Vinsæll einræðisherra verður að þrætuepli stórveldanna

Bashar-al Assad, for­seti Sýrlands, er í mið­d­epli hörmu­legra stríðs­á­taka í Sýrlandi þessa dag­ana. Stór­veldi heims­ins, Banda­ríkin og Rússland þar helst, deila um hvort mögu­legt sé að vinna með honum. Saga Assads er óvenju­leg og marg­slungin.

Bashar al-Assad ætl­aði aldrei að verða ein­ræð­is­herra. Hann ætl­aði að verða augn­læknir og lifa rólegu lífi ásamt æsku­ást­inni sinni, hinni bresku Ösmu Akhras. Í dag lifir hann í hálf­gerðum felum, í blóð­ugri borg­ara­styrj­öld sem hann sjálfur skap­aði og bíður þess að Banda­ríkja­menn, Rússar og Evr­ópu­sam­bandið komi sér saman um fram­tíð hans.

Átti ekki að taka við

Árið 1963 var rík­is­stjórn Sýrlands steypt af hernum og hin sós­íal­íska og þjóð­ern­is­sinn­aða Ba´ath hreyf­ing komst til valda. Einn af for­kólf­unum í valdarán­inu var Hafez al-Assad, faðir Bashars. Hafez náði svo völdum eftir hjaðn­inga­víg innan hreyf­ing­ar­innar árið 1970 og var for­seti lands­ins og ein­ræð­is­herra þar til hann lést árið 2000. Eins og oft vill verða í ein­ræð­is­ríkjum þá var ákveðið að völdin skyldu hald­ast innan fjöl­skyld­unnar.

Upp­haf­lega átti Rifaat, yngri bróðir for­set­ans, að taka við emb­ætt­inu að honum látnum. En Rifaat var gerður útlægur frá Sýrlandi eftir mis­heppnað valda­rán árið 1983 þegar bróðir hans var þungt hald­inn eftir hjarta­á­fall. Eftir þetta var ljóst að Bassel, elsti sonur for­set­ans, myndi taka við. Bassel komst fljótt til met­orða innan hers­ins og var hann kynntur fyrir öllu því sem ein­ræð­is­herrar þurfa að kunna. Hann varð dáður innan Sýrlands og virki­leg eft­ir­vænt­ing ríkti eftir því að hann tæki við stjórn lands­ins. En árið 1994 lést Bassel í bíls­slysi aðeins 31 árs gam­all. Þá kall­aði for­set­inn Bashar, næst elsta son sinn, heim frá Bret­landi þar sem hann stund­aði nám í augn­lækn­ingum. Bashar sem var þremur árum yngri en Bassel var mun hóg­vær­ari og hafði verið mun minna í sviðs­ljós­inu en bróðir sinn. Þetta var staða sem Bashar átti ekki von á og hafði aldrei ætlað sér. Hann hafði fram af þessu litla sem enga her­þjálfun (var um skamman tíma læknir í hernum) og ekki sýnt stjórn­málum neinn áhuga. Þegar Hafez lést árið 2000 var boðað til kosn­inga og Bashar var kjör­inn með 99,7% atkvæða, en auð­vitað var eng­inn mót­fram­bjóð­andi.

Vestrænt nútímafólk

Eig­in­kona Bashars heitir Asma al-Assad (áður Akhras). Hún er 10 árum yngri en eig­in­maður sinn, fædd og upp­alin í Bret­landi af sýr­lenskum for­eldrum. Hún nam tölv­un­ar­fræði og franskar bók­menntir við King´s College í London og vann um stund hjá J.P. Morgan fjár­fest­ing­ar­bank­anum í New York og París. Þau kynnt­ust í London á náms­árum sínum en héldu sam­bandi sínu leyndu þar til í árs­byrjun 2001 þegar til­kynnt var að þau hefðu gifst í leyni­legri athöfn skömmu áður.

Þau eiga saman þrjú börn, syn­ina Hafez og Karim og dótt­ur­ina Zein, öll fædd á árunum 2001-2004. For­seta­hjónin þykja mjög vest­ræn í fasi og í klæða­burði. Þó þau séu vell­auðug (auður Assads er met­inn á milli 70 og 200 millj­arða króna) þá er klæðn­aður þeirra og útlit yfir­leitt lát­laust. Asma ber sjaldn­ast skart­gripi, úr eða annað glingur en þykir engu að síður þokka­full og smekk­leg. Þeim leið­ist þó ekki sviðs­ljósið og t.a.m. hafa þau sést borða hádeg­is­mat með Hollywood-par­inu Brad Pitt og Angelinu Jolie.

Fyrir stríðið var Asma mjög sýni­leg og virk í sýr­lensku sam­fé­lagi. Hún tók þátt í ýmsum góð­gerð­ar­málum og stofn­aði sam­tök til að virkja ungt fólk og sýna því fram á fram­tíð­ar­mögu­leika sína. Hún hefur einnig starfað að efl­ingu menn­ingar og sögu­vit­undar lands­ins. Asma fékk t.d. sér­fræð­inga frá Louvre safn­inu og fleiri til að skipu­leggja safna-og forn­leifa­starf lands­ins. Sýrland er ævafornt og stór­merki­legt menn­ing­ar­svæði þaðan sem m.a. veldi Fönik­íu­manna spratt fyrir rúmum 3000 árum síðan. Assad hjónin og meira að segja börnin voru alla tíð fram að stríði mjög sýni­leg. Fjöl­miðlar voru not­aðir til þess að sýna fram á hversu lát­laus, venju­leg og nútíma­leg fjöl­skyldan var. Í grein sem birt var í tísku­tíma­rit­inu Vogue rétt fyrir ófrið­inn segir: „Það er skreytt jóla­tré. Hin sjö ára Zein horfir á Tim Burton kvik­mynd­ina Alice in Wonderland á iMac tölvu for­set­ans. Sex ára bróðir hennar, Karim, býr til hákarl úr legókubbum og hinn níu ára Hafez pru­far nýju raf­magns­fiðl­una sína.

Tekur í gikkinn

Í des­em­ber árið 2010 hófust mót­mæli í Norður-Afr­íku­rík­inu Túnis. Þetta hratt af stað mót­mæla­öldu í flestum Arabaríkjum og sums staðar brut­ust út vopnuð átök. Þessi vit­und­ar­vakn­ing og mót­mæla­hrina var kölluð arab­íska vorið og barst hún til Sýrlands þann 15. mars árið 2011. Fjölmenn mót­mæli voru haldin í höf­uð­borg­inni Damaskus þar sem kraf­ist var kerfis- og lýð­ræð­isum­bóta, minni spill­ingar, lausn póli­tískra fanga o.fl. Ekki var þess kraf­ist að Assad for­seti eða Ba´ath flokk­ur­inn færi frá völdum. Í stað þess að koma til móts við mót­mæl­end­urnar beitti for­set­inn bæði lög­reglu og hernum af hörku gegn þeim og fljót­lega fóru líkin að hrann­ast upp.

Þessi við­brögð for­set­ans komu bæði mót­mæl­end­unum sjálfum og heims­byggð­inni mjög á óvart. Það tókst þó ekki að bæla niður mót­mælin heldur urðu þau ill­víg­ari og þá varð krafan sú að koma stjórn­inni frá með góðu eða illu. Í upp­hafi voru mót­mæl­endur nokkuð sam­heldin hópur sem víg­bjóst og hafð­ist að mestu til í borg­inni Homs norðan við Damaskus. Síðan rofn­aði sam­staðan og ýmsir víga­hópar börð­ust bæði við stjórn­ar­her­inn og hvorn annan. Í dag ríkir svo eig­in­leg borg­ara­styrj­öld í land­inu þar sem margir herir berj­ast sín á milli og erlend ríki hafa bland­ast inn í þá bar­daga, allir með sína eigin hags­muni að leið­ar­ljósi.

Meira en 300.000 manns hafa fallið í stríð­inu og næstum helm­ingur af þeim 22 millj­ónum sem búa í land­inu hafa þurft að flýja heim­ili sitt. Flækju­stigið í stríð­inu er það hátt að erfitt er að sjá fyrir end­ann á því. Helsta þrætu­epli erlendra stór­velda varð­andi stríðið í Sýrlandi er staða Assads. Vest­ur­veldin vilja hann frá en Rússar vilja hafa hann áfram. Sýrland hefur allt frá tímum Sov­ét­ríkj­anna verið eitt helsta vina­ríki Kreml­verja í Mið­aust­ur­löndum og Assad fjöl­skyldan hefur reynst þeim vel.

Rússar komu inn í stríðið undir því yfir­skini að þeir myndu herja á hina skelfi­legu hreyf­ingu íslamska ríkið í aust­ur­hluta lands­ins en í raun varpa þeir sprengjum á alla þá sem ógna Assad að ein­hverju ráði. Staða Vest­ur­veld­anna er flókn­ari því þó að þeir vilji for­set­ann burt þá er hann sann­ar­lega skárri kostur en íslamska ríkið. Ekki má gleyma því að í upp­hafi for­seta­tíðar hans höfðu Vest­ur­veldin nokkra trú á honum sem leið­toga og að hann myndi koma á umbótum innan Sýrlands. Hann virt­ist ná að sam­eina landið og hélt t.a.m. vernd­ar­skildi yfir kristnum Sýr­lend­ingum. Í Bret­landi kom til greina að slá hann til ridd­ara. Það er hins vegar utan­rík­is­stefna hans sem kemur illa við Vest­ur­veldin, þá helst banda­lag hans við Rússland og Íran og svo mikil and­staða við Ísra­els­stjórn. Assad hefur jafn­framt verið einn dygg­asti stuðn­ings­maður bæði Hezbollah hreyf­ing­ar­innar í Líbanon og Hamas í Palest­ínu.

Lítur út úr skelinni

Í októ­ber síð­ast­liðnum heim­sótti Assad vin sinn Vladimír Pútín í Rúss­landi í fyr­ir­vara­lausri en jafn­framt opin­berri heim­sókn. Þetta var í fyrsta skipti sem hann fer út fyrir landa­mæri Sýrlands síðan stríðið hófst árið 2011. Þetta gefur til kynna að sjálfs­traust for­set­ans sé að efl­ast og einnig sú trú hans að hann muni sitja áfram eftir stríðs­á­tökin. Það hefur þó ekki alltaf verið raunin. Á sein­ustu árum hefur oft liðið langur tími milli þess sem for­set­inn hefur sést í sýr­lenskum fjöl­miðlum. Asma sést ekki nærri eins mikið og fyrir stríðið en engu að síður heldur hún úti Instagram reikn­ingi þar sem reglu­lega birt­ast myndir af henni og þó nokkrar af hjón­unum saman. Þetta virð­ist gert til þess að halda á lofti þeirri til­finn­ingu að allt gangi sinn vana­gang. Börnunum hefur þó að mestu verið haldið frá fjöl­miðlum sein­ustu ár og í raun lítið vitað um þau. Fjöl­skyldan býr ekki lengur í for­seta­höll­inni sem stendur á hæð í útjaðri Damaskus-borgar heldur á ónefndum stað.

Þó að bar­dagar fari að mestu leyti fram langt frá höf­uð­borg­inni þá er for­seta­höllin engu að síður álit­legt skot­mark. Það virð­ist þó eins og stríðið hafi ekki tekið mikið á hann. Margir stjórn­mála­menn eld­ast hratt í emb­ætti, þá sér­stak­lega þegar ein­hverjar meiri­háttar ham­farir eða stríð ganga yfir. Frétta­mað­ur­inn Jeremy Bowen sem starfar fyrir BBC í mið­aust­ur­löndum tók við­tal við for­set­ann bæði fyrir stríðið og nú nýverið. Hann sagð­ist engan mun sjá á for­set­anum. Hann væri ennþá kurt­eis og hlýr, brosti mikið og kæmi vel fram. Hann er sjálfsör­uggur (a.m.k. gagn­vart fjöl­miðlum) og virð­ist alger­lega viss um sína frá­sögn af atburðum sein­ustu ára. Hann seg­ist ekki hafa gert neitt rangt sjálfur og að mót­mæl­end­urnir í arab­íska vor­inu hafi komið stríð­inu af stað með ofbeldi. Einnig við­ur­kennir hann ekki að sýr­lenski stjórn­ar­her­inn hafi beitt efna­vopnum eða tunnu­sprengjum eins og kunn­gjört hefur verið. Hann telur sig vera að berj­ast við hryðju­verka­menn, hvort sem það eru ISIS eða aðrir hópar, og að umheim­ur­inn verði að skilja það. Mest kennir hann þó Saudi Aröbum um stríðið. Að þeir fjár­magni hryðju­verka­menn í land­inu og að þeir boði wahabismann í land­inu, hina öfga­fullu súnní-reglu. Sjálfur seg­ist for­set­inn hand­viss um að hann haldi völdum þegar stríð­inu lýkur. Það er þó alveg ljóst að það er ekki í hans höndum. Það er alger­lega undir stór­veld­unum komið hvort hann situr eða verður lát­inn víkja og skiptir bar­áttan við íslamska ríkið þar auð­vitað höf­uð­máli.

Ef Vest­ur­veldin líta svo á að sú bar­átta skipti meira máli gætu þau unað honum að sitja áfram þó svo að litið væri á hann horn­auga. Hafa ber í huga að allri Assad fjöl­skyld­unni er mein­aður aðgangur að Evr­ópu­sam­bands­svæð­inu (að Ösmu und­an­skil­inni þar sem hún er breskur rík­is­borg­ari). Ef Rússar gefa eftir og Assad yrði fórnað yrði fjöl­skyld­unni ekki stætt á að búa áfram í land­inu. Vafa­laust fengju þau samt hæli annað hvort í Rúss­landi eða Íran. Eins og er virð­ist fyrri kost­ur­inn lík­legri en eins og áður hefur verið sagt er flækju­stigið svo hátt í stríð­inu að erfitt er að segja hver afdrif ein­ræð­is­herr­ans og fjöl­skyldu hans verða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár