Niðursetningur einu sinni

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók­ina Hrólfs sögu eftir Iðunni Steins­dóttur, sem gefin er út undir merkjum Sölku.

Fyrsta spurn­ingin sem vakn­aði hjá mér við lestur Hrólfs sögu Iðunnar Steins­dóttur var „hverjum er þessi bók ætluð?“ Að sumu leyti frá­leit spurn­ing, enda bækur skrif­aðar af þörf þess sem skrifar og í þeim skiln­ingi einkum ætl­aðar þeim sjálfum.

Það gæti sem best átt sér­lega vel við þessa bók, þar sem Iðunn sækir efni og inn­blástur í lífs­hlaup langafa síns, Hrólfs Hrólfs­sonar, (1861–1893), dap­ur­leg örlög hans og þátt hinnar harð­ýðg­is­legu með­ferðar á fátæku fólki í þeim. Meðferð sem tíðk­að­ist hér öldum saman og kyn­slóð Hrólfs var einna síð­ust til að upp­lifa í sinni tær­ustu grimmd­ar­mynd. Að skilja og þekkja for­feður sína og lífs­skil­yrði þeirra er okkur öllum skilj­an­leg þörf.

En samt. Þessi spurn­ing vakn­aði. Kannski af þeirri gal­gopa­legu stað­hæf­ingu á bók­ar­kápu að „Mörgum muni koma á óvart að lesa um nöt­ur­leg kjör almenn­ings fyrir rúmri öld“. Nú er eng­inn hörgull á les­efni, ævi­sögu­legs, skáld­skap­ar­kyns og fræð­legs, um nið­ur­setn­inga­kerfið og fólsku­lega beit­ingu þess. Það getur ekki verið að útgef­endur Hrólfs sögu haldi í alvör­unni að hér sé velt við óhögg­uðum steini. Þess vegna m.a. fékk ég þá sömu til­finn­ingu og ég fékk um árið þegar Ingi­björg Reyn­is­dóttir sló öll sölu­met með bók sinni um Gísla á Uppsölum: nefni­lega að þessi stutta og auð­lesna ævi­saga væri ekki síst ætluð ungum les­endum. Nokk­urs­konar „Young Adult“ þjóð­legur fróð­leikur.

Sem er í sjálfu sér göf­ugt við­fangs­efni, þó gott hefði verið að vita ef það var erindið. Og svo öllu rétt­lætis sé gætt: Hrólfs saga er umtals­vert betri bók en Gísli á Uppsölum.

Iðunn kafar ekki djúpt, hvorki í sál­ar­líf né sam­fé­lag. En það sem hún gerir, gerir hún vel. Hún lýsir dag­legu lífi, án þess að mála erf­iði eða óþæg­indi sér­lega sterkum litum. Meira að segja hungrið, þetta leið­ar­stef í lífi Hrólfs sam­kvæmt bók­inni, verður aldrei áþreif­an­legt þó mikið sé um það talað. Sjálfur er Hrólfur skýr per­sóna þó ef til vill geri vilji höf­undar til að hafa hann sem geð­þekkastan hann full-lit­lausan. Gaman samt hvað þeir félag­arnir hann og Tómas eru útsjón­ar­samir með að fara bak við hin illu og matsáru Bringu­hjón.

Hrólfur verður samt aldrei alveg nógu þrí­víður í mynd höf­und­ar­ins. Kannski hefði ein­fald­lega þurft meira pláss, fleiri orð. Bókin er stutt og sam­töl óvenju stór hluti text­ans. Til að setja okkur inn í aðstæður Hrólfs og hið fram­andi sam­fé­lag sem hann lifir í hefði þurft meiri lýs­ingar og leið­sögn. Mögulega er Iðunn líka of upp­tekin af að deila með okkur allskyns tíð­indum af því sem er frétt­næmt á sögu­tím­anum, leggja þau í munn föru­fólks og hins ónytj­ung­lega stjúp­föður Hrólfs. Veit ekki alveg hvaða gagn þessir molar gera, alla­vega ekki í þeim mæli sem þeir eru hér, á kostnað lýs­ingar á sögu­hetj­unni, þroska hans og mót­læti.

Samtölin gera samt sitt gagn enda Iðunn þjálfað leik­skáld. Minn­is­stæð­astur er fundur Hrólfs og eldri systur hennar eftir nokk­urra ára aðskilnað, þar sem Iðunni tekst í örfáum „replikkum“ að gefa stúlkunni per­sónu­ein­kenni – dóm­hörku og ein­sýni sprottið af illum lífs­kjörum. Með mat­inn sem helsta umræðu­efni að sjálf­sögðu.

Eins og allar bækur um lífs­kjör hinna lægst settu á Íslandi fyrri tiðar þá skilur Hrólfs saga les­and­ann eftir með sorg í hjarta og gremju yfir vondu kerfi og lít­il­sigldu fólki sem nýtir sér það til að vega sig upp á kostnað þeirra sem minna mega sín. Les­and­inn skilur vel þörf höf­undar fyrir að reisa hinum vand­aða og hæfi­leik­a­ríka for­föður sínum fal­legan minn­is­varða. Það gerir Iðunn, en lík­lega á kostnað þess að skrifa fyllri per­sónu­lýs­ingu og sleppa að fullu fram af sér skáld­skap­ar­beisl­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár