Að tyggja trefjar

Ein útbreiddasta upp­finn­ing allra tíma er tann­burst­inn. Þetta litla og bráð­nauð­syn­lega áhald, sem oft­ast gagn­ast eig­and­anum vel og lengi, stundum jafn­vel lengur en skyn­sam­legt er. En er ekki svo­lítið und­ar­legt að hugsa til þess að ein­hvern tíma á ein­hverjum stað í þró­un­ar­sög­unni varð fyrsti tann­burst­inn til? Líklega var það lítið annað en gróft strá eða lítil grein sem not­and­inn fann ein­hvers staðar á slétt­unni, en með því að japla á þannig trefja­bögglum hefur for­feðrum okkar senni­lega tek­ist að ein­hverju leyti að halda tann­steini í skefjum. Hvaða augum ætli þeir hafi litið braut­ryðj­and­ann sem fyrstur fann grein, tók hana upp og tuggði? Hvort skyldi við­kom­andi per­sóna hafa verið álitin vís eða van­heil?

Víðs vegar um heim­inn tyggur fólk ennþá trefjar, en í hinum vest­ræna hluta að minnsta kosti hefur mikil fram­þróun átt sér stað. Sígildi burst­inn með stíf hár og lélegt hand­fang er enn til, en flestir tann­burstar líta nú orðið frekar út eins og háþróuð tækni­undur. Líkt og þeim sé ætlað að bjarga okkur frá eilífri útskúfun and­fýl­unnar. Sú ákvörðun að end­ur­nýja burst­ann leiðir því marga út í alls kyns vanga­veltur og erf­iða ákvarð­ana­töku. Hversu stíf eiga hárin að vera? Fer skaftið vel í hendi? Er það mátu­lega sveigj­an­legt? Stundum virð­ist úrvalið nær enda­laust þegar við stöndum frammi fyrir mörgum hillu­metrum af lokk­andi lögun og litum. Þá óska margir þess heitt og inni­lega að ein­hver hjálpi þeim við að ein­falda valið og jafn­vel lífið yfir­leitt. En er það ekki einmitt það sem hefur gerst? Er ekki í raun þegar búið að taka margar flóknar og krefj­andi ákvarð­anir fyrir okkur?

Allar þær vörur og áhöld sem við notum í dag­legu lífi eiga það sam­eig­in­legt að vera hönnuð á ein­hvern hátt. Þrátt fyrir reglu­bund­inn val­kvíða flestra eru tann­burstar þar engin und­an­tekn­ing. Nákvæm­lega hversu mjúk tann­bursta­hár eiga að vera til að geta talist mjúk hefur þegar verið ákveðið. Lengd hand­fangs­ins er engin til­viljun og sú stað­reynd að flestir burstar fást í 3 eða 4 ólíkum lita­sam­setn­ingum, tekur mið af stærð dæmi­gerðar fjöl­skyldu, svo hver og einn með­limur geti eign­ast bursta í sínum lit. Allt í kringum okkur eru hlutir sem þannig er búið að móta og laga að því lífi sem við ann­að­hvort lifum nú þegar eða langar til að lifa í nán­ustu fram­tíð. Til þess þarf meira en tommu­stokk og talna­grind.

Það er einmitt á því sviði sem starf hönn­uð­ar­ins aðskilur sig frá störfum margra ann­arra. Vissu­lega eru enn til vörur sem eru alger­lega útbúnar, fram­leiddar og mark­aðs­settar án aðkomu hönn­uða, en flestar skortir þær þessa óræðu og ef til vill svo­lítið til­finn­inga­tengdu vídd. Þann djúpa skiln­ing á upp­lifun not­and­ans af ein­hverju til­teknu vanda­máli, sem gerir það að verkum að hand­fangið er einmitt nógu langt, hárin af réttum stífleika og skaftið nákvæm­lega eins sveigj­an­legt og það á að vera. Það merki­lega er hins vegar að einmitt þegar vel tekst til við hönnun á hvers­dags­legum hlut, tökum við minnst eftir því hve mikið er í raun búið að hjálpa okkur. Vönduð hönnun er þannig orð­inn óað­skilj­an­legur hluti af þægi­legu lífi, án þess að við endi­lega tökum eftir því. Ef þau auknu lífs­gæði sem slík hönnun hefur veitt okkur yrðu hins vegar fjar­lægð á einu augna­bliki myndum við án efa taka eftir því, til dæmis næst þegar við burst­uðum tenn­urnar.

Hvort má bjóða þér, strá eða grein?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár