Angela Merkel varar við nýju stríði á Balkanskaga

Straumur flótta­fólks til Evrópu frá stríðs­hrjáðum löndum, einkum Sýrlandi, hefur skapað flókna stöðu á Balkanskaga. Spor sög­unnar hræða.

Angela Merkel kansl­ari Þýska­lands hefur varað við nýju stríði á Balkanskaga ef Evrópa bregst ekki við flótta­manna­vand­anum frá Sýrlandi og fleiri stöðum. Landa­mæri hafa víða lok­ast og margir flótta­menn eru fastir í ríkjum sem þeir ætla sér ekki að dvelja í. Gremja þess­ara ríkja er mikil en er í raun hætta á nýrri Balkan-styrj­öld?

Nýtt stríð?

Angela Merkel hefur boðið flótta­menn frá Sýrlandi og víðar vel­komna í Þýska­landi en sú stefna hefur verið umdeild, m.a. í hennar eigin flokki, Kristi­legum Demókrötum. Helsti gagn­rýn­andi stefnu hennar er Horst Seehofer rík­is­stjóri Bæj­ara­lands þar sem flestir flótta­menn koma inn í landið en hann er einmitt flokks­bróðir Merkel. Hún stendur því í ströngu við að sann­færa fólk og lægja öldur. Aðvör­un­ar­orð hennar um nýja Balkan­styrj­öld féllu einmitt á einum slíkum fundi með eigin flokks­mönnum. „Ég vill ekki ala á ótta. En þetta ger­ist hraðar en maður heldur. Áflog koma verða til úr rifr­ildum og hlutir sem eng­inn vill verða til úr áflogum.“ Hún segir að það gæti einmitt gerst ef Þýska­land lokar landa­mærum sínum og hleypir ekki því fólki inn sem lofað hefur verið hæli. Flótta­fólkið yrði þá fast á Balkanskaga, svæði þar sem ótal þjóðir búa á og hefur verið ákaf­lega eld­fimt í gegnum tíð­ina. Ríkin á Balkanskaga hafa flest verið mjög treg að taka við flótta­fólki og eru illa í stakk búin til þess sér­stak­lega nú þegar vetur er í nánd. Mörg ríki hafa beitt lög­reglu og jafn­vel hernum gegn flótta­fólki og ljóst að lausn á vanda­mál­inu er aðkallandi. Zoran Milanovic, for­sæt­is­ráð­herra Króatíu full­yrðir að það brjót­ist ekki út stríð en varar Þjóð­verja þó við að loka landa­mærum sínum. Hann talar þó alls ekki fyrir hönd allra ríkja á skag­anum og hver þjóð spilar sinn leik. Skortur á sam­vinnu og sam­heldni er alger og farið er að glitta í gam­al­kunnar þjóð­ern­iserjur á svæð­inu.

Sigur Júgóslavismans

Frá ómuna­tíð hafa ótal þjóðir og þjóð­ar­brot búið á Balkanskaga en yfir­leitt innan landamæra erlendra stór­velda. Á 19. öld og í upp­hafi 20. ald­ar­innar óx þjóð­ar­vit­und og þjóð­ern­is­kennd á svæð­inu og athygli flestra stór­velda beind­ist að því. Aust­ur­rík­is­menn og Otttómanar höfðu ríkt þar um aldir en nú áttu þeir í miklu basli með að halda völdum því að þjóð­irnar risu upp og heimt­uðu sjálf­stjórn, eggj­aðar áfram af Rússum sem sótt­ust til áhrifa. Árið 1912 braust út mik­ill ófriður á svæð­inu. Serbar, Svart­fell­ingar, Grikkir, Búlgarar og Rúmenar herj­uðu á Ottómana sem misstu að lokum nán­ast öll völd á skag­anum. Árið 1914 sner­ust Serbar svo gegn Aust­ur­rík­is­mönnum og það varð kveikjan að fyrri heims­styrj­öld­inni. Bæði Aust­ur­ríki og Ottómana­veldið töp­uðu þeirri styrj­öld og veldi þeirra lið­uð­ust í sundur.

Balkönsk þjóð­ríki efld­ust aftur á móti við þetta og á vest­ur­hluta skag­ans var ákveðið að mynda sam­bands­ríki Suður-Slava, Júgóslavíu. Ríkið var afkvæmi sér­stakrar teg­undar af þjóð­ern­is­kennd sem varð til snemma á 19. öld og kall­að­ist júgósla­vismi. Í Júgóslavíu bjuggu ótal þjóðir sem voru þó að miklu leyti skildar, bæði að þjóð­ern­is­legum og tungu­mála­legum toga. Trú­ar­brögðin voru þó ólík, kaþ­ólikkar í norðri, múslimar mið­svæðis og rétt­trún­að­ar­menn í suðri. Vissu­lega bar á sjálf­stæð­istil­burðum ein­stakra þjóða innan lands­ins en árið 1918 tromp­aði júgósla­vism­inn aðrar þjóð­ern­is­kenndir og Júgósla­var litu á sig sem eina heild.

Kon­ungs­ríkið Júgóslavía féll í seinni heims­styrj­öld­inni og eftir hana varð til komm­ún­ista­ríki sem þó laut ekki ofur­valdi Sov­ét­ríkj­anna eins og flest ríki austan járn­tjalds. Júgóslavía hélt sig utan við kalda stríðið, sam­vinna við Vest­ur­lönd var tölu­verð og efna­hagur lands­ins betri flestra ann­arra ríkja Austur-Evrópu. Ástæðan fyrir þessu var Josip Broz Tito, stríðs­hetja úr seinni heims­styrj­öld­inni sem stjórn­aði rík­inu með járnaga allt til dauða­dags árið 1980. Hann var einnig mað­ur­inn sem hélt júgósla­vism­anum lif­andi. Hann var Króati sem barð­ist þó aðal­lega með Serbum í stríð­inu og naut því virð­ingar tveggja stærstu þjóð­anna innan lands­ins.

Júgóslavía bútuð niður

Þegar Tito féll frá byrj­aði Júgóslavía að lið­ast í sundur, hægt í byrjun er örugg­lega. Ástæðan var sú sama og olli ófriðnum í upp­hafi ald­ar­innar, þjóð­ern­is­kennd. Tito skildi eftir sig mikið tóma­rúm í júgóslav­neskum stjórn­málum, efna­hag­ur­inn versn­aði til muna og miklar deilur spruttu upp um sjálf­stjórn ein­stakra hér­aða. Ofan á þetta byrj­aði komm­ún­ism­inn í Evrópu að hrynja og aukin krafa skap­að­ist um lýð­ræði og opn­ara sam­fé­lag, sér­stak­lega í Slóveníu og Króatíu. Ekki var talið ásætt­an­legt að hinir fjöl­mennu Serbar yrðu herra­þjóð innan lands­ins en Serbar voru þeir sem vildu halda í hið gamla mið­stýrða kerfi. Þegar komm­ún­ism­inn loks féll í Evrópu gekk það að mestu leyti frið­sam­lega fyrir sig nema í Júgóslavíu.

Fyrstu stríðin hófust í Slóveníu og Króatíu árið 1991. Slóvenía, sem jafn­framt var rík­asta svæðið í Júgóslavíu, slapp best af öllum. Eftir nokk­urra daga skærur gafst stjórn­ar­her­inn upp og Slóvenía varð að sjálf­stæðu ríki. Ástæðan fyrir þessu var að miklu leyti sú að Slóvenía var þjóð­ern­is­lega eins­leitn­asta svæðið innan lands­ins. Makedón­íu­menn í suðri lýsti einnig yfir sjálf­stæði á þessum tíma. Ári seinna hófst stríðið í Bosníu-Herzegóvínu sem var þjóð­ern­is­lega bland­að­asta svæðið. Mikið hefur verið deilt um hversu margir fór­ust í Júgóslavíu­stríð­unum en flestir eru sam­mála um að það séu yfir 100.000 manns og lang­mesta mann­fallið varð í Bosn­í­u­stríð­inu sem stóð yfir allt til árs­ins 1995.

Það sem ein­kenndi Bosn­í­u­stríðið voru miklar þjóð­ern­is­hreins­anir sem stund­aðar voru af öllum þremur stríðs­að­il­unum, Bosn­íu­mönnum, Króötum og Serbum. Bosn­íu­menn voru fjöl­menn­astir á svæð­inu en Bosníu-Serbar og Bosníu-Króatar voru stórir minni­hlutar sem voru dyggi­lega studdir að utan. Ekki var mikið um opnar orr­ustur heldur varð mann­fallið að mestu leyti vegna fjöldamorða á almennum borg­urum. Ýmsar aðferðir voru not­aðar svo sem skipu­lagðar nauðg­anir, pynd­ingar, svelti, eigna­spjöll, menn­ing­ar­spjöll og nauða­flutn­ingar fólks. Millj­ónir manna lentu á ver­gangi og þjóð­ern­is­lands­lag Bosníu-Herzegóvínu breytt­ist veru­lega. Frið­ar­gæslu­lið Sam­ein­uðu Þjóðanna var sent á svæðið en brást alger­lega. Eftir nokkur sér­stak­lega mann­skæð fjöldamorð, þ.m.t. í Srebrenica þar sem um 8.000 karl­menn voru drepnir, hóf Atl­ants­hafs­banda­lagið loft­árásir á svæði Bosníu-Serba. Skömmu seinna var sam­inn friður á her­stöð í Dayton borg í Banda­ríkj­unum, þar sem Bosníu-Serbar fengu tölu­verða sjálf­stjórn. Eftir stríðið var komið upp sér­stökum stríðs­glæpa­dóm­stól í Haag og margir her­for­ingjar dregnir fyrir rétt fyrir glæpi gegn mann­kyni.

Sjálf­stæð­istil­burðir Kosovo-Albana hófust strax eftir að Tito lést en það var ekki fyrr en árið 1998 sem hið eig­in­lega Kosovostríð hófst. Skæru­liða­hreyf­ingin KLA var studd af Albönum sem útveg­uðu þeim vopn og Atl­ants­hafs­banda­lag­inu sem beitti loft­árásum.

Serbneski minni­hlut­inn í Kosovo var aftur á móti studdur af stjórn­ar­her Júgóslavíu sem beitti þjóð­ern­is­hreins­unum gegn Kosovo-Albönum en þó ekki af jafn mik­illi hörku og í Bosn­í­u­stríð­inu. Ári seinna var svo samið um það að Sam­ein­uðu Þjóð­irnar tækju við stjórn Kosovo hér­aðs. Átökin í Kosovo bár­ust einnig til Makedóníu sem hafði fram að þeim tíma að mestu leyti sloppið við átök. Endalok júgósla­vism­ans voru svo inn­sigluð árið 2006 þegar helsta banda­þjóð Serba, Svart­fell­ingar, sam­þykktu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu að slíta sam­bandi land­anna. Engar blóðsút­hell­ingar fylgdu því þó. Landið sem áður var Júgóslavía er í dag sjö sjálf­stæð ríki.

Skylda Evrópu

Þjóðum Balkanskaga og þá sér­stak­lega þjóðum fyrrum Júgóslavíu hefur farn­ast best þegar þjóð­ern­is­hyggja hefur verið í lág­marki. Innan aust­uríska keis­ara­dæm­is­ins og Ottómana­veld­is­ins lifði fólk af ólíkum þjóð­ernum og trú­ar­brögðum í sátt og sam­lindi á skag­anum. Hug­myndin um sam­einað ríki Suður-Slava gekk vel um margra ára­tuga skeið. Nú sækj­ast allar þjóðir Balkanskaga eftir því að lifa saman sem sjálf­stæðar þjóðir innan Evr­ópu­sam­bands­ins og margar eru nú þegar komnar þar inn. Þjóð­ern­is­kenndin á svæð­inu kraumar þó alltaf undir og lítið má bregða út af að allt fari í bál og brand. Saga svæð­is­ins er blóði drifin og því mik­il­vægt að Evrópa taki mið af því. Gömul sár eru fljót að rifna upp, jafn­vel frá tíma sem eng­inn man eftir.

Í Serbíu er meira að segja farið að tala um króat­íska ráða­menn sem Ustase, fasíska skæru­liða­hreyf­ingu sem barð­ist með nas­istum og stóð að mörgum fjöldamorðum á Serbum í seinni heim­styrj­öld­inni. Króatar hafa einnig sakað Serba um að senda flótta­menn ein­ungis til þeirra en ekki ann­arra nágranna­landa. Um tíma var landa­mær­unum lokað milli þess­ara gömlu fjand­þjóða. Hvort að virki­leg hætta sé á stríði milli þjóð­ríkja á Balkanskaga skal ósagt látið en tölu­verð hætta er hins vegar á því að sam­skipti ríkj­anna verði slæm, bæði inn­byrðis og við ríki Vestur-Evrópu. Ef Evr­ópu­hug­sjónin á að ganga upp verða þjóð­irnar að geta staðið saman á tímum sem þessum. Evr­ópu­sam­bandið hefur á sein­ustu 15 árum opnað arma sína fyrir Balkan­þjóð­unum. Það þýðir því ekki að skilja þær eftir með svarta pétur nú þegar reynir á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár