Það sem þú manst ekki skaðar þig

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók Auðar Jóns­dóttur, Stóra skjálfta, sem gefin er út undir merkjum Máls og menn­ingar.

Hvilík grunn­hug­mynd!

Ung floga­veik ein­stæð móðir fær þrjú alvar­leg flog og upp­sker eyður í minni sitt. Þegar hún hefst handa við að fylla í þær með hjálp vina og fjöl­skyldu kemur í ljós að það var fleira en flogin sem hafði máð út minn­ingar. Sár og mis­kunn­ar­laus for­tíðin laum­ast að Sögu inn um þær glufur sem hún neyð­ist til að opna til að end­ur­heimta líf sitt.

Það flækir líka ferlið að hún treystir eig­in­lega engum fyrir sanneik­anum um minnis­leysið, aðal­lega af ótta við að þær upp­lýs­ing­arnar svipti hana for­ræði yfir barn­inu, á sama tíma og hún ótt­ast hugs­an­legar afleið­ingar ástands­ins fyrir öryggi drengs­ins. Eðlilega.

Það tók Stóra skjálfta all­nokkra kafla að kló­festa athygli mína til fulls. Meðan Saga er á valdi frumrugls­ins þurfti smá aga til að elta hana um óreið­una. Eins finnst mér Auður stundum neyð­ast til þess fyrstu köfl­unum, plotts­ins vegna, að sveigja raun­sæi sam­tala nokkuð hressi­lega í þágu spennu­við­hald­andi upp­lýs­inga­gjafar.

En svo hægist um, og um leið og Auður byrjar að púsla saman fjöl­skyldu­mynd Sögu og for­tíð hennar blómstr­aði bókin og fljót­lega var ég kom­inn á kaf í eina af bestu bókum Auðar og – fyrir vikið aug­ljós­lega – einn af öldu­toppum flóðs­ins ‘15.

Þar leikur hinn stór­kost­legi sögurammi – sögu­hvati – lyk­il­hlut­verk. Floga­veikin og minnis­glöpin eru ekki bara tækni­brella höf­undar, heldur eru sífellt í huga sögu­hetj­unnar. Orsakir meins­ins og afleið­ingar, þýð­ing þess fyrir mögu­leik­ann á ham­ingju og ást. Skýring á sumu því sem hún kemst að um for­tíð­ina. Ekki á öllu samt. Og auð­vitað kveikir svona saga enda­lausar vanga­veltur þannig þenkj­andi les­enda um hvernig sú smíð sem við köllum raun­veru­leika okkar, sögu okkar, er óhjá­kvæmi­lega óáreið­an­leg en samt það besta sem við höfum. Oftast.

En þó flogin og minnið séu í lyk­il­hlut­verki er það færni og hug­rekki Auðar sem per­són­usmiðs, til­finn­inga­könn­uðar og skrá­setj­ara sem gefa okkur inni­haldið. Öll fjöl­skylda Sögu og aðrir nákomnir eru mál­aðir skýrum litum af samúð og inn­sæi. Sam­skiptum og valdastreitu fjöl­skyld­unnar og hinum tragísku rótum hennar er frá­bær­lega lýst.

Sem og hjóna­bandi Sögu og enda­lokum þess, ham­ingju­stundum og hinum sáru árekstrum sem leggja það í rúst. Og hinum sér­kenni­legu ung­lingum sem rekur á fjörur Sögu og hlaupa undir bagga með henni þegar hún treystir sér ekki til að afhjúpa sig í veik­leika minnis­leys­is­ins fyrir sínum nán­ustu. Auður er með öllu þessu fólki í liði.

Hún er ekki flug­elda­stílisti. Stóri skjálfti er algert raun­sæ­is­verk. Lýsingar á sál­ar­lífi, sam­skipa­máta, sam­fé­lagi, allt trú­verð­ugt, jarð­tengt. Hér ger­ist ekk­ert sem ekki gæti gerst, hefur gerst, er lýst með hvers­dags­legum orðum á stæla­lausu máli. Fram­vinda bók­ar­innar er skýr, þegar frá­sögnin hleypur útundan sér á það sér raun­sæ­is­legar skýr­ingar í ferða­lagi Sögu um for­tíð­ina. Stundum viðrar bók­mennta­fólk efa­semdir um fram­tíð hinnar „hefð­bundnu“ skáld­sögu. Erindi hennar og til­gang. Kannski er hann að finna í því sem situr eftir hjá les­anda sagna eins og Stóra skjálfta við bók­ar­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár