Nýjar heimsmyndir daglega

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Í dag tekur hann fyrir Vís­inda­bylt­ingar Kuhns, sem er hluti af Lær­dóms­ritum Hins íslenska bók­mennta­fé­lags. Kristján G.Arn­gríms­son þýðir, inn­gangur eftir Eyju Margréti Brynjars­dóttur.

Fáir íslenskir útgáfu­flokkar eru eins mik­il­vægir og Lær­dóms­rit Hins íslenska bók­mennta­fé­lags. Og engir eins lang­lífir að ég held. Fyrstu bæk­urnar komu út 1970 og enn koma þau út, hin fjöl­breyttu fræði­rit. Ekkert virð­ist þeim óvið­kom­andi og einu inn­töku­skil­yrðin virð­ast vera inni­halds­gæðin og hinar ströngu lengd­ar­kröfur sem brotið setur bók­unum. Brotið og hönn­unin öll á svo sinn þátt í að gera röð lær­dóms­rita að ein­hverri mestu útlit­sprýði hvers bóka­skáps. Við henni hefur ekki verið hróflað, fyrir utan að bæk­urnar eru nú harð­spjalda. Lengi lifi íhalds­semin þegar það sem haldið er í er svona frá­bært.

Og enn koma þau út. Að þessu sinni þrjú. Tvær bækur með minn­ingum og við­brögðum við martröðum seinni heims­styrj­aldar og það höf­uð­rit sem hér er undir. The Structure of Scientific Revolutions eftir banda­ríska vís­inda­sagn­fræð­ing­inn Thomas S. Kuhn, sem í þýð­ingu Krist­jáns G. Arn­gríms­sonar hefur fengið hið öllu snarpara nafn Vís­inda­bylt­ingar, með ágætum rök­stuðn­ingi rit­stjór­ans Eyju M. Brynjars­dóttur í bók­ar­lok. Eyja skrifar einnig inn­gang­inn og setur hug­myndir Kuhns í sam­hengi við hrær­ingar í hug­mynda­sög­unni á fyrri hluta tutt­ug­ustu aldar.

Það er gríð­ar­legur fengur að því að fá loks­ins þetta feik­i­á­hrifa­mikla höf­uð­rit vís­inda­heim­spek­innar á íslensku. Það er auð­vitað of seint til að við skynjum titr­ing­inn sem það olli á sjö­unda ára­tugnum. Þar situr fyrir miðju hug­myndin um „Paradigm Shift“ – „við­miða­skipti“ í þýð­ing­unni – hvernig nýjar vís­inda­hug­myndir ryðja þeim eldri úr vegi og eru ekki partur af sam­felldri þróun heldur grund­vall­ar­breyt­ing – bylt­ing – á heims­mynd, útgangs­punktum og vinnu­brögðum vís­inda­sam­fé­lags­ins.

Margt af því sem hér var sagt í fyrsta sinn eru núna sjálf­sagðir hlutir. Og þó. Sú mynd sem Kuhn dregur upp af starfi vís­inda­manna og það „Reality Check“ sem fólst í henni virð­ist stundum hafa farið fram­hjá ein­streng­ing­leg­ustu og sjálfs­á­nægð­ustu umræðu­for­kólfum sam­tím­ans. Það er gaman að vera minntur á að leitin að sann­leik­anum er ekki jafn ein­föld og skástu leit­argræjurnar okkar ekki jafn fín­n­stilltar og þröng­sýn­ustu ein­feldn­ing­arnir vilja vera láta. Gaman og hollt. Þau efa­semd­ar­fræ sem hún sáir um vél­gengan óskeik­ul­leika vís­ind­anna eru ákaf­lega heilsu­sam­leg að mínu viti, saman við þann yfir­læt­is­vell­ing sem stundum er boðið upp á.

Það er ekki erindi þess­arar umfjöll­unnar að munn­höggvast við Kuhn. Læt nægja að segja að kjarn­inn í því sem hann segir er ákaf­lega sann­fær­andi, enda rót­fastur í skiln­ingi á hvernig vís­inda­starf gengur fyrir sig í raun og veru. Um leið og hann reynir að tengja og rök­festa sýn sína á þessa starf­semi í klass­ískri eng­il­sax­neskri þekk­ing­ar­fræði með öllum sínum orð­heng­ils­hætti um skynjun og þess­háttar, sem og ein­hvers­konar frum­speki­legum vanga­veltum um heims­mynd og sann­leika þá missir hann marks og ég áhug­ann. Mér finnst líka að verð­mætin í hug­myndum hans standi ósködduð eftir þó honum mis­tak­ist þessi teng­ing við heim­speki­legan grund­völl. Og ein­hvern­vegin hef ég ekki áhyggjur af því að mynd hans af vís­ind­unum gefi ein­hverjum afsökun fyrir að aðhyll­ast ein­hvers­konar afstæð­is­hyggju. Ég fæ ekki betur séð en vís­indin rétt­læti heims­mynd sína sjálf, jafn­vel þótt kenn­ingar þeirra hafi áhrif á hvernig sú mynd er, en sé ekki endi­lega sífellt rétt­ari og nákvæm­ari mynd af raun­veru­leika sem gef­inn er fyr­ir­fram. Senni­lega finnst alvöru­gefnum heim­spek­ingum þetta full-gal­gopa­leg afstaða hjá mér, en það verður bara að hafa það.

Þýðing Krist­jáns er ágæt­lega læsi­leg. Það sem er tyrfið hér er örugg­lega snúið í frum­text­anum einnig. Það sem veldur mestum erf­ið­leikum er hvað hér er oft gengið út frá að les­and­inn hafi rúm­lega grunn­þekk­ingu á þeim fjöl­mörgu kenn­ingum sem Kuhn tekur sem dæmi.

Reyndar hefði verið mik­ill fengur að orða­lista þar sem mik­il­væg hug­tök úr text­anum væru sýnd á íslensku og frum­mál­inu. Það á bæði við um lyk­il­orð úr vís­inda­dæm­unum og þau hug­tök sem Kuhn smíðar sér eða gefur ný hlut­verk með kenn­ingu sinni. Slíkur listi myndi auð­velda áhuga­sömum les­enda mjög að finna ítar­efni og útskýr­ingar. Allt slíkt er einkar aðgengi­legt á okkar net­væddu tímum, en óþarfa hindrun að þurfa að giska á að hverju skal leitað.

Gott ef slíkur listi ætti ekki að vera fastur liður í Lær­dóms­ritum fram­tíð­ar­innar. Því það er aug­ljós­lega eng­inn bil­bugur á þess­ari frá­bæru útgáfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár