Úr deiglu harðneskjunnar

Þorgeir Tryggva­son mun fram að jólum skrifa um bækur. Hann tekur í dag fyrir bók Guð­mundar Brynj­ólfs­sonar, Líkvöku, sem gefin er út undir merkjum Sæmundar.

„Lækn­ir­inn minn vill meina að ég hafi rang­hug­myndir. En þá spyr ég á móti: Hvaða hug­myndir eru rangar. Hugmynd er hug­mynd. Ekkert annað. Hún er aldrei röng. Fugl situr í trénu sem ég sit undir. Það er skjór. Hann á ekki heima hér á landi. Hann er samt ekki rangur fugl.“

Skrímsli eru svo­lítið eins og froskar. Ef þau eru krufin hætta þau að hræða. Hætta að vera skrímsli. Enda hræðir sögu­hetja Guð­mundar Brynj­ólfs­sonar í Líkvöku les­and­ann ekki, þó ódæð­is­maður sé. Frekar að hún veki með manni samúð og skelf­ingu að aristótel­ískum hætti. Það er samt hæpið að kalla Eng­il­bert tragíska hetju. Fórn­ar­lamb eigin lífs er nær lagi.

Bókin rekur lífs­hlaup Eng­il­berts nokkuð skil­merki­lega. Ekki alltaf í tíma­röð, ekki til fulln­ustu og lík­lega er honum ekki fylli­lega treystandi, hvorki sem sann­söglum sögu­manni né heið­ar­legum grein­anda síns eigin skemmda sál­ar­lífs.

Fyrsti hluti bók­ar­innar rekur upp­vöxt drengs­ins, svona að mestu – tíma­röðin er ekki strang-krónólógísk í Líkvöku. Lýst er flökku­lífi hans með vinnu­kon­unni móður sinni úr einni hryll­ings­vist­inni í aðra, úr klóm eins kval­ara í aðrar verri. Reynsla sem mótar mann­inn og leiðir hann á end­anum á vett­vang síns eigin glæps með við­komu í heimi geð­veiki, neyslu, rang­hug­mynda og spít­ala­vistar. Glæps sem hann er knú­inn til að fremja í hefnd­ar­skyni fyrir annað ódæði gagn­vart konu, mögu­lega vegna þess hve varn­ar­bar­átta hans fyrir móður sinni og sjálfum sér reynd­ist gagns­laus.

Þessi fyrsti hluti er heil­steyptasti hluti bók­ar­innar, og sá áhrifa­rík­asti. Þar er lýst sam­fé­lagi harð­neskju og kulda á mjög sann­fær­andi hátt. Sam­fé­lagi sem við könn­umst við þó fæst deilum við nákvæm­lega reynslu með sögu­hetj­unum sem betur fer. Nið­ur­brot per­sónu­leika drengs­ins virð­ist manni næsta óhjá­kvæmi­legt, þrátt fyrir stund­ar­skjól sem hann nýtur hjá ferm­ing­ar­prest­inum sínum. Með nið­ur­brot­inu raknar frá­sögnin eðli­lega dálítið upp, þó alltaf haldi Guð­mundur athygli les­and­ans og öllum þráðum í hendi sér.

Þar skiptir miklu hvað rödd sögu­manns er skýr og sér­stök. Lesendur snjallra pistla Guð­mundar, sem hann birtir á Hring­braut.is, kann­ast vænt­an­lega við orð­heppn­ina og dálítið hryss­ings­legan húmor­inn sem Eng­il­bert hefur á valdi sínu þrátt fyrir allt. Senni­lega væri Líkvaka nokkuð ill­bæri­leg lesn­ing ef þessa nyti ekki við. Í bók­inni verða líka hvað eftir annað á vegi manns snjallar hug­leið­ingar sem venda fyrir manni algengum hug­myndum á hressandi hátt:

„Þegar allir ganga í takt en eng­inn gengur samt í sama takti og næsti maður, þá er ekki gengið í takt.“

Það verður að segj­ast að Guð­mundur teflir á tæp­asta vað með lýs­ingum á glæpnum sem sögu­þráð­ur­inn hverf­ist um, og eft­ir­mála hans. Óhætt er að segja að þær séu ekki fyrir klígju­gjarna og sú hugsun hvarflar að manni að sumt af því svaða­leg­asta vinni ekki alveg fyrir kaup­inu sínu við að auka sög­unni áhrifa­mátt og koma erindi hennar til skila.

Engu á síður er það mín til­finn­ing að Guð­mundur Brynj­ólfs­son hafi með Líkvöku stigið skref fram á við í höf­unda­ferli sínu. Fyrst og fremst með því að móta sinn sér­staka tón á skýr­ari, kraft­meiri og per­sónu­legri hátt en áður. Nú bíðum við spennt. Og pínu smeyk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár