Le Terrorisme - Saga hryðjuverka í Frakklandi

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur þræddi sig í gegnum blóði drifna sögu hryðju­verka í Frakk­landi.

Hryðju­verka­árás­irnar þann 13. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn eru mann­skæð­ustu fjöldamorð sem framin hafa verið í Frakk­landi síðan í seinni heims­styrj­öld­inni. Þetta fyrrum heims­veldi er þó ekki ókunn­ugt hryðju­verkum og þá sér­stak­lega ekki Par­ís­ar­borg sem oft hefur verið skot­mark slíkra árása. Ástæð­urnar hafa verið margar og mis­mun­andi. Hér eru raktar nokkrar af alvar­leg­ustu árás­unum.

Stríð í Alsír

Alsír var frönsk nýlenda frá miðri 19. öld til árs­ins 1962 þegar landið fékk fullt sjálf­stæði. Afný­lendu­væð­ing lands­ins var þó mun erf­ið­ari og blóð­ugri en ann­arra franskra nýlendna vegna þess hversu margir franskir land­nemar bjuggu þar. Á árunum 1954 til 1962 geys­aði mikið stríð í land­inu milli sjálf­stæð­is­hreyf­ing­ar­innar FLN, franska stjórn­ar­hers­ins og hreyf­ingar land­nem­anna OAS sem vildu halda Alsír innan franska heims­veld­is­ins. Þó að átökin hafi að lang­mestu farið fram í Alsír þá bár­ust þau að ein­hverju leyti til Frakk­lands.

Þann 18. júní árið 1961 var framið mann­skæð­asta hryðju­verk Frakk­lands þar til nú. OAS-liðar, ósáttir við við­leitni Charles De Gaulle for­seta til að ræða við FLN um sjálf­stæði Alsír, sprengdu hrað­lest sem var á leið frá Strasbourg til Parísar. Sprengj­urnar voru tengdar við lestar­teina sem höfðu einnig verið skemmdir. Lestin fór út af spor­inu, 28 manns lét­ust og yfir 100 særð­ust. OAS frömdu fleiri hryðju­verk innan landamæra Frakk­lands en ekk­ert nærri jafn alvar­legt og þetta. Franska lög­reglan olli þó mesta mann­fall­inu þegar hún réð­ist gegn alsírskum mót­mæl­endum þann 17. októ­ber 1961 í mið­borg Parísar. Deilt hefur verið um hversu margir féllu en ljóst er að þeir skiptu tugum.

Borg­ara­styrj­öld braust út í Alsír árið 1991 eftir að alsírski her­inn rændi völdum í kjöl­far kosn­inga­sig­urs isla­mista. Skæru­liða­hreyf­ingar spruttu upp en fyrrum nýlendu­herr­arnir Frakkar studdu stjórn­ina sem leidd var af áður­nefndum FLN. Ein af þessum hreyf­ingum kall­að­ist GIA og liðs­menn þeirra færðu átökin yfir til Frakk­lands um miðjan tíunda ára­tug­inn með nokkrum árásum. Á aðfanga­dag árið 1994 rændu GIA-liðar far­þega­flug­vél frá Air France og hugð­ust sprengja hana yfir París. Franski her­inn náði þó vél­inni á sitt vald á flug­vell­inum í Marseille. Sjö manns lét­ust í árásinni. GIA stóðu að fjöl­mörgum sprengju­árásum í París, meðal ann­ars í lest­ar­kerfi borg­ar­innar og við hinn fræga Sig­ur­boga. Sam­an­lagt lét­ust tugir í þessum árásum og hund­ruðir særð­ust. Borg­ara­styrj­öld­inni í Alsír lauk árið 2002 með samn­ingum.

Carlos sjakali

Ramírez Sánchez, betur þekktur sem Carlos sjakali, var og er senni­lega þekkt­asti hryðju­verka­maður 20. ald­ar­innar. Hann er fæddur í Venes­ú­ela en hefur aðal­lega verið tengdur marxísku hryðju­verka­sam­tök­unum PFLP frá Palest­ínu. Hann hefur einnig verið bendl­aður við leyni­þjón­ustur á borð við KGB í Sov­ét­ríkj­unum og Stasi í Austur-Þýska­landi. Carlos framdi voða­verk víða um heim þar til hann var hand­samaður í Súdan af frönsku leyni­þjón­ust­unni árið 1994. Hann gerði tvær árás­ar­hrinur á Frakk­land með 7 ára hléi. Þann 15. sept­em­ber 1974 sprengdi hann upp kaffi­húsið Drug­store Saint Germain. Tveir lét­ust og tugir særð­ust.

Sjakal­inn skipu­lagði í kjöl­farið árás á ísra­elska far­þega­flug­vél á Orly flug­velli í jan­úar 1975. Hryðju­verka­menn­irnir skutu á vél­ina með basúku og fleygðu hand­sprengjum að vél­inni en hæfðu ekki. Þá tóku þeir gísla á flug­vell­inum og börð­ust við lög­regl­una. Carlos lét svo myrða tvo lög­reglu­menn sem rann­sök­uðu árás­ina og þátt hans í henni. Eftir þessa hrinu flosn­aði upp úr sam­bandi Carlosar við PFLP og hann fór að starfa að mestu sjálf­stætt. Eftir að Frakkar hand­söm­uðu eig­in­konu Carlosar, hina þýsku Magda­lenu Kopp, hóf hann seinni hrin­una sem var mun blóð­ugri. Hún hófst í mars árið 1982 með spreng­ingu í hrað­lest sem fór milli Parísar og Toulouse.

Skot­markið var senni­lega borg­ar­stjóri Parísar (og seinna for­seti ) Jacques Chirac sem átti að vera í lest­inni en hafði taf­ist og misst af henni. 5 manns lét­ust og nærri 30 særð­ust í spreng­ing­unni. Um mán­uði seinna sprakk bíla­sprengja fyrir utan höf­uð­stöðvar arab­ísks dag­blaðs og á gaml­árs­dag 1983 voru bæði lest og lest­ar­stöð sprengd í Marseille. Ólíkt mörgum hryðju­verka­mönnum þá hefur Carlos sjakali aldrei stært sig af hryðju­verkum sínum og hann neitar þeim flestum. Erfitt er að segja til um hvort hann hafi komið að fleiri hryðju­verkum í Frakk­landi en ljóst er að minnsta kosti 16 manns hafa lát­ist og hund­ruðir særst í árásum hans þar. Carlos afplánar nú lífs­tíð­ar­dóm í Frakk­landi.

Armenskir þjóðernissinnar

Armensku hryðju­verka­sam­tökin ASALA voru mjög virk á átt­unda og níunda ára­tug sein­ustu aldar, eða þar til Sov­ét­ríkin lið­uð­ust í sundur og Armenía varð að sjálf­stæðu ríki. Árásum ASALA var þó aðal­lega beint gegn Tyrkjum. Tyrkir frömdu þjóð­ar­morð á Armenum árið 1915 og flæmdu þá úr Ottómana­veld­inu. ASALA kröfð­ust við­ur­kenn­ingar Tyrkja á ódæð­inu og einnig land­svæðis fyrir eigið ríki Armena í aust­ur­hluta Tyrk­lands. Samtökin störf­uðu út um allan heim og voru sér­stak­lega virk í Frakk­landi. Þeir réð­ust á og drápu marga tyrk­neska ræðis-og emb­ætt­is­menn, þar á meðal sendi­herr­ann Ismail Erez árið 1975.

Einnig sprengdu þeir ýmsa staði, svo sem kaffi­hús og ferða­skrif­stofur, sem voru í eigu Tyrkja. En þann 15. júlí árið 1983 komust ASALA í heims­frétt­irnar fyrir stór­fellda hryðju­verka­árás á Orly flug­velli í París. Öflug eldsprengja sprakk í ferða­tösku við inn­rit­un­ar­borð Turkish Airlines sem olli því að 8 manns lét­ust og 55 slös­uð­ust og brennd­ust illa. Þrír voru hand­teknir, þ.m.t. for­sprakk­inn Varoujan Gara­bedian sem fékk lífs­tíð­ar­dóm fyrir ódæðið. Hryðju­verkið á Orly flug­velli var þó mis­heppnað því að sprengjan átti að springa innan í far­þega­flug­vél á leið til Istanbul.

Mann­fallið hefði þá vita­skuld orðið mun meira. Auk þess voru ein­ungis tvö af fórn­ar­lömbum árás­ar­innar tyrk­neskir borg­arar. Engu að síður varð Gara­bedian dáður í heima­landi sínu. Þar söfn­uð­ust yfir ein milljón und­ir­skrifta til stuðn­ings þess að Gara­bedian yrði sleppt úr fang­elsi en í Armeníu búa aðeins um 3 millj­ónir manna. Honum var loks sleppt árið 2001 gegn því að hann færi beina leið til Armeníu og kæmi aldrei aftur til Frakk­lands. For­sæt­is­ráð­herra Armeníu tók á móti honum við heim­kom­una.

Le terrorisme

Íslenska orðið hryðju­verk nær ekki alveg utan um hug­takið le ter­r­orisme, sem einmitt fædd­ist í París í frönsku bylt­ing­unni þegar tug­þús­undir end­uðu í fal­l­öx­inni. Ógn og ótti er það sem hug­takið gengur út á. Írski þing­mað­ur­inn og heim­spek­ing­ur­inn Edmund Burke bein­þýddi hug­takið yfir á enska tungu og hefur því verið beitt í ýmsum til­gangi æ síðan. Það sem rakið hefur verið hér að ofan er aðeins brot af því sem Frakkar hafa mátt þola sein­ustu ára­tugi. Fjöl­margir hópar hafa framið hryðju­verk af annað hvort þjóð­ern­is­legum (Baskar, Kor­síku­menn, Bretónar) eða hug­mynda­fræði­legum (komm­ún­istar, anar­kistar, fas­istar, isla­mistar) ástæðum. Frakk­land var áður heims­veldi sem tók og tekur enn þátt í mörgum af helstu átökum ver­aldar. Sem stórir leik­menn á alþjóða­vett­vangi með mikil tengsl við flestar þjóðir hafa þeir einnig dreg­ist inn í átök sem koma þeim mis­mikið við. Því er ekki und­ar­legt að hryðju­verka­menn hafi í gegnum tíð­ina beitt sér þar og þá sér­stak­lega í Par­ís­ar­borg sem er tákn­mynd bæði fyrir franska heims­veldið og menn­ingu og einnig vest­ræna frelsis-, lýð­ræðis- og mann­rétt­inda­hug­sjón.

Hafa ber þó í huga að Frakk­land hefur sloppið betur en mörg önnur ríki. Í nágranna­rík­inu Ítalíu hafa um helm­ingi fleiri farist í hryðju­verka­árásum, aðal­lega komm­ún­ista og fas­ista, síðan í seinni heims­styrj­öld. Sam­an­lagður fjöldi fórn­ar­lamba í Frakk­landi nær heldur ekki 10% af þeim fjölda sem lést í árás­unum á Tví­bura­t­urn­ana 11. sept­em­ber 2001. Lang­flest hryðju­verk eru svo framin í þriðja heim­inum, aðal­lega Afríku og Asíu, og þar er mann­fallið marg­fallt meira. En það er ekki endi­lega mann­fallið og skemmd­irnar sem skipta mestu máli. Viðbrögð heims­ins við hryðju­verk­unum nú sýna glöggt hversu miklu máli þessar tákn­myndir skipta okkur. Árás á París er ekki ein­ungis árás á fólk, heldur árás á hug­sjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár