Þúsundir deyja árlega vegna ofkælingar

Stöðug bar­átta við fátækt er blá­kaldur hvers­dags­leik­inn fyrir tug­millj­ónir Rússa. Ómar Þor­geirs­son, sagn- og mark­aðs­fræð­ingur búsettur í Moskvu, fjallar um nöt­ur­legt hlut­skipti heim­il­is­lausra í Rúss­landi.

Yfir­stand­andi fjár­málakreppa hefur komið harka­lega niður á hinum almenna borg­ara í Rúss­landi. Sér­stak­lega hafa tekju­minni þjóð­fé­lags­hópar átt erfitt upp­dráttar, meðal ann­ars vegna hækk­andi verðs á helstu nauð­synja­vörum. Í leið­ara rúss­neska við­skipta­blaðs­ins Vedomosti í síð­ustu viku er umfjöll­un­ar­efnið einmitt hin aukna fátækt á meðal rúss­nesku þjóð­ar­innar. Í umfjöll­un­inni er stuðst við töl­fræði frá rúss­nesku hag­stof­unni, Rosstat, sem áætlar að 21.7 milljón Rússa hafi lifað undir fátækra­mörkum eftir fyrstu sex mán­uði árins 2015. Í sam­an­burði er nefnt að 18.9 milljón Rússa hafi lifað undir fyrr­greindum mörkum eftir fyrstu sex mán­uði árs­ins 2014.

Margt bendir þó til þess að staðan sé enn verri og að tölur rúss­nesku hag­stof­unnar end­ur­spegli því ekki raun­veru­lega stöðu mála í Rúss­landi. Töl­fræðin virð­ist þannig aðeins skrapa topp ísjakans og ekki ná yfir ört stækk­andi hóp þeirra allra verst settu - fólk­ins sem neyð­ist til að búa á göt­unni.

Heildarfjöldinn óljós

Helsta vís­bend­ingin um van­mat rúss­nesku hag­stof­unnar er sú stað­reynd að engin mark­tæk opin­ber töl­fræði er til yfir fjölda heim­il­is­lausra í Rúss­landi. Manntöl sem voru fram­kvæmd í Rúss­landi, árið 2002 ann­ars vegar og 2010 hins vegar, hafa sér­stak­lega verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að van­meta heild­ar­fjölda heim­il­is­lausra stór­lega. Í seinna mann­tal­inu voru aðeins rúm­lega 64 þús­und skráðir heim­il­is­lausir í Rúss­landi en heild­ar­fjöld­inn er yfir­leitt tal­inn ná yfir 1.5 milljón og allt upp í 5 millj­ónir manns.

Skýr­ingar á þessarri skekkju í taln­ingum á heild­ar­fjölda heim­il­is­lausra í Rúss­landi geta verið ýmsar. Hugtakið “heim­il­is­laus” getur til að mynda verið óljóst og því mik­il­vægt að átta sig á því hversu þröngt mis­mun­andi taln­ingar skil­greina það hverju sinni. Önnur lík­leg skýr­ing á skekkj­unni er sú stað­reynd að stór hluti heim­il­is­lausra í Rúss­landi er ekki með lög­legt dval­ar­leyfi í land­inu. Fólk getur þannig fljótt fallið á milli þylja í kerf­inu og orðið nán­ast ósýni­legt. Hvort sem er fyrir hinu opin­bera eða öðrum aðilum sem leggja mat á heild­ar­fjölda heim­il­is­lausra í Rúss­landi. Við­kom­andi aðilar ganga svo greini­lega mis­langt í við­leyt­ini við að fylla í eyð­urnar í áætl­unum sínum.

Heim­ildum ber þó saman um að Moskva sé með mestan fjölda heim­il­is­lausra í Rúss­landi og er fjöld­inn yfir­leitt tal­inn vera á bil­inu frá tugum þús­unda og upp í hund­rað þús­und. Uppruni hinna heim­il­is­lausu er marg­vís­legur og ástæður að baki því að fólkið endar á göt­unni eru ólíkar. Ætla má þó að margir hinna heim­il­is­lausu séu utan­að­kom­andi og hafi upp­haf­lega komið til Moskvu og ann­arra stærri borga í leita að auknum atvinnu­tæki­færum og betra lífi.

Moskva þá og nú

Fall Sov­ét­ríkj­anna og sú félags­lega -og efna­hags­lega kreppa sem fylgdi í kjöl­farið, næstu árin á eftir, koll­varp­aði lífi margra Rússa. Í Moskvu ríkti mik­ill glund­roði en ljós­myndir frá þessum umbrota­árum und­ir­strika margar hverjar hina miklu eymd sem þá var ríkj­andi í sam­fé­lag­inu. Í bók­inni Down and Out in Moscow má sjá sam­an­safn af myndum þýska ljós­mynd­ar­ans Miron Zownir frá heim­sókn hans til Moskvu árið 1995.

Í nýlegu við­tali við Dazed tíma­ritið ryfjar Zownir upp heim­sókn­ina til Moskvu og lýsir þar aðbún­aði heim­il­is­lausra í borg­inni. “Þetta fólk var að deyja úr hungri, sjúk­dómum eða ofþornun fyrir framan sam­borg­ara sína og eng­inn virt­ist gera neitt. Jafnvel dag­blöðin virt­ust ekki hafa áhuga á því sem var að ger­ast,” segir ljós­mynd­ar­inn og telur að mynd­irnar eigi jafn vel við í dag og fyrir tutt­ugu árum.

Nú til dags eru mat­ar­gjafir, fatn­aður og aðgengi að lækna­þjón­ustu reyndar, sem betur fer í auknum mæli, innan seil­ingar fyrir heim­il­is­lausa í Moskvu. Ólíkt við það sem tíðk­að­ist á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Baráttan við rúss­neska vet­ur­inn reyn­ist hinum heim­il­is­lausu þó ennþá jafn erfið og áður.

Skortur á langtíma úrræðum

Þúsundir heim­il­is­lausra deyja á ári hverju í Rúss­landi vegna ofkæl­ingar og vos­búðar.

Þrátt fyrir að fjöld­inn allur af hjálp­ar­sam­tökum, bæði á vegum hins opin­bera og ann­arra aðila, reyni eftir fremsta megni að veita heim­il­is­lausum aukna aðstoð yfir kaldasta tím­ann - þá er það ein­fald­lega ekki nóg. Samkvæmt heima­síð­unni homel­ess.ru dóu til að mynda 1.042 heim­il­is­lausir í Pét­urs­borg á fimm mán­aða tíma­bili frá nóv­em­ber 2012 til mars 2013.

Yfir heit­ari árs­tíð­irnar má segja að nálgun sumra hjálp­ar­sam­tak­anna breyt­ist að sumu leyti. Húsa­skjól, mat­ar­að­stoð og lækna­þjón­usta eru vit­an­lega í for­gangi hjá þeim hjálp­ar­sam­tökum sem sér­hæfa sig í aðstoð við heim­il­is­lausa í Rúss­landi. Síðasta sumar vakti þó mikla athygli sam­eig­in­legt fram­tak borg­ar­yf­ir­valda í Moskvu og nokk­urra hjálp­ar­sam­taka borg­ar­innar til aðstoðar heim­il­is­lausum. Fram­takið mið­aði að því að bjóða heim­il­is­lausum í bíó og klipp­ingu. “Fyrir flesta þykir ekk­ert merki­legt að fara í bíó eða að láta klippa sig. En fyrir fólk sem býr á göt­unni og á erfitt getur verið mikil upp­lyft­ing að fá aðgang að slíkri þjón­ustu. Heim­il­is­lausa fólkið þarf að finna fyrir því að það sé eins og aðrar mann­eskjur,” sagði Andrei Bessht­anko, yfir­maður deildar almanna­trygg­inga hjá Moskvu­borg, í við­tali um átakið.

Eftir því sem fólk er lengur heim­il­is­laust, því minni líkur eru á því að það nái að verða aftur virkt í sam­fé­lag­inu. Samkvæmt Eleonore Senlis, hjá SAMU-hjálp­ar­sam­tök­unum í Moskvu, skortir þó einmitt þessi lang­tíma úrræði fyrir heim­il­is­lausa í Rúss­landi til að snúa við blað­inu. Hjálp­ar­sam­tökin geti veitt skamm­tíma úrræði, s.s. mat, húsa­skjól og lækn­is­að­stoð, en hafi oft ekki bol­magn til þess að veita þá sál­fræði­hjálp og end­ur­hæf­ingu sem fólk þarf á að halda til að eiga aft­ur­kvæmt frá líf­inu á göt­unni. Það er því oft undir ein­stak­ling­unum sjálfum að taka málin í sínar eigin hendur.

Heimilislausi bloggarinn frá Jakútíu

Maður að nafni Zhenya Yakut hefur nú brot­ist fram á sjón­ar­sviðið í Rúss­landi með ansi sér­stökum hætti. Yakut varð frægur á sam­fé­lags­miðlum eins og svo margir, sem er ef til vill ekki í frá­sögur fær­andi - nema hvað að hann er heim­il­is­laus.

Hinn 43 ára Yakut kemur frá Jakútíu og hefur að eigin sögn verið heim­il­is­laus í Moskvu, meira eða minna und­an­farin fimm ár. Með mynd­böndum og myndum deilir Yakut reynslu sinni af líf­inu á göt­unni í Moskvu. Hann lýsir þar meðal ann­ars hvar sé auð­veld­ast að ná sér í ókeypis mat, hvar sé best að finna svefn­stað og aðstöðu til að þvo sér. Sjón er sögu rík­ari.

Yakut hefur á sex mán­uðum rakað inn um átta­tíu þús­und áskrif­endum á Youtube stöð­inni sinni. Þá notar hann einnig Instagram og VKontakte, sem er nokk­urs konar rúss­nesk útgáfa af Facebook, til að koma boð­skap sínum á fram­færi. Yakut fer ekki leynt með mark­mið sitt með blogg­inu, en það er auð­vitað að græða pen­inga til þess að koma undir sig fót­unum. Yakut til halds og trausts í upp­tökum á myndefn­inu er huldu­mað­ur­inn Andrei Voodoo, en hann sér um tækni­legu hlið mála.

Ekki eru allir sann­færðir um að Yakut sé sá sem hann seg­ist vera og setja meðal ann­ars út á að hann sé of þrifa­legur til fara til þess að vera heim­il­is­laus. Hvernig sem því líður, þá verður ekki tekið af Yakut að hann vekur máls á mik­il­vægum mála­flokki og gefur ákveðna inn­sýn inn í nöt­ur­legt lífið á göt­unni. Hlut­skipti heim­il­is­lausra er, eðli máls­ins sam­kvæmt, alltaf skelfi­legt. Hinn óblíði rúss­neski vetur er þó sér­stak­lega erf­iður and­stæð­ingur fyrir heim­il­is­lausa í Rúss­landi og hver dagur í raun bar­átta upp á líf og dauða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár