...tók handfylli sína af leir

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók Hrafn­hildar Schram, Nínu S., sem Crymogea gefur út.

Ég taldi mig vita sitt­hvað um Nínu Sæmund­sen áður en ég opn­aði bók Hrafn­hildar Schram. En það reynd­ist mis­skiln­ingur, byggður á þeirri rang­hug­mynd að allar íslenskar lista­konur sem náðu frama erlendis fyrr á árum hétu Nína og væru senni­lega sama konan. Svona eins og ég man aldrei hver af körlunum í mynd­list­inni hét Ásgrímur og hver Ásmundur.

Það var ákaf­lega ánægju­legt að fá þetta leið­rétt svona snagg­ara­lega. Og oft voru þau rekin upp, stóru augun, meðan ég frædd­ist um þetta maka­lausa lífs- og list­hlaup. Þrátt fyrir fátækt, upp­runa í list­snauðu landi og kyn­bundnar hindr­anir virð­ist frami Nínu bæði stöð­ugur og áfalla­laus lengst af, þó veik­indi og blank­heit tefji fyrir henni og berkl­arnir svipti hana unnust­anum.

Flettandi bók­ar­innar skilur frama Nínu vel. Fegurðin, hrein­leik­inn, í verkum hennar hittir mann beint í hjarta­stað, jafn­vel í tví­víðum svart­hvítum end­ur­gerðum þess­arar fal­legu bókar. Maður skilur reyndar líka hvernig hún helt­ist úr lest­inni, hvernig orð­sporið dagar uppi eftir því sem kröf­unni um frum­leika, bylt­ingar og öfga vex ásmegin. Og ímyndar sér að hið for­vitni­lega skeið þar sem lista­konan býr í Hollywood og brjóst­mynd­gerir stjörn­u­rnar hafi þar komið í bakið á henni, sem og hin land­læga karl­remba og klíku­for­pokun sem alltaf hefur átt griðland í íslenskum lista­manna­kreðsum.

Það væri gott að þurfa ekki að skrifa „ímyndar sér“. Því miður skilur ævi- og fer­ilsá­grip Hrafn­hildar les­and­ann eftir með hung­ur­verki. Ágætt svo langt sem það nær en það bara hlýtur að vera hægt að viða að efni í full­burða ævi­sögu sem myndi svo sann­ar­lega vera mik­ils­vert inn­legg í menn­ing­ar­sögu okkar. Og stór­merki­legt lífs­hlaup þar fyrir utan.

Lang­sam­lega safa­rík­ast er les­efnið þegar Hrafn­hildur fjallar um list Nínu. Setur hana í lista­sögu­sam­hengið, bæði eftir að hún er orðin full­bú­inn og sjálf­stæður lista­maður og meðan hún lýsir stöð­unni i danskri og evr­ópskri högg­mynda­list á mót­un­ar­árum Nínu. Og ekki síður þegar hún lýsir – orð­gerir – og greinir ein­stök lyk­il­verk. Þar er Hrafn­hildur á heima­velli, og vita­skuld eiga þeir hlutar að vera þunga­miðjan í svona bók. Það trufl­aði mig reyndar að myndir af umræddum verkum lenda alls ekki alltaf á sömu opnum og text­inn um þau, og ein­hver dæmi eru um að verk sem Hrafn­hildur staldrar við sjá­ist ekki í bók­inni. Sér­kenni­legt, miðað við það frá­gangsnostur sem ein­kennir bók­ina líkt og aðrar frá Crymogeu.

Einnig hefði verið fengur að ein­hvers­konar yfir­liti yfir þau verk Nínu sem vitað er um, og hvar þau er að finna. Þó ekki væri nema að geta þess við allar ljós­myndir bók­ar­innar hvort og þá hvar hægt sé að berja við­kom­andi mynd berum augum.

Texti Hrafn­hildar er almennt lipur og læsi­legur, en les­and­inn, alla­vega þessi, væri til í mun viða­meiri bók þar sem reynt væri af meiri ein­urð að geta sér til um drif­krafta Nínu, sam­skipti við sam­ferða­fólk sitt og gefa við­tökum verka hennar breið­ari skil. Ekki er gott að átta sig á hvers vegna það er ekki slík bók sem nú kemur út. Mögulega eru heim­ildir illíná­an­legar, hugs­an­lega óx slíkt verk­efni aðstand­endum í augum. Kannski er þetta fyrsta skref að full­gildri ævi­sögu. Það vona ég og legg hér með inn pöntun, meðan ég fletti Nínu S. og horf­ist í augu við hinar fögru myndir sem hún fann í hrá­efn­unum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár