Rauð jól - sex andvökunætur

Það koma engin jól án blóðs, morða, mis­þyrm­inga og sið­blindu í fal­legum umbúðum undir fag­ur­lega skreyttu tré. Til að öðl­ast hinn sanna jóla­frið í hjarta þarf að vaka fram á rauða jóla­nótt, skjálf­andi með hálf­melta Waldorfsalatsælu í háls­inum yfir nýj­ustu tíð­indum úr svörtu ímynd­un­ar­afli okkar víð­lesn­ustu höf­unda, eða þá djarfra frum­herja á hinum stóra alþjóð­lega krimma­mark­aði.

Hlýtur þessu hlý­skeiði nor­rænna glæpa­sagna ekki bráðum að linna? Ég er kannski ekki að kalla eftir enda­lok­unum, meira að búast við þeim. Tvær blikur má svo sem sjá á lofti: Þreytu­merkin sem komin eru á afurðir sumra fram­línu­mann­anna og svo geng­is­fell­ingu glæpanna sem lýsir sér í sífellt sadísk­ari morðum, klikk­aðri raðmorð­ingjum og – að því virð­ist vera óhjá­kvæmi­legt – hroða­legri með­ferð á konum og börnum. Allt til að ná áhrifum sem áður feng­ust með því einu að drepa ein­hvern. Jafnvel með arseniki í bóka­her­berg­inu eins og hjá frú Christie-Mallowan. Hlýtur ekki að vera ein­hver enda­stöð, og er hún kannski í sjón­máli?

Arnaldur Ind­riða­son fellur ekki í síð­ari synda­flokk­inn, en því miður kemur hans nafn ansi hratt upp í leit að dæmum um þann fyrri. Fólk þarf að vera nokkuð ein­arðir aðdá­endur, sýn­ist mér, til að finn­ast afurðir síð­ustu ára vera mikið meira en skugga­myndir meist­ara­verk­anna. Alltaf langar mann samt í alvöru end­ur­komu.

Hún verður ekki núna. Þó er Þýska húsið svo sem alveg traust­lega smíðuð saga með áhuga­verðu sögu­sviði í miðju her­námi og teng­ingum við bæði njósnir og mann­bóta­stefnu þýsku nas­ist­anna. Með ástum og afbrýði í bland. Þetta er bara ekki alveg nógu krassandi eða spenn­andi. Ekki bætir úr skák að nýja rann­sókn­arparið, Flóvent og Thorson, er heldur lit­laust og hið áhuga­verða við þann síð­ar­nefnda (skápa­hommskan og vest­ur­ís­lenskan) klisju­legt (hið fyrra) og van­nýtt (það síð­ara). Eigum við í alvöru að trúa því að ekk­ert af sér­kennum mál­fars Winnipeg-íslend­inga hafi ratað inn í mál­far Thorsons? Sér Arnaldur í alvöru enga mögu­leika á að gleðja okkur með slíkum árekstr­ar­mögu­leikum?

Nýjasta bók Yrsu Sig­urð­ar­dóttur er síðan ágætt dæmi um síð­ari ógæfu­merkin í lífi norð­ur­slóða­krimmans. Hér seilist hún fjári langt í hroða­leg­heit­unum og lætur m.a. skipta einu

fórn­ar­lambi í helm­inga með hjálp jepp­lings í bíla­kjall­ara. Rót atburða Sogsins er hroða­legur glæpur í for­tíð­inni og and­styggi­leg yfir­hilm­ing valda­kerfis og feðra­veldis.

Þetta er hag­an­lega saman sett og býsna spenn­andi, allt að því and­vöku­kveikj­andi. Yrsu tekst líka hér að skrifa sig fram­hjá ann­mörkum sínum sem rit­höf­undar, t.d. með því að stilla sam­tölum í hóf, en hún hefur að mínu mati aldrei náð tökum á list díalógs­ins. Á móti gefur hún sér full-lausan taum­inn í að lýsa sál­ar­á­standi hinna heldur óáhuga­verðu aðal­per­sóna. Enginn stendur henni samt á sporði við að fanga og halda athygli manns, jafn­vel í gegnum þykka snjó­skafla af óþörfum lýs­ingum. Sogið er með því betra sem ég hef lesið af Yrsu­bókum. Einhver hefði samt átt að beita neit­un­ar­valdi á nafnið.

Það er svo­lítið eins og Ágúst Borgþór Sverr­is­son hafi ekki verið fylli­lega sann­færður um hvort Inn í myrkrið ætti að vera krimmi eða ekki. Reyndar voru bækur á gráa svæð­inu við jaðar glæpa­sagn­anna áber­andi í fyrra en Ágúst er frekar ein­mana þar núna í þess­ari ágæt­lega skrif­uðu sögu sem nær kannski ekki fyllstu áhrifum.

Söguefni Ágústs kallar að vissu leyti á þetta form. Vammlaus maður (eða svo gott sem) sog­ast að sam­fé­lag­inu á jaðr­inum, bæði vegna þeirra hlut­lægu ástæðna að ganga erinda smá­krimmans bróður síns og svo er hann rek­inn áfram af lífs­leiða og alkó­hólknú­inni sjálfseyð­ing­ar­hvöt. Fyrir mína parta hefði sögu­hetjan Óskars mátt sog­ast af meiri krafti og dýpra niður í und­ir­heimanna, ekki síst vegna þess hve glæpa­kóng­ur­inn Sigmar er mikil afburða­per­sóna í bók­inni. Inn í myrkrið lifnar á snerti­flötum Óskars og Sigmars, en hvunn­dags­bjástur Óskars er heldur dauft sögu­efni, sam­band hans við konu og dóttur ein­kenni­lega spennu­laust miðað við fram­ferði hans og svo hefði ég kosið jafn­ari stíg­andi, og að Ágúst og Óskar gengju myrkr­inu og höfð­ingja þess afdrátt­ar­lausar á hönd.

Líkt og Ágúst glímir Lilja Sig­urð­ar­dóttir við eina af þrautum ákveð­innar teg­undar glæpa­sagnaplotta: að láta venju­legt fólk sog­ast inn í glæpa­heim­inn án þess að les­and­inn spyrji hinnar aug­ljósu spurn­ingar: Hvernig er það, hefur þessi sögu­hetja aldrei lesið krimma?

Það er eina skýr­ingin á ýmsum af ákvörð­unum Sonju í Gildrunni. Bæði hvernig hún hefur fest í henni og furðu­legar áætl­anir um hvernig hún gæti sloppið án þess að hún og son­ur­inn ungi 

bíði tjón. Svona í ljósi þess að allir í fíkni­efna­heim­inum sem hafa hana á valdi sínu eru nákvæm­lega eins og svo­leiðis karakt­erar eru í öllum hinum bók­unum. Og Sonja virð­ist hafa haft nógan tíma til að lesa meðan hún var gift sínum bankster, því ekki virð­ist hún eiga nokkurn náms- eða starfs­feril að baki áður en hún verður skyndi­lega feik­i­út­sjón­ar­samur og ver­ald­ar­vanur dópsmygl­ari. Þar fyrir utan er Gildran bara þokka­lega spenn­andi og skartar lang­flottasta og óvæntasta plott-tvisti ver­tíð­ar­innar. Nefni­lega … djók. Þið verðið bara að lesa hana sjálf. Þið sjáið það þegar það kemur.

Dimma er önnur bókin sem ég les eftir Ragnar Jónasson Siglu­fjarð­ar­goða og klár­lega betri en hin fyrri. Afskap­lega dæmi­gerð en prýði­lega smíðuð flétta þar sem hinn klass­íski ein­fari rann­sakar mál sem aðrir hafa klúðrað. Hér er það rúss­neskur hæl­is­leit­andi sem aug­ljós­lega hefur ekki framið sjálfs­morð og hin roskna lög­reglu­kona Hulda leitar morð­ingj­ans. Og finnur hann. Það ætti svo sem ekk­ert að koma á óvart, og varla neinni spennu spillt þó því sé ljóstrað upp. Þó verður að segj­ast að sögu­lokin eru 

með þónokkuð öðru sniði en algeng­ast er. Sem er gott. Held ég.

Þrennt lýtir bók­ina nokkuð fyrir minn smekk. Upp­runa­saga lög­reglu­kon­unnar er ótta­lega snerti­punkta­laus við efni bók­ar­innar og frekar óáhuga­verð í því rýra formi sem hún fær hér. Sagan af aðdrag­anda glæps­ins er með öllu ótrú­verðug. Og upp­ljóstr­anir um skelfi­lega hluti í for­tíð Huldu hafa enga þá þýð­ingu sem rétt­lætir að hafa þá með. Sagan af Dimmu virkar á mig eins og höf­undi hafi ekki þótt bókin alveg nógu krassandi og ákveðið að bæta einu barn­a­níði við til að auka hroll­inn. Það er tískan í dag.

Krimmar eru for­múlu­bók­menntir. Gott ef sumir fremstu fram­leið­endur játa ekki kinn­roða­laust að skrifa fyrsta upp­kast í Excel. Bók­mennta­snobb­arar eins og ég eiga til að kalla eftir djarfari til­brigðum, meiri ólík­indum. En verða oftar en ekki fyrir von­brigðum þegar þeim verður að ósk sinni. 

Ég verð að játa að ég vissi ekki alveg hvað á mig stóð veðrið lengi vel við lestur nýj­ustu bókar Sól­veigar Páls­dóttur, sem ég hef reyndar ekk­ert lesið eftir áður. En þegar heyrn­ar­laust sænskt 

vöðva­búnt flytur inn á heim­ili lög­reglu­manns í bata eftir krabba­meins­með­ferð til að und­ir­strika kröfur systur sinnar um að löggan láti sönn­un­ar­gögn úr ára­tuga­gömlu saka­máli hverfa er les­and­inn nokkuð óviss um hvar hann er staddur. Gerist Flekk­laus í landi nor­ræna rökk­ur­krimmans eða kannski heima hjá Dario Fo? Jafnvel í stáss­stof­unni hjá Ionesco gamla?

Senni­lega væri bókin traust­ari ef Sólveig hefði tekið skýr­ari afstöðu og und­ir­byggt hina ólík­inda­legu atburð­ar­rás betur. Ekki síst það sem snýr að sálar- og fjöl­skyldu­lífi Guðgeirs lög­reglu­manns. Blá­þræð­irnir eru ansi mjóir og bláir. En samt. Þessi furðu­legi næstum-farsi er fjári skemmti­legur. Ætli Flekk­laus yrði ekki þrátt fyrir allt fyrir val­inu ef ég ætti að velja jólanæt­ur­lesn­ingu úr krimma­bunk­anum. Ekkert barn­a­níð, engum kastað fyrir hungruð tígris­dýr, ekk­ert man­sal.

Og þjóð sem borðar syk­ur­brún­aðar kart­öflur kippir sér auð­vitað ekk­ert upp við rök­leysur á jóla­nótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár