Eitt sinn hippi...

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók­ina Stúlka með höfuð, sem Þórunn Jarla Valdi­mars­dóttir skrifar og gefin er út undir merkjum JPV.

„Maður fyr­ir­gefur með munn­inum, stundum með hug­anum. Aldrei i hjart­anu, það er svo villt. Ég verð reið nú er ég skrifa þetta, því að barnið í mér er sko alls ekki búið að fyr­ir­gefa. Það er þó nógu kristi­legt til að skíta þær ekki út með því að líma illsku­mið­ann á þær undir nafni. Hefnd­inni í mér langar þó að gera það, hún er þarna rétt við hjarta.“

Þórunn Jarla Valdi­mars­dóttir er ein­stök í íslenska rit­höf­unda­garð­inum. Frum­legur skáld­sagna­smiður en ekki síður frum­legur sagn­fræð­ingur sem leyfir hinum sér­stæða stílista sem leikur lausum hala í lygi­sög­unum hennar að setja mark sitt á fram­setn­ingu efnis sem stendur að öðru leyti föstum fótum í fræði­legum aga og við­ur­kenndum rann­sókn­ar­vinnu­brögðum.

Fyrstu bók­ina í þessum ævi­sögu­lega þrí­leik hef ég því miður ekki lesið, en Stúlka með maga (2014) þótti mér feiki­vel heppnuð að þessu leyti. Stíll Þórunnar, en kannski ekki síður afstaða hennar til bjást­urs og bresta fólks­ins sem hún skrifar um, setur einatt ferskan blæ á kunn­ug­lega hluti: ald­ar­fars­lýs­ingar, sam­skipta­máta og sið­ferð­is­við­mið for­tíð­ar­innar.

Þegar hún beinir stíl­vopnum sínum og lífs­sýn að sinni eigin ævi ger­ast aðrir hlutir.+

Samt er það líka í þess­ari bók, þetta ein­staka sjón­ar­horn hennar, þessi óstöðuga blanda af mjúkum skiln­ingi sem öll við­fangs­efnin mæta og hrein­skiln­is­legri hörku sem oft birt­ist og hverfur for­mála­laust. Gott dæmi til­vitn­unin hér að ofan, um ein­elti eða stríðni nokk­urra skóla­systra hennar. Hefði nokkur annar sjálfsævi­sögu­rit­ari afgreitt málið svona?

Einelti sem Þórunn kafar ekki í, lýsir varla og virð­ist reyndar hvorki hafa verið lang­vinnt né alvar­legt. Og það er ljótt að segja það en sá ævi­fer­ill sem lýst er hér virð­ist svo mjúkur og áfalla­mildur að það er á mörk­unum að hann sé í frá­sögur fær­andi. Allavega þykja mér hin ein­stöku grein­ing­ar­tæki Þórunnar malla í hæga­gangi lengst af, eftir dra­mað í kringum skilnað for­eldr­anna og þýð­ingu hans fyrir hina ungu stúlku.

Eitt af því sem mér hefur fund­ist svo magnað við sagn­fræði­bækur Þórunnar er sú til­finn­ing að hún sé að segja manni allt sem hún veit. Smá­at­riði um fatnað, mat og reið­tygi í Snorra frá Húsa­felli, upp­taln­ingar um inn­kaup for­feðra hennar í Ólafsvík í Stúlku með maga. Lykt. Hefur ein­hver sagn­fræð­ingur/rit­höf­undur okkar verið eins örlátur með og for­dóma­laus gagn­vart þef? Þessi hirðu­semi segir manni að öllum steinum hafi verið velt, auk þess sem frá­sagn­irnar af smælk­inu fylla mynd­ina.

Hér hefur Þórunn eðli máls sam­kvæmt allt annan aðgang að við­fangs­efni sínu. Fyrir vikið fáum við til­finn­ingu fyrir miklu meira „vali“, að margt sé ósagt. Það er tiplað á tánum í frá­sögn­inni. Allir eru meira og minna fal­legir og dásam­legir, syst­urnar ynd­is­legar, vin­irnir upp til hópa vitr­ingar. Elsk­hug­arnir prúð­menni.

Sem er fábært. Örugg­lega satt. Þórunn nýtur þess að segja frá þessu öllu, maður heyrir hana skríkja stíl­rænt þegar hún rekur kyn­lífs­vakn­ingu sína, og sýtir fal­lega ógripin tæki­færi í þeim efnum. Eins var gaman að sjá hið marg­um­skrif­aða við­fangs­efni „borg­ar­barn fer í sveit“ tekið Jörlu­tökum. Og Mexíkó, sem hefði auð­veld­lega getað enst henni heila bók, finnst mér. Auðvitað er hér ferskur tónn í þeirri lýs­ingu tíma­bils­ins sem allar minn­inga­bækur jafnladra hennar eru smám saman að skapa í sam­ein­ingu.

En lengst af vantar við­námið. Tog­streitu efnis og frá­sagn­ar­máta. Fjar­lægð­ina sem gefur gild­is­dómum og grein­ingum vigt. Lífs­háska? Ekki það að ég óski eftir meiri erf­ið­leikum í for­tíð höf­undar. En að hásk­anum fjar­ver­andi hefði hún þurft að kafa dýpra. Þrengja sjón­ar­hornið. Mögulega setja styttra tíma­bil undir smá­sjána.

Aldrei verður Stúlka með höfuð samt minna en skemmti­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár