Það sem kom fyrir Jónsa

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók Jóns Gnarr, Útlagann, sem gefin er út undir merkjum Máls og menn­ingar.

Be exactly who you want to be, do what you want to do

I am he and she is she but you're the only you

- Crass, Big A Little A

Það er óhætt að segja að Jón Gnarr sé í góðum félags­skap í sínum sjálfsævi­sögu­skrifum. Sumar dáð­ustu bók­mennta­perlur okkar eru einmitt sjálfs­lýs­ingar fólks utan alfara­leiðar. Dægradvöl Bene­dikts Gröndal, Sama­staður Mál­fríðar Ein­ars­dóttur í til­ver­unni og bróð­ur­partur höf­unda­verks Þórbergs Þórð­ar­sonar koma upp í hug­ann. Að ógleymdum költ-klassíkerum á borð við Harmsögu ævi minnar og Einræðum Stein­ólfs í Fagradal.

Það er síðan eitt af ein­kennum hins smáa og skrítna sam­fé­lags okkar hvað ein­stigi sér­vitr­ings­ins, nörds­ins, útlag­ans, deilir mörgum gatna­mótum við alfara­leið­irnar, eins og saga Jóns Gnarr sýnir. En það er nú allt í þoku­hul­inni fram­tíð þegar þriðja og nýjasta bindi sjálfsævi­sög­unnar lýkur. Með end­ur­fæð­ingu.

Ekki er Jón nú stílisti á pari við ofan­nefnt fólk. Sá háttur hans að búta við­fangs­efni sín niður í örsmáa bita og velta þeim fram og til baka fyrir sér hefur bernskan sjarma, en verður líka þreyt­andi, efnið missir á end­anum bragð og áferð og nið­ur­stöð­urnar sjaldn­ast óvæntar eða spenn­andi. En samt. Þetta er hann. Jón er van­hæfur rit­höf­undur, en skrifar þessar ómót­stæði­legu bækur. Frá sam­svar­andi póli­tískum vinkli var Jón senni­lega alger­lega frá­leitur borg­ar­stjóri, þó hitt sé ekki síður satt að hann var stór­kost­legur borg­ar­stjóri og breytti sjón­ar­horn­inu sem við horfum á og metum stjórn­málin út frá. Til hins betra og von­andi til fram­búðar.

Jón hefur fyrir löngu áunnið sér rétt til að vera eins og hann vill. Og Útlaginn, þessi inn­sýn í dramat­ískan hluta til­urð­ar­sögu hans, er þrátt fyrir allt stagl og fag­ur­fræði­legt lág­flug snilld­ar­leg á þann ein­staka hátt sem við höfum – loks­ins – van­ist frá Jóni.

Fyrst og fremst er það hans eigin saga sem heillar. Bæði hið ein­staka, sér-gnar­ríska, en ekki siður hitt sem við þekkjum öll. Eða í það minnsta allir. Kyn­þroska­sagan sem er hér í fyr­ir­ferð­ar­miklum for­grunni er alger­lega óborg­an­leg lesn­ing, fyndin, sár og sönn. Komum betur að sann­gild­inu síðar. Tíð­ar­and­inn sem gegn­sýrir bæði dvöl­ina á Núpi, hina óborg­an­legu svall­ferð til Ísa­fjarðar og Reykja­vík­ur­tím­ann undir lokin, er alger­lega sann­fær­andi – um það getum við jafn­aldrar Jóns vitnað. Já og hin púrít­anska tón­list­arsmekk­vísi. Mikið tengi ég við þetta, þó ég hafi nú bara alist upp í for­eldra­húsum og aldrei sniffað lím. Hlustað þeim mun meira á Crass. Mikið gladdi það mig að rifja anar­kópönkið upp í þessum félags­skap.

En fyrr eða síðar þarf nú samt ein­hver sem er ekki Jón Gnarr að skrifa sagn­fræði­lega, yfir­veg­aða og pott­þétta bók um notkun hér­aðs­skóla­kerf­is­ins sem félags­fræði­legs, sál­ræns og ung­ling­a­refsi­legs úrræðis fyrir.

Þetta er ekki sú bók. Þetta er glóru­leys­is­bókin. Bókin um eft­ir­lits­leysið á vist­inni, frels­is­þrá ung­lings sem veit ekk­ert hvað hann á að gera með laus­ung­ina og frekar ískyggi­legt athafna­frelsi lækna­stétt­ar­innar, ef marka má einn umtal­að­asta kafla bók­ar­innar.

Hvað er satt í þess­ari bók? Er það aðal­at­riðið? Eða skiptir það engu máli ef sagan er góð? Þegar sögu­menn­irnir eru jafn sér á parti, og jafn heift­ar­lega umdeildir, og Jón Gnarr eru alla­vega fáir á ferli á milli­veg­inum sem fer aug­ljós­lega næst hinu rétta svari.

Ég veit það ekki. Mér finnst samt að sá sem lýsir hópnauðgun í ævi­sögu sinni og mætir í við­töl og talar um hvað reynslan af að skrifa bók­ina hafi verið erfið, þá verði höf­und­ur­inn að standa við stað­reynd­irnar. Þetta er ekki skáld­saga. Það var fleira fólk á Núpi sem hefur annað og betra að gera en að berja af sér það sem Jón kýs að krydda með sína mögn­uðu þroska­sögu. Ef það sem hann segir frá er ekki satt.

Ég veit ekk­ert um það. Ég les fram­hjá þessu og horfi á þessa maka­lausu mann- og ald­ar­fars­lýs­ingu og nýt þess að fá þetta ein­staka sjón­ar­horn á kunn­ug­legan tíma og ein­kenni­lega mann. Útlaginn er ein merki­leg­asta bók árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár