Rússneskir íþróttamenn gerðir útlægir

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur fjallar um ótrú­lega stöðu sem komin upp er í frjáls­í­þrótta­heim­inum eftir lyfja­hneyksli í Rúss­landi.

Rússar munu að óbreyttu ekki fá að taka þátt í frjálsum íþróttum á ólymp­íu­leik­unum í Rio de Janeiro á næsta ári. Ung hjón hafa komið fram með inn­an­búð­ar­upp­lýs­ingar um víð­tæka lyfja­notkun og yfir­hylm­ingu. Er loks­ins verið að skera upp herör gegn þessum mikla vágest sem hefur hrjáð íþrótta­grein­ina um ára­tuga skeið?

Uppljóstrunin

Þann 26. febr­úar árið 2013 fann Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bandið (IAAF) hlaupa­kon­una Yuliyu Stepanov seka um lyfja­mis­notkun og dæmdi hana í keppn­is­bann. Yuliya og eig­in­maður hennar Vitaliy leit­uðu þá til Alþjóða lyfja­eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar (WADA) þar sem þau lýstu víð­tæku sam­særi innan rúss­neska frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins. Vitaliy vann einmitt hjá rúss­nesku lyfja­eft­ir­lits­stofn­un­inni. Þau voru ekki tekin alvar­lega hjá WADA þannig að þau höfðu sam­band við þýska fjöl­miðla­mann­inn Hajo Seppelt sem hefur sér­hæft sig í umfjöllun um lyfja­mis­ferli í íþróttum.

Hann hitti þau í Rúss­landi og tók þar upp heim­ild­ar­mynd­ina Geheimsache Doping: Wie Russland seine Sieger macht (Leynd­ar­mál dóps­ins: Hvernig Rússland býr til meist­ara) sem sýnd var á þýsku sjón­varps­stöð­inni ARD í des­em­ber árið 2014. Í mynd­inni er því lýst hvernig íþrótta­fólkið notar lyf að ráði þjálf­ara sinna sem ásamt emb­ætt­is­mönnum og öðrum starfs­mönnum hylma yfir athæfið. Kepp­endur neyð­ast hálf­part­inn til þess að nota lyf því að ann­ars fá þeir ekki aðgang að bestu þjálf­ur­unum og bestu aðstöð­unni. Mútur og spill­ing koma einnig við sögu.

Myndin fékk mikla athygli og þá tóku ráða­menn WADA loks við sér. Nefnd var stofnuð, leidd af norska sér­fræð­ingnum Rune Anderson, og rann­sókn hafin á athæf­inu. Skýrsla þeirrar nefndar var kynnt 9. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem tekið var undir ásak­anir Stepanov-hjón­anna. Lyfja­mis­ferli og yfir­hylm­ing hefur átt sér stað um áraraðir og það gæti vel hafa haft áhrif á úrslit ólymp­íu­leik­anna í London 2012. Í kjöl­farið kall­aði Sebastien Coe for­seti IAAF til atkvæða­greiðslu og það var sam­þykkt með 22 atkvæði gegn 1 að banna Rússa frá öllum alþjóð­legum keppnum þangað til þeir hefðu tekið til hjá sér. Fimm manna nefnd var svo komið á fót til þess að fylgj­ast með og meta hvenær Rússar fá aftur að taka þátt á mótum.

Þetta þýðir að alls er óvíst hvort Rússar fái að taka þátt á næstu ólymp­íu­leikum. Nánast öruggt þykir að Rússar missi heims­meist­ara­mót ung­linga, sem halda átti í borg­inni Kazan á næsta ári.

Viðbrögðin

Viðbrögð stjórn­valda í Rúss­landi voru að venju snörp og hvöss og það flugu ásak­anir um póli­tískt sam­særi Vest­ur­veld­anna. Það heyrð­ust meira að segja raddir um að Rússar myndu alfarið snið­ganga ólymp­íu­leik­ana í Ríó. Síðan hafa öld­urnar aðeins lægt. Vitaly Mutko, íþrótta­mála­ráð­herra Rúss­lands, kvartar yfir brott­rekstr­inum sem hann kallar virki­lega ósann­gjarnan en segir jafn­framt að Rússar muni gera hvað sem er til að fá að taka þátt á ólymp­íu­leik­unum. Hann segir að þær skip­anir komi að ofan frá sjálfum Vladimír Pútín um að Rússar muni vinna með IAAF og WADA. Við­brögðin hafa verið enn harð­ari frá rúss­nesku frjáls­í­þrótta­fólki. Hlaupa­kon­urnar Kristina Ugarova og Tatyana Myazina hyggj­ast kæra bæði Stepanov hjónin og ARD sjón­varps­stöð­ina fyrir róg­burð.

Ugarova og Myazina eru meðal þeirra íþrótta­manna sem fjallað er um í skýrslu And­er­sens þar sem lagt er til að þær fái lífs­tíð­ar­bann frá íþrótt­inni. Raddupp­tökur sem Yuliya Stepanov tók og voru not­aðar í mynd Seppelts voru meðal ann­ars af þeim. Þær segj­ast þó ekki hafa verið að tala um ólög­leg efni heldur vítamín, amínó­sýrur o.fl. Ugarova ýjar einnig að því að ásak­an­irnar séu póli­tískt sam­særi. „Stepanov á vini í Ameríku, og okkur grunar að þau [hjónin] hafi verið ráðin sem útsend­arar. Þau bjuggu þar lengi. Af hverju fer stúlka allt í einu að ásaka þjóð sína?“

Ein fræg­asta frjáls­í­þrótta­kona heims, stanga­stökkvar­inn Yelena Isin­bayeva, er einnig myrk í máli. Hún segir bannið ósann­gjarnt og biðlar til IAAF að banna ein­ungis þá sem hafa svindlað en ekki allt liðið. Stepanov hjónin gerðu sér full­kom­lega grein fyrir því að líf þeirra yrði óbæri­legt í Rúss­landi í kjöl­far sjón­varps­út­send­ing­ar­innar. Þau hafa nú flúið til Kanada og beðið um póli­tískt hæli þar í landi.

Gamalt vandamál

Lyfja­mis­notkun hefur verið vanda­mál í frjálsum íþróttum um ára­tuga skeið. Frjálsar eru líkt og t.d. hjól­reiðar, lyft­ingar o.fl. ein­föld grein þar sem notkun lyfja getur haft mikil áhrif á úrslit. Lyfja­mis­notkun hefur verið síður áber­andi í flókn­ari íþrótta­greinum þar sem færni og tækni skipta meira máli. Í sumum íþrótta­greinum eins og körfuknatt­leik, fim­leikum, bad­minton o.fl., getur lyfja­notkun meira að segja verið hamlandi fyrir kepp­endur vegna þyngd­ar­aukn­ingar. Frjálsar íþróttir eiga því meira undir því að eft­ir­lit sé gott.

Mörg til­felli hafa komið upp á sein­ustu árum, meira að segja hjá heims­frægum og marg­verð­laun­uðum kepp­endum. Marion Jones, sem vann þrjú gull­verð­laun og tvö brons, í hlaupa­greinum og lang­stökki á ólymp­íu­leik­unum í Sydney árið 2000, var dæmd fyrir stera­notkun árið 2007. Hún missti öll verð­launin og var einnig dæmd til fang­els­is­vistar fyrir mein­særi. Tyson Gay, fyrrum heims­meist­ari í sprett­hlaupi féll á lyfja­prófi árið 2013 og var dæmdur í eins árs keppn­is­bann. Asafa Powell fyrrum heims­met­hafi í 100 metra hlaupi féll einnig á lyfja­prófi á sama tíma. Við erum að horfa upp á aft­ur­hvarf til átt­unda og níunda ára­tugar sein­ustu aldar þegar lyfja­notkun í frjálsum íþróttum var geig­væn­leg.

Þekktasta dæmið eru úrslit 100 metra hlaups­ins á ólymp­íu­leik­unum 1988 í Seoul, sem kallað hefur verið óhreina hlaupið. Sig­ur­veg­ar­inn Ben Johnson var sviptur gull­inu fyrir stera­notkun en í raun voru aðeins tveir kepp­endur, Calvin Smith og Robson da Silva, sem ekki féllu á lyfja­prófi ein­hvern tím­ann á ferli sínum. Meðal kepp­enda voru stórsjörn­urnar Carl Lewis og Linford Christie. Árið 1928 varð IAAF fyrst allra íþrótta­sam­banda til þess að banna notkun getu­auk­andi lyfja. Með­vit­undin hefur því verið lengi til staðar innan grein­ar­innar. Engu að síður hafa hin ýmsu frjáls­í­þrótta­sam­bönd og aðrir eft­ir­lits­að­ilar oft kosið að líta fram­hjá þessum vanda, bæði vegna spill­ingar og til að vernda ímynd sína.

Hreinsun

Vanda­málin sem fylgja lyfja­notk­un­inni eru gríð­ar­leg og þau má alls ekki van­meta.

Í fyrsta lagi eru það heilsu­fars­legu vanda­málin sem hljót­ast af því að sprauta sig með efnum sem mörg hver eru ólög­leg og lítið rann­sökuð. Alvar­leg­ustu dæmin koma frá Austur-Þýska­landi þar sem íþrótta­fólk sem keppti fyrir landið á átt­unda og níunda ára­tugnum hefur mátt þola miklar lík­am­legar afleið­ingar af kerf­is­bund­inni stera­notkun sem fór að miklu leyti fram án þeirrar vit­undar. Kúlu­varpar­inn Heidi Krieger neydd­ist til að breyta um kyn eftir miklar horm­ón­arask­anir.

Börn íþrótta­fólks­ins hafa mörg hver fæðst and­vana eða þá lík­am­lega eða and­lega fötluð. Lyfja­notk­unin getur einnig valdið dauða og t.a.m. liggur grunur á því að banda­ríska sprett­hlaupa­stjarnan Florence Griffith Joyner sem vann þrenn gull­verð­laun á ólymp­íu­leikum hafi lát­ist vegna stera­notk­unar.

Í öðru lagi eru það menn­ingin. Ef það við­gengst að íþrótta­fólk noti lyf og eft­ir­lits­að­ilar líti fram­hjá því þá verður það að sjálf­sögðum hlut. Ef börn alast upp við það að hetj­urnar þeirra noti lyf sjá þau að það sé eina leiðin til að ná árangri í íþróttum og geta sjálf leiðst inn á þá braut.

Í þriðja lagi er það svo heil­indi íþrótt­ar­innar sem er senni­lega mik­il­væg­asti punkt­ur­inn. Íþrótta­hug­sjónin byggir á heil­brigði og sann­girni. Ef fólk getur ekki treyst úrslitum er sú hug­sjón alger­lega fyrir bý. Margt er hægt að segja um aðgerðir IAAF og WADA nú og að ein­hverju leyti er gagn­rýni Rússa skilj­an­leg.

Lyfja­notkun hefur verið land­lægt vanda­mál hjá flestum þjóðum í langan tíma og hin ýmsu frjáls­í­þrótta­sam­bönd og jafn­vel IAAF hafa oft gerst sek. Sebast­ian Coe er nýtek­inn við for­sæti IAAF og ákvörð­unin er for­dæma­laus. Þjóðir hafa verið bann­aðar áður en Rússland er fyrsta þjóðin sem bönnuð er fyrir lyfja­mis­ferli. Í skýrsl­unni er einnig tekið fram að vanda­málið sé ekki ein­göngu bundið við Rússland og ekki ein­göngu við frjálsar íþróttir. Hér er því verið að skapa ákveðið for­dæmi. Hvert fram­haldið verður mun koma í ljós en hinn nýji for­seti IAAF virð­ist vera að draga línu í sand­inn gegn þess­ari miklu mein­semd eftir þessa að eigin sögn „skammar­legu upp­vöknun“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár