Topp 10 - Jólamyndir

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur er mik­ill áhuga­maður um kvik­myndir og tók saman lista yfir bestu jóla­mynd­irnar. Þær eru fjöl­breyttar og klass­ískar.

Það er ómissandi þáttur á mörgum heim­ilum að horfa á jóla­kvik­mynd. Margar eru orðnar sígildar og eru sýndar í sjón­varpi á hverjum ein­ustu jólum. Flestar eru gam­an­samar barna eða fjöl­skyldu­myndir þar sem ákveðin boð­skapur eða gildi eru áber­andi. Það er þó ekki algilt og í raun er eina skil­yrðið til þess að kvik­mynd geti talist jóla­mynd að hún ger­ist í kringum hátíð­arnar og að þær séu í vissum for­grunni. Hér eru nokkrar af þeim allra bestu.

10. Joyeux Noel – 2005

Franska kvik­myndin Joyeux Noel (Gleðileg jól) fjallar um einn merkasta atburð í sögu hern­aðar, jóla­vopna­hléið árið 1914 í fyrri heims­styrj­öld­inni. Þá tóku dát­arnir það upp á sitt eins­dæmi að hætta að berj­ast um stund og í stað þess gáfu þeir hvorum öðrum gjafir, sungu og spil­uðu knatt­spyrnu. Þetta gerð­ist víða á hinni löngu vest­ur­víg­línu í Frakk­landi og Belgíu. Her­for­ingj­arnir voru aftur á móti ekki ánægðir með upp­á­tækið. Her­mönnum voru mörgum hverjum refsað fyrir athæfið og komið var í veg fyrir að þetta end­ur­tæki sig ári seinna. Í mynd­inni eru sýnd þrjú mis­mun­andi sjón­ar­horn, þ.e. franskt, breskt og þýskt og því er hún á þremur tungu­málum. Myndin daðrar við það að vera helst til of væmin en boð­skap­ur­inn kemst þó til skila. Hún sýnir raun­veru­legan sam­ein­ing­ar­mátt jól­anna.

9. Edward Scissorhands – 1990

Hinn got­neski stíll kvik­mynda­gerð­ar­manns­ins Tim Burton minnir mann frekar á hrekkja­vök­una en jólin. Engu að síður gerði hann þrjár jóla­myndir í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins: The Night­mare Before Christmas, Batman Returns og Edward Scissorhands. Edward (Johnny Depp) er drengur sem búinn er til af öldnum upp­finn­inga­manni líkt og í sög­unni af Gosa. Upp­finn­inga­mað­ur­inn deyr þó áður en hann nær að klára að búa til dreng­inn og því hefur hann ein­ungis skæri í stað handa. Tim Burton og Johnny Depp hafa unnið saman að sjö kvik­myndum og er sam­band þeirra fyrir löngu orðið fyr­ir­sjá­an­legt og leiði­gjarnt. Edward Scissorhands var hins vegar fyrsta myndin sem þeir gerðu saman og stendur enn tím­ans tönn. Það sem stendur upp úr er feg­urð leik­mynd­ar­innar, þá sér­stak­lega ísskúlp­t­úr­arnir sem Edward býr til fyrir ást­ina sína Kim (Winona Ryder).

8. The Shop Around the Corner – 1940

It´s a Wonderful Life er þekktasta jóla­myndin sem stór­leik­ar­inn James Stewart lék í en The Shop Around the Corner er gim­steinn sem oft er litið fram hjá. Þetta er krútt­leg ást­ar­saga byggð á ung­versku leik­riti sem ger­ist að mestu leyti í lít­illi verslun í Búdapest. Tveimur starfs­mönnum í versl­un­inni, Alfred (Stewart)og Klöru (Maureen O´Sullavan), kemur illa saman en þau vita þó ekki að þau eru í raun penna­vinir. Sem penna­vinir verða þau svo ást­fangin þó að þau haldi að þau hafi aldrei hist. Myndin ger­ist í aðdrag­anda jól­anna og jóla­ösin í versl­un­inni er stór partur af henni. Myndin endar svo á aðfanga­degi þar sem Alfred og Klara fella loks hugi saman. Myndin var leik­stýrð af þýska stór­leik­stjór­anum Ernst Lubitsch sem taldi hana vera sína bestu mynd á ferl­inum.

7. Emil í Lönneberga – 1971

Kvik­mynd­irnar um Emil í Katt­holti eru ekki ein heild heldur sam­an­safn af vignettum rétt eins og bæk­urnar alkunnu sem Astrid Lindgren skrif­aði. Hver vignetta er saga af ein­hverju skammar­striki Emils. Hápunktur fyrstu kvik­mynd­ar­innar eru jólin og hvernig Emil eyði­leggur jóla­boð fjöl­skyld­unnar með því að bjóða öllum fátæk­ling­unum í sveit­inni upp á veislu­mat­inn sem bjóða átti frænd­fólki hans. Hvort þetta er eig­in­legt skammar­strik er þó umdeil­an­legt því hér kemur hinn sanni jóla­andi fram. Emil lýsir því yfir að „á jól­unum verður allt lif­andi að fá að borða“ að „mat­ur­inn eigi að vera þar sem hann gerir gagn“. Upp­taln­ingin og lýs­ingin á öllum jólamatnum er líka eft­ir­minni­leg og þá sér­stak­lega af þeim ótal teg­undum af pylsum sem étnar voru í Smá­lönd­unum í upp­hafi sein­ustu aldar. Myndin er því góð heim­ild um jóla­hald fyrr á tímum.

6. Gremlins – 1984

Gremlins skautar milli þess að vera gam­an­mynd, hryll­ings­mynd og ævin­týra­mynd sem jafn­framt ger­ist á jól­unum. Í mynd­inni fær ung­lings­pilt­ur­inn Billy Peltzer und­ar­lega veru í jóla­gjöf sem faðir hans keypti af gömlum Kínverja. Veran sem Kín­verj­inn kallar Mogwai en Peltzer feðgar nefna Gizmo á svo eftir að valda gríð­ar­legum usla þegar hún kemst í kynni við vatn. Myndin sló ræki­lega í gegn og Gizmo varð svo vin­sæll og þótti svo krútt­legur að ennþá eru seldir bangsar og önnur leik­föng í hans líki. Fram­halds­myndin Gremlins 2: The New Batch frá árinu 1990, sem ekki var jóla­mynd og hafði allt annað and­rúms­loft, þótti aftur á móti alger­lega mis­heppnuð. Serían er þó ekki dauð úr öllum æðum því á kom­andi árum munum við fá að sjá þriðja inn­leggið.

5. Die Hard – 1988

Ein ein­kenni­leg­asta jóla­mynd allra tíma hlýtur að vera Die Hard. Spennu­mynd sem fjallar um gísla­töku í háhýsi og löggu sem brýst inn í það til að bjarga eig­in­konu sinni. Hríð­skota­byssur, spreng­ingar, blóð og einnar-línu-frasar ein­kenna mynd­ina. Myndin gerði til að mynda setn­ing­una: „Yippie-ki-yay, motherfucker!“ heims­þekkta. Engu að síður er þetta jóla­mynd og ein af þeim allra bestu. Hún ger­ist öll á aðfanga­dag jóla, jóla­skraut sést alls staðar í mynd­inni og það sem kannski mestu máli skiptir þá er tón­listin að miklu leyti jólatón­list. Það er þó ekki alltaf hefð­bundin jólatón­list sem heyr­ist í mynd­inni því t.a.m. má heyra rappslagar­ann Christmas in Hollis með hljóm­sveit­inni Run D.M.C. Fram­halds­myndin Die Hard 2 sem kom út tveimur árum seinna ger­ist einmitt líka á jól­unum.

4. Fanny och Alexander – 1982

Eitt mesta meist­ara­verk sænska snill­ings­ins Ingmars Bergman er fjöl­skyldusagan Fanny og Alex­ander. Myndin sem séð er frá sjón­ar­horni systk­ina frá Uppsölum skömmu eftir alda­mótin 1900 hefur reyndar bæði verið gefin út sem bíó­mynd og sem þátta­röð. Myndin hefst í jóla­boði hjá Ekdahl fjöl­skyld­unni og það er eft­ir­minni­leg­asti hluti mynd­ar­innar. Fjöldi manns er sam­an­komin og allsnægtir, fjör og ham­ingja svífa yfir öllu, sér­stak­lega hjá börn­unum. Myndin tekur þó skarpa beygju þegar fjöl­skyldu­fað­ir­inn deyr og móð­irin gift­ist bisk­upi sem er bæði strangur og grimmur. Í mynd­inni reyndi Bergman að end­ur­gera þau jól sem hann mundi eftir sem barn í Uppsölum. Hún er því mjög per­sónu­legt verk og hans hinsta bíó­mynd í fullri lengd. Myndin hlaut fern ósk­arsverð­laun m.a. fyrir kvik­mynda­töku. En að henni stóð hinn mikli meist­ari Sven Nykvist.

3. The Miracle on 34th Street – 1947

Myndin er ein af þessum sígildu amer­ísku jóla­myndum sem sýndar eru á hverju ári í sjón­varpi þar ytra. Hún fjallar um jóla­svein­inn sem kemur til New York og fær vinnu hjá Macy´s stór­versl­un­inni. Hann er góð­hjart­aður og snjall en jafn­framt heið­ar­legur og þrjóskur. Sveinki lendir bæði inn á geð­deild og í rétt­ar­sal þar sem hann þarf að sýna fram á það að hann sé í raun og veru jóla­sveinn­inn þar sem fæstir nema þá börnin trúa honum. En eins og tit­ill­inn gefur til kynna þá fjallar myndin aðal­lega um trúnna á eitt­hvað yfir­nátt­úru­legt.Annað gam­al­kunn­ugt jóla­þema kemur einnig við sögu, þ.e. græðgin. Galdur mynd­ar­innar er þó aðal­lega fólg­inn í breska leik­ar­anum Edmund Gwenn sem leikur sveinka af stakri snilld. Svo vel reyndar að hann fékk ósk­arsverð­laun fyrir vikið fyrir leik í auka­hlut­verki.

2. Home Alone – 1990

Home Alone er ein af vin­sæl­ustu kvik­myndum allra tíma. Þetta er gam­an­söm fjöl­skyldu­mynd úr smiðju John Hughes sem gerði hinn 10 ára gamla Macauley Culkin að heims­frægri barna­stjörnu. Fyrri helm­ingur mynd­ar­innar minnir um margt dönsku barna­bók­ina Palli var einn í heim­inum, þ.e. ungur drengur óskar sér þess að fjöl­skylda hans hverfi og það ger­ist. Það hefur ýmsa kosti að vera aleinn og eft­ir­lits­laus heima hjá sér en það er aftur á móti ein­mana­legt að vera aleinn um jólin. Seinni helm­ingur mynd­ar­innar, þegar inn­brots­þjófar brjót­ast inn í húsið, er eins og svæsnasti Tomma og Jenna þáttur þar sem ofbeldið verður nán­ast yfir­gengi­legt en á kómískan hátt þó. Vinsæl fram­halds­mynd var gerð tveimur árum seinna með sömu leik­urum og nokkurn veg­inn sömu for­múl­unni.

1. Scrooged – 1988

Jólasaga var skrifuð af Charles Dickens árið 1843 og hefur verið marg­kvik­mynduð í gegnum tíð­ina. Í Scrooged er sagan þó sett í nútíma­bún­ing og gerð mun gam­an­sam­ari. Bill Murray leikur aðal­hlut­verkið, kald­rifj­aða sjón­varps­fram­leið­and­ann Frank Cross (byggður á Ebenezer Scrooge), sem þrælar starfs­fólki sínu út á jól­unum. En í sjón­varps­ver­inu er einmitt verið að setja upp Jólasögu Dickens. Rétt eins og í Jólasögu er hann heim­sóttur af draugi for­vera síns og svo þremur draugum sem sýna honum hina baga­legu for­tíð, nútíð og fram­tíð. Inn í þetta er svo tvinnuð ást­ar­saga hjá Cross og fyrr­ver­andi kær­ustu hans, sem leikin er af Karen Allen. Auðvitað endar þetta allt vel og allir syngja og dansa saman í lokin við Annie Lennox lagið Put a Little Love in Your Heart.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár