttekt á þeim og sú úttekt ætti loks­ins að verða til­búin í kringum ára­mótin. Hún ætti að mynda ágætan grunn að end­ur­skoðun en svo eru einnig uppi fjöl­margar hug­myndir nú þegar um hvernig lyfta megi þessum verk­efnum upp á næsta stig. Þau hafa vakið athygli erlendis enda þykir til dæmis kosn­inga­þátt­takan í Betri hverfum sér­lega góð sam­kvæmt alþjóð­legri reynslu af svip­uðum verk­efnum. Betri hverfi hlaut til dæmis verð­launin Nordic Best Practice Challenge þetta árið í flokknum Almenn sam­skipti. Verð­launin voru veitt form­lega á Norrænu höf­uð­borg­ar­ráð­stefn­unni sem var haldin í Reykja­vík í maí­mán­uði.

Reykjavíkurflugvöllur

Sam­an­tekt af þessu tagi þætti mörgum án efa rýr í roð­inu ef ekki væri minnst á stöðu Reykja­vík­ur­flug­vallar, enda átaka­mál sem oft er nefnt í umræðum um beint lýð­ræði.

Í stefnu Pírata í Reykja­vík segir: „Nauð­syn­legt er að ákveða fram­tíð­ar­stað­setn­ingu flug­vall­ar­ins í eins víð­tækri sátt höf­uð­borg­ar­svæðis og lands­byggðar og kostur er á.“ Skýrsla svo­nefndrar Rögnu­nefndar, sem kom út á árinu, átti að vera ein­hvers konar vísir að sátt en ljóst er að nokkuð langt er þar í land. Reyndar eru þessi mál með nýjum inn­an­rík­is­ráð­herra, Ólöfu Nordal, í það miklum hnút að kalla mætti það aft­ur­för.

Það atriði sem þó hafði náðst ágæt sátt um löngu áður en Rögnu­nefndin skil­aði af sér, lokun NA/SV-flug­braut­ar­innar, er núna orðið að dóms­máli. Það er nokkuð sér­stætt að ráð­herra dóms­mála þurfi að stefna til að láta reyna á gerða samn­inga (sam­þykktum meðal ann­ars af hennar eigin flokks­fé­lögum í borg­inni) en þetta er nauð­syn­legt ekki síst í ljósi þess að þriðju aðilar á borð við þá sem hyggj­ast reisa byggð við Hlíð­ar­enda eiga margt undir því að staða mála sé þarna ljós. Reyndar er það almennt einn af horn­steinum rétt­ar­rík­is­ins að fólk og fyr­ir­tæki geti treyst því að þeim for­sendum fyrir rekstri og fram­kvæmdum sem gefnar eru af hálfu opin­berra aðila sé hægt að treysta og þess vegna er mjög mik­il­vægt að úr máli af þessu tagi sé skorið fyrir dómi.

Um fram­tíð­ina eftir að úr dóms­máli hefur verið leyst er erfitt að spá, nema rétt er að halda til haga N/S-braut­inni er tryggður sess í núver­andi aðal­skipu­lagi og samn­ingum til 2022. Þó má taka fram að ég hef per­sónu­lega einatt talað fyrir því að ein leið til að höggva á þennan hnút væri að leggja mis­mun­andi til­lögur að úrlausnum á grund­velli skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar auk ann­arra við­eig­andi gagna fyrir þjóð­ar­at­kvæði eða jafn­vel ein­hvers konar þjóð­fund­ar­fyr­ir­komu­lag - og mun gera það áfram. Það verður síðan áfram fyrst og fremst í höndum rík­is­stjórnar hvort slík leið verður farin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár