Forsetinn sem vildi verða njósnari

Vladímir Pútín er með valda­mestu mönnum heims, og hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu á árinu. En hver er þessi maður og hvernig varð hann for­seti Rúss­lands? Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér merki­lega sögu hans.

Vladímír Pútín, einn valda­mesti maður heims, dreymdi um að verða útsend­ari á vegum KGB þegar hann var tán­ingur. Eins og flestir vita þá tókst honum það og hann starf­aði fyrir sov­ésku leyni­þjón­ust­una í 17 ár. Þessi reynsla hefur markað allan hans stjórn­mála­feril en veru­leiki starf­sem­innar var þó allt annar en hann átti von á.

Heillaðist af spæjurum

Vladímir Pútín er fæddur þann 7. októ­ber árið 1952 í Lenín­grad (Sankti Pét­urs­borg) í Sov­ét­ríkj­unum. For­eldrar hans, Vladímir og María, unnu bæði í verk­smiðju og faðir hans starf­aði auk þess fyrir komm­ún­ista­flokk­inn í sveit­ar­fé­lag­inu. Vladímir eldri hafði áður verið í rauða hernum og barist í seinni heims­styrj­öld­inni. Hann særð­ist þó árið 1942 og þurfti að draga sig frá her­þjón­ustu. Lengi vel var hann í rúss­neska flot­anum en um stund vann hann fyrir NKVD, hina alræmdu leyni­þjón­ustu Stalíns, sem var und­an­fari KGB. Vladímir yngri átti nokkuð eðli­lega barn­æsku í Lenín­grad og þótti góður náms­maður.

Í fram­halds­skóla lærði hann m.a. þýsku sem átti eftir að nýt­ast honum vel seinna meir. Á ung­lings­ár­unum fór Pútín að dást að leyni­þjón­ust­unni og útsend­urum hennar. Hann sá sov­éskar njósn­a­kvik­myndir og þætti í sjón­varp­inu og heill­að­ist upp úr skónum. Einnig las hann njósn­a­sögur um afrek KGB manna um heim allan. Á sama tíma fór hann að hafa mik­inn áhuga á asískum sjálfs­varnar­í­þróttum. Hann fann það að þetta gæti orðið fram­tíðar starfs­vett­vangur hans og hóf að und­ir­búa sig fyrir það. Pútín seg­ist lítið hafa vitað um blóð­uga for­sögu sov­ésku leyni­þjón­ust­unnar sem stóð að fjöldamorðum Stalíns og ótal öðrum voða­verkum. „Hughrif mín af KGB voru byggð á róm­an­tískum sögum um njó­sn­ara.” Pútín gerð­ist svo frakkur að valsa inn í höf­uð­stöðvar KGB í Lenín­grad og þar bauð hanns sig fram til þjón­ustu en honum var sagt að KGB tæki aldrei við sjálf­boða­liðum. Einnig var honum sagt að besti und­ir­bún­ingur fyrir KGB feril væri laga­nám. Árið 1970 lá því leið hans í Lenín­grad háskóla þar sem hann nam lög­fræði. Þar gekk hann í Komm­ún­ista­flokk­inn og KGB fylgd­ist með fram­göngu hans alla skóla­göng­una. Á loka­ári sínu í lag­anami hafði leyni­þjón­ustan sam­band við hann og bauð honum stöðu. Eftir að hann útskrif­að­ist árið 1975 hófst fer­ill hans sem KGB-maður, fer­ill sem átti eftir að spanna tæp 17 ár.

Ungur njósnari

Pútín und­ir­gekkst þjálfun í skóla KGB í heima­borg sinni Lenín­grad. Þjálfunin þar tók eitt ár og hann vann í kjöl­farið á skrif­stofum KGB þar í borg. Kennarar og yfir­menn Pútíns höfðu tölu­verðar áhyggjur af honum á þessum tíma. Hann var álit­inn til­finn­inga­sljór og kald­lyndur af sál­fræð­ingum KGB. Enn­fremur töldu þeir að hann væri ekki hæfur að meta aðsteðj­andi hættu. Þetta virt­ist þó ekki há hinum unga Pútín mikið í upp­hafi fer­ils síns. Snemma á níunda ára­tugnum var hann sendur til Moskvu til frek­ari þjálf­unar.

Hann nam og vann hjá utan­rík­is­stofnun leyni­þjón­ust­unnar, stofnun sem sá um njósnir á erlendum borg­urum. Þetta þótti það nokkur heiður fyrir hinn unga Pútín því færri komust þar að en vildu. Hann hélt áfram sínu þýsku­námi og öðl­að­ist svarta beltið í júdó. Í opin­berum skjölum var hann titl­aður sem túlkur. En í raun var hann orð­inn alvöru njósn­ari sem fylgd­ist með erlendum ræð­is­mönnum og ferða­mönnum. Hann fékk meira að segja dul­nefni, Platov. Á þessum tíma hóf Pútín að byggja sína eigin fjöl­skyldu. Hann kynnt­ist eig­in­konu sinni til 30 ára Lyudmilu Shkrebneva í Lenín­grad og þau giftu sig árið 1983. Þau eiga saman tvær dætur, Maríu og Katju sem fædd­ust á kom­andi árum.

Vinur Stasi

Árið 1985 var Pútín sendur til Dresden í Austur-Þýska­landi. Hans aðal­hlut­verk þar var að finna fólk, bæði Þjóð­verja og útlend­inga, sem var vilj­ugt til að afla eða veita upp­lýs­ingar um Vest­ur­veldin. Helst senda það í njósn­a­ferðir til Banda­ríkj­anna eða ann­arra NATO ríkja. Mestu lík­urnar voru að fá til liðs við sig Þjóð­verja sem höfðu gilda ástæðu til að ferð­ast erlendis eins og t.d. blaða­menn, vís­inda­menn og pró­fess­ora. Flestir sem Pútín og KGB voru í sam­bandi við voru því nemar eða starfs­fólk við Tækni­skól­ann í Dresden. Eðli máls­ins sam­kvæmt er lítið vitað um ein­staka mál sem Pútín vann að á ferli sínum.

Það er þó vitað að hann vann tölu­vert við að afla upp­lýs­inga um ýmis tækni­mál, þar á meðal „þráð­laus sam­skipti”. Líklega hefur þessi vinna að ein­hverju leyti verið unnin í sam­starfi við fyr­ir­tækið Robotron, helsta tölvu og örflögu­fram­leið­anda Austur-Evrópu, sem stað­sett var í Dresden. KGB unnu náið með austur-þýsku leyni­þjón­ust­unni Stasi, sem kall­aðir voru “vin­irnir”. Höf­uð­stöðvar þess­ara tveggja syst­ur­sam­taka í Dresden stóðu í sömu götu, Ang­elikastrasse, and­spænis hvor annarri. Austur-Þýska­land var á þessum tíma þekkt fyrir að vera eitt tor­tryggn­asta ríki heims.

Mörg hund­ruð þús­und íbúar lands­ins máttu þola hler­anir, yfir­heyrslur og aðrar njósnir á einka­lífi þess. Þetta kerfi kost­aði gríð­ar­legan mann­skap og vinnu sem að lang­mestu leyti skil­aði engu. Í sam­starfi sínu við Stasi sá Pútín að mestu leyti um að safna blaða­úr­klippum og skrifa skýrslur til að senda til Moskvu. Þetta var leið­in­leg og gagns­laus vinna en hann öðl­að­ist þó vin­semd og virð­ingu kollega sinna í Stasi. Pútín átti upp­haf­lega ekki að vera í Dresden nema örfá ár en yfir­mönnum hans í Moskvu þótti hann standa sig það vel að dvöl hans þar var fram­lengd í tvígang. Störf hans þar voru að mestu leyti eins­leit og hann fór sjaldn­ast úr landi. Hann lærði þó tölu­vert mikið um vestrið og fór í fyrsta sinn að líta gagn­rýnum augum á stjórn­ar­far Sov­ét­ríkj­anna.

Nýr vettvangur og ný ímynd

Þegar múr­inn féll og komm­ún­ism­inn í Austur-Þýska­landi hrundi var Vladímir Pútín kall­aður heim til Sov­ét­ríkj­anna og sendur til heima­borgar sinnar Lenín­grad. Hann hóf störf við Lenín­grad háskól­ann, sinn gamla skóla, opin­ber­lega sem aðstoð­ar­maður rekt­ors. Í raun vann hann áfram fyrir KGB og hans hlut­verk var að fylgj­ast með nemum skól­ans. Á þeim 18 mán­uðum sem hann vann við Lenín­grad háskóla fór hann að finna fyrir ákveð­inni stöðnun. Hann var fastur í starfi sem honum þótti hvorki áhuga­vert né spenn­andi. Þetta var ekk­ert í lík­ingu við þær njósn­a­myndir sem hann hafði alist upp við sem ung­lingur.

Honum gekk einnig illa að vinna sig upp met­orða­stig­ann í leyni­þjón­ust­unni. Hann var ennþá aðeins und­ir­ofursti (lieu­ten­ant colonel). Sjálfur segir hann að það hafi hamlað honum að hann vildi ekki flytja til Moskvu. „Ég á tvö lítil börn og aldna for­eldra. Þau eru komin yfir átt­rætt og við búum öll saman. Þau lifðu af her­kví í stríð­inu. Hvernig gat ég tekið þau frá fæð­ing­ar­stað sínum? Ég gat ekki yfir­gefið þau.” Hann viðr­aði nokkrum sinnum þá hug­mynd að hætta í leyni­þjón­ust­unni en því var illa tekið af yfir­mönnum hans. En þegar upp­lausn komm­ún­ism­ans í Evrópu barst til Sov­ét­ríkj­anna gafst honum tæki­færi á að hætta.

Í ágúst árið 1991 reyndu bæði her­inn og KGB að hrifsa völdin af Mikhail Gorbachev aðal­rit­ara. Pútín tók þá afger­andi afstöðu með stjórn­inni og sagði sig úr KGB. Á þessum tíma­punkti hafði hann alger­lega misst trúnna á komm­ún­ism­anum (ef hann þá hafði hana nokkurn tím­ann) og Sov­ét­ríkj­unum. Engu að síður voru þetta þung skref fyrir hann. 17 ár eru langur tími og hann var orð­inn inn­gró­inn inn í kerfið. Þegar að komm­ún­ism­inn loks féll og Sov­ét­ríkin lið­uð­ust í sundur fann Vladímir Pútín sig í nýju hlut­verki, þ.e. hlut­verki stjórn­mála­manns­ins. Fyrst í sveit­ar­stjórn­ar­málum í Lenín­grad en síðar í lands­mál­unum. Þar gekk honum ólíkt betur að klífa met­orða­stig­ann.

Hann hafði þó ekki skilið alfarið við leyni­þjón­ust­una. Boris Yeltsin, fyrsti for­seti Rúss­lands, hafði trú á Pútín og fól honum ýmis emb­ætti á tíunda ára­tugnum. Árið 1998 var hann settur yfir FSB, hinni nýju leyni­þjón­ustu lands­ins. Þeirri stöðu gegndi hann í rúmt ár eða allt þar til að hann var útnefndur for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands í ágúst 1999. Síðan þá hefur hann verið nán­ast ein­valdur.

Það er ekki bara á göngu­lagi Vladím­irs Pútín að sjá að hann er djúpt mark­aður af langri veru í sov­ésku leyni­þjón­ust­unni. Hann hefur tvo þá helstu kosti sem góður leyni­þjón­ustu­maður þarf á að halda, þjóð­ern­is­kennd og mis­kunn­ar­leysi. Hann hefur meira að segja afsakað gjörðir leyni­þjón­ust­unnar í hreins­unum Stalíns á fjórða ára­tugnum. Persónan Vladímir Pútín snýst þó meira um ímynd­ina en veru­leik­ann og ljóst er að sjálfs­mynd hans hefur vaxið mikið á stjórn­mála­ferl­inum. Við fyrstu sýn mætti halda að hann hafi verið hinn sov­éski James Bond en raunin er sú að hann var hálf­gerð skrif­stofu­blók.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár