Áhuginn vildi svo margt

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók­ina Út á spáss­í­una, teikn­ingar og pár Jóhann­esar S. Kjarval. Umsjón með útgáfu: Kristín G. Guðna­dóttir og Æsa Sig­ur­jóns­dóttir. Crymogea gefur út.

„Jeg eitt­hvað í hug­anum hafði

Jeg held svona dálítið bjart

En eitt­hvað alltaf mig tafði

Því áhug­inn vildi svo margt“

Ég er ekki viss um að ég hafi „vitað“ að Kjarval var ófor­betr­an­legur krot­ari, en ein­hvern­vegin kom það ekk­ert á óvart. Það er eitt­hvað við sér­visk­una og ólík­indin sem rímar við það að geta ekk­ert bréfsnifsi séð í friði. Jóhannes hefur auð­vitað fyrir löngu öðl­ast þann sess í þjóð­arsál­ar­líf­inu að okkur finnst við vita allt um hann. Þessa stöðu öðl­að­ist hann þegar í lif­anda lífi. Þetta er samt blekk­ing. Og við vitum það.

Þess vegna er bók eins og Út á spáss­í­una ekki bara eigu­legur kjör­gripur af því tag­inu sem kenndur er við borð­plötur heldur gagn­leg áminn­ing um það sem við vitum og elskum að fá stað­fest og það sem við vitum að við vitum ekki.

Auðvitað er krotið hans Kjarvals mest bara krot en það virkar á mann af því það er aug­ljós­lega krotað af sömu höndum og mál­uðu mynd­irnar stór­kost­legu og teikn­uðu manna­mynd­irnar á barnum á Hótel Holti. Það bregður fyrir til­vitn­unum í þekkt stór­virki, mögu­lega er eitt­hvað af þessu atlögur að ein­hverju sem síðar fékk sitt loka­form. Línan er sú sama. Smá­at­riða­nautnin er þarna líka. Það er lengi hægt að fletta þess­ari bók, dást að og furða sig á.

Þessu til við­bótar eru síðan orðin. Stórum hluta mynd­anna fylgir texti. Kveðjur, ávörp, hug­leið­ingar, vísur. Oft í tengslum við til­efni skrif­anna, en stundum kannski alls ekki. Eins og kemur fram í rit­gerðum þeirra Æsu og Krist­ínar tók Kjarval rit­störf sín alvar­lega, sem verður greini­lega sem betur fer aldrei á kostnað ólík­inda og skemmti­leg­heita:

„Hund­arnir þakka ekki fyrir sig er sagt.

en hver veit nema þeir geri það

jú nú veit ég það – þeir þakka fyrir sig fyr­ir­fram“

Það er ekki síst þessir textar, og sam­spil þeirra við myndir og pár, sem gera bók­ina spenn­andi og áhuga­verða að fara í gegnum. Allavega fyrir þennan illa mynd­læsa en les­fíkna mann sem hér skrifar.

Ekki síst þegar þeir eiga ein­hvern sam­hljóm við þá helgi­mynd sem maður hefur af lista­mann­inum að störfum eins og þetta fal­lega brot:

„Þið skulið ekki vera óró­legir drengir jörðin er lengi það tekur jörð­ina langan tíma að skreyta“

Rit­stjórar bók­ar­innar hafa unnið gott verk við að lesa í skrift­ina og prenta text­ann læsi­legan með. Reyndar er svo­lítið skrítið að það er bara gert sums­staðar en látið óút­skýrt hvers vegna allt les­mál fær ekki þessa með­ferð. Vel má vera að það eigi sér aug­ljósar og ómerki­legar skýr­ingar, sumt má vel vera að sé ein­fald­lega ólæsi­legt, en gott hefði verið að hafa ástæð­urnar á hreinu.

Við erum alla­vega glöð með að hafa fengið þessa góðu hug­mynd útskrif­aða:

„hafa auð­vitað svan­inir alltaf verið frjáls­lyndir hvað beit snertir jafnt á engjum sem afrjetti og ekki skulerað í hverjir numdu land first – þeir eða fólkið. eins og málið liggur nú fyrir hafa heirst raddir um að komið geti til mála að leggja eitt eða fleiri útvarps­tæki inná afrétti bæði til þess, að skemta svön­unum og borga þeim inni­stæðu fyrir þeirra skemtun … þarmeð sýna þeim inní undra heim manns­and­ans – mætti kalla það víkka sjón­deild­ar­hring þeirra yfir­leitt – með þessu máli mætti kanski halda svana­hópum í stærri stíl frá engjum og hag­lendi bænda í sveitum yfir­leitt …“

Segja má að ítar­legri upp­lýs­ingar um ein­stakar myndir hefðu verið vel þegnar, en auð­vitað undir hæl­inn lagt hvað vitað er. Annað sem hefði verið vel þegið væru blað­síðu­töl, alla­vega í rit­gerð­irnar. Hugur minn er með nem­endum sem slys­ast til að nota rit­gerðir rit­stýr­anna sem heim­ildir og upp­götva þessa vöntun á ögur­stundu heim­ilda­skrár­gerð­ar­innar.

Þær Æsa og Kristín skrifa hvor sína rit­gerð í bók­ina. Framlag Æsu er öllu heim­speki­legra, gerir grein fyrir for­sendum bók­ar­innar og hug­myndum um mik­il­vægi efn­is­ins sem þar er sett fram. Ekki þótti mér þetta mjög inn­blásandi texti, tyrf­inn bún­ingur um sjálf­sagða hluti mest­an­part eins og mér hefur sýnst vera nokkuð algengur löstur á menn­ing­ar­fræði­legum textum.

Öllu meira fannst mér í grein Krist­ínar að sækja, en hún setur Kjar­val­skrot í sam­hengi við líf, list og sam­fé­lags­stöðu lista­manns­ins. Margt af því sem þar kemur fram leggur til dýr­mæta lyft­ingu fyrir við­kom­andi dæmi. Hálf-ónota­leg þótti mér samt (of)notkun hennar á orða­sam­band­inu „fólkið í land­inu“, ein­hver þjóð­ern­ispóli­tískur blær á því fyrir minn smekk. Eins finnst mér alveg óþarfi að skilja vel­gjörð­ar­menn Kjarvals á lands­byggð­inni eftir nafn­lausa sem „fólk úti á landi“ meðan nafn­kunnir borg­ar­búar koma fram sem þeir sjálfir. En þetta eru smá­at­riði. Mik­il­væg­ast er að fá jarð­sam­band fyrir þessa skrítnu og laus­beisl­uðu tján­ingu sem er meg­in­efni bók­ar­innar.

Út á spáss­í­una er hinn for­vitni­leg­asti gripur, fullur af furðum og verður örugg­lega gjöf­ull lengi, þeim sem grípa hana úr stáss­hill­unni. Verulega þarft verk að pota þessum spáss­íusmá­munum inn á mitt sviðið og varpa á þá þessu smekk­lega ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár